Tíminn - 04.05.1988, Qupperneq 7

Tíminn - 04.05.1988, Qupperneq 7
Miövikudagur 4. maí 1988 Tíminn 7 Djúpstæður ágreiningur í sambandi námsmanna erlendis: Hægri og vinstri vegast á í SÍNE Djúpstæður ágreiningur hefur búið um sig í SÍNE, sambandi íslenskra námsmanna erlendis, og á hann öðrum þræði rætur að rekja til kosninganna og sameiginlegs framboðs fimm frambjóðenda á vegum S.U.S. til stjórnar SINE, en einnig til óskaplegrar gremju í garð formannsins og framkvæmdastjórans, sem talinn er finna sér um of vettvang fyrir vinstri sinnaðar skoðanir sínar í stöðu sinni innan SÍNE. Meirihluti stjórnar SINE átaldi framboð þeirra fimm mjögharðlega, því að samráðið var haft án vitundar stjórnarinnar. í ályktun stjórnarinn- ar kemur fram, að meirihlutinn telji að „fimmmenningarnir" hafi hvatt útvalinn hóp SÍNE-félaga til að kjósa sig sem einn lista með sameig- inlega stefnuskrá og reynt þannig að tryggja sér kosningu með leynilegri kosningabaráttu, án þess að gefa mótframbjóðendum sínum tækifæri til að skýra sjónarmið sín. Framboð til stjórnar SÍNE hafi ætíð verið gerð á „einstaklings- grundvelli án flokkspólítískra af- skipta". Stjórn SÍNE hefur aftur á móti rakið þræði frambjóðendanna fimm til forystu Sambands ungra sjálfstæðismanna. Átölur stjórnar SÍNE beinast þó ekki gegn pólítískum stefnum ein- stakra frambjóðenda, heidur starfs- háttum þeim sem „fimmmennn- ingarnir“ viðhöfðu svo og utanað- komandi afskiptum SUS. Minnihluti stjórnar SÍNE, - Svan- hildur Bogadóttir, varaformaður -, lét bóka athugasemdir við ályktun- ina, þar sem talið er eðlilegt, að nokkrir frambjóðendur taki sig sam- an og sendi sameiginlega út bréf til kynningar á skoðunum sínum. Rúmri viku síðar var einróma samþykkt ályktun á vorfundi SÍNE í New Vork. að Svanhildur Bogadótt- ir, fulltrúi SÍNE í stjórn LÍN, nyti fyllsta stuðnings. Hún hafi sýnt það, með starfi sínu í New York, að hún láti ekki pólítíska flokkadrætti hafa áhrif á afstöðu sína í hagsmúnamái- um námsmanna erlendis. En formaður og framkvæmda- stjóri SÍNE, Kristján Ari Arason, fær harðar ákúrur og hér er komið að öðrum þætti ágreiningsins. Lýst er furðu á hunsun hans og meirihluta stjórnar SÍNE á vilja sumarráð- stefnu SÍNE um að efnt yrði til aukakosninga um laus sæti í stjórn- inni. „Rökin voru þau að það yrði of kostnaðarsamt. Samt sem áður hefur formaðurinn séð sér fært að leggja fjármuni félagsmanna í stofnun pólí- tískrar útvarpsstöðvar [hér ntun átt við RÓT], án þcss að bera það undir félagsmenn." Pá er Kristjáni Ara Arasyni borið á brýn, að vinna ekki fyrir launum sínum, nærri 100.000 krónum á mán- uði, því að hann sé ckki við á skrifstofu sinni á auglýstum viðtals- tímum og hafi þegið laun meðan hann dvaldi nokkra daga erlcndis í öðrunt erindagjörðum, en á vegurn sambandsins. Þá hafi fé runnið úr sjóðurn SÍNE til annars, en félagar í New York deildinni telja eðlilegt, að SÍNE greiði. „Við krefjumst þess að stjórn SÍNE fái tafarlaust óháða löggilta endurskoðendur til að yfirfara fjár- reiður og bókhald SÍNE vegna yfir- standandi starfsárs." segir í bréfinu frá New York. Að auki er talið „ógeðfellt" hvernig framkvæmda- stjórinn hefur notað málgagn sam- bandsins til „persónulegra svívirð- inga" um fólk á öndverðum meiði í stjórnmálum. Gæta beri þess, áð flokkapólítík sé ekki rckin í nafni SÍNE. „Kristján Ari Arason nýtur ekki trausts okkar ... Það er afdráttarlaus krafa okkar að hann láti tafarlaust af störfum sem framkvæmdastjóri SÍNE og segi af sér formennsku." Svo lýkur bréfi New York deildar SfNE. |»j Sjávarútvegssýningin í Glasgow: íslenska deildin sú langviðamesta Sjávarútvegssýningunni í Glasgow lauk nú nýlega og vakti íslenska sýningar- deildin verulega athygli, enda sú langvidamesta og tók hún yfir 600 fermetra af samtals 3.600 fermetra sýningarsvæði. Um 7.000 gestir sóttu sýninguna og var áberandi mikið af erlendum gestum víða að úr heiminum. 26 íslenskir framleiðendur tóku þátt í sýningunni, þar af 20 á sameig- inlegu svæði, sem skipulagt var af Útflutningsráði íslands, sem kynnti einnig ísland og íslenskar vörur í sérstökum upplýsingabás. Þetta er viðamesta sýning sem skipulögð hef- ur verið af Útflutningsráði og aldrei fyrr hafa jafn mörg íslensk fyrirtæki verið með sameiginlega sýningar- heild. íslensku fyrirtækin lýstu flest yfir ánægju sinni mcð árangurinn af sýningunni og mörg þeirra fengu pantanir á sýningunni, en venjan er að markaðsstörfin hefjist ekki fyrr en eftir að sýningu lýkur. Fyrirtækin eru nú að fylgja eftir samböndum sem öfluðust á sýningardögunum. Finnur Fróðason arkitekt, hann- aði íslensku sýningardeildina, en íslenskt fyrirtæki, Sýningarkerfi hf., annaðist uppsetningu sýningarkerf- isins og er það nýjung að íslenskt fyrirtæki annist slíkt verkefni erlend- is. Heildarkostnaður við sýninguna nam um 6 milljónum króna og veitti Iðnlánasjóður styrk sem nemur um helming þess kostnaðar. -SÓL Fjölgun nemenda í Iðnskólanum í Rcykjavík frá 1080 hefur verið á milli 70 til 80%, úr um 800 nemend- unt í tæpa 1400 og hefur vöxtur einkum verið í rafcindavirkjun og bókagerðargreinum, auk þess scm nýjar brautir hafa komið til sög- unnar. í samtali við Ingvar Ásmundsson skólastjóra Iðnskólans kom fram að þó svo að þessi fjölgun hefði orðið í rafcindavirkjun og bóka- gerðargreinum, þá væri hún í raun allt of lítil. Eftirspurnin hefur auk- ist mun meira en fjölgun nemcnda á þessum brautum, þannig að skól- inn annar engan veginn eftirspurn- inni, enda eru tæknibrcytingarnar örar og þær kalla á fleira fólk til þessara starfa. Hvað aðrar ástæður varðar, sagöi Ingvar að tölvubraut- in sem komið var á fót fyrir þrem árum og öldungadeildir í rafeinda- virkjun og bókageröargrcinum sem ckki voru áður, ættu mikinn þátt í þeirri fjölgun nemenda scm orðið hefur. Þó nokkur fjölgun hefur einnig orðið í bakara- og málaraiðn, sem einkum má rekja til þess að Iðnskólinn í Reykjavík ereini skólinn scnt er ineð verknám í þeim greinum. Ekki taldi Ingvar að ástæðuna fyrirfjölgun nemenda í iðngrcinum mætti rekja til þess að fólk væri oröið almennt leitt á bóknámi, heldur væri það aukin sókn í nám almennt, sem hefði átt sér stað, og hefði fjöldi þeirra sem taka stúdentspróf einnig aukist. Á vcguni menntamálaráðuncyt- isins er verið aö kanna möguleika á því að taka upp kennslu í hönnun fyrir bókagerðarfólk, sem er Itugs- uð sem framhaldsdeild fyrir þá dcild og cinnig hcfur verið rætt um að koma á aðfaranámi að flug- virkjanámi og hefur nefnd sem hafði það mál til umfjöllunar ný- lcga skilað áliti til ráðherra, en ólíklegt er að þessar greinar vcröi kenndar á næsta skólaári. - ABÓ Ingvar Ásmundsson skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík. lönskólinn í Reykjavík: 80% fjölgun á átta árum Afmælispartý hjá þingmönnumvorum l*að stendur mikið til hjá þing- mönnum vorum í sumar og fram á haust. Samkvæmt akademískri töl- fræðiúttekt hefur dropateljari komist að því að. hvorki fleirl né færri en 7 þingmenn halda upp á stórafmæli á þessu ári. F.ins og gefur að skilja er ríkisstjórnin þar í öruggum meirihluta. Steingrímur utanríkisráðherra Hermannsson brýtur ísinn þann 22. júní, þegar hann fagnar 60 ára afmæli. Ragnar allaballi Arnalds dregur síðan tappa úr flösku á fimmtugsafmæli, þann 8. júlí. Suðurnesjamaðurinn Jóhann Ein- varðsson fagnar fimm tugum 10. ágúst. Ljóðskáldið Ilalldór Blön- dal kncifar og fimmtugsskál 24. ágúst, cn rcykvíski borgarinn Guð- mundur Ágústsson fagnar 30 árum þann 30. ágúst. Á haustdögum byrjar ballið síðan á nýjan leik. Guðmundur H. Garðarsson, „óvinur SÍS nr. 1“, hcldur upp á sextugsafmæli 17. október og aldursforseti þingsins, Stefán Val- geirsson, fagnar 70 árunum þann 20. nóvember. Svo er það bara stóra spurningin. Skyldi Höskuldur í ÁTVR vita af öllum þessum mannfögnuðum? Blaðafulltrúinn fagnar40 árum Talandi um veisluhöld stór- menna á landi hér. Ingólfur nokkur Margeirsson, ritstjóri samvisku þjóðarinnar, Alþýðublaðsins, og þarmeð sérlegur blaðafulltrúi Jóns Baldvins, hefur sent eitt veglegasta boðskort, sem dropateljari hefur séð, út til fjöldans. Boðskortið atarna er ávísun á 40 ára afmæli Ingólfs laugardaginn 7. maí. At- hygli vekur að liinar svokölluðu „léttu veitingar" eru frain bornar frá og með kl. 16 og til 21. Veislustjórarnir eru ekki af lak- ari endanum, sjálfur Jón Baldvin ráðherra virðisauka og matarskatts og sjentilmaðurinn Flosi Ólafsson, mágur afmælisbarnsins. Að sjálfsögðu sendir dropatelj- ari góðar óskir í tilefni dagsins. Að krækja sér í nógu þægileg sæti Flugfélag Norðurlands flýgur milli Akureyrar og Reykjavíkur. Þegar svo verkfallið lcystist I Reykjavík fréttist að Flugleiðir myndu senda tvær flugvélar í verk- fallsbælið á Akureyri, þrátt fyrir mótmæli norðanmanna. Með fyrri flugvélinni norður fóru örfáir far- þegar, tveir cða þrír, en þeirri seinni aðeins einn. Þessi eini farþegi hafði keypt sér farmiða ineð Flugfélagi Norður- lands, en veigraði sér við að fljúga með lítilli Twin Otter vél félagsins, þegar í boði voru þægilcg sæti í Fokker vél Flugleiða. Hann skipti því flugmiðanum og hljóp um borð í Fokkerinn inót norðri og reiðuin verkfallsvörðuin. Þessi cini farþegi er vcrkalýðs- hctjan mikla, Svavar Gestsson. Liggur þér á, góði? Lögreglan í Kópavogi tók á dögunum hart á ökumönnuin, scm óku yfir leyfilegum hraðamörkum. Fjöldi bifreiða var stöðvaður á vegarkafla, þar scm heimilt er að aka á 50 km hruða, en voru á yfir 60 km hraða. Lögrcglumennirnir tveir höfðu ekki undan að sekta og báðu menn að In'ða rnlega í ein- faldri röð. Þegar maður einn kom hlaup- andi úr bíl sínum aftast í röðinni og bað um undanþágu, - honuni lægi á -, var honum svarað, að einmitt af þéim sökuin hefði hann verið stöðvaður. „Já, cn - konan niín er að fæða í aftursætinu." Lögreglan sá aumur á mannin- um, en ekki fer sögum af, hvort honum hafi verið sleppt eða aðcins hleypt frcmst í röðina. Áfengiö kom að notum Ingimar Fydal drekkur ekki áfcngi, cn þáði samt stóra vodka flösku, þcgar honum var gcfin hún. Nokkru síðar vantaði kunuingja hans dreitil og man þá eftir flösk- unni hjá Ingimar. Hann nær sam- bandi við Ingimar og spyr hann hvort hann geti fcngið lánaða vodka flöskuna. - Nei, segir Ingimar. - Hvað? Ertu búinn að lána öðrum hana, spyr kunninginn? - Nei, svarar Ingimar. - Af hverju viltu þá ekki lána mér hana? - Af því að ég er búinn að nota þetta sem terpentínu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.