Tíminn - 04.05.1988, Blaðsíða 16

Tíminn - 04.05.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn Miðvikudagur 4. maí 1988 DAGBÓK III III llll Mynd maímánaðar er „Hinir stefnulausu“eftirHelgaÞorgilsFriðjónsson Vortónleikar Tónlistarskólans Hinir árlegu vortónleikar Tónlistar- skólans í Reykjavík verða í Norræna húsinu í dag, miðvikudaginn 4. maí kl. 20:30. Nemendur skólans leika þar á hin ýmsu hljóðfæri og efnisskráin er fjölbreytt. Flutt verða verk eftir Chopin, J.S. Bach, Leopold Mozart, Frank Martin, Cesar Franck, Szymanowski o.fl. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heimill. Fundur í Kvenfélagi Kópavogs Kvenfélag Kópavogs heldur félagsfund í Félagsheimilinu fimmtudaginn 5. maí kl. 20:30. Gestir fundarins verða konur úr Kvenfé- lagi Seljahverfis. Fjölbreytt skemmtidag- skrá. MYND MÁNADARINS í Listasafni íslands er vikulega kynnt mynd mánaðarins. Mynd maímánaðar er „Hinir stefnulausu“ , eftir Helga Þorgils Friðjónsson, olíumálverk frá árinu 1987 og var myndin keypt til safnsins sama ár. Leiðsögnin „mynd mánaðarins" fer fram í fylgd sérfræðings, alla fimmtudaga kl. 13:30-13:45. Listasafn íslands er opið alla daga nema mánudaga kl. 11:00-17:00 og er kaffistofa hússins opin á sama tíma. PENNAVINIR: Tveir 18 ára í Nígeríu með áhuga á Islandi Bréf hefur borist frá tveim 18 ára piltum í Nígeríu, sem segjast hafa mikinn áhuga á að skrifast á við unga íslendinga af báðum kynjum, og segjast hafa mikinn áhuga á aðfræðast um ísland. Þeir heita: J.K. ABUDU P.O. BOX 179 EJIGBO, OYO-STATE NIGERIA W-AFRICA Abudu er 18 ára. Hann hefur áhuga á lestri, myndatökum, heimsfréttum, tónlist, landbúnaði og að skiptast á pen- ingum milli landanna ABUDU K. C0 P.O. BOX 616, ONIREKE, IBADAN NIGERIA W-AFRICA Þessi piltur segist hafa áhuga á klass- ískri músík, landbúnaðarstörfum, sjón- varpi, lestri tímarita, og hlusta á fréttir utan úr heimi og að skiptast á myntum landanna. DAFILOr88 22.-24 APRIL DAFILO ’88 - Frímerkjasýning í Odense Dagana 22.-24. apríl héldu danskir frímerkjasafnarar landssýningu sína DAFILO ’88. Sýninguna héldu þeir í Oðinsvéum í tengslum við 1000 ára afmæli borgarinnar. Til hennar var boðið sýnendum frá öllum Norðurlöndunum, þ.m.t. frá íslandi. Eftirtaldir íslendingar áttu söfn sín þar: Páll H. Ásgeirsson, og hlaut hann gyllt silfur fyrir safn sitt Flugpóstssaga Islands 1928-’45. Jón Egilsson, og hlaut hann brons fyrir safn sitt Hafnarfjörður 1894- 1950. Auk þessa sýndu nokkrir Danir söfn sfn um ísland. Illlll MINNING Valdimar Stefánsson Fæddur 1. ágúst 1896 Dáinn 25. apríl 1988 Valdimar Stefánsson, múrari, var einn þeirra manna, sem virðast sí- ungir, þó að árin færist yfir þá. Þess vegna kom andlátsfregn hans á óvart, þegar hún barst 25. apríl s.l. Hann var þá á 92. aldursári. Við höfðum þekkst lengi. Upphaf- lega leitaði ég til hans vegna múrverks, sem ég þurfti að fá unnið. Vakti það athygli mína, hvílíka alúð hann lagði í vinnu sína. Uppmæling og afköst voru ekki að hans skapi. Vandvirknin gekk fyrir öllu. Létt lund þessa manns og gamansemi, svo og eldlegur áhugi hans á félags- málum, varð þess valdandi, að góður kunningsskapur tókst með okkur, síðar varanleg vinátta. Valdimar var merkur maður og ævi hans viðburðarík. Hann fæddist 1. ágúst 1896 að Páfastöðum í Skaga- firði, sonur hjónanna Stefáns Guð- mundssonar og Sesselju Guðmunds- dóttur, en ólst upp hjá Jósafati Jónatanssyni, alþm., á Holtastöðum í Langadal, A-Húnavatnssýslu. Taldi Valdimar það eitt sitt mesta happ, því að Holtastaðir var kirkju- jörð og menningarsetur. Þar nyrðra lærði hann iðn sína hjá Jóhanni Kristjánssyni, byggingameistara, en fékk öll tilskilin réttindi síðar. Hann fluttist til Reykjavíkur 1918. Stóð hugur hans til viðskiptalífsins og lét hann innritast í Verslunarskól- ann. Þeim skóla var hins vegar lokað sama veturinn af völdum spönsku veikinnar, svo að ekki varð úr frek- ara námi. Gerðist Valdimar nú hjúkrunarmaður í hinum mann- skæða faraldri. Annaðist hann fár- sjúka og dauðvona á heimilum þeirra. Reynsla hans í þessu líknar- starfi mun hafa haft djúpstæð áhrif á hann, enda var honum oft tíðrætt um hana. Mestan hluta ævinnar var hann múrari eða verktaki, eins og hann hafði lært til. Valdimar kvæntist árið 1923 Guðrúnu Vilhjálmsdóttur frá Meiri- Tungu í Holtahreppi, Rangárvalla- sýslu. Þeim hjónum varð tíu barna auðið í 12 ára hjúskap. Tvíburar voru tvennir. Sjö barnanna eru enn á lífi. Hann missti konu sína ásamt tvíburum árið 1935, er hann var vitavörður á Hornbjargi. Atvinnu- leysi kreppuáranna var þá í hámarki. Missirinn var sársaukafullur fyrir tilfinninganæman manp, ekki síst fyrir þá sök, að hann neyddist til að koma sumum barnanna í fóstur. Af þeim, sem enn lifa, eru fjórir synir: Þráinn framkvæmdastjóri, Hörður aðstoðarforstjóri, Vilhjálmur gjald- keri olífufélags og Stefán eftirlits- maður hjá lögreglu, en þrjár dætur: Erla, Hrafnhildur og Ásdís, allar húsfreyjur, er síðar tóku upp störf utan heimilis. Segja má með sanni, að Valdimar hafi haft barnalán, en það er mesta lán, sem foreldrum getur hlotnast. Hann hafði slíkt lán reyndar í tvennum skilningi: Börnin öll eru gjörvuleg og góðum gáfum gædd, en einnig var samband þeirra við föðurinn ævinlega eins og best varð á kosið. Valdimar var ástríkur faðir, sem skildi börnin sín, var góður félagi þeirra og þekkti hinn gullna meðalveg í umgengninni við þau. Eg hefi kynnst tveim sonum Valdi- mars persónulega, þeim Þráni og Herði. Báða tel ég afburðamenn. Þráinn var framkvæmdastjóri Fram- sóknarflokksins í samfellt 36 ár og rækti það erilsama starf af óþreyt- andi elju og lagni. Hann varð síðar formaður Húsnæðisstjórnar. Hörð- ur var lengi lögreglumaður, einkum við umferðareftirlit, þar sem hann sýndi skyldurækni samfara einstakri ljúfmennsku, öðrum í hans stétt til fyrirmyndar. Síðari ár hcfir hann gegnt stjórnunarstörfum í Gunnars- holti. Valdimar Stefánsson var maður fremur lágvaxinn, grannur og skarp- Ieitur, en góðleiki skein úr augum hans. Gjarnan brá fyrir kímni. Hann hafði unun af tónlist og var sjálfur frábær söngmaður, enda þótt hann hafi ekki lagt söng fyrir sig. Hann unni líka bókmenntum og las mikið. Ég sakna hans og svo mun um alla, sem kynntust honum. Niðjar hans eru nú orðnir sjötíu og sex talsins. Börnum hans, öðrum afkomendum og aðstandendum votta ég samúð mína. Magni Guðmundsson Þá hefur hann afi loks fengið langþráða hvíld. Ævi hans var löng og oft á tíðum erfið og er ekki nokkur vafi á að hann er hvíldinni feginn. Þrátt fyrir að ævi hans hafi ekki alltaf verið dans á rósum mun- um við samt aðeins eftir honum sem léttum og hressum, hlátur og skemmtileg kímni var hans aðalein- kenni. Það var hátíð hjá okkur krökkunum þegar afi kom að heim- sækja okkur austur að Kornbrekk- um þar sem við bjuggum þá. Hann var þátttakandi í öllum okkar leikj- um, sýndi okkur klettaborgir huldu- fólksins, kenndi okkur að meta visku og speki krumma, kenndi okkur að þekkja og skilja náttúruna og leynd- ardóma hennar. f góðum veðrum fórum við göngutúr niður með bæjarlæknum eða upp á hæðina fyrir ofan bæinn, ef ekki viðraði til slíkra leiðangra létum við okkur nægja kapphlaup í kring um húsið. Það eru einnig ofarlega í minningunni frá- sagnir hans af sínum æskuárum á Holtastöðum. Það var því ekki að ástæðulausu að við hlökkuðum alltaf mikið til næstu heimsóknar afa. Hann leikur stórt hlutverk í bernsku- minningum okkar og fyrir það erum við honum þakklát. Það er mikilvægt þegar ævikvöldi lýkur og hinsta stundin rennur upp, að geta kvatt þennan heim með reisn og virðingu. Við sem yngri erum og njótum ávaxta ævistarfs þeirra kyn- slóða sem eru að hverfa höfum þá skyldu á herðum að gera þeim síðustu æviárin sem léttbærust og kveðjuna sem besta. Hansý, Hebba og Skúli Haukur. Utivist: Þjóðleiðin til Þingvalla Þjóöleiðin til Þingvalla 1. ferö kl. 20:00 í kvöld - Árbær - Langavatn. 1 Árbæ segir safnvörður frá Árbæ sem áninga- stað, en síðan er gengið inn á Reyn- isvatnsheiði að Langavatni. Létt ganga. „Þrjár verur aftan úr öldum“ mæta í gönguna. Brottför frá BSl, bensínsölu. Farmiðar (350 kr.) við bíl. Frítt er fyrir börn með fullorðnum. Einnig er hægt að mæta við Árbæjar- safn. Alls verður leiðin til Þingvalla farin í fjórum ferðum. Hallgrímskirkja—Starf aldraðra Á uppstigningardag, fimmtudaginn 12. maí, veröur farið að Odda á Rangárvöll- um og verið þar við messu. Kirkjukaffi verður drukkið á eftir. Skráning á þátttöku er þegar hafin. Nánari upplýsingar gefur Dómhildur Jónsdóttir í síma 39965. Geðhjálp: Hjónabandsfræðsla Geðhjálp heldur sinn síðasta fyrirlestur í vetur fimmtudaginn 5. maí. Birgir Ásgeirsson, sóknarprestur flytur erindi: “Hjónabandsfræðsia“. Fyrirlesturinn hefst kl. 20:30 á Geðdeild Landspítalans, í kennslustofu á 3. hæð. Fyrirspurnir, umræður og kaffi verða eftir fyrirlestur- inn. Allir eru velkomnir. Aðgangur er ókeypis. Fræðslustjóri ÚTVARP/SJÓNVARP lllUllllllllllllllllllllllllllll Rás I FM 92,4/93,5 Miðvikudagur 4. maí 6.45 Veðurfregmr. Bæn, séra Kristinn Ágúst Frið- finnsson flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 ( morgunsárið með Ingveldi Ólafsdóttur. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum dagblaðanna að loknu fréttayfirfiti kl. 8.30. Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 8.45 íslenskt mál. Guðrún Kvaran flytur þáttinn. (Endurtekinn frá laugardegi). 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund bamanna: „Sagan af þver- lynda Kalla" eftir Ingrid Sjöstrand. Guðrún Guðlaugsdóttir les þýðingu sína (3). 9.30 Dagmál. Umsjón: Sigrún Bjömsdóttir. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Óskastundin. Helga Þ. Stephensen kynnir efni sem hlustendur hafa óskað eftir að heyra. Tekið er við óskum hlustenda á miðvikudögum milli kl. 17 og 18 í síma 693000. 11.00 Fréttir. Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. Umsjón: Edward J. Frederiks- en. (Einnig útvarpað að loknum fréttum á miðnætti). 12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. Tónlist. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist. 13.05 I dagsins önn - Fangar. Umsjón: Sverrir Guðjónsson. (Einnig útvarpað nk. mánudags- kvöld kl. 20.40). 13.35 Miðdegissagan: „Sagan af Wlnnie Mand- ela“ eftir Nancy Harrison. Gylfi Pálsson les þýðingu sína (7). 14.00 Fréttir. Tilkynningar. 14.05 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Bjami Marteins- son. 14.35 Tónlist. 15.00 Fréttir. 15.03 Þingfréttlr. 15.20 Landpósturlnn - Frá Vestfjörðum. Umsjón: Finnbogi Hermannsson. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi - Mendelssohn, Brahms og Schumann. a. Inngangur og Rondó capricc- ioso eftir Felix Mendelssohn. Albert Semprini leikur á píanó. b. Tilbrigði op. 23 eftir Johannes Brahms um stef eftir Schumann. Ilja Humik og Pavel Stephan leika á tvö píanó. c. Fiðlusónata nr. 2 í d-moll op. 121 eftir Robert Schumann. Christian Ferras og Pierre Barbizet leika. 18.00 Fréttir. 18.03 Torglð - Neytendamál. Umsjón: Steinunn Harðardóttir. Tónlist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Tilkynningar. 19.35 Glugginn - Menning í útlöndum. Umsjón: Anna Margrét Sigurðardóttir. 20.00 Nútímatónlist. Þorkell Sigurbjörnsson kynn- ir hljóðritanir frá Tónskáldaþinginu í Paris. 20.40 Dægurlög milli stríða. 21.30 Sorgin gleymir engum. Umsjón: Bernharð- ur Guðmundsson. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Sjónaukinn. Af þjóðmálaumræðu hérlendis og erlendis. Umsjón: Bjarni Sigtryggsson. 23.10 Djassþáttur. Umsjón: Jón Múli Árnason. (Einnig útvarpaö nk. þriðjudag kl. 14.05). 24.00 Fréttir. 24.10 Samhljómur. Umsjón: Edward J Frederik- sen. (Endurtekinn þáttur frá morgni). 01.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. 01.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fróttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. 7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með fróttayfirtiti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00. Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblaðanna að loknu fróttayfiriiti kl. 8.30. Tíðindamenn Morgun- útvarpsins úti á landi, í útlöndum og í bænum ganga til morgunverka með landsmönnum. Miðvikudagsgetraunin lögð fyrir hlustendur. 10.05 Miðmorgunssyrpa. Umsjón: Kristín Björg Þorsteinsdóttir. 12.00 Fréttayfiriit. Auglýsingar. 12.12 Á hádegi. Dagskrá Dægurmáladeildar og hlustendaþjónusta kynnt. Sími hlustendaþjón- ustunnar er 693661. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Á milli mála. Umsjón: RósaGuðný Þórsdótt- ir. 16.03 Tekið á rás. Lýst leik Islendingaog Ungverja í undankeppni Ólympíuleikanna í knattspyrnu sem háður er í Búdapest. 17.45 Dagskrá. Hugað að mannlífinu í landinu: ekki ólíklegt að svarað verði spurningum frá hlustendum, kallaðir til óljúgfróðir og spakvitrir menn um ólík málefni. Sólveig K. Jónsdóttir gagnrýnir kvikmyndir. Sigríður Halldórsdóttir flytur pistil dagsins. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 íþróttarásin. 22.07 Af fingrum fram. - Eva Albertsdóttir. 23.00 Staldrað víð. Að þessu sinni verður staldrað við á Ðlönduósi, rakin saga staðarins og leikin óskalög bæjarbúa. 24.10 Vökudraumar. 01.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi til morguns. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. Fréttlr kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00, 10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00, 17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00. SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2 8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands SJÓNVARPIÐ Miðvikudagur 4. maí 18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir 19.00 Töfraglugginn - Endursýning. Edda Björg- vinsdóttir kynnir myndasögur fyrir böm. Umsjón: Árný Jóhannsdóttir. 19.50 Dagskrárkynning 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Nýjasta tækni og vísindi Umsjónarmaður Sigurður H. Richter. 20.50 Kúrekar í Suðurálfu (Robbery Under Arms) - Fyrsti þáttur - Nýr, ástralskur framhalds- myndaflokkur í 6 þáttum, gerður eftir sögu eftir Rolf Boldrewood. Leikstjórar Ken Hannam og Donald Crombie. Ævintýri eöalborins útlaga og félaga hans í Ástralíu á síðustu öld. Þýðandi Jón O. Edwald. 21.40 Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur Pétur Pétursson ræðir við hann. Þátturinn var áður á dagskrá þann 29. júní 1975. 22.55 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Miðvikudagur 4. maí 16.40 Stríðið milli kynjanna The War Between Men and Women. Gallharður piparsveinn snýr við blaðinu og fer að búa með fráskilinni konu með þrjú börn, hvolpafulla tík og fyrrverandi eiginmann í eftirdragi. Aðalhlutverk: Jack Lemmon, Barbara Harris og Jason Robards. Leikstjóri’: Melville Shavelson. Framleiöandi: Danny Arnold. Þýðandi: ÖmólfurÁmason. CBS 1972. Sýningartími 100 mín. 18.20 Kóalabjörninn Snari. Teiknimynd. Þýðandi: Sigrún Þorvarðardóttir. 18.45 Af bæ í borg. Perfect Strangers. Gaman- myndaflokkur um seinheppnu frænduma Larry og Balki sem deila íbúð í Chicago. Þýðandi. Tryggvi Þórhallsson. Lorimar._____________ 19.1919:19. Fréttir, veður, íþróttir, menning og listir, fréttaskýringar og umfjöllun. Allt í einum pakka. 20.30 Undirheimar Miami Miami Vice. Spennu þáttur með Don Johnson og Philip Michael Thomas í hlutverkum leynilögreglumannanna Crockett og Tubbs. Þýðandi: Björn Baldursson. MCA._________________________________________ 21.20 Baka fólkið People of the Rain Forest. Ný fréeðslumynd í 4 hlutum um Baka þjóðflokkinn sem býr í regnskógum Afríku. 1. hluti. Fram- leiösla og stjóm upptöku: Phil Agland. Channel 4 1988. 21.45 Hótel Höll Palace of Dreams. Ástralskur framhaldsmyndaflokkur. 8. hluti af 10. Þýðandi: Guðmundur Þorsteinsson. ABC Australia. 22.45 Jazz Jazzvisions. Þeir sem fram koma: Etta James, Joe Walsh, Albert Collins og George Wendt. Þýðandi: Ágústa Axelsdóttir. Lorimar 1987. 23.45 Capo Blanco. Cliff Hoyt ákveður að snúa baki við skarkala heimsins og flytur til Capo Blanco, lítils fiskiþorps við strendur Perú. En við komu bresks rannsóknarskips er kyrrð þorpsins rofin. Aðalhlutverk: Charles Bronson, Jason Robards ogóominique Sanda. Leikstjóri: J. Lee Tompson. Framleiðandi: Martin V. Smith. Lori- mar 1981. Sýningartími 90 mín. Ekki við hæfi barna. 01.20 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.