19. júní - 01.12.1928, Qupperneq 3
149
19. JÚNÍ
150
unum fékk bóudi einn í Pensylvaniu. Pað var á
nýrri aðferð til kornhreinsunar, sem kona Zianshafði
fundið upp. Rannsókn á þessu sviði, sem nær yfir
100 ára tímabil, sýnir, að konur hafa fengist við
uppfundningar á öllum sviðum alt frá hárnálum og
hártengum til endurbóta á fiugvélum eða ýmsu, sem
snertir landbúnað, verslun, námagröft, byggingaro.fi.
I listum, sem söngvarar, leikendur, hljóðfæraleik-
endur, rithöfundur, hafa konur staðið karlmönnum
fyllilega á sporði. í læknislistinni og hjúkrun sjúkra
skipa konur sæti sitt með sóma. Holtensk kona,
Elísabeth Kuyper, sem enn er á unga aldri, er nú
talinn með snjöllustu hljómsveitarstjórnendum beggja
megin Atlantshafsins. Hún hefir og áunnið sér frægð
sem tónskáld. Fremsti augnlæknir Egyptalands er
dönsk kona, frú Thomsen að nafni.
Mörg fleiri dæmi mætti nefna, en hér skal nú stað-
ar numið. Þeir, sem halda því fram, að eina starfs-
sviðið, sem hæfleikar kvenna geta notið sin, sé heim-
ilið og barnauppeldið, loka augunum fyrir marg-
ítrekuðum staðreyndum, sem sýna, að konur hafa
með alvörugefni og samviskusemi skipað sess við
hlið karlmanna á óendanlega mörgum starfssviðum,
og að öll líkindi eru til, að þeim konum fari fjölg-
andi, eftir því sem stundir líða fram og konurnar
finna betur og betur kraftinn í sjálfum sér.
Middagsstundin.
Sérhver kona, sem komin er yfir þrítugt, verður
að kosta kapps um að halda hug og hjarta hlýju
og lifandi og leggja stund á að halda við samúðar-
og mannúðartilfinningum sínum. Hún verður að láta
sér ant um velfarnað annara og vera æskulýðnum
kær og mikilsmetinn vinur.
Hún verður að halda líkama sínum fjörlegum og
hreyfanlegum og hafa gát á að yndisþokki æskunn-
ar hverfi ekki úr hreyfingum og línum líkamans. Hún
á að velja sér eitthvert málefni til rannsóknar eða
starfa, áhugaefni, sem hún getur gefið tómstundir
sínar, og sem gæti orðið henni til afþreyingar á kom-
andi árum. Sérhver kona, sem komin er á hið kyr-
látara tímabil æfinnar, verður að fá sér slíkt áhuga-
efni eða námsgreio. Mentuð, kurteis, ljúfmannleg
kona, sem gædd er gjöf yndisþokkans, getur ávalt
komist hjá því, að eiginmaður hennar sýni henni
tómlæti, nema því að eins að hún sé gift hreinasta
heimskingja. Tilfinningar konunnar gagnvart mann-
inum, vekja því nær alt af sömu tilfinningar gagn-
vart konunni af hans hendi.
Haltu kærleikanum lifandi í hjarta sjálfrar þín og
eiginmanns þíns. Sjái hann, að aðrir menn dáðst að
þér, þá verður honum enn ljósara, hve nauðsynlegt
honum er að halda áfram að vera elskhugi þinn.
Látir þú þér ant um að gera líf þitt bjart og glatt,
þá ber þér að velja hið gullna og örugga meðalhóf,
milli dapurrar og gáskafullrar háttsemi. Hugsaðu,
leslu og ræddu um þau efni, sem fræðandi eru og
skemtandi. Forðastu alla dagdóma, og vertu ekki of
kröfuhörð í garð annara. Pað kemur fryrir, að menn
neyðist til að kveða upp dóma um framferði annara,
en þegar svo ber undir, er réttara að hafa tal af
þeim, sem í hlut á sjálfum, og reyna þannig að leið-
rétta það, sem honum er áfátt, í stað þess að tala
við aðra um ávirðingar hans.
Pegar æfisól þín heflr náð miðdegishæðinni, er þér
holt að fylla hug þinn skínandi sólskini, gera líf þilt
auðngt góðrar uppskeru. og fjörga það með ljómandi
litum. Haltu huga þínum, hjarta þínu og likama þín-
um lifandi, vertu ástrík án þess að vera bjánaleg og
aðlaðandi án þess að vera ástleitin, hafðu augun opin
fyrir þörfum annara, án þess að gerast fröm og á-
leitin, og fræddu aðra, án þess að sýna af þér þekk-
ingarhroka.
Vertu göfug, Ijúfmannleg og ástúðleg.
Pað er aldrei of seint að byrja upp á nýtt. Hversu
skamt sem á veg verður komið, þá er þó lagt af
stað, og þótt aðkoma dauðans sjálfs rjúfi starfið,
getur það, sem hér er framkvæmt, komið að notum
í næsta lífi.
Pótt ég væri hundrað ára gömul, en hefði enn
fulla sálarkrafta og líkamsþrótt, mundi ég ekki hugsa
mig um eitt augnablik, heldur leggja hönd á nýtt
starf, sem gæfi mér von um betri lífskjör.
Hugsunin hefir ævarandi áhrif, og hver vonglöð
hugsun, sem i huganum fæðist, veldur sveiflum, sem
orðið geta til hjálpar öðrum, þótt þeir séu þúsund-
um mílna fjarri, já, jafnvel þeim, sem enn hafa ekki
séð ljós þessarar jaiðar.
Pað er heimskulegt að hafa áhyggjur af því að
menn geti ekki látið börnum sfnum auð og allsnægt-
ir í té. Ef vér athugum það mál, þá sjáum vér, hve
litla og skammvinna farsæld auðæfin veita, og hversu
sjaldan þau eiga nokkra hlutdeild í því, að leggja
undirstöður að styrkri skapgerð. Meiri hluti allra
sannra mikilmenna í heiminum, á hvaða starfsviði
sem er, er alinn upp í fátækt. — Ekki við örbirgð,
en á heimilum, þar sem ekki var hægt að veita sér
neitt fram yfir það nauðsynlegasta, og þar sem börn-
in komust snemma að raun um, að þeim var nauð-
synlegt að ryðja sér braut afeigin ramleik. Sjálfstæði,
sjálfstraust, orka og metnaður eru þannig til orðin.
Fátækt, að börn og konur þræli fyrir litlum laun-
um, er böl, sem uppræta verður. En næst þessu böli,
hygg ég gangi þaö, að vera borinn til of mikils auðs.
Hann er farartalmi á leiðinni að stóru marki, og
fæstum er hann til blessunar, þeirra, er hann hljóta.
Úr »New Thoughts«.
Ella Wheelor Wilcox.