19. júní - 01.12.1928, Síða 4

19. júní - 01.12.1928, Síða 4
151 19. JÚNÍ 152 Selma Lagerlöf, skáldkonan sænska, sem varð 70 ára 20. nóvember síðastl. K rosswnumsdál an. Helena hafði tekið mjög mikilvæga ákvörðun. Hún tók hana eilt kvöld, þegar hún óvenju snemma hafði boðið foreldrum sfnum góða nótt, og var komin upp á herbergið sitt. Ákvörðunin var tekin með þrjósku og mótþróahneigð æskunnar. Helena ætlaði að kveðja heiminn, ganga út af leiksviði lifsins, eins og hún gengi út úr danssal, þar sem enginn hafði viljað dansa við hana, snúa baki við húsráðendum og dansendum og ungu mönnunum, sem sýndu henni afskiftaleysi. Og það var nú einmitt einn ungur mað- ur, sem ákvörðun hennar átti að bitna á. Hún von- aði að fá að sjá það, þótt hún væri dáin, hve ótta- sleginn hann yrði, hversu hann mundi gráta og andvarpa, þegar honum yrði Ijóst, hvers hann var orðinn valdandi. Pví það átti hann sannarlega að fá að vita. Hún var búin að skrifa honum — vanhugsað bréf, fult ásakana. þess háttar bréf skrifar unga fólkið stund- um, helst á kvöldin, þegar dómgreindin á eigin gjörð- ir er sofnuð. Hún lagðí bréfið niður í tösku sina og fór að hátta. En hún gat ekki sofnað. Hún var svo gröm og ang- urvær, það særði hana svo mjög að geta ekki vakið kærleik hjá eina manninum, sem hún unni. Henni leiddist að liggja vakandi og fór því fram úr rúm- inu, til þess að ná sér i svefnskamt, sem hún átti í einu skrifborðhólfinu sínu. Skrifborðið var gamall og fallegur erfðagripur. Föðuramma hennar hafði átt það, en hún bjó nú á gamalmennaheimili og lét sér nægja með iúmið sitt, borðið, stólinn og prjónana. Helena leitaði í smáhólfunum, sem voru mjög mörg, en fann ekkert. Þá hrökk alt í einu upp fjöður og l tið leynihólf opnaðist. í því lá gömul bók. Það var létt bók og þunn, bundin í skinn. »Dag- bók« stóð með giltum stöfum á spjaldinu. Helena opnaði bókina, blaðsiðurnar voru útskrifaðar með smárri, nettri rithönd. Hún fór að blaða í bókinni og komst að raun um, að þetta var dagbók ömmu hennar frá æskuárunum, saga æskuástar hennar. Hún ákvað að lesa bókina. Sjálf var hún f flokki þeirra, sem þjáðist af sömu sorginni og amma hennar gerði á sínum líma, þeirri sorg, sem þjáir svo margar, en sem hver og ein heldur, að engin nema hún hafi að bera. Meðan hún las sá hún greinilega fyrir augum sér mynd gömlu sögunnar, sem amma hennar sagði með sinum eigin orðum. Og þelta var það sem Helena sá: Agnes var að sauma sessuborð með krosssaumi. Pað var hvít dúfa og umhverfis hana vöfðust rósir og gleym-mér-ei. Uppdráttinn bjó hún sjálf til, jafn- óðum og hún saumaði. Meðan hún sat róleg við sauma sína reikaði hugurinn víða. Hana dreymdi að ungur og glæsilegur maður dansaði við hana. Það var engin synda að láta sig dreyma slíkan draum. Fví sá, sem hana dreymdi um var ekki til annar- staðar en í fmyndunarafli hennar. Hana dreymdi að hún ferðaðist með unga manninum til suðlægra landa, til sólar og rósa. Agnes andvarpaði. Hún vissi sem var, að það fór ekki rétt vel á þvi, að hún, kona Janssons sútara- meistara og bæjarráðmanns væri að hugsa um þessa hluti. Hún bar mikla lotningu fyrir stöðu og nafn- bótum manns sfns, en mesta lotninguna bar hún þó fyrir bæjarráðmanninum sjálfum. Hann var fimmtug- ur, en hún bara seytján ára. Agnes hnyklaði biýrn- ar. Hún var að brjóta heilann um, hvernig hún ætti að haga sporunum, til þess að annar vængur dúf- unnar lyftist, eins og til flugs. Þá bar alt í einu skugga á saumana, sem hún hélt á. Agnes andvarpaði aftur. Hún mintist þess að mað- ur hennar átli ríka og tigna ættingja í Pýskalandi — kann ske einhver kæmi þaðan og sækti hana. Hún heyrði fólatak á gólfábreiðunni og leit upp. Andspæn- is henni stóð ungur maður, forkunnarfriður, klæddur ljósbláum riddaraliðsbúningi. Augnablik störðu þau hvort á annað. Svo hló hann þýðlega, en Agnes stundi við. Hún stakk nálinni i sessuverið, þar sem vængurinn átti að byrja, rétt eins og menn leggja miða innan í bók, við málsgrein, sem þeir ætla sér að muna. »Er það ekki bæjarráðmannsfrú Jansson, sem mér veitist sá heiður að tala við?« spurði gesturinn.

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.