19. júní - 01.12.1928, Page 5

19. júní - 01.12.1928, Page 5
153 19. JÚNÍ 154 »Ég er Nils Brumberg liðsforingi, og ég hefi þann heiður að vera bróðursonur bæjarráðmannsins«. »Ég hefi heyrt herra liðsforingjans getið«, sagði Agn- es og reyndi að hugsa sig um, en hugsanirnar stað- næmdust við það, sem hana var að dreyma. Hún roðnaði. »Ég skal nú strax kalla á manninn minn. Hann er niðri í sútaravinnustofunni«. »Mín vegna liggur ekkert á þvi. Ef ég annars geri ekki ónæði, langar mig mest til að vera hér kyr og njóta ánægjunnar af því, að hafa fundið svona töfr- andi — ja, föðursystir vill frúin líklega ekki láta kalla sig. Ég má kannske segja Agnes?« »Það verðum við að láta manninn minn ákveða», svaraði hún hálf hrædd. »Þá er ég hræddur um að það verði »föðursystir«, það er að segja ef ég ekki tek af ráðin. Ef ég man rétt er bæjarráðmaðui inn mjög strangur. En nú er hann auðvitað orðinn mildari, nú hefir hann um fleira að hugsa en sútaraiðnina eina. í*au töluðu saman um stund og hún sýndi hon- um saumana sina og útskýiði, að hún væri að sauma blóm og dúfur upp úr sér og eftir minni. »það er hræðilega vandrsamt«, sagði hún, »því nú er vetur og ekki hægt að ná í neitt blóm, ég er að reyna að fara eftir pressaðri gleyin-mér-ei, sem ég hefi geymt« og hún sýndi honum lítið hálf-eyðilagt blóm. »Sem frú Agnes geymir til minja«, spurði hann. »0, sei sei nei, ég hefi einskis að minnast«, sagði hún hlæjandi. — í sama bili andvarpaði hún, því hún mintist bæjarráðmannsins. Liðsforinginn sagði henni þá, að hann væri á leið til útlanda. 1 Þýskalandi átti hann efnaða ættingja — það hafði ráðsmaðurinn sagt henni — og þeir höfðu margboðið honum að koma. Og fyrst hann fór svo nærri, þótti honum réttast að nota tækifærið til þess að hitta ættingja sína hér i bænum. Hann gat ekki sagt annað en að sú ættrækni borgaði sig. »Nei, lítið á, þarna kemur maðurinn minn« sagði Agnes og benti á bæjarráðmann og sútarameistara Jansson, sem hægt og gætilega óð snjóskaflinn, sem lá fyrir innan garðshliðið. Og hún gerði það, sem henni aldrei fyr hafði dottið í hug, hún veifaði blíð- lega til hans hendinni út við gluggann. Athugid. .1 ú vlð árgangaskifilii verður kaupeml- um blaósins, Si'in eiga ógreiilda tvo eða flelrl árganga, gert aðvart iiin hvað þelr akulda. Ulaðið treyntir því fasflega, ad allir kaupeinlur þess vil|i sýna því skilvísi, og að enginn látl tll þess koma að nafn hans verði að stryka af kauiienclaskrá, sökum vansktla. skáldkonan norska, sem fékk bókraentaverðlaun Nobels fyrir árið 1928. Nýáiið var rétt afstaðið, en bærinn var ekki búin með allan hátíðafagnaðinn. Það var nóg um heim- boð og dansleika. Alstaðar var liðsforinginn fagri í boði með ráðmanninum og frú hans. Fyrri part dagsins voru Agnes og hann oft úti í garðinum. Þau fóru í snjókast og stríddu hvort öðru. Við og við hætti Agnes og hoifði á hann stórum augum. »Agnes, komdu, ég þarf að hvísla nokkru að þér«. »Nei, stattu kyr. ég er bara að horfa á hvað fall- egi blái einkennisbúningurinn þinn stingur af við hvítan snjóinn«. Það gekk hægt með saumaskapinn þessa dagana, en nokkur gleyin-mér-ei bættust þó við í krausinn utan um hvítu dúfuna. Væru þau ekki í heimboði, sat hún ein heima á kvöldin og saumaði. Maðurinn hennar sat hinu meg- in við borðið og fletti spilum. Þa dieymdi hana um ungan fríðau mann, sem sem leiddi hana um gólfið

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.