Tíminn - 23.07.1988, Blaðsíða 12
12
HELGIN
Laugardagur 23. júlí 1988
Atlavík:
Stuðmenn og Bubbi
á Atlavíkurhátíð
Útihátíð Austfirðinga um verslunarmannahelgina
verður í Atlavík. Ungmenna- og íþróttasamband Austur-
lands hefur sem fyrr veg og vanda að hátíðinni.
Þessar hátíðir hafa fyrir iöngu öðlast ákveðinn sess,
ekki síst fyrir tilhlutan Stuðmanna, sem undanfarin ár
hafa haldið þar uppi taumlausu fjöri á meðan menn hafa
getað töfrað fram tvist og tjútt.
Það kemur auðvitað einnig í hlut
Stuðmanna að sjá um fjörið í Atla-
vík að þessu sinni. Þá mun dótturfyr-
irtæki þeirra, Strax, einnig spila af
fingrum fram og njóta aðstoðar
fjögurra erlendra hljóðfæraleikara.
En fleiri stórstirni koma við sögu
í Atlavík að þessu sinni. Bubbi
Morthens kemur til með að plokka
gítarinn og syngja nokkra kunna
slagara. Grunur leikur á að honum
til fulltingis vcrði Karl Sighvatsson
og nokkrir kunnir þursar og
stuðmenn. Annar kassagítaristi,
Magnús Þór Jónsson, Mcgas, mun
og taka lagið. Þá mun cnn einn
þekktur söngvari, en nokkru yngri,
stíga á stokk og þenja raddböndin.
Sá heitir Bjarni látúnsbarki Arason
og verður hann með hljómsveit sér
til aðstoðar.
Af öðrum stórstjörnum úr heimi
íslcnskrar dægurtónlistar scm heiðra
gesti á Atlavíkurhátíð í ár má nefna
Bjartmar Guðlaugsson, austfirsku
hljómsvcitina SúEllcn og hljóm-
sveitina Nýdönsk, cn hún mun hafa
borið sigur úr bítum í hljómsveita-
keppninni í Húsafelli um vcrslun-
armannahelgina í fyrra.
Af öðrum uppákomum má nefna
að kraftakarlarnir Hjalti Úrsus
Árnason og Magnús Ver Magnússon
munu sýna ýmsar kraftalistir. Síðast
en ekki síst skal nefnd söngvara-
Prúðbúnir Stuðmenn og Strax-arar verða í Atlavík um verslunarmannahelgina.
( keppni, einskonar 88-látúnsbarka-
* keppni, sem hljómsveitin Strax sér
um.
Að sögn Magnúsar Ólafssonar,
framkvæmdastjóra UÍA, er búist
við að minnsta kosti um 4000gestum
á Atlavíkurhátíð að þessu sinni. Til
gamans má geta þess að talið er að
á fjölmennustu Atlavíkurhátíð
undanfarinna ára, árið 1985, hafi
komið um 7000 manns.
Magnús segir að aðstandendur
hátíðarinnar lcggi mikla áherslu á
öfluga löggæslu og eftirlit. „Um
löggæslu að þessu sinni sjá þrjú
aðildarfélög UÍA og kemur einn
sólarhringur í hlut hvers. Síðan verð-
ur björgunarsveit og hjálparsveit
skáta til staðar ef t.d. veðurguðirnir
reynast fólki erfiðir."
Aðgöngumiðinn að Atlavíkurhá-
tíð kostar 4.500 krónur og gildir
liann fyrir alla dagskrárliði, þ.m.t.
dansleiki föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld.
Að sögn Magnúsar Ólafssonar má
búast við að fyrstu tjaldgestir konri
á hátíðarsvæðið seinnipart fimrntu-
dags en langflestir koma þó síðla
föstudags. Hátíðinni verður slitið
með dansleik aðfaranótt sunnudags
en mótshaldarar halda úti þjónustu
til kl. 16.00 á mánudag, frídag
verslunarmanna.
óþh
Galtalækjarskógur:
Svæðisútvarp á
bindindismóti
í Galtalækjarskógi verður að venju bindindismót um
verslunarmannahelgina.
Umdæmisstúkan no. 1 og íslenskir ungtemplarar standa að
mótinu sem er nú haldið í 10. skipti í Galtalækjarskógi, en
áður höfðu sömu aðiiar staðið að bindindismóti að Húsafelli
um nokkurra ára skeið.
Boðið verður upp á ýmis skemmtiatriði á mótinu, jafnt fyrir
unga sem aldna.
Aðalhljómsvcit mótsins á palli
verður hljómsveit Birgis Gunnlaugs-
sonar auk þess sem Pálmi Gunnars-
son mun skemmta gestum.
í tjaldi verða unglingahljómsveit-
irnar Kvass frá Stykkishólmi og
Fjörkallar frá Reykjavík en auk þess
mun hljómsveitin Oue frá Dan-
mörku halda uppi stuðinu hjá ung-
lingunum. Oue stóð sig vcl í músik-
tilraunum og hefur slegið vel í gcgn
að sögn Guðna Björnssonar upplýs-
ingafulltrúa mótsins. Auk Oue frá
Danmörku leikur vestur-íslenskt
unglingatríó, Fine Country Kids á
mótinu.
„Þarna cr um stóran viðburð að
ræða fyrir okkur því erlendar hljóm-
sveitir hafa ekki leikið á bindindis--
mótinu áður,“ sagði Guðni.
Á mótið mæta einnig grínistarnir
Ómar Ragnarsson og Jóhannes
Kristjánsson eftirherma auk sterk-
asta manns heims, Jóns Páls Sig-
marssonar.
Fyrir ungu kynslóðina verður
Brúðubíllinn á svæðinu auk þess
sem haldin verður söngvarakeppni
og hjólreiðakeppni BFÖ. Skipulagð-
ir leikir og keppnir fyrir yngstu
börnin verðajafnframt á morgnana. •
Af öðrum dagskrárliðum á mótinu
nrá nefna ökuleikni BFÖ, helgistund
með Þorvaldi Helgasyni, fjöldasöng
sem Valur Óskarsson stýrir, varðeld
og flugeldasýningu. Leiktækin í
ævintýralandi verða á sínum stað
auk þess sem reist hcfur verið tívolí
fyrir börnin. Sérstaklega hefur verið
vandað til þessa í ár, að sögn Guðna.
Jafnframt má nefna að búið er að
koma upp svæðisútvarpi þar sem
leikin verður tónlist fyrir mótsgesti
og gefnar hagnýtar upplýsingar.
Gæsla á mótinu verður í höndum
mótshaldara en að sögn Guðna er
frekar um að ræða þjónustu við gesti
en eiginlega gæslu.
„Áður fyrr var gerð ströng leit að
áfengi á fólki. Nú gerist þess ekki
þörf þar sem fólk kemur hreinlega
ekki með áfengi. Það kemur mikið
með börn og hefur séð að þetta fer
ekki saman,“ sagði Guðni að lokum.
Aðgöngumiðinn á bindindismótið
kostar kr. 3.000. IDS