Tíminn - 06.08.1988, Síða 11
Laugardagur 6. ágúst 1988
HELGIN
11
Á fjórum fótum - Þegar þú skoðar nýjan eða notaðan bíl:
Skákaðu bílasalanum
og skítugum brellum
Nú fer stöðugt að harðna á dalnum fyrir þá sem selja
vilja bíla sína og mikið framboð af notuðum og nýjum
bílum ætti að herða enn kröfur kaupenda. Það er allt í
lagi að vera vandlátur því kaupandinn getur fengið
nær hvaða bíl sem hann óskar sér. Bílaþátturinn „Á
fjórum hjólum“ hefur því ákveðið að skríða á fjórum
fótum undir þann mikla vanda sem því er jafnan
fylgjandi að velja sér nýjan eða notaðan bíl. Auk þess
að styðjast við litla erlenda grein um þetta efni, reyni
'ég að benda á séríslenskar aðstæður í bílaheiminum.
Grunnurinn að atriðum þessum er unninn úr bókinni
„How to Beat the Car Dealer at His Own Game“ eftir
Lanny nokkurn Brum.
Áður fyrr í hestakaupum
Hér áður fyrr gerðu menn hesta-
kaup undir réttarvegg og fóru þá
að mestu eða öllu leyti eftir fyrstu
tilfinningu sem hesturinn gaf þeim.
Samband hests og manns var jú
það sem skipti síðan öllu máli ef af
kaupunum varð. Það var ekki alltaf
hægt að skipta hestum í góða hesta
eða slæmar bikkjur. Mikið fór
jafnan eftir því hvernig manni og
klár lynti. Þannig er þetta enn í
hestakaupum að stórum hluta.
Hestakaupendur af gamla skólan-
um fara enn eftir þessari tilfinningu
sem hesturinn gefur þeim. Margir
af þeim sem ég þekki til hafa þó
alltaf í heiðri einhverjar reglur
fyrir sig sjálfan. Einn fer að mestu
eftir augnaráðinu semhannmætir,
annar fer eftir hallanum á bógi
hestsins og eyrnastöðunni, sá þriðji
eftir skapgerðinni og svona mætti
lengi telja.
Þannig hefur það lengi tíðkast
að viðhafa einhverjar reglur við
hestakaup og þannig hafa málin
einnig þróast við bílakaup. Ef ég
ætlaði mér að kaupa gamlan
Bronco þá myndi ég hringja í
Einar vin minn og fá hann til að
skoða hann, vegna þess að hann
hefur einfaldlega átt mjög marga
Broncojeppa og alla fallega. Hann
veit líka hvar ryðið byrjar í þeim
bílum og hvar allir veiku punktarn-
ir eru í gömlumBroncóum. Sömu-
leiðis myndi ég tala við hann
Denna hér við hliðina á mér (SÓL)
ef ég yrði skyndilega gripinn ör-
væntingu og ætlaði mér að kaupa
eldgamla Fólkswagen bjöllu. Hann
veit hvað hefur bilað oftast í grænu
bjöllunni hans.
Hver með sinn veikleika
Þetta er ég að segja vegna þess
að allar bílategundir hafa sína
eigin veikleika. Þannig er ekki
hægt að setja fram einhlítar reglur
eða leiðbeiningar um það hvernig
hægt er að forðast mistök í bíla-
kaupum. Það er erfitt að koma
alveg í veg fyrir að notaði bíllinn
sem þú varst að kaupa fyrir lítinn
pening brotni saman á næstu gatna-
mótum frá bílasölunni.
Það er hins vegar hægt að setja
fram nokkuð algildar reglur um
það hvort nýr bíll úr kassanum á
að vera skoðaður. Hættan á
skyndilegum bilunum er þar hverf-
andi, þar sem þeir eru jafnan í
ábyrgð á einn eða annan hátt.
Einfaldar reglur úr hestakaupum
gilda samt ekki þar sem hér er ekki
um að ræða skepnu með sál, heldur
tæknilegan skapnað mannanna.
Kaupið ekki óséð
Hér hef ég því ákveðið að létta
almennum kaupendum hluta af
lífsins amstri og gerast svo djarfur
að setja upp beinagrind að leið-
beiningum. Fyrst koma leiðbein-
ingar sem geta átt við notaða bíla
jafnt sem nýja, en síðan koma
nokkrir punktar sem eiga við not-
aða bíla sérstaklega.
1. f fyrsta lagi er nauðsynlegt að
fá að reynsluaka þeim bíi sem þú
ætlar að kaupa, en kaupa hann
ekki í gegnum síma eða óséð eins
og það er kallað af frægum hesta-
kaupmönnum.
2. f þessum reynsluakstri er rétt
að krefjast þess að fá að setja
bílinn sjálfur í gang. Láttu ekki
sölumanninn hita hann upp fyrir
þig. Þanniggeturðufengiðtækifæri
til að reyna hann kaldan. Sé blönd-
ungi eða eldsneytiskerfi áfátt kem-
ur það best í Ijós með þessu móti.
3. Vertu viss um að sætin séu
þægileg fyrir þig og að stýri og
annar stjórnbúnaður sé allt innan
góðrar seilingar.
4. Rétt er að skoða öll tæki og
mæla mælaborðsins vel. Athugaðu
hvort einhver glampi myndast á
mælunum í dagsbirtu eða við bíl-
ljós bíla sem þú mætir og hvort þú
sjáir vel á öll tæki.
5. Gáðu vel að útsýni og blindum
hornum í bílnum. Allir bílar eiga
sín blindu horn en þau eru misjafn-
lega slæm. Verstu hornin eru jafn-
an að aftan. Besta leiðin til að átta
sig á þessu er að bakka hægt út af
bílastæði og sjá hvort þau eru til
trafala.
20 mín. reynsluakstur
6. Prófaðu bílinn f minnst tutt-
ugu mínútur og reyndu að aka við
svipaðar aðstæður og þú ekur alla
jafna. T.d. er gott að aka í þéttri
borgarumferð og hratt á þjóðvegi,
ef þú ætlar að nota bílinn á þann
hátt. Einnig er nauðsynlegt að
finna malarvegkafla ef þú vilt geta
notað hann til sveita.
7. Reyndu bílinn við breytilegar
aðstæður. Reyndu að hitta á vegar-
kafla með kröppum beygjum og
holóttan líka. Þannig sérðu hvort
bíllinn á við einhver fjöðrunar-
vandamál að glíma.
8. Gakktu úr skugga um að
bíllinn hafi yfir nægilegu vélarafli
að ráða til að geta aukið hraðann
af nægilegu öryggi á þjóðbrautum
okkar. Vélarafl er nauðsynlegt
þegar komið er inn á akbrautir þar
sem hraðinn er meiri en á hliðar-
brautinni. Þá þarf að vera hægt að
auka hraðann snögglega til að
valda ekki óþarfa umferðarhættu.
Þetta á sérstaklega við þar sem
hliðarbrautir renna inn á miklar
aðalbrautir í hálfgerðum aðrein-
um.
9. Skoðaðu líka umboðið fyrir
bílnum. Kannaðu hvort hægt er að
fá varahluti og þá á hvaða verði. í
þessu sambandi er einnig rétt að
hafa í huga hvemig hægt verður að
selja bílinn aftur. Fellur hann hratt
í verði eða er hann einn af þessum
stöðugu ömggu bílum í endursölu?
Þetta er jafnan með stærstu fjárút-
látum hverrar fjölskyldu eða ein-
staklings.
10. Hverju eyðir hann og hvernig
eru tölurnar yfir eðlilegan rekstur?
Núorðið er farið að gefa upp tölur
frá framleiðanda um bensíneyðslu
við misjafnar kringumstæður. T.d.
er gefin upp eyðsla við akstur á 90
km jöfnum ferðahraða og ejnnig
eyðsla við blandaðan innanbæjar-
akstur (urban cycle, ef upplýsingar
eru ekki á íslensku).
Gamlar brellur og nýjar
Ef þú ert að skoða notaðan bíl
með það fyrir augum að kaupa
hann, getur verið gott að hafa
þetta í huga líka:
1. Áður en þú gangsetur bílinn
er gott að opna vélarlokið (húddið)
og opna lokið á vatnskassanum.
Mundu að vélin verður að vera
alveg köld. Strjúktu fingri ofan í
vatnskassastútinn og gáðu hvort
þú verður var við ryð. Ryðgaðan
vatnskassa getur þurft að endur-
nýja fyrr en varir.
2. Meðan þú ert enn undir
húddinu er rétt að gaumgæfa ýmis
samskeyti og bolta vélarinnar, því
þar gætu leynst vísbendingar um
olíuleka. Aktu svo bílnum úr þeim
stað sem hann stóð á og hugaðu að
því hvort þar sé að finna ferska
olíubletti eftir leka.
3. Athugaðu undirvagninn. Ef
hann hefur verið ryðvarinn nýlega
eða settur í olíuúðun rétt fyrir
sölu, getur það bent til þess að
verið sé að fela olíuleka. Kauptu
aldrei bíl sem hefur verið ryðvarinn
með þessu móti viku fyrir sölu.
4. Prófaðu nú bensíngjöfina og
bremsupedala. Vertu vel á verði ef
pedalagúmmíin eru slitin upp og
járnið sést í gegn. Það gefur þér
vísbendingu um að bíllinn sé e.t.v.
eldri en kílómetramælirinn segir.
Ef gúmmíin eru hins vegar glanna-
lega ný, getur það verið vegna þess
að skipt hefur verið um þau til að
fela háan aldur farartækisins.
Gamalt trikk.
Vinur í raun
5. Þegar þú reynsluekur bíl,
reyndu þá að fá vin þinn eða vinu
til að aka á eftir þér, ef hægt er.
Hann getur séð hvort bíllinn leitar
til annarrar hliðar eða hagar sér
eins og honum sé ekið lítillega út á
hlið. (Svona eins og hundarnir
hlaupa). Slíkur galli bendir ein-
dregið til skemmda á grind eða til
tognunar í fjöðrunarbúnaði.
6. Vinur þinn getur einnig gætt
að því hvernig reykurinn er á litinn
sem kemur frá útblástursrörinu.
Korni litaður reykur eða pústrar
frá rörinu þegar gefið er inn,
bendir það til þess að vélin brenni
olíu í óeðlilegum mæli.
7. Gamalt bragð prangaranna til
að koma út úrbræddum bíl var
gjarnan að sáldra litlu magni af
fínrifnum tréhefilspæni niður í vél-
arolíuna. Þetta kæfði úrbræðslu-
hljóðið og þétti vélina nægilega
fram yfir svikin og er erfitt að sjá
við því. Þú skalt því fara með
bílinn á vélarstillingarverkstæði og
láta þjöppumæla vélina.
8. Þegar þú reynsluekur bílnum
á hraðbrautum með mörgum ak-
reinum, skaltu skipta um akreinar
á eins miklum hraða og leyfilegt er
og þú ræður við. Ef farartækið
leitast við að taka völdin og þú að
missa stjórn- á því, getur eitthvað
verið að höggdeyfunum. Eins getur
slit í öðrum hlutum fjöðrunarbún-
aðarins verið farið að gera vart við
sig með þessu móti.
9. Skiptu oft um gíra ef bíllinn
er beinskiptur til að sjá hvort þeir
eru slitnir. Eins skaltu skipta bíln-
um niður í læstu gírana ef um er að
ræða sjálfskiptan, því þá finnurðu
hvort skiptingin snuðar.
10. Á stóru opnu svæði getur
verið gott að gefa vel f og bremsa
hastarlega. Þannig prófarðu
bremsurnar. Bíllinn á ekki að
renna til hliðar, heldur beint
áfram. Ástigið á bremsurnar á ekki
að vera lint eða gúmmíkennt. Svo
áttu að geta hemlað án þess að
beita til þess öllum kröftum.
Gangi ykkur svo allt í haginn og
látið nú reyna á þolinmæði bílasal-
ans eða annarra seljenda nýrra bíla
eða notaðra. Það eru margir um
markaðinn og nóg framboð af
farartækjum. Það ætti að styrkja
stöðu kaupenda ef hagfræðilögmál
geta einhvern tíma virkað eins og
þeim er lýst í bókum. Kröfumar
sem kaupendum ber að hafa í huga
er að vera vandlátir og láta reyna á
skynsemi og þolinmæði við far-
skjótavalið í framtíðinni.
Kristján Bjömsson