Tíminn - 20.09.1988, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 20. september 1988
Tíminn. 3
Vika liðin frá sögulegum fundi Fríkirkjunnar, en stjórnin situr þrátt fyrir vantraustið:
Svar við vantrausti að
prestarnir verði tveir?
Stuðningsmenn sr. Gunnars
Björnssonar, fríkirkjuprests, telja
eðlilegt að Gunnar geti þegar næsta
sunnudag boðað Guðs orð í barna-
messu og almennri messu í Fríkirkj-
unni við Tjörnina. Vilja þeir nú
vekja athygli á því að heil vika er
síðan safnaðarfundur lýsti uppsögn
prestsins ógilda og samþykkti enn-
fremur vantraust á stjórn safnaðar-
ins. Tíminn hefur fyrir því heimildir
að stjórn safnaðarins íhugi að ráða
ekki sr. Gunnar til starfa að nýju,
fyrr en gengið hefur verið frá því að
sr. Cecil Haraldsson fái einnig að
vera prestur í Fríkirkjunni í Reykja-
vík. Miðað við höfðatölu er söfnuð-
urinn í meðallagi stór í samanburði
við þjóðkirkjusöfnuði í Reykjavík
þar sem einn prestur þjónar. Vegna
þess hve söfnuðurinn er dreifður er
mikið leitað til annarra presta með
ýmis aukaverk þannig að tala ferm-
ingarbarna er t.d. ekki nema á
fimmta tug. Verði þessi skipan
samþykkt, er Ijóst að fáir söfnuðir á
landinu verða betur skipaðir guðs-
mönnum til þjónustu.
Þrátt fyrir niðurstöður síðasta
safnaðarfundar hefur hinn kjörni
klerkur ekki enn fengið lykla að
kirkju safnaðarins og varð því ekki
af messu með sr. Gunnari sl. sunnu-
dag eins og ráð var fyrir gert. Það
vakti athygli að daginrt eftir safnað-
arfundinn gaf símsvari kirkjunnar
upp heimasíma bæði hjá sr. Gunnari
ogsr. Cesil Haraldssyni, sem fenginn
var af stjórninni til að þjóna þar til
uppsagnarmálið væri í höfn. Eftir að
stjórnin hafði fundað og ákveðið að
sitja áfram þrátt fyrir niðurstöður
fundarins, var símsvaranum aftur
breytt til fyrra horfs og þá var
eingöngu gefinn upp sími sr. Cecils.
Jóhann
tapaði
Jóhann Hjartarson átti erfitt upp-
dráttar í skák sinni við Timman í
níundu umferð á skákmótinu í Til-
burg í gær og skákskýrendur sögðu
að hann hefði teflt víðsfjarri sínu
besta.
Jóhann hafði verri stöðu mest alla
skákina og endaði með því að hann
gaf hana í 45. leik.
Skákir gærdagsins fóru að öðru
leyti þannig að Karpov vann Van
der Wiel og Nikolic vann Hubner.
Eftir níundu umferð er staðan
þannig að efstur er Karpov með sex
og hálfan vinning. Annar er Short
með fimm og hálfan vinning. Þriðji
er Nikolic með fimm vinninga. í
fjórða til fimmta sæti eru Timman og
Portisch með fjóra og hálfan. Hu-
bner er í sjötta sæti með fjóra
vinninga og í sjöunda og áttunda
sæti eru Jóhann Hjartarson og Van
der Wiel með þrjá vinninga. -sá
Ekið á barn
10 ára gamall strákur varð fyrir
bifreið á Urðarbraut í Kópavogi
skömmu fyrir klukkan 15 í gær.
Hann var fluttur á slysadeild, en
meiðsli hans voru ekki talin alvar-
leg. Strákurinn var ekki á gang-
braut þegar hann varð fyrir bifreið-
inni. -ABÓ
1 dag er búist við að stjórnin sendi
frá sér einhverja ályktun um hvað
hún hyggst fyrir og hvernig hún ætlar
að bregðast við niðurstöðum fundar-
ins. Tíminn greindi frá því í síðustu
viku að stjórnarformaðurinn, Þor-
stcinn Eggertsson lögfræðingur,
vildi segja af sér og var það rétt eítir
honum haft. Hins vegar mun hafa
verið lagt hart að honum innan
stjórnar að gera það ekki og gegnir
hann því enn formennsku. KB