Tíminn - 20.09.1988, Síða 15
Tíminn 15
Þriðjudagur 20. september 1988
llllllllll ÍÞRÓTTIR - : : : ' 'i1:- ":
aveiðum
Vals.
Leikurinn einkenndist mjög af rokinu
og erfitt var að hemja knöttinn. Þó var
töluvert um tækifæri á báða bóga, en
Valsmenn voru ívið sterkari aðilinn og
úrslitin því sanngjörn.
KR-ingar urðu fyrir því áfalli að missa
báða miðverði sína, þá Ágúst Má Jóns-
son og Jóstein Einarsson meidda út af í
síðari hálfleik. Síðustu mín. léku KR-
ingar einum færri, þar sem búið var að
skipta báðum varamönnunum inná þeg-
ar Jósteinn meiddist. Hafði það sín áhrif
á gang mála og vörn KR veiktist mjög af
þeim sökum. BL
fna, áhorfendur og varamenn standa á öndinni
Tímamynd Gunnar.
tum leik
Skagamanna. Þeim tókst ekki að hreinsa
frá markinu og átti blautur völlurinn
sinn þátt í því að Ólafur Gottskálksson
missti boltann fyrir fætur Antony Karl
Gregory sem þurfti ekki annað en að
pota boltanum í netið.
Skagamenn voru öllu atkvæðameiri í
síðari hálfleik og áttu þá hættulegri færi
en Ægir Dagsson, hinn 16 ára gamli
markvörður KA, stóð sig þá mjög vel.
Seinni hálfleikur var í heild ekki
skemmtilegur á að horfa. Völlurinn var
mjög blautur og erfiður yfirferðar. Guð-
björn Tryggvason var bestur í liði heima-
; manna.
!
Toppliðin farin að slaka á
enn t\;n mörl l.A.A
Tindastóll sigraði ÍR1-0 á Sauðár-
króki á laugardaginn. Þetta var mik-
ill baráttuleikur tveggja jafnra liða.
Tindastóll fékk fleiri marktækifæri
en færi ÍR-inga voru þó hættulegri.
M.a. fékk Björn Björnsson tvívegis
gullin marktækifæri en mistókst t
bæði skiptin. Sigurmarkið kom fimm
mínútum fyrir leikslok og hafði þá
legið í loftinu nokkurn tíma. Markið
skoraði Eysteinn Kristinsson.
Þróttur vann KS 3-1 á Valbjarnar-
velli á laugardaginn og tóku þar með
Siglfirðinga með sér niður í 3. deild,
með sigri Blika á Fylki. Þegar staðan
var 1-1 fékk KS fjölda tækifæra til að
komast yfir en Guðmundur Erlings-
son, markvörður Þróttara, sá hvað
eftir annað við þeim. Sigurður Hali-
varðsson skoraði tvö glæsileg skalla-
mörk fyrir Þrótt en Tómas Kárason
gerði eina mark KS.
ÍBV vann Víði 2-1 í Eyjum og
tryggði sér þar með áframhaldandi
sæti í 2. deildinni. Sigurmarkið kom
aðeins 5 mínútum fyrir leikslok þeg-
ar Ingi Sigurðsson sótti að Gísla
Heiðarssyni, markverði Víðis, og
Vilhjálmi Einarssyni, sem voru að
slæpast með knöttinn. Úr þvögunni
fór boltinn í markið. Hlynur
Elíasson skoraði fyrra mark ÍBV en
Björgvin Björgvinsson skoraði mark
Víðis.
Breiðablik sigraði Fylki 3-2 í Ár-
bænum á sunnudaginn með mikilli
baráttugleði. Var þetta fyrsti ósigur
Fylkis á heimavelli í tvö ár cn liðið
leikur í 1. deild á næsta keppnistíma-
bili. Blikar kontust í 3-0 með víta-
spyrnu Jóns Þóris Jónssonar og
tveimur mörkum Grétars Steindórs-
sonar. Fylkismenn voru grimmir
undir lok leiksins og skoruðu þá
Baldur Bjarnason og Gústaf Vífils-
son tvö mörk fyrir liðið.
Bæði topplið 2. deildar töpuðu
leikjum sínum um helgina, því Sel-
foss burstaði topplið FH 5-1 í Hafn-
arfirði á laugardag. FH er fyrir
nokkru búið að tryggja sér sigur í
deildinni og mátti svo sem við því að
slappa af og það gerði liðið svo
sannarlega. Það var Kristján Hilm-
arsson sem skoraði þó fyrsta mark
leiksins fyrir FH en Selfyssingar
rúlluðu síðan yfir þá með mörkum
Jóns Birgis Kristjánssonar, sem
skoraði tvö mörk, Vilhelms Freder-
iksen, Þórarins IngólfssonarogGuð-
mundar Magnússonar.
Ný trygging frá Samvinnutryggingum
F-trygging íyrir fjölskyldur.
Hver er ávimiinguriiin?
Hér er stærsti ávinninguriim.
Sameinuð kaup þín á tryggingum í KJARNA veita þér
magnafslátt á iðgjöldum.
Við kaup á tryggingum til viðbótar KJARNA færðu 15% afslátt.
Hafir þú bifreið heimilisins tryggða hjá Samvinnutryggingum
færðu 10% afslátt af öllum tiyggingum í KJARNA, en 15% ef
bifreiðamarerutvær.
Annargóðurkostur:
Heildaryfiisýn þín yfir tiyggingamál fjölskyldunnar. Ekkert er
oftryggt, ekkeit er vantryggt.
Einfalt
Ogaðlokum.
í krafti samsafnaðra tryggingaviðskipta gerir þú, ef þú óskar
greiðslusamning við Samvinnutryggingar.
Bifreiðatryggingar má einnig auðveldlega flétta inn í slíkt
greiðslufyrirkomulag.
SA.MV5NNU
TRVGGINGAR
ÁRMÚLA 3 SÍMI681411
-Fyrirfjölskyldur