Tíminn - 20.09.1988, Qupperneq 17
Þriðjudagur 20. september 1988
Tíminn 17
i!!!!li!lli útlönd
w Enn ríkir ólga í Nagorno-Karabakh:
Atján Armenar særðir
í skotárás Azerbaija
Enn ríkir ólga milli Azerbaija og Armena í Nagorno-Kara
bakh en upp úr sauð á sunnudag þegar nokkrir Azerbaijar
hófu skothríð á langferðabfl sem var fullur af armenskum
stúdentum. Átján Armenar særðust í skotárásinni, fjórir
þeirra alvarlega.
Skotárásin var gerð við bæinn
Khodzhalu rétt utan við Stephane-
kert höfuðstað Nagorno-Karabakh.
Azerbaijar eru í miklum meirihluta
í Khodzalu þó þrír fjórðu hlutar
fbúa Nagorno-Karabakh séu Ar-
menar. Læknar voru sendir með
flugi frá Jerevan, höfuðborg Armen-
íu til að gera að sárum Armenanna
sem særðust í skotárás Azerbaijana.
Stúdentarnir voru á leið frá Jerev-
an til Stephanakert en þar hugðust
þeir taka þátt í uppbyggingarstarfi.
Hópur Azerbaija umkringdi lang-
ferðabílinn, brutu rúður í honum og
hófu síðan skothríð með fyrrgreind-
um afleiðingum.
Nú er vika síðan Armenar hófu
allsherjarverkfall að nýju í Step-
hanakert, höfuðstað Nagorno-Kar-
abakh héraðs, en Armenar sem eru
í miklum meirihluta í héraðinu vilja
það sameinað Armeníu. Yfirvöld í
Azerbaijan og æðsta ráð Sovétríkj-
anna taka slíkt ekki í mál þó héraðs-
stjórnin í Nagorno-Karabakh hafi
ítrekað þessa kröfu.
Hermenn voru sendir til Stephan-
akert í síðustu viku til að koma í veg
fyrir átök, en talsmaður héraðs-
stjórnarinnar í Nagorno-Karabakh
segir að spenna sé mikil í borginni.
Hermennirnir náðu þó ekki að koma
í veg fyrir að hópur Azerbaija gæti
hafið skothríð á Armena í sjálfri
Stephanakert á sunnudagskvöld.
Einhverjir særðust lítillega í þeirri
skotárás, en enginn alvarlega.
Talsmaður héraðsstjórnarinnar
sagði að hermenn væru nú að rann-
saka báðar þessar skotárásir.
Þökkum innilega hlýhug og vinsemd í okkar garð á
sextíu ára brúðkaupsafmælinu þann 15. september
s.l. Heillaskeytin, blómin og aðrar gjafir.
Guð blessi ykkur öli.
Anna S. Sigurðardóttir og Helgi Skúlason
frá Guðlaugsvík
t
Eiginmaður minn
Jónas Pálsson
Staðarfelli,
Stykkishólmi
oui 11 ai iuquioi
Stykkishólmskirkju laugardaginn 24. septennber kl. 14
Dagbjört Níelsdóttir
Astriður Helga Jónasdóttir Jón Einarsson
Unnur Lára Jónasdóttir Eggert Björnsson
Jóhanna Jónasdóttir Hrafnkell Alexandersson
Ásdís Jónasdóttir Friðþjófur Max Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn
Græningjar ótvíræðir sigurvegarar í sænsku þingkosningunum:
Vinstri flokkarnir
héldu meirihlutanum
Þrátt fyrir hrakspár síðustu daga
náði ríkisstjórn Jafnaðarmanna að
halda velli í þingkosningunum sem
fram fóru í Svíþjóð á sunnudag.
Jafnaðarmenn töpuðu aðeins einu
þingsæti, en á móti unnu kommún-
istar tvö þingsæti svo stjórnin heldur
velli. Petta hlýtur að teljast sigur
fyrir Ingvar Carlsson formann Jafn-
aðarmanna, en hann tók við for-
sætisráðherraembættinu þegar Olof
Palme var myrtur 1986.
Ótvíræðir sigurvegarar kosning-
anna voru hins vegar Græningjar
sem hlutu 20 þingsæti og eru þeir
fyrsti nýi stjórnmálaflokkurinn á
sænska þinginu í 70 ár, en flokkur
þarf að hljóta 5% atkvæða til að fá
mann kjörinn á þing.
íhaldsflokkurinn og Sænski þjóð-
arflokkurinn biðu afhroð í þessum
kosningum. íhaldsflokkurinn tapaði
12 þingsætum og Sænski þjóðar-
flokkurinn 8 þingsætum. Miðflokk-
urinn hélt sínu striki þrátt fyrir
hrakspár, missti aðeins eitt þingsæti.
Pví hafði verið spáð að Miðflokkur-
inn myndi missa mikið fylgi til
Græningja, þar sem flokkurinn hef-
ur hingað til verið helsti málsvari
umhverfismála á sænska þinginu.
Urslit kosnmganna urðu þessi:
Jafnaðarmenn
Kommúnistar
íhaldsflokkur
Sænski þjóðfl.
Miðflokkurinn
Græningjar
1988 1985
158sæti 159sæti
21 19
64 76
43 51
43 44
20 0
í>ó afhroð Sænska þjóðarflokksins
virðist vera mikið, þá ber þess að
gæta að í kosningunum 1985 bætti
flokkurinn óvænt við sig 30 þingsæt-
um undir stjórn Bengt Vesterberg
sem þá var nýkjörinn formaður
flokksins. Því má segja að íhalds-
flokkurinn hafi goldið mest afhroð í
þessum kosningum og hefur vegur
flokksins farið stöðugt minnkandi,
en flokkurinn hafði 86 þingsæti eftir
kosningarnar 1982. Er þetta mikið
áfall fyrir hinn unga formann flokks-
ins Carl Bildt, en íhaldsmenn höfðu
bundið miklar vonir við hann þegar
hann tók við formannsembættinu á
síðasta ári.
Ríkisstjórn Póllands
býðst til að segja af sér
Zbigniew Messner forsætisráð-
herra Póllands bauðst til að biðjast
lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt
eftir að þingnefnd birti skýrslu um
árangur, eða réttara sagt árangurs-
leysi ríkisstjórnarinnar í umbótum í
efnahagsmálum síðastliðið ár.
Efnahagsmál hafa verið í megn-
asta ólestri í Póllandi þrátt fyrir að
ríkisstjórnin hafi ætlað sér að koma
á róttækum umbótum í þeim málum.
Tvívegis hafa stórir hópar verka-
manna hafið víðtæk verkföll til að
mótmæla verðbólgu og vöruskorti.
Hafa þessi verkföll gert stjórnvöld-
um mjög erfitt fyrir og aukið á
efnahagsvandann sem nægur var
fyrir.
Boð ríkisstjórnarinnar um að hún
segði af sér kemur aðeins þremur
dögum eftir að leiðtogar pólska
kommúnistaflokksins breyttu opin-
berlega um stefnu og ákváðu að
ræða við hin útlægu verkalýðssam-
tök SamStöðu um framtíð Póllands.
{ þeim viðræðum hafa stjórnvöld
boðist til róttækra breytinga á stjórn-
skipuninni og í efnahagslífi landsins.
I skýrslu þingnefndar sagði að
eina leiðin til að stjórnvöld fái tiltrú
almennings í landinu til að leysa hin
erfiðu efnahagsmál væri að ríkis-
stjórnin segði af sér. Bendir þing-
nefndin á að lausnin sé að veita
stjórnmálamönnum sem ekki eru
félagar í kommúnistaflokknum og
sérfræðingum í hinum ýmsu mála-
flokkum aðild að ríkisstjórn. Eina
skilyrðið sem þingnefndin vill setja
fyrir aðild hæfra manna í ríkisstjórn
er sú að þeir viðurkenni fyrirkomu-
lag það sem stjórnarskrá landsins
setur um stjórnarfyrirkomulag. Þar
er gert ráð fyrir forystuhlutverki
kommúnistaflokksins.
Pó ríkisstjórnin segi af sér þá rýrir
það ekki vald Stjórnarnefndar
pólska kommúnistaflokksins, sem
er valdamesta stofnun landsins.
Gilbert drap
þrjú hundruð
Um það bil þrjúhundruð manns
létu lífið af völdum hvirfilbylsins
Gilbert sem grasserað hefur í Kara-
bíska hafinu og yfir Mexíkó undan-
farna daga. Tæplega hundrað manns
létu lífið í eyjum Karabíska hafsins
og rúmlega tvöhundruð í Mexíkó,
en Gilbert hélt á nýjan leik inn yfir
Mexíkó um helgina og olli gífurlegu
tjóni. /
f Monterey fórust að minnsta
kosti hundrað og fimmtíu manns,
flestir þegar flóðbylgja er fylgdi
Gilbert sópaði með sér almennings-
vagni. Talið er að tvö hundruð
þúsund manns séu nú heimilislausir
í Mexíkó eftir fárviðrið, en Gilbert
er öflugasti hvirfilbylur sem gengið
hefur yfir þetta svæði á þessari öld.
Dagar Gilbert eru nú taldir því
hann fjarar smátt og smátt út eftir að
hann hélt inn yfir fjalllendi Mexíkó,
en hvirfilbyljir sem þessir magnast
yfir sjó, en missa kraft yfir landi.
t
Við þökkum samúð og vináttu við andlát og jarðarför
Daníelu Jónsdóttur
frá Króktúni
Dvalarheimilinu Lundi, Hellu
sem jarðsungin var 10. september frá Stórólfshvolskirkju.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og íbúum dvalarheimilisins
Lundi ásamt hjúkrunarfólki og læknum Landakotsspítala.
Óskar Karelsson
Guðrún Halldórsdóttir
Jón Halldórsson
Björgvin Halldórsson
Daníel Gunnarsson
og fjölskyldur þeirra.
t Þökkum innilega samúð og vinarhug við fráfall og útför bróður okkar,
mágs og frænda Eiríks Guðjónssonar i Ási.
Guðrún Hlíf Guðjónsdóttir Ingveldur Guðjónsdóttir Magnús Jónasson
Hermann Guðjónsson Jón Haukur Guðjónsson og systkinabörn. Laufey Helgadóttir
t
Eiginmaður minn
Sigurður Guðjónsson
Skipasundi 39
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 22. september
kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hins látna
er bent á líknarstofnanir.
F.h. annarra vandamanna
Olga Sophusdóttir
t
Þökkum innilega veitta samúð og vináttu við andlát og útför systur
okkar
Hönnu Rafnar
Sérstakar þakkir viljum við færa hjúkrunarfræðingum og öðru
starfsfólki deilda 7 A og 6 A Borgarspítalans fyrir frábæra umönnun.
Ásdís Mogensen
Karólína Pétursdóttir