Tíminn - 20.09.1988, Síða 19
T O ►
Þriðjudagur 20. sep'tember 1988
íllllllllill AÐ UTAN ílilliilili
Aftur hækkar í Níl
Úrhellið, sem flóðunum hefur
valdið í Súdan. hefur borgið vatns-
flæði Nflar. Óttast var, að borð
Nasser-vatns, uppistöðulónsins
mikla að baki Aswan-stíflunnar, félli
niöur í 147 m yfir sjávarmáli. Við
þau mörk fellur niður vinnsla raf-
magns við hverfla stíflunnar, en frá
þeim fær Egyptaland fjórðung raf-
magns síns. Fyrrihluta sumars unnu
þeir 70% fullrar vinnslu.
Rigningarnar í Súdan hófust 21.
júlí eða venju fyrr. í ágúst hækkaði
borð Nasser-vatns um 20 sm á dag
(en á miðlungsárum um 10-15 sm).
Að vatnsskiptasamningi Súdans og
Egyptalands, skulu árlega 55,5 millj-
arðar m1 vatns renna í Nasser-vatn
en flest undanfarin 11 ár hefur
uppistöðulónið tckið við nokkru
minna vatni. Frá I. ágúst 1987 ti! 31.
júlí 1988 voru úr Nasser-vatni veittir
52,5 milljarðar m' vatns. Sakir vatns-
skorts voru hrísakrar í ár minnkaðir
um 8% í Egyptalandi og í áveitu-
skurði bænda veitt 5-10% minna
vatni cn venja hefur verið.
Kína semur við
General Motors
I janúar í vetur söntdu Kínverjar
við General Motors um, að þaö
fyrirtæki setti upp (notaða) verk-
smiðju til framleiðslu á 2 lítra bílvél-
um. Og greiða Kínverjum $ 20
milljónir fyrir þessa „notuðu" verk-
smiöju. Fyrir nokkrum árum sömdu
Kínverjar við Volkswagen og AMC
um smíði og samsetningu bíla í
Kína, en þeim þykir þessi tvö fyrir-
tæki vera sein til að láta smíða
bílhluta í Kína. í Kína eru enn ekki
smíðaðir nema 12.6% hluta í bíla
þá, sem Volkswagen setur saman,
og 18,7% hluta í hina, sem AMC
setur sarnan. - í Kína voru smíðaðir
445.000 bílar 1987, 27% fleiri en
1986.
Ný útvarpslög á Bretlandi?
Á Bretlandi veröur á þingi nú í
haust lagt fram frumvarp að nýjum
útvarpslögum. Fram til þessa hefur
ríkisútvarpiö breska. BBC. haft
einkarétt til útvarps til Brctlands
alls. en á síöustu 15 árum hafa verið
settar upp 49 staðar-stöðvar með
heimild frá Independent Broadcast-
ing Authority. Eins og BBC hefur
þeim verið skylt að uppfræða hlust-
endur sína og að flytja þeim lréttir
ekki síður en skemmtiefni (aðallega
létta tónlist). Stærstar þeirra eru
Capital og FBC (en ástralskt út-
varpsfélag, Chalford Communica-
tions, á 49% hlutafjár hennar). Þess-
ar „óháðu" stöðvar hafa einvörð-
ungu tekjur af auglvsingum. í fyrra
Á þessum áratug hefur Kína tekið
upp samvinnu við útlend fyrirtæki
og hefur leyft sumura þeirra að reisa
verksmiðjur á afmörkuðum
svæðum, athafnasvæðum (á ensku
economic zones, SEZs).
Kína opnaði útlendum fyrirtækj-
um 4 athafnasvæði 1980: Shenzhen,
Zhuhai, Shantou og Xiamen, en þau
eru í fylkjunum Guangdong og Fuji-
an, þ.e. í grennd við Hong Kong.
Þremur árum síðar, 1983, var eyjan
stóra, Hainan, gerð að athafna-
svæði. Og ári síðar urðu fjórtán
hafnarbæir athafnasvæði: Dalian,
Quinghuangdao, Tianjin, Yantai,
Qingdao, Lian’yuangang, Nantong,
Shanghai, Ningpo, Wenzhou, Fu-
zhou, Guangzhou, Zhangjiang og
Beihai. Útlendar verksmiðjur voru
reistar í útjöðrum þessara bæja
nema Wenzhou og Beihai.
í þessum efnum gekk Kína enn
lengra 1985, er helstu óshólmarnir
þrír, hin svonefndu „lönd fisks og
£ 99 milljónir. að talið er. en alls
munu greiðslur fyrir auglýsingar á
Bretlandi þá hafa verið £ 5,6 millj-
arðtir. Til sín taka ltins vegar „óháð-
ar" útvarpsstöðvar í ýmsum löndum
allmikinn liluta heildargreiðslna fyr-
ir auglýsingar. í Ástralíu 9%. í
Kanada 13% og í Bandankjunum
10% (en þarlendis cru útvarpsstöðv-
ar 10.230. í flestum stórborgum
20-30). - 1 hinum væntanlegu nýju
útvarpslögum verður nokkrum
„óháðum" aðilum hcimilað að út-
varpa til alis Bretlands og vcrða leyfi
veitt hæstbjóðendum til 8 ára.
Stígandi
ríss“, voru opnaðir fyrir útlendum
verksmiðjum.
{ maí 1987 höfðu verið sett á fót
8.332 fyrirtæki, sem voru sameign
Kína og hinna útlendu fyrirtækja, er
höfðu í þeim fest um $ 8 milljarða.
Flest þeirra hafa reynst arðsöm. Frá
1981 til 1985 voru í Kína upp teknar
um 11.000 nýjar framleiðsluaðferðir
og kostaði það landið um $ 9,2
milljarða.
Dæmigerður fyrir þessi athafna-
svæði er sagður vera Shenzhen,
grannbær Hongkong, sem var smá-
bær í upphafi áratugarins, en hefur
nú um 300.000 íbúa. í bænum eru
um 1.000 fyrirtæki og nam fram-
leiðsla þeirra í fyrra um $ 1 milljarð
(þ.e. 3,5 milljörðum juan) eða 42
sinnum hærri fjárhæð en 1979. Fyrir
skömmu var færð í lög heimild til að
veita útlendum fyrirtækjum í Kína
starfsleyfi til allt að 50 ára, ef ástæða
þætti til, en þau voru áður bundin
við 30 ára hámark.
Stígandi
Utlendu athafna-
svæðin í Kína
VEIÐIMÁL llllllllllllllllllllllll
Má þakka Laugalaxi h.f. laxveiði-
metið í Kjósinni í sumar?
Við gerðum í vor hér í blaðinu að umtalsefni horfur á því
að óboðnir gestir kæmu í laxveiðiárnar í sumar. En þar var
átt við kvíalax og annan fisk, sem slyppi úr eldisbúrum í sjó
og ekki siður var átt við hafbeitarlax en slepping slíkra seiða
jókst mjög á s.I. ári. Minnt var á að vorið 1978 missti
Laugalax h.f. milli 70 og 80 þús. gönguseiði úr netkví fyrir
óhapp úti fyrir Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Var getum að
því leitt, að endurheimtur á þessum seiðum myndu verða í
sumar í laxveiðiár í nágrenninu.
Metlaxveiði var í Laxá í Kjós og
Bugðu í sumar, en um 3.900 laxar
veiddust þar. Var með þessu einnig
slegið landsmet um leið, ef miðað er
við fjölda laxa úr einstökum veiði-
ám. Er þetta ótrúleg veiði, þar sem
árleg meðalveiði áranna 1976-1986 í
Kjósinni voru um 1600 laxar.
Annars má í þessu sambandi geta
þess, þó á engan hátt sé verið að gera
lítið úr hinni glæsilegu útkomu í
Laxá í Kjós, að á vatnasvæði Laxár
í Aðaldal, sem tekur til árinnar
sjálfrar og Mýrarkvíslar og Reykja-
dalsár og Eyvindarlækjar hefur feng-
ist á einu sumri mest um 4.400 laxar
á stöng. En þar sem venja er að
tíunda veiðina á þessu svæði í
þrennu lagi, verður útkoman öðru
vísi, en að framangreindu. Þó er
þetta allt sama fiskihverfið, eins og
í Kjósinni, en þá er ógetið um
veiðina í Meðalfellsvatni, sem gæti
numið 100-200 löxum í sumar og má
bæta þeirri veiði við metveiðitöluna.
1 viðtali við Árna Baldursson
leigutaka Laxár í Kjós í útvarpi kom
fram, að hann taldi að hafbeitarlax
ætti hér hlut að máli. Líklegt má
telja, að gönguseiðin sem þágu frelsi
í Hvalfirði úti fyrir Saurbæ í fyrra,
hafi í verulegum mæli, sem fullvaxn-
ir laxar úr hafi, Iagt leið sína í Laxá
í Kjós og átt sinn þátt í að laxveiði-
metið var slegið þar með glæsibrag.
Þá er vitað að laxveiðilagnir utar í
Hvalfirði gáfu mjög góða veiði í
sumar.
Ljóst liggur fyrir, að nokkuð af
eldislaxi hefur lagt leið sína í árnar
sem falla í Faxaflóa. Nefndar hafa
verið tölur, eins og 10% af veiddum
laxi í sumum ánum, svo vitnað sé til
ummæla ráðamanna við Elliðaár. í
Hvítá í Borgarfirði gerði kvíalaxinn
sig heimakominn í nokkrum mæli og
áttu menn þar sem annars staðar
ekki í nokkrum erfiðleikum með að
þekkja hann frá villtum laxi. Um
hafbeitarlaxinn er aðra sögu að
segja, því hann er ekki frábrugðinn
villtum laxi úr ánum, þó að athugulir
og margreyndir netaveiðimenn á
Hvítársvæðinu geti auðveldlega
flokkað aflann eftir því hvaðan lax-
inn er upprunninn. Þeir þekkja vel í
sundur árstofnana á vatnasvæðinu,
sem hver og einn hefur sín sérkenni
f vaxtarlagi. eh.
Tíminn 19
reykjavík Félagsfundur
í Iðju, félagi verksmiðjufólks verður haldinn í
Sóknarsalnum, Skipholti 50A, miðvikudaginn 21,
september, kl. 5 síðdegis.
Fundarefni:
1. Efnahagsaðgerðir og staðan í kjaramálum.
2. Félagsmálin.
Iðjufélagar fjölmennið.
Stjórn Iðju.
UTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í stjórn-
loka fyrir fyrir gufuveitu Nesjavallavirkjunar. Út-
boðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á
sama stað miðvikudaginn 19. október kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
V
Útboð
Snjómokstur og hálkuvörn
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum
í snjómokstur og hálkuvörn veturinn
1988-1989:
1. í Gullbringusýslu
2. í Kjósarsýslu.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vega-
gerð ríkisins, aðalgjaldkera, Borgar-
túni 5, Reykjavík, frá og með 19. þ.m.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir
kl. 14:00 þann 3. október 1988.
Vegamálastjóri
Umsóknir úr
Framkvæmdasjóði fatlaðra
Þeir aðilar sem hyggjst sækja um framlög úr
Framkvæmdasjóði fatlaðra á árinu 1989 til upp-
byggingar á þjónustu við fatlaða, eru beðnir að
senda umsóknir til Svæðisstjórnar Bræðratungu
400 ísafirði fyrir 1. október n.k. Nánari upplýsingar
veitir framkvæmdastjóri Svæðisstjórnar í síma
94-3224.
Svæðisstjórn fatlaðra.
Meinatæknir
Tilraunastöð háskólans í meinafræði óskar eftirað ráða
líffræðing eða meinatækni, frá og með 1. október n.k.
Upplýsingar gefur Eggert Gunnarsson, dýralæknir í
síma 82811.
Tilraunastöðin Keldum
Kjördæmisþing
Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Vestfjörðum verður haldið á
Súðavík dagana 30. sept. til 1. okt. 1988. Nánar auglýst síðar.
Stjórnin