Tíminn - 20.09.1988, Qupperneq 24
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
Canon
Ljósritunarvélar
FC-3, 43.600 stgr.
FC-5, 46.300 stgr.
Skrifvélin, sími 685277
8SIIIMI
Háberg frá Grindavík fékk fullfermi, 600 tonn af loðnu út af Húnaflóa í fyrrinótt:
Loðnan fundin
Háberg frá Grindavík fékk full-
fermi, 600 tonn af loðnu á miðun-
um norður af Húnaflóa í fyrrinótt.
Þá munu Skarðsvíkin frá Hellis-
sandi og Jón Kjartansson frá Eski-
firði vera á miðunum og voru þau
komin með talsverðan afla þegar
síðast fréttist.
Fleiri loðnubátar voru að undir-
búa veiðarnar og lögðu nokkrir
þegar að stað á miðin í gær, það;
voru Hólmaborgin frá Eskifirði,
Börkur frá Norðfirði og búist var
við að Örninn frá Keflavík færi
einni á veiðar í gær. Búast má við
að innan fárra daga fari loðnuskip-
in eitt af öðru á miðin, enda segja
menn að nú sé loðnan komin til að
vera þar til veiðar séu búnar.
Á þessari vertíð voru gefin út
bráðabirgðaleyfi fyrir um 400.000
lestum, sem verður tekið til endur-
skoðunar í októberlok. Þessi afli
skiptist á milli 49 skipa og fer
skiptingin eftir burðargetu og stærð
skipanna, að sögn Jóns B. Jónas-
sonar í sjávarútvegsráðuneytinu.
Leyfin eru frá um 7000 lestum til
10500 lesta á hvert skip.
Það sent af er hefur nær ekkert
veiðst af loðnu, nema þegar
Hólmaborgin fékk fullfermi fyrir
rúmum mánuði. Loðnan hefur
haldið sig mjög djúpt á miðunum,
en þegar hún hefur lyft sér eitt-
hvað, hefur hún dreifst svo mikið
að ekki hefur verið hægt að veiða
hana.
Þorsteinn Kristjánsson skipstjóri
sem stýrði Hólmaborginni fyrr í
sumar sagði í samtali við Tímann
að nú væri loðnan komin. Það er
Hraðfrystihús Eskifjarðar sem ger-
ir út Hólmaborgina, Jón Kjartans-
son og Guðrúnu Þorkelsdóttur,
sem nú er verið að undirbúa fyrir
vciðarnar. Þorsteinn sagði, að Jón
Kjartansson væri á miðunum, en
þeir hefðu verið að gera Hólm-
jIÉ
Þetta verður algeng sjón á næstu dögum og mánuðum, ef svo fer sem horflr.
aborgina klára og hefði hún farið
út í gærdag.
Aðspurður hvort vertíðin færi
óvenju seint af stað sagði hann svo
ekki vera, „þetta er nánast á sama
tíma og í fyrra. Ég er alveg hundr-
að prósent öruggur um að loðnan
er komin, það er eins öruggt að
loðnan er komin og stjórnin er
fallin,“ sagði Þorsteinn.
Hann sagði aðspurður að þeir
yrðu fljótir að veiða það magn sem
gefið hefur verið leyfi fyrir. „Það
fer að vísu eftir því hvenær skipin
byrja veiðarnar, en þetta verður
búið fyrir árarnót," sagði Þor-
steinn.
Jón B. Jónasson hjá sjávarút-
vegsráðuneytinu sagði að ekki
hefði verið um neina loðnuleit að
ræða af þeirra hálfu, og engin leit
yrði fyrr en í rannsóknarleiðangri
sem farinn verður í október.
„Menn vissu alveg hvar loðnan
var, en hún var ekki veiðanleg þar
sem hún stóð svo djúpt. Leitarskip
hefði engu breytt þar um,“ sagði
Jón. -ABÓ
„Léttklæddur" lögreglumaöur í sundlauginni í Laugardal:
HUÓP UPPI
STR0KUFANGA
Lögreglumaður sem var að baða
sig í sundlaugunum í Laugardal á
fjórða tímanum í gær, bar kennsl á
fangann sem strauk frá Litla-Hrauni
þann 13. september sl., þar sem
hann var að stela frá sundlaugargest-
um.
Lögreglumaðurinn sem ekki var á
vakt þegar hann sá fangann, er
samviskusamur og þrátt fyrir að vera
ekki í einkennisbúningnum stökk
hann til og gerði sér Iítið fyrir og
hljóp fangann uppi á sundskýlunni
einni fata.
Eltingarleikurinn barst frá bún-
ingsklefanum, þarsem lögreglumað-
urinn varð var við strokufangann, í
gegn um anddyrið og út fyrir sund-
laugarbygginguna, þar sem hinn létt-
klæddi lögreglumaður gómaði
fangann.
„Þetta bar svo skjótt að, að við
áttuðum okkur ekki á því, fyrr en
eftir á hvað hafði gerst. Þeir komu
hlaupandi hérna í gegn um miða-
söluna og svo náði lögreglumaðurinn
honum hérna fyrir utan,“ sagði af-
greiðslustúlkan í miðasölu sundlaug-
arinnar í Laugardal í samtali við
Tímann.
Sjónarvottur sem Tíminn ræddi
við sagðist fyrst hafa haldið að
eitthvað í ætt við rassaglenninn á
Laugardalsvelli hefði verið á ferð-
inni en létt mikið þegar kom í ljós
að um lögreglumann var að ræða.
Ótti sjónarvottarins er skiljanleg-
ur þar sem Laugardalslaugin er
skammt frá athafnasvæði rassa-
glennisins. -ABÓ
Fjórir piltar
létu lífið í
umferðarslysi
alvarlega slasaður á slysadeild
Borgarspítalans og síðan á gjör-
gæsluludeild. Samkvæmt upplýs-
ingum Tímans var líðan hans í gær
eftir atvikum góð. Hann er enn á
gjörgæsludeild.
Bílarnir, sem voru af gerðinni
Toyota Corolla og VW Golf lentu
hvor framan á öðrum og létust
drengirnir fjórir samstunais. Ekki
er enn vitað um tildrög slyssins þar
sem engir sjónarvottar voru að því.
-ABÓ
urengirmr tjorir sem letust t
umferðarslysi við bæinn Miðhús í
Gnúpverjahreppi um kl. 11.00 á
föstudagskvöld hétu, Guðmundur
Árnason, 17 ára, til heimilis að
Miðengi 20, Selfossi, Ragnar
Hjálmtýsson, 18 ára, til heimilis
að Vallholti 32, Selfossi, Benedikt
R. Ásgeirsson, 17 ára, til heimilis
að Engjavegi 63, Selfossi og Hlyn-
ur Ingi Búason, 15 ára, til heimilis
að Vesturbergi 9, Reykjavík.
Fimmti drengurinn, ökumaður
annarrar bifreiðarinnar, var fluttur
Gæsaveiði
gengur vel
Svo virðist sem gæsaveiði hafi
gengið vel það sem af er veiðitíman-
um. Skyttur sem Tíminn ræddi við í
gær létu vel af veiðitímanum, en
tóku flestar fram að veiðiskapurinn
hæfist ekki af alvöru fyrr en frysti og
ber spilltust og úthagi sölnaði, svo
gæsin færi að leita í tún þar sem hægt
er að sitja fyrir henni.
Helst virðist sem skyttur hafi verið
að skjóta fyrir vestan og einnig tekið
drjúgt af gæs í kvöldflugi víða um
land.
Gangnamenn er nýlega smöluðu
afrétti upp af Suðurlandi sögðu
afréttinn „löðrandi í gæs“ og að
sjaldan hefðu þeir séð annað eins.
Ástæðan fyrir því að gæsaveiði-
menn vilja fá gæsina í túnin er fyrst
og fremst sú að með því móti geta
þeir stillt upp gervigæsum sínum og
lokkað til sín marga hópa og gert þá
um leið góða veiði. -ES