Tíminn - 24.09.1988, Blaðsíða 2

Tíminn - 24.09.1988, Blaðsíða 2
2 fp HELGIN SETTI JÁRNSKÓ Sú er ein sögn um hrekki hans að þegar hann byrjaði skólanám sendi Þorgrímur hann eitt sinn upp yfir Mosfellsheiði. Var það að vetrarlagi, á jólaföstu að mig minnir. Páll lauk erindum sínum og var kominn á heimleið, þegar hríð gerði á hann. Kom hann um dagsetursbil að bæ undir heiðinni. Var þá kafaldshríð með köflum en rofaði til á milli og allmikið frost. Páll var lítt harðnaður og vanbúinn að klæðum til að mæta vondu veðri, enda ókunnugur leið- inni. Beiddist hann því gistingar, en eigi lét hann nafns síns getið né hvaðan hann var. Mundi honum að vísu hafa verið heimul gistingin, ef hann hefði látið það uppi, því bóndi þessi var vinur mikill Þorgríms gullsmiðs. - Bóndi sá til veðurs og var þá rofbjart og tungl að koma upp. Kvað bóndi ungum manni og fullfrískum vel fært að halda áfram ferð, því færi var gott, og kvað enn langt til háttatíma. Páll hélt því áfram, en hafði farið skammt, þegar bylur brast á fyrir alvöru, svo hann treystist með engu móti að halda áfram; sneri hann því við og heim til bæjarins aptur, og tókst að finna hann, en eigi hafði hann skaplyndi til að beiðast gistingar þar, öðru sinni. Gekk hann um gólf alllanga hríð í skjóli við bæjarhúsin, en tók að kólna og hugði sér nú helst það ráð, að komast í eitthvert fénaðar- hús. Sá hann hús kippkorn frá bæn- um og komst þangað. Var það fjósið og var þar margt nautgripa og hiti nægur. Fór Páll þar inn og lét þar fyrirberast. Mjólkaði hann eina kúna í húfu sína og drakk, og leið nú vel í ylnum. Þegar leið á vökuna heyrði Páll, að fjósafólk kom. Var hann við því búinn og vildi ekki láta það verða sín vart. Tvennar hurðir voru fyrir fjósinu og gangur á milli. Var það nú ráð Páls, að hann klifraði upp í rjáfur ranghalans, stóð með sinn fótinn út í hvorn vegg, en lét búkinn liggja með röptum í rjáfrinu, lét hann þau ganga undir krof sitt. Urðu þau hans ekki vör, enda tendr- uðu þau ekki ljós, fyr en þau komu inn í sjálft fjósið, enda hálfblinduð af hríðinni, því úti var blindbylur. Páll heyrði það, að önnur mjaltakon- an hafði orð á því, að leiðinlegt væri, að honum hefði verið úthýst piltin- um í rökkrinu í kveld; líklega yrði hann nú úti á heiðinni, en fjósamað- ur hélt það hefði þá farið fé betra; nóg væri til af þessum, sem hann kvað að, flækingum. - Páli gramdist og hugsaði honum þegjandi þörfina fyrir undirtektir hans. - Páll var kyr á sínum stað, meðan fólkið lauk fjósverkum. Hafði önnurmjaltakon- an orð á því, að lítil væri mjólkin, venju fremur, í einni kúnni, en ekki var þó meira um það rætt. - Páll bjó nú um sig eptir föngum í fjósinu, og svaf þar rótt fram eptir nóttinni. Að áliðinni nóttu vaknaði hann og gáði út. Var þá upp birt hríðinni, skarpa frost og glaða tunglsljós. Leysti þá Páll út allar kýrnar, gekk örna sinna á fjósþröskuldinn, er hann fór, og rak kýrnar með sér upp á heiði. Gerði hann hið fyrtalda til hefnda og í blóra við fjósamann. Páll skildi við kýrnar á heiðinni og hélt leiðar sinnar heim, og farnaðist vel, en fjósafólk á bænum þóttist sakna vinar í stað, er það kom í fjósið um morguninn, og fjósið var opið og allar kýrnar burtu. Var þeirra leitað lengi dags og fundust loks illa til reika og drapst eitt ungviði af kuld- anum. Var piltinum, sem úthýst var, að vísu kennt um þetta, sökum kveðjunnar, sem Páll skildi eptir á þröskuldinum, en enginn vissi deili á honum, svo slóðin varð ekki rakin til Páls. __ Páli sóttist námið seint. Útskrifuð- ust skólabræður hans hver eptir annan, en hann sat eptir. Mun kunnátta hans hafa verið léleg og meðal annars var rithönd hans svo bágborin, að slíks voru ekki dæmi um „lærða“ menn þess tíma. Var hún varla lesandi honum sjálfum. Vorið sem Páll útskrifaðist (1827), var honum sem öðrum fengið verk- efni til að gera úr latneskan stíl. Sitja þeir nú allir við og skrifa. Páll skrifar einnig af kappi. Loks eru allir piltar búnir að ljúka við stíla sína nema Laugardagur 24. september 1988 Við hát íðaguðsþjónustuna á dögunum voru þeir viðstaddir sr. Sigurður Guðmundsson, vígslubiskup á Hólum og sr. Hjálmar Jónsson, prófastur. Sóknarpresturinn, séra Gísli Gunnarsson, er lengst til hægri. (Tímamynd Orn). Páll; gengur svo lengi og gerast piltar og kennarar óþoiinmóðir og reka eptir Páli. - Þá var notaður þerrisandur til að þurka með skript- ina, en ekki þerriblöð, eins og nú. Loks segist Páll vera búinn, stendur upp og seilist eptir þerrisandinum til að þurka skriptina, en tekur í hans stað blekbyttuna og hvolfir öllu úr> henni yfir blaðið. „Þetta hafði eg fyrir bölv.... eptirreksturinn í ykkur," sagði hann, og fumaði með blaðið, svo blekið breiddist enn meir um það og enginn stafur varð þar lesandi. Bar Páll sig nú hið versta og kenndi þeim um, að nú mætti hann sitja eptir. Sáu kennarar og piltar aumur á honum og varð það úr, að færustu piltarnir hjálpuðust að og gerðu stílinn og flaut Páll á honum gegnum prófið. Var það í almæli, að Páll hefði ekki tekið blekbyttuna í misgripum og mun hann jafnvel hafa sleppt því sjálfur síðar. Páll fékk að prófi loknu veitingu fyrir Grímseyjarprestakalli og vígð- ist þangað 1828. Það fengust varla prestar þangað, nema þeir, sem ekki áttu annars úrkosta. Þjónaði hann 7 ár Grímseyjarprestakalli og bjó að Miðgörðum. - Afskekkt lega Gríms- eyjar og samgönguleysi mun hafa átt sinn þátt í því, að Grímseyingar voru öðrum landsmönnum flestum fremur menningarlitlir á þeim tíma, og sat hjátrú, hindurvitni og forn- eskja þar enn við völd á dögum Páls prests, og ekki mun hann hafa verið hinn rétti leiðtogi til að fræða þá og leiða til menningar. Þó kom hann þeim af einum ósið, sem hér skal greint. Grímseyjarklerkur Þegar Páll prestur kom til Gríms- eyjar, var það siður þar við jarðar- farir, er lík voru borin út úr kirkj- unni, að snúa sér þrjá hringi með kistuna sólarsinnis fyrir kirkjudyr- um. Ekki er þess getið í hvaða tilgangi þessi athöfn var viðhöfð, en ekki er ósennilegt, að hún hafi átt að varna þess, að sá dauði færi á kreik. - Það var þá eitt sinn við jarðarför, að líkmenn greindi á um það, hvort búið væri að snúa líkinu tvo snúninga eða þrjá. Skarþápresturúrþrætunni með þessum orðum: „Og snúið þið honum einn til piltar, aldrei verður honum ofsnúið." - Þetta hafði þau áhrif, að menn sneyptust, og lagðist siðvenja þessi niður. Slysasamt hafði verið venju frem- ur í Grímsey um það leyti sem séra Páll kom þangað. Höfðu menn hver eptir annan hrapað þar við eggjasig í bjarginu og beðið bana. Er senni- legt, að það hafi stafað af ófullkomn- um útbúnaði, en Grímseyingar kenndu það illvættum þeim, sem í bjarginu byggju, og töldu sig nú illa vanta Guðmund biskup. Séra Páll bauð þeim að vígja bjargið, ef þeir vildu gjalda til prests ákveðna tölu fugla og eggja frá hverjum búanda, og gengu eyjarskeggjar óðfúsir að því, enda skyldi prestur ábyrgjast þeim árangur vígslunnar. Prestur fékk nú trausta festi, sem hann þaulvígði. Safnaði hann svo saman flestu fólki eyjarinnar ákveðinn dag, og gekk hempuskrýddur í broddi fylkingar út á bjargið. Lét hann binda sig í festina og búa vel um. Tók latneska málfræði úr barmi sér og las í henni lítið eitt í hálfum hljóðum. Skipaði hann svo að láta sig síga, en fólkið skyldi syngja sífellt, meðan hann væri í bjarginu og svo hátt sem það hefði róm til, en þá allra hæst, ef það heyrði högg og hávaða í bjarginu, því nú mundi alls við þurfa. - Prestur seig nú í bjargið, og á meðan söng fólkið af öllum lífs og sálar kröptum. Prestur söng einn- ig, en strax þegar hann var úr augsýn fólksins, dró hann hamar upp úr hempuvasa sínum, og braut með honum hvassar brúnir, sem áður höfðu skorið lélegar festar siga- manna, jafnframt og hann ruddi niður lausu grjóti. Varð af þessu hinn mesti glumrugangur. Héldu Grímseyingar hávaðann stafa af harðri viðureign prests við illvættina. Studdi það og þá skoðun þeirra, að prestur, sem var í hempunni utanyfir fötum sínum, var sveittur mjög. Fór prestur þannig um mestan hluta bjargsins og ítrekaði allajafnan við fólkið að syngja, og syngja hátt. Lét hann það um mælt, að siginu og vígslunni lokinni, að ekki mundi nú slysast við sigið, þar sem hann hefði náð til að vígja og meðan hin vígða festi væri notuð. Varð og svo, að slys urðu ekki við bjargsig í eynni eptir það, um alllangt skeið, og lögðu Grímseyingar talsverðan átrúnað á mátt og kunnáttu hans og andríki. En fugls- og eggja-skattinn hafði prestur lagt á þá til þess að ná upp festarverðinu. „Vaxa fíflar fróni á“ Það var á þeim árum, sem séra Páll þjónaði Miðdal í Laugardal (1835-43), að hann henti sú skyssa, að taka fram hjá konu sinni og missti hann af þeim sökum hempuna um skeið. Síðar fékk hann svo uppreisn, og fékk þá veitingu fyrir Knapps- stöðum í Stíflu (1843). Kona Páls prests hét María Jóakimsdóttir. Var hún talin kona vel gefin og merk um margt, og var talið af sumum, að hún semdi ræður prests, eða leiðbeindi honum a.m.k. í þeim efnum, þegar svo hagaði, en það hygg eg, að varla hafi hún samið ræður handa honum, því hann prédikaði ætíð blaðalaust. María var stjórnsöm kona og mjög vel látin af sóknarfólki. Ekki mun framhjátekt prests hafa orðið þeim hjónum að sundurþykkju, enda má vel vera, að um það hafi verið gróið, þá er þau fluttu að Knappsstöðum. Þau Páll og María áttu nokkur börn, þar á meðal var Páll, fyrri maður Guðrúnar Jónatansdóttur, skálds, sem lést 1925 í Stíflu. Var Páll annálaður gleðimaður, kær að hestum og hagyrðingur ágætur. Ept- ir hann er vísan: Vaxa fíflar fróni á, finnst því ríflegt heyið, ó, hve líflegt er að sjá ofan í Stíflu greyið. Þegar séra Páll flutti norður að Knappsstöðum lét hann flytja kýr sínar landveg að sunnan. Gerði það Guðrún sú, sem hafði verið vinnu- kona hjá séra Páli þar syðra, og síðar á Knappsstöðum. Dvaldi hún með presti til dauðadags. Hún gekk manna á meðal undir nafninu „Ein- eygða-Gunna“ og þótti presti þörf og trú á marga lund. - Áður hún legði á stað að sunnan með kýmar, lét prestur gera henni skó með járnsólum, svo þeir entust henni ferðina. Kona sú, er séra Páll tók framhjá með, hét Þórey Guðmundsdóttir. Barn þeirra var sveinn og hét Guð- mundur. Páli presti þótti kostnaðar- samt að gefa með barninu suður, eptir að hann var kominn norður að Knappsstöðum, og brá sér því árið eptir suður og sótti drenginn, sem þá var tveggja eða þriggja ára. Flutti hann drenginn ofan í milli á trússa- hesti, en prestur var þá stundum við öl, og snaraðist eitt sinn af hjá honum á klárnum og var klifberinn með sveininum bundnum við kom- inn undir kvið hestinum, þegar mað- ur mætti presti og tók eptir því, en ekki sakaði sveininn. Vaktir upp draugar Runólfur Jónsson hét bóndi á Húnsstöðum, næsta bæ við Knapps- staði. Áttu þeir prestur í ýmsum brösum, því báðir voru drykkju- menn, en á milli voru þeir bestu vinir. Eitt sinn lét prestur svo um- mælt í stólræðu, að „til eru þeir menn hér í þessum heilaga söfnuði, sem ekki mundu hika við að kasta steini í prestinn sinn, ef þeir sæju sér færi á því, ekki síður en gyðingarnir í Stefán," - og sneri hann sér þá alveg að Runólfi. Eitt sinn sem optar komu þeir Runólfur og prestur úr kaupstaðar- ferð úr Siglufirði. Nótt var að vori til, og báðir fullir. Kom þeim þá saman um, að vekja upp draug og skyldi prestur vekja upp, en Runólf- ur glíma við drauginn. Þegar heim að Knappsstöðum kom, var allt fólk í svefni. Þeir settust þegar í kirkju- garðinn, en hvað þar hefir gerst vita menn ekki, en þegar fólk kom á fætur á Knappsstöðum morguninn eptir, lágu þeir þar báðir steinsof- andi, sinn hvors vegar við eitt leiðið í garðinum. - Eitt sinn kom séra Páll í haustmyrkri neðan úr Fljótum, og er hann fór yfir Stífluhóla, þá heyrir hann, að fólk er þar skammt frá veginum og spyr hver þar sé. Sá svarar og biður prest „eta andsk.... upp úr skinni". Prestur svarar um hæl: „Hver á þá að hafa bjórinn, rýjan mín?“ Prestur taldi, að þarna hefði Runólfur verið á ferð. „Komdu hingað, ekkjan mín“ Þess er áður getið, að séra Páll var hagorður. Kenndi þessa allopt í stólræðum hans, þegar sá gállinn var á honum. Orðréttan kafla lærði eg af föður mínum úr einni jólaræðu séra Páls. Hann er svona: „Jesús kallar á börnin sín. Hann kallar á mig og hann kallar á þig, - si svona: Komdu hingað ekkjan mín með börnin þín. Sýndu þeim ljósin. Segðu þeim það séu jólin og því sé kveikt. - Komið hingað volaðir og hrjáðir. Komdu hingað gamla kona, sem gekkst á járnskóm sunnan af landi, þú ert mædd og hrjáð; þú, með þitt eina auga.“ - Fyrst hafði prestur snúið sér að ekkju, sem sat þar með börn sín, síðar að Gunnu gömlu ein- eygðu, en þegar hér var komið, fór ung stúlka, Sigurlaug að nafni, að hlæja í barm sinn. Prestur heyrði það, sneri sér hvasslega við að henni, brýndi róminn og bætti við: „Að því þarftu ei spauga, þú, lýgna Lauga." Fremur þóttu ræður Páls prests léttvægar. Það var eitt sinn, að Jón Mýrdal skáld var við messu hjá honum. Eptir messuna spurði prest- ur hann, hversu honum hefði líkað ræðan. Mýrdal svaraði: Engin hafði eg af því not, er það sálar voði: það var eins og flyti flot fram á köldu soði. Þess hefir áður verið getið, að séra Páll var nokkuð ölkær. Hann var vanur optast að hressa sig á brenni- vínstári, áður en hann fór upp í stólinn. Var eineygða Gunna vön, svo sem fyr er getið, að stinga bláu bóluglasi, sem tók hálfpela, f hempuvasa prests, áður en hann fór í kirkjuna og hann svo vanur að skreppa út, rétt áður en hann skyldi stíga í stólinn, og gera sér gott af dropanum. Prestur fór svo með þetta, að þótt menn grunaði það, þá var hann aldrei að því staðinn. Svo var það eitt sinn, að prófastur kom í eptirlitsferð og var við embættisgerð hjá Páli presti. Próf. hafði heyrt ávæning af þessu, og þegar prestur gekk út, rétt áður en hann skyldi í stól stíga, þá fylgdi prófastur þegar . á hæla honum og fékk prestur ekkert ráðrúm til að gæða sér úr glasinu. Hann sté svo í stólinn og byrjaði prédikun, en í öndverðri ræðunni segir hann: „Jesús sagði við læri- sveinana: „Innan skamms munuð þér ekki sjá mig,““ og í sama bili lét hann sig hverfa niður í „pontuna“ og saup vel á glasinu, sem hann hafði áður tekið úr vasanum; spratt síðan upp og hélt áfram: „en innan skamms munuð þér sjá mig aptur.“ - Ekki er þess getið, að prófastur gæfi sig neitt að þessu. „Úr hverju dó Heródes?“ Barnauppfræðing séra Páls þótti fremur léleg og nokkuð með ein- kennilegu móti. Hann gekk mjög ríkt eptir því, að börn kæmu til spurninga á „kirkjugólf" á hverjum messudegi frá nýári og fram á sumar, og að söfnuðurinn hlýddi á barnayf- irheyrsluna, en opt voru spurningar hans fremur hjákátlegar. Kona, sem gekk til spurninga hjá séra Páli, þegar hún var barn (9 ára) og sem enn er á lífi sagði mér svo frá: Það var á fyrsta sunnudag í janúar, að hann spurði hana: Geturðu sagt mér, rýjan mín, úr hverju hann dó hann Heródes? Henni varð ógreitt um svarið. Þá segir prestur: „Það er varla von, að þú vitir það, en eg get sagt þér það: Hann drap sig á kálfskjötsáti.“ Ekki lagði séra Páll af gáska sinn og meinlega hrekki, þótt aldur færð- ist yfir hann. Móðir mín, sem þá var ung kona og nýgift, í Haganesi í Fljótum, sagði mér þessa sögu: Það var haust eitt, að haldin var þar hreppssamkoma. Þar var séra Páll og einnig séra Jón Norðmann prest- ur á Barði, báðir lítið eitt við öl. - Séra Jón var maður feitlaginn og sérkennilegur í ýmsum háttum, þótt stórgáfaður væri. Hann var allra manna fljótastur í svefn. Þau for- eldrar mínir bjuggu í húsi sérstöku, suður af baðstofunni. Var móðir mín þar ein, að þessu sinni, með ungbarn. Þangað koma þeir báðir prestarnir og leggst séra Jón þar aptur á bak upp í rúm, en séra Páll gengur um gólfið, og tala þeir saman um stund, en er minnst varir er séra Jón farinn að hrjóta hátt. Hann svaf upp í loft og bar lágt höfuðið. Séra Páll hélt á pontunni í hendinni og er hann heyrir séra Jón hrjóta, gengur hann að rúminu og sáldrar tóbakinu í hvarma prests, hnippir í hann, svo hann vakni, og segir: „Æ, það fer svo illa um höfuðið á blessuðum prestinum. “ Að því búnu þýtur hann á dyr, en séra Jón vaknar, og við það er hann opnar augun hrynur tóbakið inn á sjáaldrið, og hann verður friðlaus af sviða og kvölum í augun- um og æðir þannig um gólfið. Spyr hann eptir, hver hafi skaðað sig þannig, og varð móður minni ógreitt um svar, en illa sagði hún sér hefði liðið, því af því hún var þarna ein hjá presti, hefði hann helst mátt ætla, að hún væri völd að þessu, en rétt í sömu svifum vendir séra Páll inn aptur og lætur þá, sem þetta komi alveg flatt upp á sig, og spyr, hvað gangi að blessuðum prestinum, og aumkvar hann mjög. Pétur biskup kom á síðustu prest- skaparárum séra Páls í visitasíuferð norður og yfirheyrði börn hjá honum. Með honum var þar séra Jón Norðmann. Ef eitthvert barn- anna stóð sig lélega, þá var alltaf viðkvæðið hjá séra Páli: „Það kom í vor neðan úr Fljótum, úr sóknum séra Jóns.“ Það vissi Páll, að var séra Jóni hin mesta raun, en varla mun biskup hafa lagt mikið upp úr því, því honum mun hafa verið kunnugt, að barnauppfræðsla séra Jóns var í besta lagi. Þegar Grímur Thomsen skáld kom heim eptir hina löngu dvöl sína erlendis, heimsótti hann séra Pál frænda sinn. Spurði Grímur allýtar- lega um Pál, hvernig kennimaður hann væri og um háttu hans, og með kýmni nokkurri. Knappsstaðaprestakall var lagt til Barðs 17. febr. 1880. Um líkt leyti mun Páll prestur hafa fengið lausn frá prestskap. Var hann þá orðinn gamall maður. Hann mun hafa flutt um sama leyti (vorið 1881) að Saur- bæ í Austurfljótum til Tómasar son- ar síns, og þar dó hann, 10. nóv. 1881,84 ára gamall. Er hann grafinn í Stórholtsgarði og mun leiði hans hafa verið framundan kirkjudyrum gömlu Holtskirkju, sem stóð í miðj- um kirkjugarðinum. Er á leiðinu steinn úr ísl. blágrýti, mjór og langur, með þremur nokkurnveginn jöfnum flötum eptir endilöngu og letrað þvers á þá nafn Páls prests, fæðingar- og dánarár. Steinninn er gerður af Jakob Jónssyni í Minni- brekku í Fljótum (Myllu-Kobba); letrið er ófagurt en skýrt og steinninn allur klúr. Hann er nú langt að því sokkinn í jörð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.