Tíminn - 24.09.1988, Síða 3
Laugardagur 24. september 1988
HELGIN
I BETRI SÆTUM
iimau
XL
Salem's Lot:
Fyrst trúði ég ekki
en nú er ég óviss
Stjörnugjöf = ★★★ 1/2
Framleiðandi: Richard Kobritz og
Stirling Silliphant
Aðalhlutverk: David Soul, James
Mason, Lance Kerwin, Bonnie Bedel-
ia, Lew Ayres
Myndband: Steinar hf.
Undirritaður er einn þeirra sem
að öllu jöfnu hafa ekki gaman af
því að horfa á hrollvekjur, sérstak-
lega ekki ef hrollvekjan í myndinni
er af yfirnáttúrulegum toga, s.s.
djöflar, draugar eða blóðsugur.
Ástæðan er einföld, yfirgnæfandi
meirihluti slíkra mynda verður ein-
faldlega hjákátlegur og gjörsam-
lega vonlaust að þær gagntaki
mann. Þó eru til vel gerðar undan-
tekningar á þessu og er Salem's
Lot dæmi um hrollvekju sem nær
að reyra mann fastan.
Sagan, sem byggir á skáldsögu
Stephen King, er vel gerð og farið
með efnið á þann hátt að nútíma-
manninum er gefinn kostur á að
yfirvinna vantrú sína á jafn ótrú-
íegu fyrirbæri eins og blóðsugum.
Raunar ætti sú staðreynd ein sér,
að byggt er á sögu Stephans King,
strax að gefa vísbendingu um að
spennumynd er á ferðinni og í
myndinni tekst að koma spennunni
til skila.
Myndin er í flesta staði vel gerð
og leikurinn það góður að þegar
komið er að þeim atriðum myndar-
innar sem eftir á að hyggja ættu að
vera hvað ótrúlegust, finnst áhorf-
andanum þau einfaldlega rökrétt
framhald af því sem á undan er
gengið. David Soul sem leikur
hinn unga rithöfund tekst vel upp
en sérstök ástæða er þó til að nefna
leik James Mason sem tekst vel
upp í hlutverki hins illa herra
Straker.
Þráður myndarinnar er í stórum
dráttum sá að um svipað leyti og
ungur rithöfundur, Ben Mears,
kemur til Salem's Lot fer að bera
á undarlegum viðburðum sem
tengjast ákveðnu húsi í bænum og
íbúa þess, aðfluttum forngripasala.
Upphefst síðan mikil barátta milli
góðs og ills. - BG
„TOPP
TUTTUGU“
1.(7) Black Widow (Steinar)
2. ( 5) Dragnet (Laugarásbíó)
3. ( 2) Princess Bride (J.B.Heildsala)
4. ( 1) Hentumömmuaflestinni (Háskólabíó)
5. ( - ) No Man’s Land (Háskólabíó)
6. ( 9) SummerSchool (Háskólabíó)
7. ( 3) Kæri Sáli (Háskólabíó)
8. ( 6) No Way Out (Skífan)
9. ( 4) Nornirnarfrá Eastwick (Steinar)
10.(10) Eyeof TheTiger (Myndbox)
11.(12) Some Kind of Wonderful (Háskólabíó)
12.(11) TheBournelndentity (Steinar)
13. (18) QuietCool (Skífan)
14. ( - ) UnderCover (Myndbox)
15.(13) ThreeFortheRoad (Steinar)
16.(15) TheSqueeze (Steinar)
17. ( 8) Revenge of The Nerds #2 (Steinar)
18. (14) MadetoOrder (Steinar)
19. ( - ) Biggles (Steinar)
20. ( - ) Blue Lightning (Myndform)
NO MANS‘S LAND
Ein með öllu
Stjörnugjöf = ★★★ 1/2
Aðalhlutverk: Charlie Sheen, D.B.
Sweeney, Lara Harris og Bill Duke
Leikstjóri: Peter Werner
Þetta er ein með öllu. Hrað-
skreiðir bílar, fagrar konur (og
karlar), nóg af seðlum, byssur og
ríflega útilátinn skammtur af
spennu.
Ég var mjög spenntur að horfa á
Charlie Sheen, eftir að hafa séð
hann í Platoon. Hann olli ekki
vonbrigðum. Að vísu leikur hann
mjög svo spilltan einstakling að
þessu sinni, en það ferst honum vel
úr hendi. Sama má í raun segja um
aðra leikara myndarinnar þó svo
Sheen standi upp úr að mínu mati.
Söguþráður myndarinnar er
hinn ágætasti. Ungur og óreyndur
lögregluþjónn fær það hlutverk að
koma sér inn í glæpahring bíla-
þjófa, sem sérhæfa sig í Porsche
bifreiðum. Lögregluþjónninn
kemst inn og vinnur trúnað þeirra
er stela Porsche bifreiðum. Inn í
þetta allt saman fléttast stríð við
samkeppnisaðila, sem gerir mynd-
ina enn meira spennandi. Að því
kemur að lögregluþjónninn (leik-
inn af D.B. Sweeney) verður að
gera upp við sig hvoru megin við
lögin hann vill vera. Sú ákvörðun
er erfið, eftir að hafa kynnst hinu
ljúfa lífi. Rismikill endir sem þú
mátt ekki missa af.
Ég er mikill „þriller" aðdáandi
og sem slíkur verð ég að mæla
eindregið með þessari. Við erum
búnir að vera nokkuð fúlir á þessari
síðu, enda myndirnar slakar. En
þessi er vel þess virði að sjá hana,
jafnvel þó sendingar frá Seoul séu
heillandi. - ES
A RETURN TO SALEM’S LOT:
Saga sveitarfélags skráð
við óvenjulegar aðstæður
Stjörnugjöf = ★ ★
Leikstjóri: Larry Cohen
Aðalhlutverk:
Michael Moriarty, Samuel Fuller,
Andrew Duggan, Ricky Addison
Reed, June Havoc, Evelyn Keyes
Myndband: Steinar hf.
Á sama hátt og vel heppnaðar
hryllingsmyndir geta valdið manni
andvöku fá lélegar hryllingsmyndir
mann til að brosa framan af og
síðan hálf leiðast. Kvikmyndin
„Return to Salem's Lot“ á að vera
sjálfstætt framhald af myndinni
„Salem‘s Lot“ sem byggð er á sögu
Stephen King. Sagt er að þessi
seinni mynd byggi á persónum sem
Stephen King hafi skapað, en þó
gæti reynst erfitt fyrir þá sem
annaðhvort hafa lesið bók Stephen
King eða séð Salem's Lot að átta
sig á skyldleikanum.
Þessi saga greinir frá baráttu
góðs og ills, rétt eins og fyrri
myndin, og fulltrúi hins góða er í
myndinni harðsvíraður mann-
fræðingur sem vegna fjölskyldu-
ástæðna er kallaður heim úr gagn-
merkum rannsóknarleiðangri og
fer ásamt syni sínum í Iítinn smábæ
á Nýja Englandi. Þar hitta þeir
fyrir fádæma viðskotailla íbúa strax
við komuna í bæinn, en bærinn
virðist að flestu leyti hálf lífvana.
Hins vegar færist fjör í leikinn eftir
að sólin er sest, enda megin þorri
íbúanna Ijósfælinn í meira lagi og
þola illa dagsbirtuna eins og blóð-
suga er siður.
Öll söguuppbyggingin er með
slíkum hætti að ef menn eru ekki
búnir að undirbúa sig fyrirfram og
telja sér trú um að ekkert sé
sjálfsagðara en að blóðsugur séu á
næsta horni, er ótrúlegt annað en
að menn lendi í hláturskasti fyrir
framan sjónvarpið. Áhorfandinn
er ekki með nokkrum hætti undir-
búinn undir þau ósköp sem yfir
munu ganga og blóðsugurnar
streyma fram á skjáinn nær strax í
upphafi myndarinnar og bærinn er
í orðsins fyllstu merkingu blóðsug-
ubær. Ekki er því að neita að
húmorískur undirtónn er í mynd-
inni því blóðsugurnar í myndinni
hafa aðlagað sig bandarísku þjóð-
lífi nokkuð vel og stunda blómlega
nautgriparækt sér til lífsviðurværis
og hafa vélað hinn kunna mann-
fræðing til sín gagngert tii þess að
fá mann með nauðsynlega kunn-
áttu til þess að rita sögu þessa
blóðsugusveitarfélags. Sem gam-
anmynd má segja að „Return to
Salem‘s Lot“ sé þokkalega vel
heppnuð, þó að manni læðist sá
grunur að hún hafi ekki verið
hugsuð sem slík. Niðurstaðan hlýt-
ur því að verða sú að „Return to
Salem‘s Lot“ er í misheppnaða
kantinum sem hryllingsmynd, en
er ekki versta gamanmynd sem
undirritaður hefur séð. Ekki hvað
síst hefur undirritaður skemmt sér
við tilhugsunina um hvort Ólafur
Ásgeirsson, þjóðskjalavörður og
félagar, sem fengnir voru til að rita
sögu Fróðárhrepps hefðu staðið
sig jafn vel og mannfræðingurinn
knái sem skrá átti sögu Salem Lot,
ef selshöfuðið í eldstæðinu á Fróðá
hefði beðið þá um að skrifa sögu
sína út frá sjónarhól selshöfuðsins
í Fróðárundrum. - BG