Tíminn - 29.10.1988, Síða 13
Laugardagur 29. október 1988
HELGIN
13
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
burða og hefði þess vegna þurft að
berja svona oft.
- Gæti hann verið kona? veltu
lögreglumenn fyrir sér.
- Læknirinn yppti öxlum. - Það er
möguleiki. Hins vegar beita konur
sjaldan hamri. Þær kjósa hreinlegri
athöfn, til dæmis byssu eða eitur.
Það er sóðalegt að myrða með
hamri.
Enn þótti mikilvægasta atriði
rannsóknarinnar símtalið sem Mari-
lyn hafði átt um hálfsex á föstudag-
inn og að hún hefði sagt vinkonu
sinni að hún ætlaði að hitta konu á
eftir, sem hefði hringt til hennar.
Þessi dularfulla kona virtist ekki
tilheyra skjólstæðingshóp Marilyn.
Hvert var þá samband þeirra? Gat
verið að Marilyn hefði átt stefnumót
við morðingja sinn?
Ákveðin í að komast til botns í
þessu, ræddi lögreglan aftur við
vinkonuna og bað hana endilega að
reyna að muna hvort Marilyn hefði
sagt eitthvað meira um konuna sem
hún ætlaði að fara að hitta.
- Mig minnir að Marilyn hafi sagt
að hún ætti stefnumót í Haltwhistle,
svaraði konan eftir nokkur heila-
brot. - Getur verið að þar sé krá sem
heitir „Bláa kerran?“
Svo reyndist vera og lögreglu-
menn óku þegar þangað og ræddu
við eigandann. Hann sagði að Bar-
nard-hjónin hefðu iðulega verið
Mér datt einfaldlega í hug að henni
hefði sinnast við vin sinn og hann
látið hana ganga heim.
Þetta var aðeins fyrsta vitnið af
þrem sem sáu konu í loðkápu og
hælaháum skóm á veginum. Seinna
sama dag kom tvítugur maður sem
var með vinkonu sinni í flutningabíl
á föstudagskvöldið og sá konuna á
gangi.
Þá hringdi kennari og kvaðst hafa
ekið framhjá konunni á leiðinn i til
Brampton. - Það snjóaði mikið, en
hún vildi greiniiega ekki bílfar, svo
ég stöðvaði ekki bílinn, sagði hann.
Enginn gat lýst konunni vandlega,
en lögreglan var sannfærð um að
þarna var komin dularfulla konan,
sem hringdi til Marilyn og bað hana
að hitta sig. Það að hún var fótgang-
andi úti á vegi, benti til að hún hefði
ekið líki Marilyn að kastalanum og
gengið til baka til Brampton, í stað
þess að þiggja bílfar af einhverjum
sem gæti hæglega borið kennsl á
hana seinna.
Elskhugi í kirkjukór
Nú gat lögreglan fátt annað gert
en beðið þess að eitthvað kæmi í ljós
hjá þeim mönnum sem géngu milli
húsa og ræddu við fólk á svæðinu
umhverfis Bláu kerruna.
Þá var það á miðvikudagskvöld að
einn þeirra hringdi á stöðina og var
töluvert niðri fyrir. - Ég er á bónda-
bæ sem heitir Grænidalur, sagði
hann. - Hér er maður með mikilvæg-
ar upplýsingar. Ég vil fá menn
hingað strax.
Þegar yfirmenn lögreglunnar
komu á staðinn, endurtók vitnið það
sem áður var sagt og var mikið niðri
fyrir. - í gær var ég að bera rusl
héðan út í laut sem ég fleygi oft í.
Þar sá ég nokkra klumpa af frosnum
snjó, sem virtust hafa verið stungnir
til með skóflu. Þeir voru löðrandi í
blóði. Ég vissi ekki hvað ég átti að
halda, enda var þetta alls ekki frá
mér komið. Blóðið var allt of mikið
til að vera úr særðri skepnu. Ég
spurði vinnumann minn, hvort hann
gæti skýrt þetta.
Hann sagði að á sunnudaginn
hefði Patricia Turcotte, frænka mfn
hérna á næsta býli, verið að moka
snjó af stéttinni hjá sér. Hann sá
einhverja flekki í snjónum. Auðvit-
að vissi ég um morðið á frú Barnard
og mundi þá að konan mín sagði á
föstudagskvöld að fyrir utan húsið
hjá Patriciu stæðu tveir bílar. Annan
átti hún sjálf en hinn sást ógreini-
lega. Þegar ég fór út um tíuleytið,
var annar bíllinn farinn.
Ég vissi að það var skylda mín að
tilkynna lögreglunni þetta, sagði
bóndinn. - Samt vildi ég ekki koma
frænku minni í vandræði ef hún væri
saklaus eins og ég gerði ráð fyrir. Ég
var enn að berjast við samviskuna,
þegar lögreglan kom hingað.
Nú voru tekin sýni af blóðblettaða
snjónum til greiningar. Bóndinn var
spurður frekar um frænku sína og
upplýsti að hún væri 34 ára og ógift.
Sjálfur ætti hann húsið sem hún
byggi í. - Hún er aðlaðandi kona og
við höfum alltaf verið bestu vinir,
sagði hann. - Hún er söngkona og
Með þessum hamri var Marilyn
banað. Lögreglunni þótti morð-
inginn berja óþarflega oft.
gestir sínir og hann þekktu þau vel.
- Marilyn hefur ekki komið hingað
nýlega, sagði hann. Hún var ekki
hér á föstudagskvöld, hvorki ein né
með annarri konu. Það er ég viss
um, sagði hann.
Óþekkt kona í loðkápu
Þetta voru lögreglunni vonbrigði.
Vissulega gat Marilyn hafa ætlað að
hitta konuna úti fyrir kránni, en þær
síðan ekið eitthvert annað, sín á
hvorum bílnum.
Nú tóku lögreglumenn að ganga í
hús í þorpinu, í þeirri veiku von að
rekast á eitthvað sem varpaði ljósi á
síðustu ferðir Marilyn Barnard og
dularfullu konunnar.
Á mánudagsmorgun, þann 9.
febrúar, var get opinbert að lögregl-
an grunaði konu um morðið. Fjöl-
miðlar báðu alla sem orðið hefðu
varir konu, fótgangandi eða á bíl í
grennd við Naworth-kastala á föstu-
dagskvöld, að gefa sig fram við
lögregluna.
Skömmu fyrir hádegi á mánudag-
inn kom 19 ára piltur á stöðina.
Hann kvaðst hafa verið að aka
vinkonu sinni heim á mótorhjóli um
klukkan hálf ellefu umrætt kvöld.
- Það var mikil snjókoma þá,
sagði hann. - Þegar við komum að
kastalaslóðinni fórum við framhjá
konu sem gekk hratt eftir veginum.
Hún var í loðkápu og með kragann
brettan upp svo ég sá ekki framan í
hana en mér fannst hún fremur ung.
starfar að nokkru leyti sem slík. Auk
þess er hún í kirkjukómum.
Framhjáhald
á hinn bóginn
Nú beindist athygli lögreglunnar
að þeirri staðreynd, að eiginmaður
hinnar myrtu söng í sama kirkjukór.
Bóndinn vissi ekki til þess að frænka
sín þekkti Marilyn Barnard.
Daginn eftir varð ljóst að blóðið í
snjónum var úr sama blóðflokki og
blóð hinnar myrtu. Þetta sannaði
svo sem ekkert en nú þótti gild
ástæða til að ætla að Patricia Tur-
cotte vissi eitthvað um morðið á
Marilyn.
Nú fóru lögreglumenn á skjalasafn
staðarins og báðu um dagskrár
kirkjukórsins undanfarið. Þær voru
fyrir hendi og í einni nýlegri gat að
líta mynd af Patriciu Turcotte og
það sem merkilegra var: Við hlið
hennar stóð Bamard og myndin var
tekin er þau sungu tvísöng saman.
Hingað til hafði ekkert bent til að
Barnard væri viðriðinn morðið á
konu sinni og lögreglumenn áttu
bágt með að trúa að svo gæti verið.
Samt sem áður var ákveðið að hitta
hann heima um kvöldið.
Hann varð steinhissa er hann var
spurður um kynni sín af Patriciu
Turcotte. - Já, ég þekki hana mjög
vel, svaraði hann. - Við höfum oft
sungið tvísöng saman með kómum.
- Var samband ykkar eitthvað
nánara? vildi lögreglan vita.
Barnard varð tortrygginn á svip
og pírði augun. - Hvers vegna spyrj-
Astarsamband um síma
Barnard hikaði en kinkaði síðan
kolli. - Já, við urðum góðir vinir
eftir æfingar fyrir fjómm árum og
það þróaðist út í nánara samband.
Barnard greindi síðan frá samskipt-
um sínum við söngkonuna, sem var
svo miklu yngri en hann. Hann
viðurkenndi að þau hefðu farið að
með mikilli leynd, því hvorugt vildi
falla í áliti í litla samfélaginu. Þau
höfðu aldrei látið sjá sig saman á
almannafæri og hist á ýmsum stöðum
vikulega eða svo um langan tíma án
þess að kona hans vissi. Þá höfðu
þau farið nokkmm sinnum saman í
stutt leyfi og Barnard sagt könu sinni
að það væru viðskiptaferðir.
- Við vomm bæði innilega ást-
fangin, en ræddum aldrei um mögu-
leika á hjónabandi, hélt Barnard
áfram. - Pat vissi að ég unni börnun-
um mínum og skilnaður yrði mér
mjög erfiður.
Sumarið 1986 tilkynnti Patricia
Barnard að hún væri ófrísk. - Ég
bauðst til að hjálpa henni, sagði
Barnard, - en hún sagðist hafa gert
ráðstafanir til að eignast barnið.
Seinna sagðist hún svo hafa misst
fóstrið.
Ótrúi eiginmaðurinn hélt síðan
áfram að hitta hjákonuna fram á
haust 1986. Þá komst kona hans á
snoðir um allt saman. Barnard sagði
að Marilyn hefði orðið svo mikið
um, að hann hefði lofað að hitta
Patriciu ekki aftur og reyna að
gleyma henni. Hann sagði Patriciu
frá því og hún var sammála um að
það væri hið eina rétta.
llllll
Patricia Turcotte var ekki kraftalega vaxin og konur fremja sjaldan
morð með bareflum.
ið þið að því?
- Við teljum ástæðu til að ætla að
ungfrú Turcotte sé viðriðin morðið
á konu þinni.
Barnard virtist gjörsamlega for-
viða. - Ykkur getur ekki verið
alvara. Vissulega er líklegt að Patri-
cia hafi verið afbrýðisöm gagnvart
konu minni en hún gæti aldrei framið
morð með köldu blóði.
Lögreglumennirnir létu engan bil-
bug á sér finna. - Eftir síðustu
orðum þínum að dæma, finnst okkur
ekki ólíklegt að þú hafir átt ástaræv-
intýri með Patriciu Turcotte. Er það
rétt?
- Við hittumst ekki upp frá því,
hélt Barnard áfram. - En ég hringdi
til hennar nær daglega.
Daginn sem Marilyn var myrt,
hringdi Patricia til hans á skrifstof-
una í hádeginu. - Hún var ekkert
óvenjuleg að heyra og minntist ekki
á Marilyn. Þegar svo Marilyn kom
ekki heim um kvöldið, hringdi ég til
Pat og sagði henni það. Hún varð
hissa en sagði mér að hafa ekki
áhyggjur, hún hlyti að koma. Ég
hringdi aftur til hennar síðdegis og
hún sagði sem svo: - Ég vona að
konan þín fari að koma, ég er að
vera jafn áhyeEjufull og þú.
Þetta er allt sem ég get sagt ykkur,
lauk Bamard máli sínu. Ég get ekki
trúað að Patricia eigi neinn þátt í
dauða Marilyn. Hún er góð mann-
eskja og blíðlynd. Ég get heldur
ekki ímyndað mér að hún sé nógu
sterk til að bana manneskju með
hamri.
Hamar og loðkápa
Samþykkt var að fá heimild til að
gera húsleit hjá Patriciu og farið var
þangað morguninn eftir. Patricia var
ekki yfirheyrð þá en hún fyldist með
hverri hreyfingu lögreglumannanna,
bæði inni í húsinu og á stéttinni fyrir
utan, þar sem fundust greinilegar
leifar blóðs. Lögreglumenn tóku
með sér hamar, kúbein, öxi og
járnstöng, sem fannst í skúr að
húsabaki. Við rannsókn fundust
ekki blóðleifar á neinu af þessu.
Þá var bóndinn spurður aftur og
hann gat bent á annan nágranna sem
oft gerði við bílinn fyrir Patriciu og
hlyti þar af leiðandi að vita hvaða
verkfæri hún ætti.
Nágranninn staðfesti þegar í stað
að Patricia ætti stóran hamar og
hann kvaðst hafa notað hann sjálfur
við vinnubekkinn í skúmum í vik-
unni áður og ekki muna betur en að
hafa skilið hann eftir á sínum stað.
Lögreglan var þó handviss um að
enginn slíkur hamar hefði verið í
skúrnum við húsleitina. Nú var
ákveðið að leita enn rækilegar og þá
fannst 2ja kílóa hamar í ruslahrúgu.
Hins vegar vom engar blóðleifar á
honum enda hefði hann verið þveg-
inn vandlega.
Nú var gefin út handtökuskipun á
Patriciu Turcotte. Þann 17. febrúar
óku þrír lögreglubílar upp að litla
húsinu og færðu húsráðanda á stöð-
ina. Patricia sýndi ekki minnstu
geðbrigði og var strax yfirheyrð. {
fyrstu svaraði hún öllum spurningum
geðshræringarlaust. Hún viður-
kenndi samband sitt við eiginmann
hinnar myrtu en neitaði að hafa
nokkurn tíma hitt Marilyn Barnard.
Hún var sallaróleg þegar hún stað-
hæfði að hafa alls ekki hringt til
hennar klukkan hálfsex á föstudeg-
inum eða hitt hana seinna um kvöld-
ið og að vita alls ekkert um morðið.
Þegar á leið kvaðst Patricia hafa
verið heima hjá sér mest allt föstu-
dagskvöldið, aðeins skroppið einu
sinni út á bílnum. Hún játaði að eiga
loðkápu en harðneitaði að vera kon-
an sem gekk á hælaháum skóm í
snjókomu eftir veginum frá kastal-
anum.
Ætlaði að hefna sín
Vitnin þrjú sem séð höfðu konuna
á gangi, vom nú kölluð á lögreglu-
stöðina til sakbendingar. Patricia
Turcotte stillti sér upp ásamt þremur
öðrum konum, svipuðum að stærð
og útliti.
Kennarinn treysti sér ekki til að
benda á neina ákveðna en hin vitnin
tvö bentu bæði á Patriciu sem kon-
una á veginum. Skömmu síðar hóf-
ust yfirheyrslur á ný og smátt og
smátt linaðist Patricia og loks kom
þar að hún viðurkenndi að hafa myrt
Marilyn Barnard.
Formleg réttarhöld yfir Patriciu
hófust 12. október 1987. - Þetta var
skelfilegt, sagði ákærða í réttarsaln-
um. - Ég veit að ég gerði það, en
sem betur fer man ég ekki mikið af
því. Þetta líktist martröð. Ég hringdi
í frú Barnard og vildi hefna mín á
manni hennar. Ég ók á undan frá
kránni og þegar við stigum út úr
bílunum heima hjá mér, byrjaði hún
að æpa á mig og formæla mér. Ég
réðst á hana og við duttum báðar í
hálkunni. Hún vankaðist eitthvað
og gat ekki staðið upp strax, en á
meðan sótti ég hamarinn.
Ég barði hana oft með honum. Á
eftir vafði ég líkið í teppi og stakk
því inn í bílinn hennar.
Réttarhöldin tóku fjóra daga og
niðurstaðan var ljós fyrirfram. Pa-
tricia Turcotte var sek fundin um að
myrða eiginkonu elskhuga síns.
Aðeins ein refsing kom til greina:
Lífstíðarfangelsi.
Einu sjáanlegu viðbrögð Patriciu
Turcotte við dómnum voru þau að
hún beit á vörina þegar hún var leidd
niður stiganp í fangaklefann á ný.