Tíminn - 22.11.1988, Blaðsíða 2

Tíminn - 22.11.1988, Blaðsíða 2
2 Ttminn; Þriðjudagur 22. nóvember 1988 Gríðarlegur fjöldi nauðungaruppboða f nýútkomnu Lögbirtingarblaði eru auglýsingar varðandi nauðung- aruppboð samtals 254 og eiga upp- boð þessi að verða í kringum miðjan jólamánuðinn. f Kópavogi eru aug- lýst 96 uppboð, þar af eru 64 þar sem uppboðsbeiðandi er veðdeild Lands- banka fslands. Nefna má að auglýst er uppboð á 23 íbúðum í Engihjallanum, og dæmi er að finna um þrjár íbúðir á sömu hæð í fjölbýlishúsi sem eiga að fara á uppboð vegna skulda við veðdeildina, þar sem yfirleitt er um að ræða vanskil á afborgunum hús- næðisstjórnarlána. í fæstum tilvikum er þó um háar upphæðir að ræða, skuldir eru yfirleitt á bilinu 20-40 mm K6p*>%%, 'uppboð Eftutaldar . ^ vl «ldar, ef viðun. 'V % ., °ð”a.r UP banka fsland' 35 913 ^ ---vioun^ v neðangreindum kröi sett verður í dóm brekku lOíKópp- 1988 kl. Jft-' ákvö-- eígandi odsbeiðandi fr •• W \ I ir. UDI>' 'an þúsund, auk vaxta og kostnaðar. Ásgeir Magnússon uppboðshald- ari hjá bæjarfógetanum í Kópavogi sagðist halda að fjöldi beiðna yrði svipaður og í fyrra sem var metár, en þá bárust 4200 nauðungaruppboðs- beiðnir. Aðspurður sagði Ásgeir að lítill hluti beiðnanna færi alla leið, þ.e. að eigandi missti viðkomandi eign, slík tilvik yrðu væntanlega hátt í tuttugu á þessu ári. Stefán Skarphéðinsson sýslumað- ur í Barðastrandarsýslu sagðist giska á að nauðungaruppboðin væru allt að því þrefalt fleiri en í fyrra, en í Lögbirtingarblaðinu er nú auglýst 41 nauðungaruppboð í Barðastrandar- sýslu. Bæði er um uppboð að ræða hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Stefán sagði að þingfestingar, sem yfirleitt hafi verið 60-70 á ári, væru tvöfalt fleiri á þessu ári. Uppboðs- beiðnir væru komnar á fimmta hundrað í fasteignum og bátum en heldur færri í lausafé. Stefán sagðist giska á að það sem af er árinu hefðu u.þ.b. 12 eignir verið boðnar upp. Hjá sýslumanninum í Gullbringu- sýslu, þar sem nú eru auglýst 93 nauðungaruppboð, fengust þær upp- lýsingar að ástandið á Suðurnesjun- um væri mjög slæmt, og gjaldþrot hafi aldrei verið jafnmörg bæði hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Jón Eysteinsson sagði að af þeim upp- boðum sem auglýst væru færu innan víð 10% alia leið. Eygló Halldórs- dóttur ritstjóri Lögbirtingarblaðsins sagðist ekki geta merkt það að nauðungaruppboðum hefði fjölgað. Hinsvegar hefði gjaldþrotum fjölgað verulega, sérstaklega í Reykjavík. Á móti komi að gífurleg fjölgun hafi orðið í nýskráningum á fyrirtækjum, þannig að kannski sé ekki undarlegt að aukning verði í gjaldþrotunum einnig. Eygló nefndi einnig að það væri erfitt að átta sig á aukningu nauð- ungaruppboða yfir styttri tímabil vegna þess að á sumrin væri tveggja mánaða réttarhlé og fjöldi uppboða væri alltaf meiri í mánuðunum þar á eftir. Embættin séu að vinna upp tímabil þar sem ekkert er sent út af uppboðstilkynningum. Varðandi mikinn fjölda uppboðs- beiðna frá veðdeild Landsbankans þá sagði Eygló að það væri vegna þess að fógeti tæki saman einn kröfuhafaflokk í einu. ssh Menní Borgarfirði horfast í augu við mýs um nætur: 200 mýs á tæpri viku Ólafur bóndi Kristófersson í Kalmanstungu í Borgarfirði hefur orðið var óvenjumikils músagangs þetta haust. „Ég hef aldrei áður séð nokkuð í líkingu við þetta þó heldur sé þetta farið að réna. Það hafa bókstaflega allir kofar verið fullir af músum. Eg held reyndar að mér hafi tekist að losa mig við megnið af þeim þó enn komi mýs í flestar gildrur að nóttu til“. Ólafur fékk tæpar 200 mýs í gildrur fyrstu vikuna sem hann veiddi í haust og síðan hafa þær mætt dauða sínum, ein af annarri. Hann tók undir það sem Þórður Tómasson segir hér annarsstaðar á síðunni að svo mikill músagangur hefði áður fyrr verið talinn vita á mikinn snjóavetur, hvað svo sem til væri í því. „Þetta er nú reyndar ekkert eins- dæmi hér á bænum því á þeim bæjum hér í kringum mig þar sem ekki eru kettir virðist allt vera fullt af mús. Þess eru jafnvel dæmi að menn hafi horfst í augu við mýsnar um nætur. Einn nágranni minn upp- lifði það eina nóttina að mýsnar voru skriðnar upp í til hans. Ég held hann hafi sofið með lokaðan munninn síðan“. Aðspurður sagðist Ólafur ekki hafa kött, hann vildi þá heldur hafa mýsnar. Hann kæmi þeim bara fyrir kattarnef sjálfur. Hvað segir þjóðtrúin? Þórður Tómasson, safnvörður minjasafnsins að Skógum, sagði að gamla fólkið hefði trúað því að mikill músagangur að hausti benti til að komandi vetur yrði harður. Þá sagði Þórður að talið hefði verið að holur músanna væru yfirleitt undan þeirri átt er yrði hvað verst um veturinn. Ef til dæmis holuopið sneri til suðurs væri von á norðanátt o.sv.frv. Ekki kannaðist Þórður við að óvenjumikill músagangur væri á Suðurlandi þetta haust og jafnvel heldur minni en oft áður ef eitthvað væri. Hann sagði að úr því að mýsnar væru þetta margar í Borgar- firði mætti búast við harðari vetri þar en sunnanlands, væri tekið mið af þjóðtrú. Fræðilegar útskýringar Karl Skírnisson á tilraunastöðinni að Keldum sagði að það væri al- kunna að mýs flykktust inn í hús þegar hausta tæki. Óvenjumikinn fjölda músa mætti helst rekja til þess að árferði hefði verið gott, því mýs væru ekki fjölærar og flestar þeirra dræpust reyndar að vetrinum. Hins- vegar sagði Karl að engar marktækar athuganir hefðu verið gerðar á fjölg- un músa milli ára hér á landi líkt og gert væri víða erlendis en þó hefðu þær verið taldar á stöku stað á landinu. Til dæmis hefði talning í Mýrdal leitt í ljós að á einum hektara var þéttleiki músanna allt að 160 músum. Þama var þó um að ræða óvenju- góð lífsskilyrði fyrir mýsnar þar sem um var að ræða gróskumikið gróður- lendi. Mýs fjölga sér á sumrin og því er eðlilegt að þeirra verði mest vart á haustin því þá er stofninn stærstur. Karl benti á að það gerðist yfirleitt á hverju hausti að mýs flykktust inn í útihús, hlöður og jafnvel manna- bústaði til að flýja kólnandi veður. -áma Bíll valt ofan í Köldukvísl: ii Okumaður íhættu Alvarlegt umferðarslys varð á Þingvallavegi við Köldukvísl að morgni sunnudags. Talið er að rekja megi slysið til hálku, sem var á þessum slóðum á sunnudag. Slysið varð með þeim hætti að bifreið sem var ekið í austurátt valt ofan í Köldukvísl og hafnaði á hvolfi á kaf í vatni. Fallið af veginum niður í ána er um sex til sjö metrar. Tveir menn voru í bflnum og tókst farþeganum að komast út úr honum eftir nokkrar tilraunir og upp á veg þar sem hann náði í hjálp. Þar fékk hann til liðs við sig tvo menn sem eftir miklar og erfiðar tilraunir tókst að bjarga ökumanninum, sem var fastur í öryggisbeltinu, sem reyndist erfitt að losa. Mikið var af manninum dregið þegar hann náðist út úr bílnum og voru gerðar lífgunartilraunir, sem báru árangur. Maðurinn var síð- an fluttur á slysadeild Borgarspít- alans til frekari aðhlynningar. Farþeginn slasaðist einnig, auk þess sem annar björgunarmann- anna skarst á hcndi. -ABÓ Ölvaður ökumaður ók á bifreið á Hverfisgötu: Hljóp af vettvangi Ölvaður ökumaður ók á kyrrstæða bifreið á Hverfisgötu á móts við Vitastíg á þriðja tímanum aðfara- nótt mánudags. Bifreiðin sem ekið var á kastaðist upp á gangstétt, reif með sér tvo stöðumæla og ventil af hitaveitubrunni. Ökumaðurinn hljóp af vettvangi en náðist nokkru síðar og viðurkenndi að hafa verið ökumaður bílsins. -ABÓ Eldur í Foss- vogsskóla Kveikt var í tónmenntastofu Foss- vogsskóla síðastliðið laugardags- kvöld. Töluverðar skemmdir urðu, m.a. eyðilögðust hljóðfæri og hljóm- flutningstæki sem geymd voru í kennslustofunni. Tjónið er metið á nokkur hundruð þúsund krónur. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en reykur barst eftir loftræstikerfinu víðsvegar um húsið. Röskun á kennslu verður þó minniháttar. Brennuvargarnir brutu rúðu og kveiktu síðan eld í kennslustofunni sem er í kjallara skólans. Rannsókn- arlögreglan vinnur að rannsókn málsins, en enn hefur ekkert komið fram sem gefur vísbendingu um hverjir voru að verki. ssh Steingrímur Hermannsson um bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar: Kosið ef lögin falla Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra ítrekaði í gær það sem hann hefur áður sagt, að verði bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar felld í meðförum Alþingis, muni þing rofið og boðað til kosninga. Tilefnið var að Kristín Halldórs- dóttir óskaði eftir umræðum utan dagskrár um bráðabirgðalögin í sameinuðu þingi og þá sérstaklega Atvinnutryggingarsjóð. Hún sagði sem sína skoðun að það væri óvirðing við Aiþingi að ríkisstjórnin léti sérlegan starfs- mann sinn og skömmtunarstjóra hefja útdeilingu fjár svo hundruð- um milljóna skipti nú á næstu dögum sem óvíst væri að Alþingi legði blessun sína yfir. Hún minnti einnig á andstöðu Kvennalistans við að fjármagna sjóðinn með framlögum úr Atvinnuleysistrygg- ingasjóði. Ragnhildur Helgadóttir lýsti sig sammála Kristínu og taldi Atvinnutryggingarsjóð mjög hæp- ið fyrirbrigði, ef til vill iöglegan en trúlega siðlausan. Fleiri tjáðu sig um málið, þar á meðal Haildór Blöndal, en hann lýsti furðu sinni á hvernig hægt væri að lána útflutn- ingsfyrirtækjum úr sjóðnum þar sem fyrir lægi að ekki væri rekstrar- grundvöllur fyrir megninu af þeim. Hann sagði fyrir hönd síns flokks að þeir væru reiðubúnir til við- ræðna við stjórnina um bráða- birgðalögin hvenær sem væri, jafnt á nóttu sem degi. - ág

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.