Tíminn - 22.11.1988, Page 3

Tíminn - 22.11.1988, Page 3
Þriðjudagur 22. nóvember 1988 Tíminn 3 Lög sem banna kjarasamninga gætu drepið verka- lýðshreyfinguna. Ásmundur Stefánsson forseti AS(: „Innbyrðis deilur skila okkur engu“ _„Á þingi Alþýðusambands íslands árið 2000 var tekin formleg ákvörðun um að leggja sambandið niður... Snemma á árinu 1988 voru kjarasamningar stéttarfélaga bannaðir með lögum. Verkföll til að knýja fram launahækkanir voru einnig bönnuð. Frá þvi þessi lög voru sett höfðu frjálsir samningar stéttarfélaga aldrei fengið að standa óhaggaðir nema fáeina mánuði. Lögin stöðvuðu samningsbundnar kauphækkanir en hrófluðu ekki við þeim samningum sem einstaklingar gerðu hver fyrir sig á sínum vinnustað. Kjarasamningar félaganna höfðu misst gildi sitt og félagsmennirnir höfðu misst traust á stéttarfélögunum. Eina raunhæfa von verkafólksins um kjarabætur fólst ■ persónulegum samningum á hverjum vinnustað“. hreyfingarinnar til endurskoðunar, móta skýra stefnu í atvinnu- og efnahagsmálum, reka öflugt upp- lýsinga- og áróðursstarf og að síð- ustu, - fólk gerði sér grein fyrir að innbyrðis deilum yrði að linna þar sem þær skiluðu engu. Félagarnir yrðu að leggja áherslu á allt það sem sameinar þá. Ásmundur kom víða við í ræðu Þetta sagði Ásmundur Stefáns- son forseti ASÍ í upphafi setningar- ræðu sinnar á ASI þinginu í gær- morgun. Hann sagði að þetta væri hugsanlegur kafli í íslandssögunni ef svo heldur fram sem horft hefur um sinn. Ásmundur sagði að á síðasta áratug hefðu níu sinnum verið sett lög um kjaraskerðingu og skerð- ingu samningsréttar. Hann sagði að íslendingum væri það áhyggju- efni þegar fjötrar eru lagðir á pólska verkalýðshreyfingu og stjórnmálaöfl hefðu lýst áhyggjum sínum og fordæmt mannréttind- abrot pólskra stjórnvalda. Hins vegar virtust sömu stjórn- málaöfl telja það einfalt smekks- atriði hvort samningar á fslandi væru virtir, eða þeim rift eða þeir bannaðir með lögum. Hann brýndi þingfulltrúa til sam- stöðu gegn slíkum stjórnvaldaað- gerðum og að þeir kæmu í veg fyrir að íslensk verkalýðshreyfing fengi kafla um sig í íslandssögunni á svipaða leið og hann greindi í upphafi máls síns og sagði síðan; „það er bókstaflega skylda okkar að sjá til þess að svo verði ekki.“ Ásmundur fjallaði síðan um leiðir til að snúa vörn í sókn. Til þess þyrfti verkalýðshreyfingin að taka upp samhentari vinnubrögð, taka allt innra starf og skipulag ASÍ þingið: Samkeppni við þræla? „36. þing ASÍ mótmælir harð- lega þeim gegndarlausa innflutn- ingi á iðnaðarvörum, t.d. á fatnaði og húsgögnum frá löndum þar sem mannréttindi eru fótum troðin," segir í tillögu frá Félagi starfsfólks í húsgagnaiðnaði. í tillögunni segir ennfremur að fráleitt sé að ætlast til þess að íslenskir launamenn starfi í sam- keppni við vinnukrafta fólks í lönd- um þar sem starfsfólk er ekki launafólk í okkar skilningi heldur nánast þrælar. -sá sinni og sagði að tími hinna ein- földu lausna væri liðinn og atvinnu- uppbygging á komandi árum yrði ekki tryggð með átaki á einu af- mörkuðu sviði eins og oft hefur tíðkast. Hann ræddi vinnuvernd og við- horf til hennar og sagði að svo virtist sem umræða um hana hefði dottið niður og ekki hefði tekist að framfylgja lögum frá 1980 en sam- kvæmt þeim skal koma á fót öflugu kerfi öryggistrúnaðarmanna á vinnustöðum. Þá gagnrýndi hann það sem hann sagði að virtist vera viðhorf lækna og hjúkrunarfólks, að sjúkraþjónusta væri tekin fram yfir heilsugæslu sem líkja mætti við að viðgerðaþjónusta væri tekin fram yfir fyrirbyggjandi aðgerðir. -sá Ásmundur Stefánsson í ræðustól í gær. Þóra Hjaltadóttir: „Kemur í Ijós í dag eða í fyrramálið hvort ég verð í kjöri til varaforseta ASÍ.“ Þóra fékk flest atkvæði í miðstjórnarkjöri á flokksþingi framsóknarmanna og hefur kosningin verið túlkuð sem áskorun flokksþings til Þóru um að hún gefi kost á sér til varaforseta ÁSÍ. 36. þing ASÍ hófst í gærT;—'“ Óvissa um næstu forystu. Þóra Hjalta- dóttir um hugsanlegt framboð sitt til varaforseta: „Kemur í Ijós í dag“: Ásmundurlíklega forseti ASÍ áfram „Það kemur í Ijós í dag eða í fyrramálið hvort ég verði í kjöri til varaforseta ASÍ,“ sagði Þóra Hjaltadóttir frá Akureyri við Tím- ann í gær. Þóra sagði ennfremur að allt starf og stjórn ASÍ þyrfti að vera með ákveðnari hætti hverjir sem fara munu með stjórn næsta kjörtímabil. Mikil óvissa ríkir um hverjir muni skipa næstu forystu ASÍ og þykja stjórnmálaflokkarnir hafa minni tök á fólki en oftast áður. Þess var vænst að Ásmundur Stefánsson lýsti því skýlaust yfir í setningarræðu sinni að hann yrði áfram í kjöri til forseta, en það gerði hann ekki. Flestir eru þó á því að hann verði í kjöri, en Drög að ályktun um friðar- og mannréttindamál á ASI þingi: SKELFING HEIMSINS „Við viljum minna á að meiri- hluti íbúa veraldar býr við hungur og drepsóttir. Á sama tíma er varið í brjálað vígbúnaðarkapp- hlaup meira fé heldur en þyrfti til að koma vanþróuðum þjóðum á það stig að þær væru sjálfbjarga. Slík er skelfing heimsins í dag,“ segir í drögum að ályktun um friðar- og mannréttindamál er tekin verður fyrir á yfirstandandi þingi ASÍ. í drögunum er því fagnað að vopnahlé er nú komið á í styrjöld írana og íraka, þungum áhyggj- um er lýst vegna kúgunar ísra- elsmanna á Palestfnubúum, hern- aðaráþján ogsviptingu mannrétt- inda sem þeir hafi verið beittir. Þá er lýst andstyggð á ástand- inu í S-Afríku og sagt að þjóðir heims verði að sameinast um að tryggja rétt svartra þar í landi og afstýra því að minnihluti hvítra manna geti haldið áfram að kúga, myrða og arðræna þá. í lok ályktunardraganna segir: „Frelsi, jafnrétti og bræðralag eru kjörorð verkalýðshreyfingar- innar. Að þessum göfugu fyrir- heitum verðum við öll að vinna". honum mun ekki sama um hverjir veljist til stjórnar með honum. Þannig mun hann fráhverfur því að Þóra Hjaltadóttir verði annar varaforseta en vili fá Vilborgu Þorsteinsdóttur úr Vestmannaeyj- um. Talið hefur verið að Karl Steinar Guðnason verði í framboði til varaforseta en andstaða er talsverð gegn honum bæði meðal alþýðufl- okksmanna og eins hjá alþýðu- bandalagsmönnum. Segja sumir líklegt að þessir aðilar muni sameinast um Þóru Hjaltadóttur þó ekki væri nema til þess að halda Karli Steinari frá því að ná kjöri til varaforseta. í gær fór fram kjör starfsmanna þingsins og var þingforseti kjörinn Jón Karlsson. Fyrsti varaforseti var kjörin Kristín Hjálmarsdóttir, annar varaforseti Ingibjörg Guð- mundsdóttir og fjórir ritarar þings- ins voru kjörnir: Snjólaug Krist- jánsdóttir, Sigurjón Einarsson, Kristján Jóhannsson og Sigurlaug Sveinbjernsdóttir. í gær hófst umræða um laga- breytingar og um fjárhagsáætlun sambandsins, en í dag verður fjall- að um lífeyrismál, skipulagsmál ASÍ og kjaramál auk annars. Á morgun hefjast síðan þingstörf á því sem með hvað mestri óþreyju er beðið; kjöri forseta og varafor- seta ASÍ. -sá óvenjulegt kort fyrir $»9 venjulegtfólk mmm Ármúla 3 - 108 Reykjavík - Sími91-680988

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.