Tíminn - 22.11.1988, Qupperneq 9

Tíminn - 22.11.1988, Qupperneq 9
Þriðjudagur 22. nóvember 1988 Tíminn 9 Stjórnmálaályktun 20. flokksþings Framsóknarflokksins Frá 20. flokksþingi Framsóknarflokksins. Tímamynd: Pétur Myndun ríkisstjórnar Frjálshyggjan varð síðustu ríkisstjórn að falli. Framsóknarmenn höfðu ítrekað lagt fram tillögur til bjargar atvinnu- og efnahagslífi. A sumt var fallist en fátt framkvæmt af því sem mikilvægast var. Myndun þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr var því þjóðarnauðsyn. Framsóknarmenn tóku heilshugar þátt í viðleitni til þess að ná samstöðu um svonefnda niðurfærslu- leið í ágúst og september sl. Frjálshyggjuöflin komu í veg fyrir að samkomulag næðist. Það réð stjórnar- slitum. Myndun ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar er sögulegur viðburður. Það samstarf sem tókst milli Framsóknarflokks og Alþýðuflokks um uppgjör við Sjálfstæðisflokkinn á að geta orðið upphaf að öflugri samstöðu félagshyggjuaflanna í þjóðfélaginu. Myndun núverandi ríkisstjórnar Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og Alþýðubandalags með stuðningi Samtaka um jafnrétti og félagshyggju er skref.í þá átt að koma á víðtækri samvinnu félagshyggjuflókk- anna um stjórn landsins. Framsóknarflokkurinn er stærstur þeirra flokka sem hér eiga hlut að máli. Þátttaka hans er nauðsynleg ef stefna á til trausts og langvarandi stjórnarsamstarfs félagshyggjuaflanna. Atvinnu- og efnahagsmál Það kemur því enn í hlut Framsóknarflokksins að leiða þjóðina út úr miklum erfiðleikum í atvinnu- og efnahagsmálum. Þrátt fyrir mikinn afla og gott verð á erlendum mörkuðum árin 1986 og 1987, blasir við stöðvun útflutningsframleiðslunnar og gjaldþrot fjölmargra fyrirtækja. Vegna stjórnleysis í efnahags- málum hefur mistekist að koma í veg fyrir offjárfest- ingu, eyðslu og þenslu í góðærinu, með þeim afleiðingum að kreppa er yfirvofandi og verulegur samdráttur í þjóðarbúskapnum. Til viðbótar þessum heimatilbúna vanda bætist við fyrirsjáanlegur sam- dráttur í afla auk þess sem erlendar efnahagsspár benda til að verulega muni harðna á dalnum á næstu árum í hinum vestræna heimi. Sannast hefur svo ekki verður um villst að stjórn efnahags- og peningamála hefur brugðist. í því skyni að draga úr þenslu hafa útlán bankanna verið mjög takmörkuð. Því hafa útflutningsgreinarnar orðið að þola fjár- svelti á meðan atvinnurekstur, sem velt getur kostnaðinum yfir í verðlagið, hefur sótt milljarða á okurvöxtum til hins svonefnda frjálsa markaðar og fjárfest í skrifstofu- og verslunarhúsnæði á höfuð- borgarsvæðinu. Sú óarðbæra fjárfesting og gjaldþrotin, sem fylgja munu í kjölfarið geta reynst þjóðarbúinu dýrkeypt. Ef framleiðslan stöðvast, blasir við efnahagslegt hrun. Traustur rekstrargrundvöllur atvinnuveganna er forsenda fyrir efnahagslegri framtíð lands og þjóðar. Framsóknarmenn líta á það sem forgangsverkefni að skapa slíkan rekstrargrundvöll og treysta á ný undirstöðu efnahagslífsins. Til að slíkt megi takast verður að koma á markvissari stjórn efnahagsmála en nokkru sinni fyrr. Gera þarf heildarúttekt á öllum aðalatvinnuvegum landsmanna og kanna hvort þörf er á skipulagsbreytingum til að tryggja fyllstu hagkvæmni. Nauðsynlegt er að landsmenn allir geri sér grein fyrir hversu alvarleg staðan er. Hugarfarsbreytingar er þörf. Fyrirtæki og einstaklingar verða að sýna sparsemi, ábyrgð og ráðdeild. Stjórnvöld og opinber fyrirtæki verða að ganga á undan með góðu fordæmi í þessu efni. Til að ná árangri í því endurreisnarstarfi sem framundan er leggur flokksþing Framsóknarflokks- ins áherslu á eftirtalin höfuðmarkmið í efnahags- stefnu flokksins: 1. Að bæta afkomu atvinnuveganna, treysta at- vinnuöryggið og fyrirbyggja keðjuverkandi sam- drátt í hagkerfinu. 2. Að auka jafnvægi í þjóðarbúskapnum, jafnt innávið sem útávið. 3. Að halda niðri verðbólgu. 4. Að koma á heilbrigðum peningamarkaði og endurskipuleggja banka- og sjóðakerfið. 5. Að treysta jafnvægi í byggð landsins. Framsóknarmenn trúa því að með samstilltu átaki sé hægt að leysa vandann og skapa bjarta framtíð með traustum atvinnuvegum og almennri velmegun. Bætt afkoma atvinnuveganna Þegar hefur verið ráðist í fyrstu aðgerðir sem miða að því að forða framleiðslugreinum landsmanna frá stöðvun. Ljóst er að gera verður langtímaáætlun sem felur í sér frekari aðgerðir til að tryggja varanlegan rekstrargrundvöll atvinnuveganna. Fyrirtækjum verði sköpuð aðstaða til hagræðingar og tæknivæðingar. Gert verði öflugt og samstillt markaðsátak fyrir íslenskar vörur erlendis og íslend- ingar hvattir til að kaupa fremur innlendar vörur en erlendar. Reynt verði að jafna þær sveiflur sem óhjákvæmi- lega verða í sjávarútvegi. í því skyni skal Verðjöfn- unarsjóð.ur sjávarútvegsins efldur og reglum hans breytt í samráði við hagsmunaaðila. Jafnvægi í þjóðarbúskapnum Til að sporna gegn óhóflegri erlendri skuldasöfnun er nauðsynlegt að afnema allar ríkisábyrgðir á erlendum lántökum banka- og fjárfestingarsjóða. Undanskilin skulu þó eðlileg lán til útflutnings- greina. Strangt eftirlit og aðhald verði með erlendum lántökum. Ýtrasta sparnaðar verði gætt í ríkisrekstri. Stöðug endurskoðun eigi sér stað á öllum kostnaðarþáttum ríkisins. Til að ná jafnvægi í ríkisbúskapnum er nauðsyn- legt að skattar hækki um sinn. Skattahækkanir verði í formi tekju- og eignarskatta. Skattakerfið og skipulag þess verði tekið til heildarendurskoðunar hið allra fyrsta. Skattaeftirlit og innheimta verði stórbætt. Flokksþingið leggur áherslu á að skatta- hækkun komi til hjá þeim efna og tekjumeiri í þjóðfélaginu. Þess verði tryggilega gætt að kaup- máttur lægstu launa verði verndaður. Verðbólga Verðbólga hefur lengi verið eitt mesta vandamál íslensku þjóðarinnar. Hún hefur dregið úr hagvexti og spillt lífskjörum. Framsóknarflokkurinn hefur ávallt beitt sér fyrir raunhæfum aðgerðum gegn verðbólgu. Nú hefur náðst sá árangur að verðbólgan hefur hjaðnað m.a. í skjóli verðstöðvunar, hann ber að tryggja. Til þess að verðbólgan fari ekki af stað er verðstöðvun lýkur verða raunvextir að lækka verulega á verðstöðvunartímabilinu. Þetta er fors- enda heilbrigðs atvinnurekstrar og þess að íslensk framleiðsla standist samkeppni við erlenda. Einnig felur vaxtalækkun í sér raunhæfar kjarabætur fyrir þá einstaklinga sem mest þarfnast þeirra. Heilbrigður peningamarkaður . í því skyni að koma á heilbrigðri skipan peninga- markaðarins leggur Framsóknarflokkurinn áherslu á að sett verði lög sem tryggi að þessi markaður lúti samræmdri stjórn og reglum. Stefnt verði að því að vísitölubinding fjárskuldbindinga falli niður. Nauðsynlegt er að uppstokkun banka- og sjóða- kerfisins verði þegar hafin til að ná aukinni hag- kvæmni. Flokksþingið hvetur ríkisstjórnina til þess að beita sér fyrir að bankar og peningastofnanir breyti skuldum fyrirtækja og einstaklinga sem orðið hafa fyrir skakkaföllum í viðráðanleg langtímalán. Jafnvægi í byggð landsins Framhald þeirrar byggðaröskunar sem staðið hefur undanfarin ár mun valda stöðnun eða afturför víða á landsbyggðinni og auka vandamál á höfuð- borgarsvæðinu. Áframhaldandi byggðaröskun mun draga úr hagvexti og rýra lífskjör þjóðarinnar. Það er allra hagur að úr byggðaröskun dragi og jafnvægi náist. Skilyrði er traust staða útflutnings- greinanna. Flokksþingið leggur áherslu á að skipulega verði unnið að eflingu og meiri fjölbreytni í atvinnulífi landsbyggðarinnar, m.a. með því að flytja þjónustu- starfsemi eins og frekast er unnt út á land, og auka sjálfstæði landshluta. Flokksþingið telur rétt að vinna að því að þriðja stjórnsýslustiginu verði komið á fót. Auðlindir lands og sjávar verða ekki skynsam- lega nýttar nema byggðin sé dreifð um landið. Byggðastofnun verði efld til að vinna skipulega að verkefni sínu sem er að stuðla að þjóðhagslega hagkvæmri þróun byggðar í landinu. Stofnunin hætti að starfa sem almennur stofnlánasjóður á sviðum þar sem fyrir eru aðrir stofnlánasjóðir en einbeiti sér að aðgerðum til eflingar og aukningar fjölbreytni atvinnulífs landsbyggðarinnar. Einnig verði tryggt að Byggðastofnun geti haft frumkvæði að gerð landshlutaáætlana sem nái til opinberra fram- kvæmda og skipulagningar opinberrar þjónustu. Stjórnsýslustöðvar verði byggðar upp í öllum kjördæmum landsbyggðarinnar. Fjölskyldan Flokksþingið leggur áherslu á að fjölskyldan sé sú grunneining þjóðfélagsins sem styðja ber og styrkja. Heilbrigt og menningarlegt líf og aukin samvera fjölskyldunnar er verðmætari en hin ýmsu lífsþæg- indi sem keypt eru fyrir peninga. Umhverfismál Flokksþing framsóknarmanna hvetur til þess að sérstakt ráðuneyti fari með yfirstjórn umhverfis- 'mála. Ákvarðanir um aðgerðir til að koma í vegfyrir mengun, landeyðingu eða hvers konar spillingu umhverfis verði teknar í því ráðuneyti að höfðu samráði við viðkomandi fagráðuneyti. Brýnustu verkefnin eru að vinna að gróðurvernd og stöðva landeyðingu, hamla gegn mengun í sjó, ám og vötnum, draga úr mengun frá verksmiðjum og bifreiðum, vernda dýralíf og náttúru landsins. Flokksþingið telur Islendingum skylt að taka virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi um umhverfismál. Utanríkismál Flokksþingið leggur áherslu á að áfram verði fylgt þeirri sjálfstæðu utanríkisstefnu, sem mótuð var í utanríkisráðherratíð Steingríms Hermannssonar. Ákvarðanir allar verði teknar á grundvelli ís- lenskra hagsmuna. Á alþjóðavettvangi styðji fslend- ingar sjálfsákvörðunarrétt þjóða og full mannrétt- indi minnihlutahópa, undirokaðra kynþátta og þjóð- arbrota. Áhersla verði lögð á að stuðla að fækkun kjarnorkuvopna og samdrætti í vígbúnaði. Ekki verði gerðir nýir samningar um meiriháttar hernað- arframkvæmdir. Samskipti íslendinga við Varnarlið- ið verði endurskipulögð. Flokksþingið varar við fullri aðild að Evrópu- bandalaginu, en leggur áherslu á aðlögun að þeim samruna, sem framundan er í Vestur-Evrópu, sérstaklega með það fyrir augum að tryggja íslend- ingum öruggan markað fyrir framleiðslu landsins. Framsóknarflokkurinn mun enn sem fyrr setja manngildi ofar auðgildi og standa traustan vörð um hugsjónir samvinnu- og samhjálpar og stuðla að jöfnuði og þjóðfrelsi íslendinga.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.