Tíminn - 22.11.1988, Page 9
Þriðjudagur 22. nóvember 1988
Tíminn 9
Stjórnmálaályktun
20. flokksþings Framsóknarflokksins
Frá 20. flokksþingi Framsóknarflokksins. Tímamynd: Pétur
Myndun ríkisstjórnar
Frjálshyggjan varð síðustu ríkisstjórn að falli.
Framsóknarmenn höfðu ítrekað lagt fram tillögur til
bjargar atvinnu- og efnahagslífi. A sumt var fallist
en fátt framkvæmt af því sem mikilvægast var.
Myndun þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr var því
þjóðarnauðsyn.
Framsóknarmenn tóku heilshugar þátt í viðleitni
til þess að ná samstöðu um svonefnda niðurfærslu-
leið í ágúst og september sl. Frjálshyggjuöflin komu
í veg fyrir að samkomulag næðist. Það réð stjórnar-
slitum.
Myndun ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar
er sögulegur viðburður. Það samstarf sem tókst milli
Framsóknarflokks og Alþýðuflokks um uppgjör við
Sjálfstæðisflokkinn á að geta orðið upphaf að öflugri
samstöðu félagshyggjuaflanna í þjóðfélaginu.
Myndun núverandi ríkisstjórnar Framsóknarflokks,
Alþýðuflokks og Alþýðubandalags með stuðningi
Samtaka um jafnrétti og félagshyggju er skref.í þá
átt að koma á víðtækri samvinnu félagshyggjuflókk-
anna um stjórn landsins. Framsóknarflokkurinn er
stærstur þeirra flokka sem hér eiga hlut að máli.
Þátttaka hans er nauðsynleg ef stefna á til trausts og
langvarandi stjórnarsamstarfs félagshyggjuaflanna.
Atvinnu- og efnahagsmál
Það kemur því enn í hlut Framsóknarflokksins að
leiða þjóðina út úr miklum erfiðleikum í atvinnu- og
efnahagsmálum. Þrátt fyrir mikinn afla og gott verð
á erlendum mörkuðum árin 1986 og 1987, blasir við
stöðvun útflutningsframleiðslunnar og gjaldþrot
fjölmargra fyrirtækja. Vegna stjórnleysis í efnahags-
málum hefur mistekist að koma í veg fyrir offjárfest-
ingu, eyðslu og þenslu í góðærinu, með þeim
afleiðingum að kreppa er yfirvofandi og verulegur
samdráttur í þjóðarbúskapnum. Til viðbótar þessum
heimatilbúna vanda bætist við fyrirsjáanlegur sam-
dráttur í afla auk þess sem erlendar efnahagsspár
benda til að verulega muni harðna á dalnum á næstu
árum í hinum vestræna heimi. Sannast hefur svo
ekki verður um villst að stjórn efnahags- og
peningamála hefur brugðist. í því skyni að draga úr
þenslu hafa útlán bankanna verið mjög takmörkuð.
Því hafa útflutningsgreinarnar orðið að þola fjár-
svelti á meðan atvinnurekstur, sem velt getur
kostnaðinum yfir í verðlagið, hefur sótt milljarða á
okurvöxtum til hins svonefnda frjálsa markaðar og
fjárfest í skrifstofu- og verslunarhúsnæði á höfuð-
borgarsvæðinu.
Sú óarðbæra fjárfesting og gjaldþrotin, sem fylgja
munu í kjölfarið geta reynst þjóðarbúinu dýrkeypt.
Ef framleiðslan stöðvast, blasir við efnahagslegt
hrun.
Traustur rekstrargrundvöllur atvinnuveganna er
forsenda fyrir efnahagslegri framtíð lands og þjóðar.
Framsóknarmenn líta á það sem forgangsverkefni
að skapa slíkan rekstrargrundvöll og treysta á ný
undirstöðu efnahagslífsins. Til að slíkt megi takast
verður að koma á markvissari stjórn efnahagsmála
en nokkru sinni fyrr. Gera þarf heildarúttekt á öllum
aðalatvinnuvegum landsmanna og kanna hvort þörf
er á skipulagsbreytingum til að tryggja fyllstu
hagkvæmni.
Nauðsynlegt er að landsmenn allir geri sér grein
fyrir hversu alvarleg staðan er. Hugarfarsbreytingar
er þörf. Fyrirtæki og einstaklingar verða að sýna
sparsemi, ábyrgð og ráðdeild. Stjórnvöld og opinber
fyrirtæki verða að ganga á undan með góðu fordæmi
í þessu efni.
Til að ná árangri í því endurreisnarstarfi sem
framundan er leggur flokksþing Framsóknarflokks-
ins áherslu á eftirtalin höfuðmarkmið í efnahags-
stefnu flokksins:
1. Að bæta afkomu atvinnuveganna, treysta at-
vinnuöryggið og fyrirbyggja keðjuverkandi sam-
drátt í hagkerfinu.
2. Að auka jafnvægi í þjóðarbúskapnum, jafnt
innávið sem útávið.
3. Að halda niðri verðbólgu.
4. Að koma á heilbrigðum peningamarkaði og
endurskipuleggja banka- og sjóðakerfið.
5. Að treysta jafnvægi í byggð landsins.
Framsóknarmenn trúa því að með samstilltu átaki
sé hægt að leysa vandann og skapa bjarta framtíð
með traustum atvinnuvegum og almennri velmegun.
Bætt afkoma atvinnuveganna
Þegar hefur verið ráðist í fyrstu aðgerðir sem miða
að því að forða framleiðslugreinum landsmanna frá
stöðvun. Ljóst er að gera verður langtímaáætlun
sem felur í sér frekari aðgerðir til að tryggja
varanlegan rekstrargrundvöll atvinnuveganna.
Fyrirtækjum verði sköpuð aðstaða til hagræðingar
og tæknivæðingar. Gert verði öflugt og samstillt
markaðsátak fyrir íslenskar vörur erlendis og íslend-
ingar hvattir til að kaupa fremur innlendar vörur en
erlendar.
Reynt verði að jafna þær sveiflur sem óhjákvæmi-
lega verða í sjávarútvegi. í því skyni skal Verðjöfn-
unarsjóð.ur sjávarútvegsins efldur og reglum hans
breytt í samráði við hagsmunaaðila.
Jafnvægi í þjóðarbúskapnum
Til að sporna gegn óhóflegri erlendri skuldasöfnun
er nauðsynlegt að afnema allar ríkisábyrgðir á
erlendum lántökum banka- og fjárfestingarsjóða.
Undanskilin skulu þó eðlileg lán til útflutnings-
greina. Strangt eftirlit og aðhald verði með erlendum
lántökum.
Ýtrasta sparnaðar verði gætt í ríkisrekstri. Stöðug
endurskoðun eigi sér stað á öllum kostnaðarþáttum
ríkisins.
Til að ná jafnvægi í ríkisbúskapnum er nauðsyn-
legt að skattar hækki um sinn. Skattahækkanir verði
í formi tekju- og eignarskatta. Skattakerfið og
skipulag þess verði tekið til heildarendurskoðunar
hið allra fyrsta. Skattaeftirlit og innheimta verði
stórbætt. Flokksþingið leggur áherslu á að skatta-
hækkun komi til hjá þeim efna og tekjumeiri í
þjóðfélaginu. Þess verði tryggilega gætt að kaup-
máttur lægstu launa verði verndaður.
Verðbólga
Verðbólga hefur lengi verið eitt mesta vandamál
íslensku þjóðarinnar. Hún hefur dregið úr hagvexti
og spillt lífskjörum. Framsóknarflokkurinn hefur
ávallt beitt sér fyrir raunhæfum aðgerðum gegn
verðbólgu. Nú hefur náðst sá árangur að verðbólgan
hefur hjaðnað m.a. í skjóli verðstöðvunar, hann ber
að tryggja. Til þess að verðbólgan fari ekki af stað
er verðstöðvun lýkur verða raunvextir að lækka
verulega á verðstöðvunartímabilinu. Þetta er fors-
enda heilbrigðs atvinnurekstrar og þess að íslensk
framleiðsla standist samkeppni við erlenda. Einnig
felur vaxtalækkun í sér raunhæfar kjarabætur fyrir
þá einstaklinga sem mest þarfnast þeirra.
Heilbrigður peningamarkaður
. í því skyni að koma á heilbrigðri skipan peninga-
markaðarins leggur Framsóknarflokkurinn áherslu
á að sett verði lög sem tryggi að þessi markaður lúti
samræmdri stjórn og reglum. Stefnt verði að því að
vísitölubinding fjárskuldbindinga falli niður.
Nauðsynlegt er að uppstokkun banka- og sjóða-
kerfisins verði þegar hafin til að ná aukinni hag-
kvæmni.
Flokksþingið hvetur ríkisstjórnina til þess að beita
sér fyrir að bankar og peningastofnanir breyti
skuldum fyrirtækja og einstaklinga sem orðið hafa
fyrir skakkaföllum í viðráðanleg langtímalán.
Jafnvægi í byggð landsins
Framhald þeirrar byggðaröskunar sem staðið
hefur undanfarin ár mun valda stöðnun eða afturför
víða á landsbyggðinni og auka vandamál á höfuð-
borgarsvæðinu. Áframhaldandi byggðaröskun mun
draga úr hagvexti og rýra lífskjör þjóðarinnar.
Það er allra hagur að úr byggðaröskun dragi og
jafnvægi náist. Skilyrði er traust staða útflutnings-
greinanna.
Flokksþingið leggur áherslu á að skipulega verði
unnið að eflingu og meiri fjölbreytni í atvinnulífi
landsbyggðarinnar, m.a. með því að flytja þjónustu-
starfsemi eins og frekast er unnt út á land, og auka
sjálfstæði landshluta. Flokksþingið telur rétt að
vinna að því að þriðja stjórnsýslustiginu verði komið
á fót. Auðlindir lands og sjávar verða ekki skynsam-
lega nýttar nema byggðin sé dreifð um landið.
Byggðastofnun verði efld til að vinna skipulega að
verkefni sínu sem er að stuðla að þjóðhagslega
hagkvæmri þróun byggðar í landinu. Stofnunin hætti
að starfa sem almennur stofnlánasjóður á sviðum
þar sem fyrir eru aðrir stofnlánasjóðir en einbeiti sér
að aðgerðum til eflingar og aukningar fjölbreytni
atvinnulífs landsbyggðarinnar. Einnig verði tryggt
að Byggðastofnun geti haft frumkvæði að gerð
landshlutaáætlana sem nái til opinberra fram-
kvæmda og skipulagningar opinberrar þjónustu.
Stjórnsýslustöðvar verði byggðar upp í öllum
kjördæmum landsbyggðarinnar.
Fjölskyldan
Flokksþingið leggur áherslu á að fjölskyldan sé sú
grunneining þjóðfélagsins sem styðja ber og styrkja.
Heilbrigt og menningarlegt líf og aukin samvera
fjölskyldunnar er verðmætari en hin ýmsu lífsþæg-
indi sem keypt eru fyrir peninga.
Umhverfismál
Flokksþing framsóknarmanna hvetur til þess að
sérstakt ráðuneyti fari með yfirstjórn umhverfis-
'mála. Ákvarðanir um aðgerðir til að koma í vegfyrir
mengun, landeyðingu eða hvers konar spillingu
umhverfis verði teknar í því ráðuneyti að höfðu
samráði við viðkomandi fagráðuneyti.
Brýnustu verkefnin eru að vinna að gróðurvernd
og stöðva landeyðingu, hamla gegn mengun í sjó,
ám og vötnum, draga úr mengun frá verksmiðjum
og bifreiðum, vernda dýralíf og náttúru landsins.
Flokksþingið telur Islendingum skylt að taka
virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi um umhverfismál.
Utanríkismál
Flokksþingið leggur áherslu á að áfram verði fylgt
þeirri sjálfstæðu utanríkisstefnu, sem mótuð var í
utanríkisráðherratíð Steingríms Hermannssonar.
Ákvarðanir allar verði teknar á grundvelli ís-
lenskra hagsmuna. Á alþjóðavettvangi styðji fslend-
ingar sjálfsákvörðunarrétt þjóða og full mannrétt-
indi minnihlutahópa, undirokaðra kynþátta og þjóð-
arbrota. Áhersla verði lögð á að stuðla að fækkun
kjarnorkuvopna og samdrætti í vígbúnaði. Ekki
verði gerðir nýir samningar um meiriháttar hernað-
arframkvæmdir. Samskipti íslendinga við Varnarlið-
ið verði endurskipulögð.
Flokksþingið varar við fullri aðild að Evrópu-
bandalaginu, en leggur áherslu á aðlögun að þeim
samruna, sem framundan er í Vestur-Evrópu,
sérstaklega með það fyrir augum að tryggja íslend-
ingum öruggan markað fyrir framleiðslu landsins.
Framsóknarflokkurinn mun enn sem fyrr setja
manngildi ofar auðgildi og standa traustan vörð um
hugsjónir samvinnu- og samhjálpar og stuðla að
jöfnuði og þjóðfrelsi íslendinga.