Tíminn - 22.11.1988, Qupperneq 10
10 Tíminn
irnw i i in
Þriðjudagur 22. nóvember 1988
Þriðjudagur 22. nóvember 1988
irnv i i in
Tíminn 11
Körfuknattleikur:
Fyrsta stórtap ÍR-inga
Frá Margréti Sanders fréttamanni Timans:
ÍBK sigraði ÍR 88-59 í Flugleiða-
deildinni í körfuknattleik á sunnu-
dagskvöld. Staðan í hálfleik var
45-38.
ÍR-ingar höfðu frumkvæðið í byrj-
un og fram í miðjan hálfleikinn, en
þá komust Keflvfkingar yfir og
höfðu yfir í hálfleik, 45-38, eins og
áður sagði. ÍR-ingar komu ákveðnir
til síðari hálfleiks og komust yfir
50-51, en Keflvíkingar áttu þá mjög
góðan kafla og breyttu stöðunni í
68-51. Þar átti Axel Nikulásson stór-
an þátt. Keflvíkingar juku sfðan
Leikur. BK-ÍR 88-59 Uð:ÍR
NMn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stig
Björn 13-4 _ 4 - 1 1 8
Karl 5-1 6-2 1 1 6 2 5 10
Sturla 9-1 4-1 2 3 3 _ - 5
Eiríkur 1-0 1-0 0
Jóhannes 9-6 - 2 4 5 2 - 13
Ottó 1-0 - - - - - - 0
Jónöm 4-4 1-1 2 4 5 - 2 13
Ragnar 11-5 - 1 2 1 - - 10
Gunnar 0
Leikur: BK-ÍR 88-59 Lið: ÍBK
NMn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Sli'l
Falur 4-3 1-0 - 1 1 - 1 7
Sigurður 18-10 - 2 9 2 2 - 21
Gestur 1 1
Albert 1-0 - 1 2 _ - _ 0
Einar 1-1 1 2
Magnús 7-2 - 2 5 4 2 1 6
Guðjón 14-7 4-1 2 4 1 1 3 18
Axel 7-5 - 2 4 - - - 10
JónKr. 8-4 4-3 - 3 3 4 12 21
Nökkvi 2-1 - 2 2 2 - 2 2
ÞREFALDUR
NÆSTA LAUGARDAG!
Vinningstölurnar 19. nóvember 1988
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.122.044,-
Þar sem fyrsti vinningur hefur ekki gengið út tvo undanfarna
laugardaga, bætist hann við fyrsta vinning á laugardaginn
kemur. Kr. 5.738.129.-
BÓNUSTALA + fjórar tölur réttar kr. 611.046,- skiptast á 3
vinningshafa, kr. 203.682,- á mann.
Fjórar tölur réttar kr. 1.053.928,- skiptast á 188 vinningshafa,
kr. 5.606,- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 2.451.070,- skiptast á 6.382 vinningshafa,
kr. 385,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
forystuna jafnt og þétt og leiknum
lauk eins og áður sagði 88-59.
Bestur Keflvíkinga va Jón Kr.
Gíslason sér í lagi í fyrri hálfleik,
Axel átti góða kafla þó hann gangi
ekki heill til skógar og sýndi hversu
mikilvægur hann er fyrir liðið.
ÍR-liðið sem tapaði nú sínum
fyrsta leik á íslandsmótinu með yfir
10 stigum, var mjög jafnt í þessum
leik, Jón Örn stóð einna helst uppúr,
en Jóhannes Sveinsson átti einnig
ágætis leik.
' Dómarar voru Helgi Bragason og
Leifur Garðarsson. MS/BL
Loks Haukasigur
Haukar unnu Tindastól, 84-62, í
Flugleiðadeildinni í körfuknattleik í
Hafnarfirði á sunnudagskvöld.
Valur Ingimundarson, besti mað-
ur Sauðkrækinga í vetur og stiga-
hæsti leikmaður deildarinnar, var í
leikbanni í þessum leik og var það
skarð fyrir skildi í liði norðanmanna.
Engu að síðar stóðu Sauðkrækingar
í Haukunum og í hálfleik var staðan
37-36 Haukum í vil. Þegar 7 mín.
voru til leiksloka var staðan jöfn,
57-57, en á lokamín. keyrðu íslands-
meistararnir yfir leikmenn UMFT
og sigruðu meðmiklum mun, 84-62.
Stigin Haukar: Pálmar 29, ívar
14, Jón Arnar 12, Henning 10,
Ingimar 9, Ólafur 4, Eyþór 2 og
Reynir 2. UMFT: Haraldur 15, Eyj-
ólfur 14, Sverrir 11, Kári 10, Björn
7, Ágúst 4 og Guðbrandur 1.
BL
Yfirburðasigur
Njarðvík vann yfírburðasigur
ÍS, 90-42, í Njarðvík á sunnudags-
kvöld, staðan í hálfleik var 38-23.
Njarðvíkingar höfðu ávallt yflrhönd-
ina í fyrri hálfleik sem var mjög
slakur og mikið um mistök. I síðari
hálfleik keyrðu Njarðvíkingar upp
hraðann og aðeins var spurning
hversu stór sigurinn yrði. Bestur í
annars jöfnu liði UMFN var Friðrik
Ragnarsson, en hjá ÍS voru skástir
Páll Arnar og Valdimar Guðlaugs-
son.
Dómarar voru Jón Bender og
Bergur Steingrímsson. MS/BL
Leikur: UMFN-ÍS 90-42 Uð:ÍS
HMn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST SHfl
Hoimir 3-0 1-1 _ _ - 2 _ 3
Páll 9-3 5-2 - 4 8 4 2 13
Héðinn 2-0 - 2 - 3 - - 0
Gísli 2-0 1-0 - - 1 - - 0
Sólmundur 4-2 - 3 4 8 2 1 4
Auðunn 3-0 2-0 - 1 - - - 0
Þorsteinn 2-2 - 1 1 - 1 - 3
Valdimar 13-5 3-0 - 2 7 - - 12
Jón 7-0 1-1 1 2 3 2 1 3
Hafþór 4-2 1-0 - 8 4 1 - 4
Leikur: UMFN-ÍS 90-42 Uð: UMFN
NMn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST stifl
Helgi 13-7 - 3 7 3 6 - 18
Georg 5-3 2-1 2 - 1 4 - 9
Hreiðar 6-3 1-0 - 5 2 4 1 6
Alexander 4-0 - - - 1 - 1 0
Friðrik 7-3 1-1 1 1 - 1 5 16
Teitxu- 13-5 5-0 3 8 1 6 4 12
Viðar 2-0 - 1 2 - - - 0
ísak 7-4 5-3 1 - 4 4 3 22
Rúnar 2-2 - 2 - - - - 4
Agnar 2-1 - 1 2 - - - 3
Körfuknattleikur:
Stórsigur Valsmanna
Valsmenn unnu stóran sigur á
Þórsurum er liðin mættust í Flug-
leiðadeildinni í körfuknattleik að
Hlíðaenda á sunnudagskvöld. I hálf-
leik var staðan 49-36 fyrir Valsmenn,
sem bættu við í síöari hálfleik og
sigruðu auðveldlega 89-64.
Stigin Valur: Matthías 14, Tómas
12, Einar 12, Björn 11, Bárður 11,
Hreinn 8, Ragnar 8, Ari 4, Arnar 4
og Hannes 4. Þór: Konráð 26, Björn
17, Stefán 4, Guðmundur 4, Kristján
4, Eiríkur 3 og Einar 2. BL
Handknattleikur:
Óvænt mótspyrna
Valsmenn fengu óvænta mót-
spymu í 1. deildinni í handknattleik
í Vestmannaeyjum á sunnudags-
kvöld er þeir léku gegn liðið ÍBV.
Meistararnir náðu þó að sigra, 22-18,
eftir að staðan í hálfleik var 10-9
fyrir Val.
Það er erfitt að leika á útivelli og
það fengu Valsmenn að reyna í
þessum leik. Mótspyrna Eyjamanna
var mikil og Sigurður Gunnarsson
var þeirra besti maður. Þá átti þeir
Sigmar Þröstur í markinu og Sigurð-
ur Vignir Friðriksson einnig góðan
leik. Hornamenn Vals, þeir Valdi-
mar Grímsson og Jakob Sigurðsson
voru bestir í liði meistaranna.
Mörkin ÍBV: Sigurður Gunn. 6,
Sigurður Vignir 5, Tómas Ingi 2,
Þorsteinn 2, Sigbjörn 1, Sigurður F.
1 og Guðfinnur 1. Valur: Valdimar
6/3, Jakob 6, Sigurður Sv. 4/1, Jón
3, Júlíus 2 og Geir 1. BL
Óvæntur sigur
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
Vfldngar gerður sér lítið fyrir og
unnu óvæntan sigur á FH-ingum í
miklum markaleik sem fram 'fór í
höllinni á sunnudagskvöldið.
Það voru hornamenn Víkinga,
Guðmundur og Bjarki, sem af-
greiddu ráðleysislega FH-inga í gær.
Þeir skoruðu ríflega helming marka
Víkinga eða 18.
Jafnt var á flestum tölum í fyrri
hálf4| en í seinni hálfleik voru
Víkingar ávallt feti á undan FH-ing-
um og uppskáru sigur 33-30.
Mörk Víkings: Bjarki 9, Guðm.
9, Árni 8, Siggeir 3, Sigurður 2, Karl
1/1 og Einar 1.
Mörk FH: Gunnar 7, Guðjón 7/1,
Óskar 6/4, Héðinn 5, Þorgils 4 og
Einar 1. FH.
Handknattleikur:
Páll Ólafsson var leikmönnum Gróttu erfíður, þó sérstaklega í seinni hálfleik en þá skoraði hann
7 mörk
Handknattleikur:
KR-sigur í
nágrannaslag
KR-ingar unnu frekar ósannfærandi sigur á
nágrönnum sinum, liði Gróttu, í íþróttahúsi
Digranesskóla á laugardag, 23-28. Það má
með sanni segja að Páll Olafsson hafl unnið
leikinn fyrír KR-inga því hann átti hreint
frábæran síðari hálfleik og skoraði sjö mörk og
voru það öll hans mörk í leiknum.
Það voru Gróttumenn sem opnuðu leikinn
með marki Páls Björnssonar en KR-ingar
svöruðu um hæl með þremur mörkum Konráðs
Olavssonar. Gróttumenn náðu að halda f við
vesturbæjarstórveldið í fyrri hálfleik og höfðu
KR-ingar oftast þetta 1-2 marka forskot og
staðan í hálfleik 14-16 KR-ingum í vil.
Fljótlega í síðari hálfleik náðu Gróttumenn
að jafna leikinn og og var greinilegt að þeir
ætluðu að selja sig dýrt. En þá var komið að
vendipunkti í leiknum. Staðan var 20-21 og
Grótta komst í hraðaupphlaup, en Leifur
Dagfinnsson sem varla að heitið gæti að varið
hefði skot f öllum leiknum varði meistaralega.
Þá var komið að þætti Páls Ólafsson í leiknum
og kom þar greinilega í ljós gífurleg leikreynsla
hans. Skoraði hann þrjú mörk í röð og eftir
það var enginn spurning hvorum megin sigur-
inn myndi lenda.
Eins og áður sagði sýndu KR-ingar enga
meistaratakta í þessum leik og voru í raun
mjög ósannfærandi. Páll Ólafsson var þeirra
besti maður jafnvel þótt að hann sæist einungis
í síðari hálfleik. Þá áttu þeir Sigurður Sveins-
son og Konráð Olavsson góða spretti í fyrri
hálfleik. Þá má segja Jóhannesi Stefánssyni til
hróss að hann nýtti tækifærin vel.
Gróttuliðið stóð sig vel ef frá eru taldar'
síðustu 10 mín. í leiknum. Gífurleg leikgleði '
einnkennir leik liðsins og hafa þeir komist
langt á henni. Bestur í liði Gróttu var Sverrir
Sverrisson sem skoraði 7 mörk, flest þeirra
með glæsilegum langskotum. Þá var Halldór
Ingólfsson drjúgur. Þá eru þeir grimmir í
vörninni Willum Þór Þórsson og Gunnar
Gíslason og á stundum kannski einum of.
Leikinn dæmdu þeir Einar Sveinsson og
Gunnlaugur Hjálmarsson. Var dómgæslan
svona allt í lagi fyrir utan nokkra dóma sem
virkuðu á undirritaðan sem út í hött, en voru
þeir þó hvorugu liðinu í hag.
Mörkin:
Grótta: Halldór Ingólfsson 9 (4v), Sverrir
Sverrisson 8, Páll Björnsson 3, Stefán Amars-
son 2 og Davíð Gíslason 1.
KR: Páll Ólafson 7, Alfreð Gíslason 6,
Konráð Olavsson 5, Sigurður Sveinsson 4,
Jóhannes Stefánsson 3, Stefán Kristjánsson 2
og Guðmundur Albertsson 1. -PS
Staðan í 1. deild
Valur ............5 5 0 0 135-92 10
KR............... 5 5 0 0 128-103 10
Víkingur......... 5 3 0 2 134-134 6
FH............... 5 3 0 2 128-120 6
Stjarnan ........ 5 2 0 3 105-102 4
KA............... 5 2 0 3 110-117 4
Grótta........... 5 2 0 3 110-118 4
BK ............ 5 1 0 4 107-124 2
V.............. 5 1 0 4 102-121 2
ram .............5 1 0 4 104-132 2
Fram-sigur á Akureyri
Frá Jóhannesi Bjamasyni fróttamanni Tímans:
Framarar komu verulega á óvart
með því að leggja KA-menn að velli
með 23 mörkum gegn 22 er leikið
var á Akureyrí s.l. sunnudagskvöld.
Mikil spenna var síðustu mín.
þegar heimamenn gerðu örvænting-
arfullar tilraunir til að jafna leikinn,
en það tókst ekki og fyrstu stig
Framara á keppnistímabilinu voru í
höfn. Leikurinn var í heild ákaflega
slakur, en spennandi lengst af.
Framarar leiddu nær allan fyrri hálf-
leikinn með 1-3 mörkum og í hálfleik
voru þeir yfir 13-11.
Heimamenn skoruðu 4 fyrstu
mörkin eftir hlé og virtist sem þeir
ætluðu að taka öll völd, en Framarar
með skynsamlegum sóknarleik og
yfirveguðum héldu í við þá og tókst
að jafna leikinn 21-21 og komast yfir
22-21. KA-menn jöfnuðu, Hermann
Björnsson skoraði sigurmarkið 45
sek. fyrir leikslok. Sigurpáll Aðal-
steinsson lét Þór Björnsson verja frá
sér vítakast 25 sek. fyrir leikslok,
Framarar náðu knettinum, en töp-
uðu honum aftur til KA-manna, en
þeim tókst ekki að notfæra sér
lokatækifærið sem var aukakast eftir
venjulegan leiktíma.
Mikið gekk á lengst af síðari
hálfleik og fékk Jens Einarsson
markvörður Fram að líta rauða
spjaldið hjá dómurunum, Birni Jó-
hannessyni og Guðjóni L. Sigurðs-
syni, fyrir mótmæli og kjaftbrúk.
Ekki voru mótmæli Jens að ástæðu-
lausu, en það afsakar tæplega fram-
Handknattleikur
komu hans. Jens fór þó ekki langt,
því hann hvatti sína menn óspart frá
hliðarlínunni gegnt varamanna-
bekkjum og lét stórskotahríð áhorf-
enda engin áhrif á sig hafa.
Framarar voru vel að sigrinum
komnir, þeir börðust mjög vel, gáf-
ust aldrei upp þótt á brattan væri að
sækja. Birgir Sigurðsson og Her-
mann Björnsson voru yfirburða-
menn hjá liðinu og reyndar á vellin-
um. Greinilegt er að erfiður vetur er
framundan, en nái liðið upp baráttu
viðlíka og á Akureyri, geta fá lið
bókað sigur gegn þeim. Það stóð
ekki steinn yfir steini hjá KA-mönn-
um og voru vonbrigði áhorfenda
liðsins mikil. Keppnistímabilið hófst
vel með tveimur sigrum, en nú eru
komin þrjú töp. Agaleysi liðsins í
sóknarleiknum var hreint ótrúlegt
og sérkennilegt að sjá sömu leik-
mennina klúðra sókn eftir sókn á
mjög keimlíkan hátt. Sigurpáll
Aðalsteinsson var bestur heima-
manna og Pétur átti góða kafla. Allir
aðrir leikmenn liðsins spiluðu langt
undir getu. Markið var sett hátt í
byrjun, en nú ættu liðsmenn að snúa
sér að raunhæfari markmiðum.
Dómarar voru eins og áður sagði
þeir Björn Jóhannesson og Guðjón
Sigurðsson. Þeir voru æði mistækir,
en það kom þó ekki niður á öðru
liðinu.
Mörkin Fram: Birgir 8, Hermann
8/2, Tryggvi 3, Júlíus 3/1, Agnar 2
Gunnar 1. KA: Sigurpáll 8/4, Pétur
5, Erlingur 3, Haraldur 2, Jakob 2,
Friðjón 1 og Guðmundur 1.
JB/BL
Algiört malbik
Tímamynd: Pjetur
Það var ekki rismikill handknatt-
leikur sem var spilaður í leik Stjörn-
unnar og Breiðabliks á laugardag í
Digranesi. Stjarnan sigraði 23-15 og
áttu hræðilega lélegir Blikar aldrei
möguleika.
Stjarnan tók forystuna með mörk-
um frá þeim Axel Björnssyni, Sig-
urði Bjarnasyni og Hafsteini Braga-
syni og þessari forystu glötuðu
Stjörnumenn ekki. Eins og áður
sagði var handboltinn ekki glæsileg-
ur, þó brá fyrir ágætum sprettum hjá
Stjörnumönnum, en þess milli voru
þeir vart skárri en Blikar. Leikurinn
einkenndist aðallega af gífurlegu
fáti og gífurlegum fjölda mistaka hjá
báðum liðum. Þó ber að geta að
markmenn beggja liða, þeir Guð-
mundur Hrafnkelsson og Brynjar
Kvaran áttu alveg ágæta endaspretti.
Stjörnumenn spiluðu hreint ekki
vel og voru bara heppnir að andstæð-
ingarnir voru hreinlega slakari. Þó
ber að nefna þá Hafstein Bragason,
Sigurð Bjarnason og Gylfa Birgis-
son, en sá síðastnefndi lyfti sér
nokkrum sinnum upp og skoraði
glæsileg mörk og mætti Gylfi gjarnan
gera meira af því.
Blikar mega svona hvað úr hverju
fara að hugsa sinn gang. Leikur
þeirra var ofsalega lélegur. Þrátt
fyrir að oft á tíðum hafi boltinn verið
unninn í vörninni voru lætin þvílík
að skora að undantekningarlaust
endaði boltinn í Stjörnuhöndum.
Varla er hægt að taka einn Blika út
úr sem besta mann, en ég hef áður
nefnt ágætan endasprett Guðmund-
ar Hrafnkelssonar.
Leikinn dæmdu þeir Ólafur Har-
aldsson og Stefán Arnaldsson og
sýndu þeir eins og aðrir þennan dag
enga takta.
Mörkin:
Stjarnan: Hafsteinn Bragason 5,
Gylfi Birgisson 4, Skúli Gunnsteins-
son 4, Sigurður Bjarnarson 4, Hilm-
ar Hjaltason 3, Áxel Björnsson 2,
Valdimar Kristófersson í.
UBK: Hans Guðmundsson 4, Jón
Þórir Jónsson 4, Andrés Magnússon
2, Magnús Magnússon 2, Þórður
Davíðsson 2, Kristján Halldórsson
1. -PS
y-
Blomberq
Eldavélar - úrvals
vestur-þýskt merki
5 gerðir 5 litir
Hagstætt verð.
Góð greiðslukjör.
!
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28, sími 16995.
Leið 4 stoppar við dymar
ÞU NÆRÐ SETTU
oui j verð-
onrr
'KIF*1111
■ Við veitum þér faglega og persónu-
lega ráðgjöf, hvort sem þú þarft að
ávaxta fé eða afla þess.
S Viljir þú ávaxta fé bjóðum við þér
örugg verðtryggð skuldabréf með
góðum og öruggum raunvöxtum.
Lánstími skuldabréfanna getur verið
frá nokkrum mánuðum til nokkurra
ára. Við bjóðum þér einnig varðveislu
og innheimtu keyptra skuldabréfa án
endurgjalds.
M Þurfir þú á fé að halda veitum við
þér góð ráð og aðstoð við öflun þess.
IB Þú getur verið viss um að ná settu
marki í verðbréfaviðskiptum hjá
okkur.
S Vertu ávallt velkominn í afgreiðslu
okkar að Suðurlandsbraut 18.
_ fjármá! eru okkar fag!
0
l/ERÐBRÉFAUIÐSKIPTI
SAMUINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18 ■ SÍMI 688568
Teiknað hjá Tómasi