Tíminn - 22.11.1988, Qupperneq 15

Tíminn - 22.11.1988, Qupperneq 15
Þriðjudagur 22. nóvember 1988 Tíminn 15 Bítlavinafélagið sendir frá sér nýja plötu: TÓNLIST SEM GAMAN ER AÐ Eins og þeir sem fylgjast eitthvað með tónlist hafa eflaust tekið eftir hefur ákveðið afturhvarf átt sér stað í popptónlist að undanförnu. Jafnt íslenskir sem erlendir tónlist- armenn hafa í síauknum mæli feng- ið „lánuð“ eldri lög og tekið þau til flutnings. Nýjasta plata Bítlavina- félagsins er einmitt full af lögum sem fengin eru að „láni“. Bítlavinafélagið samanstendur af hóp manna sem virðast vita nákvæmlega hvað þá langar að gera, í tónlist að minnsta kosti. Það verður aftur til þess að þeim félögum tekst að mínu mati vel að koma gömlu íslensku „bítlalögun- um“ til skila, eins og þau voru í „den“. Það gerist til dæmis með sömu hljóðfæraskipan og tíðkaðist áður fyrr, þ.e. tveir gítarar, bassi trommur og píanó sem meira að segja er í tekk-umgjörð sem þótti rosalega flott þegar þessi tónlist var sem vinsælust. Þá hafa þeir blessunarlega látið það ógert að útsetja lögin á þann hátt að þau falli betur að þeirri tónlist sem nú er hlustað á, líkt og gömlu dægur- lögin voru gjarna „poppuð upp“ í diskótakt fyrir nokkrum árum. Ég býst svo sem við að sumir hefðu frekar kosið að heyra Gluggann í annaðhvort „Rap“ eða „Hiphop" stíl, en ekki ég, takk samt. Lagavali plötunnar er reyndar þannig háttað að sem ein heild stendur hún fyllilega fyrir sínu þó að innan um leynist lög sem eru heldur þung fyrir minn smekk, svokölluð „sýra“, en það hugtak verður ekki útskýrt frekar hér. Þau lög sem ég spái mestum vinsældum eru reyndar ótrúlega mörg og segir það kannski meira um plötuna en mörg orð. Þar má nefna Gluggann, Gvendur á Eyr- inni, Vetrarnótt, Léttur í lundu, Það er svo undarlegt með unga menn, Ertu með, Leyndarmál og Ég er frjáls. í hinum hópnum, ef hóp skyldi kalla, eru lög eins og Dimmar rósir, Skuldir og Kling klang. Þessi hópur minnir reyndar á máltækið, „Einn í hóp og annar í biðröð“. (Útúrdúr höfundar). Bítlavinafélagið er hljómsveit sem á undanförnum misserum hef- Hugleiðingar UMSJÓN: Arni______ Magnússon BLAÐAMAÐUR ur að mínu mati verið að gera hluti sem fæstir hefðu þorað. Á meðan menn hafa verið að koma fram með „framsækna” tónlist af öllum gerðum, tónlist sem var jafnvel ætluð fyrir erlendan markað, en seldist ekki einu sinni á íslandi, þá hefur Bítlavinafélagið t.d. verið að gefa út lög eftir gömlu meistarana Lennon og McCartney. Á meðan að það þótti flott að vera ýmist rakinn kommi, (eða „úlpa“ eins og það ergjarnan kallað), íhalds-uppi eða krataglenna fór Bítlavinafélag- ið hringferð um landið með Stein- grími Hermannssyni og er þó ár og dagur síðan það þótti „töff“ að vera framsóknarmaður. Jón Ólafsson lá á bakinu í „stúdíói" og söng um rúllukraga- peysu á meðan aðrir sungu um sætar stelpur og Eyjólfur Kristjáns- son brá sér í gervi systur sinnar í laginu Þorvaldur á meðan margir aðrir rembdust eins og rjúpan við staurinn við að sanna karlmennsku sína. Þeir hafa sjaldnast farið troðnar slóðir meðlimir Bítlavinafélagsins, enda hafa þeir einstakt lag á að hrífa áheyrendur jafnt sem áhorf- endur með sér þegar lög þeirra hljóma. Það sem er þó kannski mest um vert er; að þó að Bítla- vinafélagið sé „Band sem brosandi er að“, virðist það ekki bitna á gæðum tónlistarinnar. Spilagleðin einfaldlega skín í gegn og í svoleið- is hljómsveit hlýtur að vera gaman að spila. I örfáum orðum má segja að nýjasta plata Bítlavinafélagsins sé eitthvað sem hverjum sem er hefði getað dottiö í hug en er aðeins á fárra færi að framkvæma. Bítla- vinafélagið fyllir þann hóp. - Árni Magnússon. Tónlist Valgeirs Guöjónssonar við söngleikinn Síldin er komin Gæðatónlist í góðu lagi Sem betur fer koma sumar plöt- ur manni stundum á óvart fyrir þær sakir að þær eru betri en reiknað var með fyrir hlustun. Það er nú einu sinni svo að mannskepnan er með þeim ósköpum gerð að þurfa sífellt að vera að mynda sér skoðanir um alla skapaða hluti, stundum án þess að hlutirnir séu rannsakaðir áður. Þannig var með mig þegar ég ákvað að fjalla um plötu þá sem Valgeir Guðjónsson sendi nýlega frá sér með tónlist úr söngleiknum Síldin er komin, titill hennar er Sannar sögur. Það verður víst að segjast eins og er að undirritaður nýtti sér all-snarlega rétt sinn til að skipta um skoðun eftir að umrædd plata hafði fengið að snúast í nokkur skipti. Ástæðan? Jú platan er hreint ágæt. Valgeiri tekst að mínu mati vel að koma til skila þeirri stemningu sem ku hafa verið til staðar í síldarævintýrinu hér forðum. Það var að vísu löngu fyrir mína ti'ð og þar af leiðandi getur vel verið að þetta sé ímyndun ein. Engu að síður mín tilfinning. Lögin á plötunni eru nokkuð ólík, þarna eru hressilegustu rokk- lög í bland við lög í þessum sígilda millitakti og meira að segja er þarna ein vögguvísa. Þar er á ferðinni gullfallegt lag, að vísu við nokkuð óvenjulegan texta. Hér er brot úr honum: Maldaðu ekki í móinn elsku litla skarnið því mamma þarf að komast á ærlegt fyllerí. Þeir sem fylgjast með tónlist hafa eflaust veitt athygli lögum eins og Ógeðslega ríkur og Koffort þungt sem blý. Þau lög eru góð en þó eru að mínu mati þarna lög sem að standa þeim ekkert að baki, nema síður sé. Þar á ég til dæmis við lögin: Á Laugarvatni sem er þræl- hressilegt lag, Brennsa segjum stríð á hendur en þar finnst mér sterkasti texti plötunnar vera og Sjenever þar sem sameinast skond- ið lag og enn broslegri texti. Dæmi: / holti er oftlega heyrandi nær höndla mcð gætni skal stóðhesta karga. Á sundlaugarbarminum sitjandi glær Sinatra málunum víst kann að bjarga. Þó að hér að ofan hafi verið tínd lil lög sem undirrituðum þykir standa vel fyrir sínu er það eins með þessa plötu og svo margar aðrar að ekki er hún hnökralaus. Þarna eru lög sem ekki eiga upp á pallborðið hjá mér, kannski sumpart vegna þess að þau eru samin með leikhús í huga. Það getur heldur varla talist óeðlilegt þó einhver laganna hljómi þannig. Á þessari plötu koma fram marg- ir flytjendur og margra þeirra minnist ég ekki að hafa áður heyrt getið í tengslum við tónlist. Þetta finnst mér gefa plötunni aukna vídd og þar með aukið gildi. Þarna eru mismunandi raddir, mismun- andi „góðar“, og útkoman verður betri plata. Söngurinn er minni söluvara, sem að mínu mati skilar sér sem persónulegri tengsl hlust- andans við flytjanda. í örfáum orðum má kannski segja að þessi plata hafi orðið til þess að ég hlakka enn frekar til þess dags sem platan Góðir íslend- ingar kemur út, en þeir sem heyrt hafa segja að þar sé Valgeir fyrst í essinu sínu. - Árni Magnússon BÆKUR SYNDIR FEÐRANNA III Sagnir af gömlum myrkraverkum BÚKAUTGAFAN HIIOUH Bókaútgáfan Hildur: Syndir feðranna III. bindi Þetta er nýjasta bindið í þessu vinsæla safni um ýmsar misgerðir og mannlega breiskleika ■ c " genginna kynslóða. Gunnar Þorleifsson hefur séð um útgáfu : þessa bindis eins og hinna fyrri. Nýjar sögur um Kugg Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér bókína Kuggur til sjávar og sveita eftir Sigrúnu Eldjárn. Bókin hefur að geyma nýjar sögur um snáðann Kugg og hana prýða um 40 litmyndir eftir höfundinn. Þessar sögur eru sjálfstætt framhald bókarinnar Kuggur og fleiri fyrirbæri sem út kom í fyrra. Kuggur til sjávar og sveita segir frá kostulegum ævintýrum semþaulendaí — Kuggur og vinir hans. Það eru þær Málfríður og mamma hennar - kostulegar kerlingar sem ekki kalla allt ömmu sína þegar taka skal til hendinni, að ógleymdum Mosa - glaðlyndu og hrekkjóttu kríli sem býr yfir ótrúlegum hæfileikum. Þau eru á eilífum þeytingi til sjávar og sveita, bregða sér í útilegu, fara á skak og stunda umsvifamikil garðyrkjustörf - þó meir af kappi en forsjá. Og síðast en ekki síst bregða þau sér í geimferð til annarrar stjörnu þar sem Málfríður glatar pilsinu sínu og kemur aftur til jarðarinnar í brókinni, segir í frétt frá Forlaginu. Kuggur til sjávar og sveita er 32 bls. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. íslensk ævintýrabók Út er komin ný, íslensk ævintýrabók, Óvænt ævintýri, eftir Olaf M. Jóhannesson kennara - heillandi og skemmtileg bók við hæfi allra þeirra er slíkum frásögnum unna. Lesandinn er leiddur inn í heim ævintýranna er koma einlægt á óvart, hvort sem lesandinn ferðast í fylgd með hjálpsama hvita fuglinum, skapstyggu geitinni hans Jósa,. svartþrestinum í Blátannaborg, Bangsa litla, töfrastafnum hans afa, Dísu í eyðimörkinni eða malaiístráknum sem villtist frá i myllunni sinni. Ævintýrin eru lituð á ljósu og vönduðu máh og prýdd fjölda mynda eftir höfundinn. Ólafur M. Jóhannesson hefur um árabil ritar greinar í dagblöð. Sögur eftir hann hafa birst í barnablöðum og verið fluttar í hljóðvarpi og sjónvarpi. Ólafur er afar vel ritfær og á auðvelt með að skilja hugarheim barna. Óvænt ævintýri er 80 bls. Kápumynd er eftir höfundinn en Almenna auglýsingastofan sá um útlit. Bókin er prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf. en filmuunnin í Offsetþjónustunni. — Útgefandi er Æskan. BÍLALEIGA meö utibú allt í kringurri landið, gera þér mögulegt aö leigja bíl á einum staö og skila honum á öörum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 Pöntum bíla erlendis interRent Bilaleiga Akureyrar Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Jón Ottesen Ytra Hólmi er lést hinn 12. nóvember 1988 var jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 18. nóvember. Þökkum af alhug auðsýnda samúð. ArnfinnurOttesen Petrína Ottesen Brynjólfur Ottesen PéturOttesen Bryndís Guðmundsdottir Lára Ottesen HaukurJónsson Kristín Ármannsdóttir Þóra Jónsdóttir og barnabörn

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.