Tíminn - 22.11.1988, Síða 16

Tíminn - 22.11.1988, Síða 16
16 Tíminn Þriðjudagur 22. nóvember 1988 ÚTVARP/SJÓNVARP Hallgrímskirkja -Starf aldraðra Opið hús verður haldið í safnaðarsal Hailgrímskirkju á morgun, miðvikud. 24. nóv. Hefst það kl. 14:30. Sýndar verða myndir úr 5 daga ferðalagi um Norð- Austurland, sem farið var á sl. sumri. Einnig verða kaffiveitingar. Kvöldvaka Ferðafélags íslands Á morgun, miðvikud. 23. nóv. verður fyrsta kvöldvaka F.í. á þessum vetri í Sóknarsalnum, Skipholti 50A. Efni kvöldvökunnar verður eftirtaka af kvik- mynd sem Guðmundur Einarsson frá Miðdal tók á árunum 1944-’54 og er nú í eigu Ferðafélagsins. Þetta er merkileg heimildarmynd um fjallaferðir á þessum árum. Myndin er þögul, en Ari Trausti, sonur Guðmundar, mun útskýra hana. Guðmundur var einn af stofnendum „Fjallamanna”, en það félag var stofnað til þess að iðka fjallaíþróttir og glæða áhuga á þeim. Guðmundur var í stjórn Ferðafélags íslands frá 1930 og til dauðadags 1963. Hann teiknaði félagsmerki F.Í., vörðu á fjallvegi. Hann skrifaði lýsingu Suður- jökla í árbók F.í. 1960, prýddi hana Ijósmyndum og fjölda teikninga. Guð- mundur var ekki einungis góður liðsmað- ur í Ferðafélagi Islands, hann var lista- maður, landsfrægur. Hann dvaldist við nám í sex ár í Kaupmannahöfn og Munchen og lagði jöfnum höndum stund á höggmynda- og málaralist. Kvöldvakan hefst kl. 20:30 og að lokinni sýningu kvikmyndarinnar verður myndagetraun og verðlaun veitt fyrir réttar lausnir. Ferðafélag íslands Spilakvöld Snæfellinga Félag Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík minnir á annað spilakvöldið í þriggja kvölda keppninni, sem verður fimmtudagskvöldið 24. nóv. kl. 20:30 að Hótel Lind við Rauðarárstíg. Stofnun félags eldri borgara í Kópavogi Að undanförnu hefur hópur eldri borg- ara í Kópavogi unnið að undirbúningi stofnunar hagsmunafélags aldraðra í Kópavogi, 60 ára og eldri. Stofnfundur félagsins er ákveðinn laugardaginn 26. nóv. kl. 14:00 í Félagsheimili Kópavogs á 2. hæð. Þar mun undirbúningsnefndin leggja fram tillögu að stofnun slíks félags og einnig drög að samþykktum fyrir það. Á fundinum verða flutt ávörp og um- ræður munu fara fram um málefni aldr- aðra. Bergsteinn Sigurðarson, formaður Fé- lags eldri borgara í Reykjavík og ná- grenni, flytur ávarp á fundinum. Undirbúningsnefndin væntir þess að sem allra flestir Kópavogsbúar, 60 ára og eldri, komi á fundinn og taki þátt í stofnun þessara samtaka. Listasafn ASÍ: Sýning Kristínar Sýning Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá í Listasafni ASÍ verður framlengd til 27. nóvember. Sýningin er opin alla virka daga kl. 16:00-20:00, en laugardag og sunnudag kl. 14:00-20:00. BÓKAVARÐAN — GAMLAR BÆKUR OG NYJAR — VATNSSTlG 4 - REYKJAVlK - SlMI 29720 ISLAND Ný bókaskrá Bókavörðunnar - yffir 2000 titlar í bókaskránni Bókavarðan gefur reglulega út bóka- skrár með nokkrum hluta þeirra bóka sem til sölu eru hverju sinni. Að þessu sinni er skránni skipt í flokka eftir efni: íslensk fræði og norræn, héraðasaga, ættfræði, íslenskar og erlendar skáldsög- ur, trúarbrögð og dulfræði, ferðabækur um fjarlæg lönd, mannkynssaga o.fl. í bókaskránni er að finna yfir 500 íslenskar skáldsögur frá þessari öld, og cinnig hundruð þýddra skáldsagna eftir þekkta höfunda. Þá eru íslenskar fræði- bækur í mörgum greinum, m.a. rit eftir Nordal, Einar Ólaf, Ólaf Briem, Stein- grím J. Þorsteinsson o.m.fl. Auk þess eru í skránni hundruð fágætra og áhugaverðra bóka. Bóksöluskráin er send ókeypis öllum sem þess óska utan Stór-Reykjavíkur- svæðis, en áhugamenn geta vitjað hennar í verslunina á Vatnsstíg 4 í Reykjavík. VIKAN - Síðara afmælisblað 25. tbl. 50. árg. í þessu síðara afmælisblaði Vikunnar, vegna 50 ára afmælisins nú í nóvember, eru bæði viðtöl, sögur, þættir alls konar og margt flcira. M.a. erfrásögn af lífi ArnórsGuðjohnsen knattspyrnukappa í Belgíu og Ólafar Einarsdóttur, konu hans. Dómsmál er nýr efnisflokkur í Vik- unni, en hann byrjaði í síðasta blaði. Þá er sagt frá söngskemmtun á Hótel íslandi: Rokkskór og bítlahár. Heimsótt eru hjón, sem um þessar mundir eiga gullbrúðkaup, en þau voru fyrstu „brúðhjón VIKUNNAR". Vinsælasta rokksöngkona er heimsótt í Moskvu, viðtöl eru við 3 fyrrv. ritstjóra Vikunnar á fyrri árum. Sagt er frá 25 ára spádómum þekktra íslendinga fyrir árið 1988. Kynnt er Kristín Helga Gunnarsdóttir, sem flytur stutta fréttapistla á Bylgjunni. Þá eru matarþættir, myndasögur, sparipeysu- uppskrift, pósturinn, krossgátur o.fl. Á forsíðu þessarar Viku er mynd, sem Magnús Hjörleifsson tók af Hendrikku Waage. Skipadeíld Sarabandsins: Áætlun á Vestfirði og Norðurland Skipadeild Sambandsins hefur hafið reglubundnar áætlunarsiglingar á Vest- firði og Norðurland. Skipið fer frá Reykjavík á fimmtudags- kvöldum, eftir að hafa lestað framhalds- frakt úr millilandaskipum félagsins. Strandferðin tekur 7 daga og er skipið aftur komið til Reykjavíkur á miðviku- degi, þannig að framhaldsfrakt til útlanda utan af landi heldur viðstöðulaust áfram með millilandaskipunum, sem sigla á miðvikudögum. Meginhafnir fyrst um sinn verða ísa- fjörður, Húsavík, Akureyri og Dalvík. Þjónustuhafnir verða Patreksfjörður, Þingeyri, Suðureyri, Sauðárkrókur, Siglufjörður og Grundarfjörður/Ólafs- vík. Þá mun skipið ennfremur annast frakt- flutninga innanlands. Frjáls verslun 8. tbl. 1988 Meðal efnis í þessu hefti Frjálsrar verslunar er: Brunninn gróði, sem er forsíðugrein. Margvíslegar fréttir eru fremst í blaðinu. Þá er sagt frá Gallerí Borg og málverkasölu. Ólafur Örn Ing- ólfsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsbanka íslands setur fram spurningu í grein sinni: Eru heimilin hætt að spara. Viðtal er við Pál Kr. Pálsson, forstjóra Iðntæknistofnunar um þróun íslenskra efnahags- og atvinnumála. Aukið samstarf háskólans og atvinnu- veganna, er fyrirsögn á grein um Tækni- garðana, en húsið er nýrisið á Háskóla- lóðinni. Þættir eru um ráðgjöf og rætt við Gunnar Maack og Reyni Kristinsson. Kynntar eru þjófavarnir. Sagt er frá iðnaði í Hafnarfirði, nýjungum hjá VISA og margt fleira efni er í blaðinu. Ritstjóri er Kjartan Sefánsson. Útgefandi er Frjálst framtak hf. Skinfaxi 5. tbl. Skinfaxa, tímarits ungmennafé- laganna, er komið út. Skinfaxi er nú að nokkrum hluta tileinkaður ungmennafé- laginu Tindastóli á Sauðárkróki, en íþróttafólk þaðan stendur nú framarlega á landsvísu. Nefna má meistaraflokkslið Tindastóls í körfuknattleik, sem komið er í úrvalsdeild, en í blaðinu eru viðtöl við Val Ingimundarson, þjálfara og leikmann með liðinu, og Eyjólf Sverrisson. Knatt- spyrnumenn Tindastóls eru í 2. deild, - og síðast en ekki síst má nefna Lilju Maríu Snorradóttur, sem stóð sig frábær- lega vel fyrir stuttu á Olympíuleikum fatlaðra í Seoul. í blaðinu er einnig sagt frá undirbúningi fyrir 20. Landsmót UMFÍ, sem verður haldið að Varmá í Mosfellsbæ árið 1990. Skákþáttur Jóns L. Árnasonar er á sínum stað og margt fleira er í blaðinu. Ritstjóri er Ingólfur Hjörleifsson. For- síðumynd er af körfuknattleiksmönnum úrTindastól, ljósm., GunnarSverrisson. Aðventuferð F.í. í Þórsmörk Helgina 25.-27. nóv. verður farin „að- ventuferð” til Þórsmerkur. Gist verður í Skagfjörðsskála í Langadal. Þar cr stór setustofa fyrir kvöldvökur, góð svefnpláss, tvö eldhús og miðstöðvarhit- un. Fararstjóri skipuleggur gönguferðir. Á laugardag verður kvöldvaka og jólaglögg. Fararstjóri er Kristján Sigurðsson. Upp- lýsingar og farmiðasala á skrifstofu Ferða- félags íslands, Öldugötu 3. Aðventuferð Útivistar í Þórsmörk 25.-27. nóvember verður farin hin ár- lega og hefðbundna aðventuferð í Þórsmörk. Næg gistirými í svefnpoka- plássi í skálum Utivistar í Básum. Ný viðbygging með eldhúsi og borðstofu. Miðstöðvarhitun. Skipulagðar göngu- ferðir á daginn. Aðventukvöldvaka laugardagskvöld með góðri dagskrá. Fararstjóri: Kristján M. Baldursson og Fríða Hjálmarsdóttir. Áramótaferðin í Þórsmörk verður í 4 daga. Farið verður 29. des. Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni Grófinni, símar: 14606 og 23732. Skrif- stofan er opin 09.30-17.30. Rás I FM 92,4/93,5 Þriðjudagur 22. nóvember 6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Halldóra Þorvarðar- dóttir flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið með Má Magnússyni. Frétta- yfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30. Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn. „Vaskir vinir“ eftir Jennu Jensdóttur og Hreiðar Stefánsson. Þórunn Hjartardóttir les (2). (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00). 9.20 Morgunleikfími. Umsjón: Halldóra Bjöms- dóttir. 9.30 í pokahorninu. Sigríður Pétursdóttir gefur hlustendum holl ráð varðandi heimilishald. 9.40 Landpósturinn - Frá Suðurnesjum. Umsjón: Magnús Gíslason. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. Hermann Ragnar Stefáns- son kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. Umsjón: Hanna G. Sigurðar- dóttir. 11.55 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. 13.05 í dagsins önn. Umsjón: Steinunn Harðar- dóttir. 13.35 Miðdegissagan: „Örlög í Síberíu" eftir Rachel og Israel Rachlin. Jón Gunnlaugsson þýddi. Elísabet Brekkan les (7). 14.00 Fréttir. Tilkynningar. 14.05 Djassþáttur - Jón Múli Ámason. (Endurtek- inn þáttur frá miðvikudagskvöldi). 15.00 Fi ‘r. 15.03CwStastofan. Stefán Bragason ræðir við áhugatónlistarfólk á Héraði. (Frá Egilsstöðum). (Endurtekinn þáttur frá laugardagskvöldi). 15.45 Þingfréttir. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. Umsjón: Kristín Helgadóttir. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi - Hartmann, Alfvén, Sibelius og Grieg. a. Þrjú lög op. 81 fyrir strengjasveit eftir J.P.E. Hartmann. Strengja- sveit undir stjóm Emils Télmanyi leikur. b. Sænsk rapsódía eftir Hugo Alfvén. Hljómsveitin Fíladelfía leikur; Eugene Ormandy stjómar. c. „Finlandia", sinfónískt Ijóð eftir Jean Sibelius. Hljómsveitin Fíladelfía leikur; Eugene Ormandy stjórnar. d. Tveir sinfónískir dansar eftir Edvard Grieg. Hljómsveit Bolshoj-leikhússins í Moskvu leikur; Fuat Mansurow stjórnar. 18.00 Fréttir. 18.03 Á vettvangl. Umsjón: Bjarni Sigtryggsson, Guðrún Eyjólfsdóttir og Páll Heiðar Jónsson. Tónlist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Tilkynningar. 19.33 Kviksjá - Rússlands þúsund ár. Ðorgþór Kjæmested ræðir við Árna Bergmann ritstjóra og séra Rögnvald Finnbogason í framhaldi af frásögn sinni af ferð í tengslum við þúsund ára afmæli rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar í ágúst sl. Fimmti og lokaþáttur. (Einnig útvarpað nk. föstudagsmorgun kl. 9.30). 20.00 Litli barnatíminn. (Endurtekinn frá morgni). 20.15 Kirkjutónlist. a. Paraphrase nr. 1 eftir Peter Dickinson. Jennifer Bate leikur á orgel Hafnar- fjarðarkirkju. b. Fjórir þættir úrtónverkinu „Fæð- ing frelsaransu eftir Olivier Messiaen. Ragnar Bjömsson leikur á orgel Dómkirkjunnar í Reykjavík. c. „Víst ertu, Jesú, kóngur klár“, eftir Pál Isólfsson við sálm Hallgríms Péturssonar. Kristinn Hallsson og Ljóðakórinn syngja; Guð- mundur Gilsson stjómar og leikur með á orgel. 21.00 Kveðja að austan. Urval svæðisútvarps- ins á Austuriandi í liðinni viku. Umsjón: Haraldur Bjamason. (Frá Egilsstöðum) 21.30 Útvarpssagan: „Heiður ættarinnar44 eftlr Jón Bjömsson. Herdís Þorvaldsdóttir les (5). 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.30 Leikrít: „Frystikista og svo falleg auguu eftlr Nínu Björk Ámadóttur. Leikstjóri: María Kristjánsdóttir. Leikendur: Hanna María Karis- dóttir, Guðrún Gísladóttir og Hjálmar Hjálmars- son. (Endurtekið frá laugardegi). 23.05 Tónlist á síðkvöldi. a. Sónata fyrir fiðlu og píanó í a-moll op. 23 eftir Ludwig van Beet- hoven. Yehudi Menuhin leikur á fiðlu og Wilhelm Kempff á píanó. b. Seranaða fyrir tenór, hom og strengjasveit eftir Benjamin Britten. Peter Pears tenór, Barry Tuckwell homleikari og Enska kammersveitin flytja; Benjamin Britten stjómar. 24.00 Fréttir. Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. 01.10 Vökulögin. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. 7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00. Leifur Hauksson og Ölöf Rún Skúladóttir hefja daginn með hlustendum, spyrja tíðinda víða um land, tala við fólk í fréttum og fjalla um málefni líðandi stundar. Veðurfregnir kl. 8.15 og leiðarar dagblaðanna kl. 8.30. 9.03 Viðbit - Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri) 10.05 Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Albertsdóttur og Óskars Páls Sveinssonar. 12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 í Undralandi með Lísu Páls. Sigurður Þór Salvarsson tekur við athugasemdum og ábend- ingum hlustenda laustfyrirkl. 13.00 í hlustenda- þjónustu Dægurmálaútvarpsins. 14.00 Á milli mála - Eva Ásrún Albertsdóttir og Óskar Páll Sveinsson. 16.03 Dagskrá. Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnarsdóttir og Ævar Kjartansson bregða upp mynd af mannlífi til sjávar og sveita og því sem hæst ber heima og erlendis. Kaffispjall upp úr kl. 16.00, „orð í eyra“ kl. 16.45 og dagsyfirlit kl. 18.30. Andrea Jónsdóttir segir frá nýjum plötum á fimmta tímanum og Ingvi Örn Kristinsson flytur hagfræðipistil á sjötta tímanum. 19.00 Kvöldfréttir 19.33 Áfram ísland. islensk dægurlög. 20.30 Útvarp unga fólksins. Við hljóðnemann er Vernharður Linnet. 21.30 FRÆÐSLUVARP: Lærum ensku. Kennsla í ensku fyrir byrjendur, fimmtándi þáttur. Umsjón: Valtýr Valtýsson og Garðar Björgvins- son. 22.07 Bláar nótur. Pétur Grétarsson kynnir djass og blús. 01.10 Vökulögin. Að loknum fréttum kl. 2.00 verður endurtekinn frá föstudegi þátturinn „Ljúflingslög" í umsjá Svanhildar Jakobsdóttur. Að loknum fréttum kl. 4.00 flutt brot úr dægur- málaútvarpi þriðjudagsins. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 1.00 og 4.30. Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00, 10.00,11.00,12.00,12.20,14.00,15.00, 16.00,17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00. SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2 8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands SJÓNVARPIÐ Þriðjudagur 22. nóvember 18.00 Villi spæta og vinír hans. (28). Bandarískur teiknimyndaflokkur. Þýðandi Sigurgeir Stein- grímsson. 18.25 Berta (5). Breskurteiknimyndaflokkur í þrett- án þáttum. Leikraddir Sigrún Waage og Þór Tulinius. Þýðandi Sveinbjörg Sveinbjömsdóttir. 18.40 Á morgun sofum við út (5). (I morgon er det sovemorgon) Sænskur teiknimyndaflokkur í tíu þáttum. Sögumaður Kristján Eldjám. Þýð- andi Þorsteinn Helgason. (Nordvision-Sænska sjónvarpið) 18.55 Táknmálsfréttir 19.00 Poppkom - Endursýndur þáttur frá 16. nóv . Umsjón Stefán Hilmarsson. 19.25 Ekkert sem heitir. Endursýndur þáttur frá 18. nóv. Umsjón Gísli Snær Erlingsson. 19.50 Dagskrárkynning. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Matarlist. Umsjón Sigmar B. Hauksson. 20.45 Á því herrans ári 1966. Atburðir ársins rifjaðir upp og skoðaðir í nýju Ijósi. Umsjón Edda Andrésdóttir og Árni Gunnarsson. 21.55 Hverjir myrtu Kenndedy? Ný, bresk heim- ildamynd sem leiðir getum að því að atvinnu- morðingi á vegum mafíunnar hafi myrt Kennedy Bandaríkjaforseta en ekki Lee Harvey Osvald. Mynd þessi hefur vakið mikla athygli og umtal þar sem hún hefur verið sýnd, en í dag 22. nóv. eru liðin 25 ár frá morðinu á Kennedy. 23.00 Seinni fréttir. 23.10 Hverjir myrtu Kennedy? framhald. 23.55 Dagskrárlok. Þriðjudagur 22. nóvember 15.55 Hinsta óskin. Garbo Talks. Kona, sem haldin er banvænum sjúkdómi, biður son sinn að uppfylla sína hinstu ósk: Að fá að hitta átrúnaðargoð sitt Gretu Garbo. Aðalhlutverk: Anne Bancroft, Ron Silver og Carrie Fisher. Leikstjóri: Sidney Lumet. Framleiðandi: Elliott Kastner. Þýðandi: Sigríður Magnúsdóttir. MGM 1984. Sýningartími 100 mín. 17.45 Feldur. Foofur. Teiknimynd með íslensku tali um heimilislausa en fjöruga hunda og ketti. Þýðandi: Ástráður Haraldsson. Leikraddir: Am- ar Jónsson, Guðmundur Ólafsson, Saga Jóns- dóttir, Sólveig Pálsdóttir o.fl. 18.10 Drekar og dýfllssur. Dungeons and Dragons. Teiknimynd. Þýðandi: Ágústa Axels- dóttir. 18.35 Ljósfælnir hluthafar. Run from the Morning. Framhaldsmynd í 6 hlutum. 1. hluti. Spennu- myndaflokkur um endurskoðanda sem kemst í hann krappann þegar vinnuveitendur hans fela honum að rannsaka bókhaldsbækur hjá risa- vöxnu fyrirtæki. Hann fær viðvörun frá félaga sínum þess eðlis að varasamt sé að bianda sér um of í málefni þessa vafasama fyrirtækis. Endurskoðandinn lætur sór ekki segjast og hyggst bjóða eigendum fyrirtækisins byrginn. Aðalhlutverk: Michael Aitkens, Ray Burrett, Bud Tingwell og Bill Kerr. Leikstjóri: Cari Schultz. Framleiðandi: Eric Tyler. Þýðandi: ömólfur Ámason. ABC Australia. 19.1919.19. Fréttir og fréttaumfjöllun, íþróttir og veður ásamt fréttatengdum innslögum. 20.45 Frá degi til dags. Day by Day. Breskur gamanmyndaflokkur. Aðalhlutverk: Doug Sheehan, Linda Kelsey og C.B. Bames. Þýð- andi: Ragnar Hólm Ragnarsson. Paramount. 21.15 íþróttir á þríöjudegi. Blandaður íþróttaþátt- ur með efni úr ýmsum áttum. Umsjónarmaður er Heimir Karlsson. 22.15 Suðurfaramir. The Harp in the South. Framhaldsmyndaflokkur í 6 hlutum um fátæka innflytjendur sem flykktust til Sydney í Ástralíu á árunum 1930-40. 5. hluti. Aðalhlutverk: Anne Phelan, Martyn Sanderson, Anna Hruby og Kaarin Fairfax. Leikstjóri: George Whaley. Framleiðandi: Anthony Buckley. Þýðandi: Ást- hildur Sveinsdóttir. Quantum Films 1987. 23.00 Strætl San Fransiskó. The Streets of San Francisco. Bandarískur spennumyndaflokkur. Aðalhlutverk: Michael Douglas og Karl Malden. Þýðandi: Guðmundur Þorsteinsson. Worldvis- ion. 23.50 Póstvagninn. Stagecoach. Endurgerð sí- gilds vestra sem John Ford leikstýrði árið 1939. Póstvagn á leið frá smábændum Dryfork til Cheyenne í Woyoming er gætt af riddaraliði sem ætlar að freista þess að handsama útlag- ann og ræningjann Ringo Kid. En hætturnar leynast í óbyggðum villta vestursins. Aðalhlut- verk: Ann-Margret, Red Buttons og Bing Crosby. Leikstjóri: Gordon Douglas. Framleið- andi: Martin Rackin. Þýðandi: Margrét Sverris- dóttir. 20th Century Fox 1966. Sýningartími 95 mín. 01.40 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.