Tíminn - 22.11.1988, Page 20
RIKISSKIP
NIJTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
Átján mán. binding
q l B I L A S 7~
SAMVINNUBANKINN
ÞROSTUR
685060
VANIR MENN
Tíininn
Hugsanleg kaup á hlutabréfum ríkisins í Útvegsbanka: |
nn: stór e inkal janki
ra unh æfur r nögu leiki?
„Þeir kostir, sem Verslunarbankinn hefur, eru í
aðalatriöum tveir. í fyrsta lagi getur bankinn einn eða í
samvinnu við aðra aðila á fjámagnsmarkaði leitað eftir
kaupum á hlutabréfum ríkissjóðs í Útvegsbankanum með
sameiningu í huga. í öðru lagi getur bankinn haldið
sjálfstæði sínu og þróað áfram þann grundvöll sem hann
byggir á.“ Þannig segir m.a. í nýlegu bréfi sem banka-
stjórn Verslunarbankans ritar undir í nýlegu fréttabréfi til
hluthafa í bankanum og fjallar um hugsanleg kaup
Verslunarbankans á hlutabréfum í Útvegsbankanum hf.
Bankamenn sögðu Tímanum í
gær að svo virtist sem næstum
tveggja ára gömul tillaga Seðla-
bankans um að steypa saman í
öflugan einkabanka Iðnaðar-
bankanum, Verslunarbankanum
og Útvegsbankanum ætti efnis-
lega enn nokkurn hljómgrunn.
Slíkur einkabanki yrði þá á milli
Búnaðarbanka og Landsbanka
hvað stærð snertir og kæmi í
kring hinni margumtöluðu upp-
stokkun og hagræðingu í banka-
kerfinu. Hugsanlegt er talið að til
viðbótar þessum þremur bönkum
kæmu fleiri aðilar inn í slíkar
sameiningarviðræður.
Sem kunnugt er skipaði Jón
Sigurðsson, viðskiptaráðherra,
starfshóp sem á að undirbúa sölu
hlutabréfa ríkisins í Útvegsbank-
anum hf. Nefndin hefur þegar
kynnt hugmyndir sínar um sóluna
fyrir fulltrúum banka og spari-
sjóða. Er það vilji nefndarinnar
að heldur verði valinn fyrri kost-
urinn af þeim tveim sem banka-
stjórn Verslunarbankans nefnir í
bréfi sínu til hluthafa og vitnað er
til hér að ofan og er hugmyndin
að eftir að slíkur hópur aðila á
fjármagnsmarkaði hefur myndast
muni lormlegar viðræður um
söluna hefjast.
Bjöm Friðfinnsson sagði að
engin formleg svör hafi borist
nefndinni frá bönkum eða spari-
sjóðum og sagðist því lítið um
málið geta sagt. Höskuldur Ólafs-
son í Verslunarbankanum kvaðst
ekki geta sagt neitt umfram það
sem kemur fram í bréfi banka-
stjórnar, að bankaráð og banka-
stjórn hefðu fylgst með málinu og
„iagt vinnu í athuganir á þeim
tækifæmm sem bankanum
bjóðast".
í>au tækifæri sem einkum hafa
verið rædd eru samkvæmt heim-
ildum Tímans einkum fólgin í
sameiningarhugmyndinni við
Iðnaðarbanka og Útvegsbanka
og e.t.v. fleiri T einn öflugan
einkabanka.
í bréfi bankastjómar Verslun-
arbankans er talað um að „mikil-
væg ákvörðunartaka sé framund-
an njá Verslunarbankanum eins
og hjá öðrum bönkum og spari-
sjóðum“. Jafnframt er á það bent
að tilboð nefndarinnar um að
taka upp samningaviðræður við
hóp innlánsstofnana um hluta-
bréfakaup í Útvegsbankanum
„knýr á um mikilvægar ákvarðan-
ir“.
Ekki er búist við að nefnd sú
sem viðskiptaráðherra skipaði
krefji banka og sparisjóði svara á
allra næstu dögum en búast má
við því á allra næstu vikum.
- áma/-BG
Eyjaferöir sf. hefja áætlunarsiglingar milli Akraness 05 Reykjavíkur:
T uttugu með fyrstu f erð
Hafrún, bátur Eyjaferða, í Reykjavík í gær. Akraborgin í baksýn. Tímamynd: Pjeim
Eyjaferðir sf. í Stykkishólmi hófu
í gærmorgun reglubundnar siglingar
milli Akraness og Reykjavíkur. Eig-
endur Eyjaferða ætla að láta næstu
tvo mánuði skera úr um það hvort
rekstur sem þessi sé arðbær og í
framhaldi af því taka ákvörðun um
hvernig og hvort haldið verði áfram
reglubundnum siglingum milli Akra-
ness og Reykjavíkur.
Með fyrstu ferðinni, klukkan 7.15
í gær, fóru um 20 Akurnesingar með
Hafrúnu, ferju Eyjaferða, til
Reykjavíkur og tekur siglingin um
hálftíma. Eyjaferðir festu kaup á
bátnum í vor og er hann að sumarlagi
notaður til siglinga á Breiðafirði,
ásamt öðrum minni bát fyrirtækisins.
Svanborg Siggeirsdóttir fram-
kvæmdastjóri Eyjaferða sagði í sam-
tali við Tímann að til að byrja með
yrðu famar tvær ferðir á dag á
virkum dögum. Fyrsta ferðin er
klukkan 7.15 frá Akranesi og frá
Reykjavík klukkan 8.15. Þá er ætl-
unin að fara frá Akranesi klukkan
12.15 og til baka klukkan 18.00.
Svanborg sagði að ætlunin væri að
athuga hvort ekki væri áhugi hjá
ferðaskrifstofum, hótelum eða þeim
sem standa að ráðstefnum að nýta
bátinn á meðan hann væri í Reykja-
vík um eftirmiðdaginn og bjóða
fólki að sigla með gesti sína um
nágrenni Reykjavíkur. „Það er verið
að skipuleggja þetta þessa dagana
og við höfum skrifað ferðaskrifstof-
unum, en erum ekki búin að leita
eftir viðbrögðum frá þeim,“ sagði
Svanborg. Þá eru einnig fyrirhugað-
ar ferðir um helgar. Á laugardag
verður farið frá Akranesi klukkan
10.00, en til baka verður farið um kl.
11 á sunnudagskvöld.
Aðspurð sagði Svanborg að þau
gerðu þetta aðallega til þess að nýta
bátinn í stað þess að láta hann liggja
verkefnalausan. Aðallega sagði hún
að verið væri að höfða til þeirra sem
sækja vinnu og jafnvel nám til
Reykjavíkur. Ef framhald verður á
þessum ferðum eftir reynslutímann,
verður að öllum líkindum gert hlé á
siglingum milli Akraness og R.eykja-
víkur í byrjun maí og báturinn
notaður til ferða á Breiðafirði yfir
sumarmánuðina.
Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akra-
nesi sagði í samtali við Tímann að
formleg afstaða til ferða Eyjaferða
hefði ekki verið tekin, hvorki í
hafnarstjórn né bæjarstjórn.
„Reyndar litum við svo á að þeir hafi
ekki verið að leita til bæjarins beint
fyrr en nú upp á síðkastið, þegar
beðið var um aðstöðu í höfninni. Að
sjálfsögðu fá þeir þar sömu aðstöðu
og aðrir, þá bestu sem við getum
boðið,“ sagði Gísli. Eyjaferðir leit-
uðu eftir samvinnu við útgerð Akra-
borgar í ágúst, en henni var hafnað
þar sem um tilraunasiglingar var að
ræða.
„Miðað við þær undirtektir sem
þetta hefur fengið í dag, þá er þetta
meira en maður hefði átt von á. Það
sýnir sig þá að hér er a.m.k. þessi
hópur sem hefur þörf fyrir að komast
til Reykjavíkur fyrr en Akraborgin
getur þjónustað. Það sem við ótt-
umst er að Akraborgin verði að hafa
sig vel við til þess að hafa upp í sinn
rekstrar- og stofnkostnað og óttumst
að þetta verði til að draga úr tekjum
Skallagríms. Ef þetta getur borið sig
hjá þeim án þess að skaða rekstur
Akraborgar, þá er sjálfsögðu ekkert
nema gott eitt um þetta að segja,“
sagði Gísli. -ABÓ
íslensku skákmenn-
irnir á ólympíumótinu
Þrjú jafntefli
og ein biðskák
Þær fréttir bárust af skák-
mönnunum íslensku, sem nú tefla
á ólympíumótinu í skák sem fram
fer í Þessalóníku í Grikklandi
þessa dagana, að okkar menn
gerðu þrjú jafntefli á móti Búlg-
örum auk þess sem ein biðskák
verður leikin á morgun. Það voru
þeir Jón L. Árnason, Jóhann
Hjartarson og Helgi Ólafsson
sem gerðu jafntefli en Margeir
Pétursson stendur höllum fæti í
skák sinni sem er farin í bið og
verður tefld á morgun. -áma
Árekstur á brú
Harður árekstur varð milli stórrar
jeppabifeiðar og flutningabíls á
brúnni yfir Mýrarkvísl við Laxamýri
skammt frá Húsavík á sunnudag.
Mikil hálka var þegar áreksturinn
varð og tókst ökumönnum ekki að
forða árekstri og skullu bílamir
saman á miðri brúnni. Flytja þurfti
ökumann jeppabifreiðarinnar á
sjúkrahús, en hann mun ekki hafa
verið mikið slasaður. -ABÓ
STRUMPARNIR
HRESSA
KÆTA
Heildsala
stmi
. 91-39550