Tíminn - 28.01.1989, Blaðsíða 9

Tíminn - 28.01.1989, Blaðsíða 9
Laugardagur 28. janúar 1989 HELGIN ® 19 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁ Wu Tun flæktist í samsæri sem átti upptök sín í öðrum heims- hluta en lauk í Bandaríkjunum. Texas, en hinn „Hvíti úlfurinn" í Los Angeles. Einn æðsti maður gengisins, „Ramma öndin" var talinn hafa verið í heimsókn í Bandaríkjunum um miðjan október og þá komið til San Francisco. Ekki var talið útilok- að að rétt nafn mannsins væri einmitt Sjen Sji-Li og ekki heldur að hann hefði lagt á ráðin um að myrða Henry Liu. Jafnvel meðal austurlenskra má gera ráð fyrir að einhver innan jafn stórra samtaka kjafti frá og það var fyrir tilstilli slíks „leka“ að Warren frétti að ekið hefði verið með morð- ingjana og reiðhjólin til Daly City í bílaleigubíl. Warren og Habemas þræddu nú bílaleigur sem em allt umhverfis flugvöllinn í San Francisco og höfðu á endanum uppi á leigu sem hafði leigt manni að nafni Woo Hoo bíl þann 15. október. Hann hafði fyrst tekið sendiferðabfl en skipt yfir í skutbfl. Nú var farið með myndir af Tung, Wu og Hoo til Daly City og fólk spurt hvort það þekkti aftur hettu- mennina. Níu ára drengur var sann- færður um að hann hefði séð Tung á bekk á klettinum rétt áður en Liu var myrtur. Hann var alveg handviss því hundurinn hans stakk af frá honum og fannst þar sem hann var að sleikja sig upp við tvo Kínverja í hettupeysum á klettinum. Þegar drengurinn nálgaðist og greip í ól hundsins, bauð annar Kínverjinn honum piparmyntukúlu. Drengurinn hafnaði boðinu en mundi atvikið vel og sá framan í manninn. Það var Tung Kuei-Sen. Sumirtalaof mikið Nokkrir íbúar í húsinu við 19. stræti minntust þess að hafa séð Woo koma í heimsókn til Tungs og Wus þar. Aðrir höfðu séð hann við gjafabúð í borginni. Frá Monterey Park komu þær upplýsingar að Woo hefði sagt fólki þar að hann hefði verið bílstjórinn þegar morðið var framið og komið morðingjunum undan. Hins vegar hefðu Tung og Wu hleypt af skotunum. Að baki öllu saman stæði síðan maður að nafni Sjeng Sju-Li. Dulnefni hans innan gengisins var Ramma öndin og hann var yfirmaður allra yfir- manna í Bandaríkjunum. Með fjögur nöfn og eitt heimilis- fang í fórum sínum fóru Reece lögregluforingi og menn hans heim til Woos í Monterey Park með húsleitarheimild. Þar fundust gögn sem sönnuðu að Woo hefði verið í San Francisco í nokkra daga, um sama leyti og Liu var myrtur. Sannfærður um að Woo Hoo væri sekur um aðild að morðinu, útvegaði Warren sér handtökuheimild, fór suður eftir og handtók hann. Þó Woo hefði talað af sér við austur- lenska kunningja sína, ætlaði hann augljóslega ekki að ræða við banda- ríska lögreglumenn af neinu tagi, því hann sagði ekki orð. Þegar hér var komið taldi lögregl- an sig hafa nægar sannanir til að réttlæta handtöku fjögurra manna, Tungs Kuei-Sen og Wus Tun, sem myrtu Liu, Sjengs Sji-Li sem lagði á ráðin fyrir hönd Bambusgengisins og svo Woos Hoo. Boðað var til fundar með fréttamönnum. Tveimur dögum fyrir fundinn til- kynnti ríkisstjómin á Taiwan að þar hefðu Sjeng Sji-Li og Wu Tun verið handteknir, svo og tveir háttsettir leyniþjónustumenn, Wang Hsi-Lin, flotaforingi og Sjen Hu-Min, hers- höfðingi. Pólitískt reiptog fylgdi í kjölfarið. Beðið var um framsal morðingjanna tveggja en það vildu yfirvöld á Taiwan ekki heyra nefnt og tilkynntu þrátt fyrir gagnkvæman sáttmála um framsal glæpamanna að morðingj- amir kæmu fyrir rétt á Taiwan. Tung Kuei-Sen notaði tækifærið og stakk af til Filippseyja þegar hann frétti af handtökunum. Sjeng Sji-LI, öðru nafni „Ramma öndin“ var lykilmaðurinn. Hann átti sér líka yfirmenn... Segulbandsspóla sannar Reece lögregluforingi var við- staddur réttarhöldin á Taiwan. Þar reyndi saksóknari allt til að hreinsa stjómina af sökinni en koma henni á Bambusgengið í staðinn. Sakbom- ingamir spilltu þessu nokkuð með því að halda stöðugt fram að þeir væm aðeins föðurlandsvinirsem tek- ið hefðu af lífi mann sem yfirvöld teldu óæskilegan. Þeir voru sekir fundnir og dæmdir í lífstíðarfangelsi í heimalandi sínu. Þegar Reece kom heim aftur, var honum tjáð að Warren hefði haft samband við Hvíta úlfinn í Los Angeles. Hann vísaði á Gula fuglinn í Houston sem dró upp úr skúffu hjá sér segulband sem morðingjamir gerðu áður en þeir fóm frá Banda- ríkjunum. Þeir höfðu afhent bandið yfir- mönnum Bambusgengisins sem áttu að gera það opinbert ef yfirvöld á Taiwan styddu þá ekki. Þeir hefðu farið til Los Angeles eftir morðið með hreina samvisku, enda ekki gert annað en hlýða skipun ríkis- stjómar sinnar um að taka manninn af lífi. Þegar þeir sáu úlfaþytinn sem málið olli í blöðum, gerðu þeir myndbandið sér til vemdar. Warren hlustaði á bandið og heyrði hvemig morðið var framið og einnig hvers vegna. Þar skýrðu Tung og Wu reiðhjólakaupin, lýstu dvöl sinni í San Francisco og áætlunum um að myrða Liu í verslun hans. Hins vegar hefði alltaf verið of margt fólk á ferli þar og því ákveðið að grípa til annarra ráða. í Daly City vom aðstæður aliar hentugri, umhverfið rólegt og lifnað- arhættir allir í föstum skorðum. Frú Liu ók syni hjónanna í skólann daglega og Henry flokkaði vömr í bílskúmum. Dymar voru yfirleitt opnar. Klukkan átta að morgni var besti tíminn. Þeim var ekið til Daly City og þeir settir úr bflnum skammt frá. Síðan hjóluðu þeir heim til Lius sem var í bílskúmum. Wu stökk af hjólinu, hljóp að Liu og skaut hann í ennið. Tung hljóp inn í bílskúrinn og skaut tveimur skotum til viðbótar í kvið hins óæskilega rithöfundar. Morð að skipun stjómvalda Því næst hjóluðu þeir til baka þangað sem bíllinn beið og ók þeim á markaðstorgið þar sem þeir skiptu um bíl og fóm heim í 19. stræti. Um þessar mundir vom yfirmenn Bambusgengisins allir á varðbergi því FBI og lögreglan í New York hafði verið óþarflega forvitin um aðild þess að fíkniefnasölu. Þeir urðu því uggandi þegar morðið á Henry Liu vakti jafn mikla athygli og raun varð á. Nú bámst boð frá Hvíta úlfinum um að einhverjir aðilar á Taiwan hefðu lagt fé til höfuðs Tung Kuei- Sen, þess eina sem enn gekk laus af þeim sem stóðu fyrir morði Lius'. Úlfurinn vildi semja um að lífi Tung Kuei-San var lýst þannig að hann hefði „ósýniiegar hendur". Hann skaut þó með sinni eigin. Tungs yrði bjargað með því að hann færi í fangelsi í staðinn, en ekki lengur en 10 ár. Lögreglan hafnaði því og samningaviðræðum var hætt. Leitað var nú að Tung um allar jarðir. Fyrst fréttist af honum í Thailandi en þar var sagt að hann hefði farið til Brasilíu. Nú var rann- sóknin farin að beinast öllu fremur að heróínsmygli en morði og vitað var að eitur fyrir milljarða dollara hékk á spýtunni. Brasilísk lögregla handtók Tung og sendi hann þegar í stað heim til réttvísinnar í San Francisco. Reece og menn hans höfðu unnið hörðum höndum að því að afla máli sínu sannana og orðið vel ágengt. Flutningabílstjórar fundu tvær byss- ur við hraðbrautina að Daly City og þegar búið var að hreinsa af þeim ryðið og gera þær þannig úr garði að hægt var að skjóta úr þeim, kom í ljós að kúlurnar sem urðu Henry Liu að bana, komu einmitt úr þeim. Það sem meira var: hægt var að rekja byssurnar skriflega til Wus og Tungs. Inni í aftara aurbrettinu á öðru hjólinu fannst síðan fmgrafar eftir Sjeng Sji-Li. Tung Kuei-Sen var sekur fundinn um morð að yfirlögðu ráði þann 17. mars. Hann fékk 27 ára til iífstíðar- fangelsi. Hann neitaði aldrei glæpn- um en kvaðst aðeins vera heiðarieg- ur hermaður í þjónustu föðurlands síns og framfylgdi skipunum yfir- manna sinna. Hann bar sig líka saman við Oliver North en það er önnur saga. Hann afplánar nú dóm sinn. fjármálimum á þínu heimili Það er í þínum höndum hvað verður um peninga heimilísins. Þegar kemur að afborgunum lána, er því undir þér komíð að borga á réttum tíma. ''Éáfmeð spararþú óþarfaútgjöld vegna dráttarvaxta, svo ekki sé talað um innheimtukostnað. "" Og getur notað pening- ana þína tíl mun gagnlegri hluta, ekkí satt? húsnæðíslána. 16. febfúar. Eindagi lána með láhskjarávísítölu. 1. mars. Eíndagi lána með byggingarvísitölu. Gjalddagar húsnæðislána eru: 1. febrúar - 1. maf-1. ágúst - 1. nóvember. Sum lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins einn. Merktu gjalddaga þíns Iáns inn á dagatalið þitt, þá gleymir þú síður að gera tímanlega ráð fyrir næstu greiðslu. Greiðsluseðlar fyrir 1. febrúar hafa verið sendír gjaldendum og greiðslur má inna af hendí í öllum bönkum og sparísjóðum landsins. Sparaðu þér óþarfa útgjöíd af dráttarvöxtum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.