Tíminn - 28.01.1989, Blaðsíða 11

Tíminn - 28.01.1989, Blaðsíða 11
Laugardagur 28. janúar 1989 HELGIN 21 Áramótamyndagátan m Sirkus - Drauma landsins Eins og fugl úr fjarlægum heimi þenur sig vœngjað ský yfir svarbláum sandi. Og sigurglöð nóttin svefni lofar að sundruðum degi. En í hljóðlátu húmi nœtur lœðist draumurinn í vitund þína og víkur burt veröld sem var. Og sjá, þér opnast nýr heimur heimur ó raunveruleikans í undirdjúpi vitundar, sem svefninn tók með sér í sirkus drauma landsins. Mörgum árum síðar skýtur upp í huga þínum minningu maí kvöldsins, þegar lífið var ungt, og það lék við lokka þína í Ijóma hnígandi sólar. Og þú spyrð hvað sá ég, hvað sá ég. kr. 89. Höfundur er verkamaður í Reykjavík. í>á hefur verið dregið úr réttum lausnum áramótamyndagátu Tímans. Margar lausnir bárust, en þó færri en oft áður, sem bendir til að gátan hafi þótt í þyngra lagi. Þess betur mega þeir una við sinn hlut sem hnútinn leystu og það með prýði. Rétt er lausn gátunnar þessi: Loks er Albert viss í sinni sök og sest að í París. Hugsa menn að bráðum sendi Borgaraflokkur þá Sólnes og Óla Þ út af örkinni að bjóða liðsinni við landstjórnarmálin. Ráðuneyti heimta höfðingjarnir samt. Án Alberts er flokkurinn höfuðlaus og óljós stefnumiðin. Ingi Björn kveður hulduherinn til á ný og Helena hringir. Verðlaun eru tíu þúsund krónur og kom upp nafn Þórunnar Eiríks- dóttur, Kaðalstöðum, Mýrasýslu. Við óskum Þórunni til hamingju með verðlaunin og þökkum þátttak- endum þrautseigju þeirra. TILBOÐ TIL 10. FEBRUAR IHHIFAUD í VERDI M.A.: ★ Baggasparkari ★ Tvöfaldur hjöruliöur í drifskafti ★ Sjálfvirk þræöing á garni ★ Sjálfvirkt smurkerfi á drifkeöju ★ Vökvalyft sópbinda ★ Yfirstærö af dekkjum 11.5/80-15.3 ★ Grind yfir sogbindu fyrir smágert hey ★ Vökvadeildir til tengingar á innvirkt vökvaúrtak VERÐ KR. 560.000,- G/obusf okkar heimur snýst um gxði Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.