Tíminn - 02.02.1989, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
RÍKISS^IP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hafnarhúslnu v/Tryggvogötu. S 28822 _liánnéi^*larfaa' © VERÐBRÉFAVIÐSKIPn SAMVINNUBANKANS SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688568 PÓSTFAX TÍMANS 687691 NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 GÓÐIR BÍLAR ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR
Q rjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar til afgreiöslu í dac 3
l Þar fii r borgarl búa vegi ■ I
þvngra en minnismerki
Nokkrir borgarfulltrúar kynntu í gær tillögur
sínar um fjárhagsstjórn borgarinnar. í tillögun-
um er gert ráð fyrir annarri forgangsröðun
verkefna hjá borginni þannig að 600 milljónir
króna verði færðar milli útgjaldaliða frá því sem
gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun meirihlutans.
Gert er ráð fyrir að færa 600
milljónir frá gæluverkefnum
meirihlutans. Þannig verði fram-
lög til hringleikahúss á Öskjuhlíð
skorin niður, hætt verði við að
taka lán fyrir Bílastæðasjóð til
byggingar bílageymsluhúss og
hætt verði við byggingu ráðhúss-
ins að öðru leyti en því að lokið
verði við bílageymsluna á tjarnar-
botninum, hún gerð vatnsþétt og
vatninu síðan fleytt yfir þannig
að hún verði undir vatnsyfirborð-
mu.
Borgarfulltrúarnir; þeir Sigrún
Magnúsdóttir Framsóknarflokki,
Bjarni P. Magnússyni Alþýðufl.,
Elín G. Ólafsdóttir Kvennalista,
Guðrún Ágústsdóttir, Alþ-
bandal. og Kristín Á. Ólafsdóttir
Alþbandal. gagnrýndu fjárhags-
áætlun meirihlutans og sögðu að
í henni væru tekjur verulega
vanáætlaðar. Það alvarlegasta við
hana væri þó hve lítið tillit til íbúa
borgarinnar og félagslegra þarfa
þeirra ætti að taka.
Sigrún Magnúsdóttir borgar-
fulltrúi framsóknarmanna greindi
frá tillögum sínum um að borgin
keypti lítil snjóruðningstæki til
að hreinsa snjó af gangstéttum. í
samtali við Tímann sagði hún að
fráleitt væri að íbúar norðlægrar
borgar skyldu þurfa að eiga í
erfiðleikum með að komast leiðar
sinnar fótgangandi um leið og
snjór félli. í borgum nágranna-
landanna gengi það fyrir að ryðja
snjó af gangstéttum. Hér væri
hins vegar farið þannig að snjó er
rutt af akbrautum upp á gang-
stéttir.
Bæklunarlæknar segðu að um
leið og færð versnaði á gangstétt-
um vegna snjóa og hálku, þá
fjölgaði beinbrotum verulega og
samhengið þar í milli væri aug-
Ijóst. Því mætti hiklaust gera ráð
fyrir að þótt varið yrði tíu milljón-
um til þessa, þá yrðu tækin fljót
að borga sig þegar beinbrotum
fækkaði.
Sigrún gerði einnig grein fyrir
tillögu sinni um að umhverfis-
málaráði yrði falið að gera
merkta gönguleið úr miðbænum
og upp í Heiðmörk sem nýta
mætti sem gönguskíðaleið að
vetrinum. Jafnframt verði gert
ráð fyrir reiðgötu og gætu hesta-
menn þá riðið í bæinn á tyllidög-
um og auðgað og gefið mannlíf-
inu lit.
Þá sagði Sigrún frá tillögu um
að auka viðhald skólahúsa sem er
í mörgum tilfellum afar ábóta-
vant, enda vantaði nú a.m.k. 180
milljónir til að forða eignunum
frá frekari skemmdum. í tillög-
unni er gert ráð fyrir að árlega
verði varið til þessa 60 milljónum.
Þá er í tillögum borgarfulltrú-
anna gert ráð fyrir að forsendur
fjárhagsáætlunar meirihlutans
standist í höfuðatriðum en athug-
unarefni sé hvernig verja á fjár-
munum borgarbúa.
Borgarfulltrúarnir vilja að fjár-
veitingar til dagvistunar verði
stórauknar. í stað 67,7 milljóna
meirihlutans verði varið 172,6
milljónum úr borgarsjóði. Ekki
veiti af því dagvistunarmál séu nú
í ólestri og vanrækslu hjá meiri-
hlutanum og 2 þúsund börn á
biðlistum.
Þá skal hefja undirbúning að
byggingu tveggja tilraunaskóla í
Grafarvogi en í skólunum skal
fara fram skólahald, rekstur dag-
heimilis og dagvistunar.
Nokkrir borgarfulltrúar kvnntu breytingartillögur við fjárbagsáætlun Reykjavíkur á fúndi með fréttamönnum í
gaer. Frá vinstri; Guðrún Agústsdóttir, Bjarni P. Magnússon, Sigurjón Pétursson, Kristín Á. Ólafsdóttir, Sigrún
Magnúsdóttir og Elín G. Ólafsdóttir.
Lagt er til að komið verði á
unglingahúsi í miðbænum fyrir
15-18 ára unglinga sem rekið
verði, að svo miklu leyti sem unnt
er, á forsendum unglinganna og
af þeim sjálfum. Starfsemi þess
myndi draga úr reiðileysishangsi
unglinga í miðbænum um helgar
og vandræðum sem af því hljótast
fyrir unglingana sjálfa og aðra.
Félagsmiðstöðvum verði kom-
ið á fót í Austurbæ og í Selja-
hverfi, hjúkrunarheimili fyrir
aldraða verði reist, komið verði á
sambýli og dagvist aldraðra,
hraðað verði framkvæmdum við
B-álmu Borgarspítalans og
heilsugæslustöð verði opnuð við
Hraunberg.
Fram kom að söluíbúðastefna
meirihlutans væri nú búin að
sanna ógagnsemi sína svo óyggj-
andi væri.
Með því að borgin keypti hús-
næði til að leigja út og setti í það
20 milljónir eins og tillaga borg-
arfulltrúanna gerir ráð fyrir,
mætti koma flestöllum þeim fjöl-
skyldum, sem leitað hafa til Fé-
lagsmálastofnunar vegna hús-
næðisleysis, í húsnæði.
Þá telja fulltrúarnir að borgin
skuli leita eftir samningum við
Búseta um að Búseti byggi kaup-
leiguíbúðir fyrir það fé sem borg-
in fær til þessa frá Húsnæðisstofn-
un.
Til endurgjalds fái borgin bú-
seturétt í húsunum til handa ein-
stæðum foreldrum, fötluðum og
námsmönnum eftir því sem við á
hverju sinni.
Sigrún Magnúsdóttir sagði að
ljóst væri að meirihlutinn legði
höfuðáherslu á að byggja fánýt
minnismerki um stjórn sína eins
og fram hefði margsinnis komið.
Hins vegar þyrfti að leggja
áherslu á að sameiginlegum fjár-
munum borgarbúa verði varið til
sameiginlegra þarfa þeirra og til
ánægju og yndisauka.
Viðhorf meirihlutans komi
skýrt fram í fjárhagsáætluninni,
meðal annars í málum sem skiptu
afar litlu fjárhagslegu máli. Þann-
ig hefur hann t.d. fellt niður lið
eins og bókmenntakynningu í
skólum og skorið niður lág fram-
lög til æskulýðsmála.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar verður til síðari umræðu
og afgreiðslu á fundi borgar-
stjórnar í kvöld og þar munu þær
tillögur lagðar fram, sem hér hafa
verið nefndar, auk annarra til-
lagna. Búast má við miklum og
hörðum umræðum um áætlunina
og einstök atriði hennar og h'klegt
að umræður standi fram á
morgun. -sá
Flutningaskipiö Selnes í hættu um 140 sjómílur út af Ingólfshöfða:
Sjór komst í jafnvægistank
Flutningaskipið Selnes stefnir nú
til Englands samkvæmt áætlun eftir
að leki kom að skipinu í gærmorgun.
Skipstjóri Selness óskaði eftir aðstoð
Landhelgisgæslunnar um klukkan 5
í gærmorgun og var þá komin tölu-
verð slagsíða á skipið þar sem það
var um 140 sjómílur út af Ingólfs-
höfða. Ekki kom þó til að aðstoðar
Landhelgisgæslunnar væri þörf og
lenti þyrla gæslunnar í Eyjum og
beið þar átekta og sneri síðar meir
heim aftur.
Þungur sjór var á þcssum slóðum
og ein sjö til átta vindstig, svarta
myrkur og reyndist því erfitt að átta
sig á aðstæðum fyrsta kastið.
Skipverjum tókst að dæla sjó úr
einum jafnvægistanki skipsins og
með því að rétta það á nýjan ieik.
Þegar dælt hafði verið úr tankinum
komust skipverjar að orsökinni fyrir
því að sjór komst í tankinn.
Innfallsventill mun hafa gefið sig
og flæddi sjór inn í skipið. Aðstoð
Landhelgisgæslunnar reyndist því
óþörf en hún brást skjótt við þegar
kallið kom.
Tvö flutningaskip í nágrenni við
Selnesið sneru af leið sinni til móts
við skipið, þegar fréttist hvernig
ástatt var, en þau tóku aftur upp
fyrri áætlun sína þegar sýnt þótti að
allt færi á besta veg.
Selnesið er lestað vikri á leið til
Englands. Þegar Tíminn ræddi við
loftskeytastöðina í Vestmannaeyj-
um seinnipartinn í gær hafði Selnesið
tekið stefnuna á írland. - ES