Tíminn - 11.02.1989, Blaðsíða 10

Tíminn - 11.02.1989, Blaðsíða 10
 m 20 -F HELGIN lllllllllllilill, ITIMANSRAS , 1111111111 Atli Magnússon: Svo skal böl bæta Það er svo með hvert böl að tíminn græðir öll sár, sem betur fer, og þessi sannindi gera oss fært að komast af í óblíðri veröld - annað hvort gleymum við bölinu eða lærum að lifa með því, ef ekki vill betur. Mæðan sefast og þetta verður eins og hver annar eðlilegur hluti af hinni daglegu tilveru. Og meira en það: á endanum verða menn í leynum hjartans heldur ánægðir með sitt böl og teldu það sjálfsagt enn nýtt böl ef það hyrfi úr tilveru þeirra. Þannig gerast nú æ færri og meir hjáróma þær raddir sem stynja undan ofstækisfjölmiðluninni sem mönnum þótti í hlað riðin fyrir svona þrem árum, þegar ein út- varpsstöðin á eftir annarri skaut rótum og ný sjónvarpsstöð tók til starfa. En eins og ekki hefur farið fram hjá neinum, hleypti nýgróð- urinn ofurkappi í það sjónvarp og útvarp sem fyrir var - það mátti til með að reyna að standast því nýja snúning, sem ekki varð gert með öðru móti en því að blása sig enn meir út með enn lengdum sýninga- tímum og enn skrýtnari uppátækj- um í allra handa þáttum, syrpum og grínaktugheitum. Alls kyns karlar og kerlingar ruddust fram á ritvöllinn og sendu þessari óheillaþróun tóninn, það var stofnað félag gegn hávaða- mengun og kórinn gamli um hætt- urnar sem eiga að steðja að tung- unni efldist á öllum raddsviðum um hríð. En svo sannaðist hið fornkveðna um lækning tímans á öllu böli. Varla nokkur á þrek eftir til að vandlætast lengur í blöðunum yfir „fjölmiðlafárinu", ekkert hef- ur lengi heyrst af hávaðafélaginu og umhyggjan fyrir móðurmálinu rorrar í sínu góða og gamla fari og puntar upp á ræður og þvargið í póltíkinni, eins og hún áður var vön og mun halda áfram að gera. Já, menn hafa sem sé lært að búa með böli sínu og þykir það orðið hreint ekki sem allra verst. Að minnsta kosti má greina alveg upp- gerðarlausan áhyggjutón í blöðum, ef það fréttist að hætta sé á að rifa þurfi seglin í einhverjum af þessum hávaðabelgjum (sem allir þóttust vera að skamma), vegna einhverra orsaka, eins og „tímabundinnar erfiðrar eiginfjárstöðu" eða ann- arra nú hæstmóðins fenómena efnahagslífsins. Auðvitað ber fjöldamargt til - en það ekki síst að rifrildisseggirnir sem verst létu í blöðunum fyrir þrem árum, þurfa nú ekki á neinum blaðaskrifum að halda meir, vilji þeir skamma hávaðann eða vera áhyggjufullir út af tungunni. Þeir hringja bara í einhvern símaþátt- inn á útvarpsstöðinni, bera upp hinar blýþungu sorgir við skilnings- ríkt fólk - og sofa sælir á eftir. Þannig gegna útvarpsstöðvarnar sálgæsluhlutverki og setja niður deilur manna á meðal í ólíkustu efnum. Það má leiða rök að því að þær séu Salómon konungur vorra daga: Fari að flóa á klósettinu hjá einhverjum, vegna þess að kerling- in á efri hæðinni gleymdi að skrúfa fyrir krana, má láta hana fá það óþvegið á „Rásinni", „Bylgjunni" eða „Stjörnunni". Áður en þættin- um lýkur er vísast að kerlingin á hæðinni sé líka búin að hringja og segja eigin skoðun á málinu. Hún hefur þá kannske minnt granna sinn á hvernig hann sífellt svíkst um að skúra í sameigninni. Stjórn- andi Þáttarins tekur loks til máls og gerir gott úr öllu saman í þjóðar- áheyrn og vísast að deiluaðilarnir uni vel við sinn hlut eftir á. Þannig er það með flestar nýj- ungar. Þótt þær virðist böl til að byrja með, þá vitum vér ekki fyrr en við erum farin að meta hitt meir, það sem auðveldar okkur leiðina um táradalinn og gerir allt ánægjulegra. Laugardagur 11. febrúar 1989 GETTU NÚ Kannske hefur það ekki verið nema fyrir gamla Norðlendinga að bera kennsl á dalinn, sem við spurðum um fyrir viku. En þeir sem þekktu fjallasýn á myndinni munu hafa kannast við að þetta var úr Svarfað- ardal. Aftur á móti mun mönnum veitast létt að svara spurningunni í dag. Á hól í óbyggðum liggur beinasafn, sem tengist þjóðfrægum harmleik. Hvar er þessi hóll og hvað er hann nefndur? KROSSGÁTA roK- Söfif/lR io HRóP ToNN Snm UPflR/r. FJolu 7 50 öF U& l?ób SfflKF IV K£y/? LEIB1 K'ÚSTÁR " -EIMS é- SPfLlÐ Uor<ftJi fLI vT STAJ.1.' UR sIkjo\" J/ vt SRA WB8 2 1 T T 7 7 7 “ Tb T SNuA vm r t-oV n>r- ko sr- WUM SÍ6S fí RANC.T HWSSft PUG Lec RlML/1 KfiSSfl DR£K K- L06U EUEFU 5{ LVFTl- DUFV ÍINS FflNI BflUG fíR SflNP V£FUR LÍM TUMft RlSfi s vi K TiMI RffKSHl INN - vru MJUKflN m9fa EF TlR MokK Tofi/) HREyr IST /3 53 EINS lvt STAfi 5 flh TffRft DÍS SOO Tusk- iLS SUD W MÍTl MVflRl 45 ii firr ViMD n F£L/lfi HlutiR TfiLft ÓREIPA /3 0 /V TóíU JÍL ih N ilLU • • • LlHDi LjUKPí upp ÓÝR G UÐ /Y

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.