Tíminn - 09.06.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn
Föstudagur 9. júní 1989
DAGBÓK
Guðný Guðmundsdóttir
Sigurður I. Snorrason
Sinfóníuhljómsveitin
heimsækir Norðurland
Sinfóníuhljómsveit íslands er nú á
tónleikaferð um Norðurland. í kvöld,
föstudaginn 9. júní kl. 20:30, leikur
Sinfóníuhljómsveit lslands í íþróttahús-
inu að Laugum, á laugardag 10. júní kl.
17:00 f íþróttahúsinu á Dalvík og sunnu-
daginn 11. júní kl. 17:00 í Akureyrar-
kirkju.
Mánudaginn 12. júní kl. 20:30 leikur
hljómsveitin í Nýja bíói á Siglufirði og
íþróttahúsinu á Sauðárkróki 13. júní kl.
20:30.
Dagskrá tónleikanna verður tvfskipt:
Á Húsavík, Akureyri og Sauðárkróki
verða flutt Sinfónía nr. 5 í B-dúr eftir
Franz Schubert og Konsert fyrir fiðlu og
hljómsveit í D-dúr eftir Beethoven. Ein-
lcikari er Guðný Guðmundsdóttir, 1.
konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar.
Að Laugum, Dalvfk og Siglufirði verða
flutt forleikurinn að Vatnatónlistinni eftir
Hándel, Klarínettkonsert í F-moll eftir
Crusell og að lokum Frá nýja heiminum
eftir Dvorák. Einleikari er Sigurður I.
Snorrason klarinettuleikari.
Hljómsveitarstjóri í ferðinni verður
breski hljómsveitarstjórinn Anthony
Hose.
Þjóðleikhúsið:
Síðasta sýning á
„Logi, logi, eldur mín“
1 kvöld er sfðasta sýning á færeyska
gestaleiknum „Logi, logi, eldur mín“ á
litla sviði Pjóðleikhússins kl. 20:30.
Þetta leikverk er leikgerð eftir „Goml-
um Götum“ færeysku skáldkonunnar Jó-
honnu Maríu Skylv Hansen í leikstjóm
Eyðun Johannesen. Leikari er Laura
Joensen.
Leikritið var frumsýnt í Þórshöfn á
annan í jólum 1988 í tilefni 100 ára
afmælis hins sögulega Jólafundar, þegar
Færeyingar komu saman og strengdu þess
heit að hefja færeyska tungu og menningu
til vegs og virðingar.
Aðvörun frá
Rafmagnseftirliti ríkisins:
HÁSPENNA - LÍFSHÆTTA!
Rafmagnseftirlit ríkisins sendir frá sér
eftirfarandi viðvörun:
★ Óhöppum og tjónum af völdum
háspennu fer fjölgandi. Flest slík óhöpp
verða fyrir vangá eða hugsunarleysi.
★ ÖKUMENN:
Hafið gát á háspennulínum ef þið eruð
með hátt loftnet eða með háfermi á
bílnum. Reisið ekki bílpall upp í línur,
eins og mörg dæmi eru um við vegagerð
og aðrar framkvæmdir.
★ GRÖFU- OG KRANASTJÓRAR:
Fylgist vandlega meðöllum hreyfingum
tækjanna og farið með sérstakri gát, ef
þið eruð að störfum í nánd við háspennu-
línur.
Ef ökutæki eða vinnuvél snertir há-
spennulínu er sjálfsagt að reyna strax að
komast undan línunni og meta síðan
aðstæður áður en reynt er að komast út
úr ökutækinu. Ef sýn þykir að spenna
liggi á tækinu, er öruggast að hreyfa sig
hvergi fyrr en tryggt er að spenna sé ekki
lengur á Ifnunum.
Ef eldur kemur upp í tækinu kann að
vera eina björgunarvonin að stökkva út.
Ef tækið snertir enn háspennulínu verður
að varast að snerta samtímis tækið og
jörðu.
+ STJÓRNENDUR FLUGDREKA:
Leikið ykkur ekki í nágrenni við há-
spennulínur. Nylonlína getur leitt há-
spennt rafmagn í röku veðri. Sleppið
h'nunni, ef flækja við raflínur er fyrirsjá-
anleg.
★ IÐKENDUR FALLHLÍFAR-
STÖKKS:
Metið aðstæður, vinda og veður, áður
en lagt er til stökks þar sem háspennulínur
geta verið í sviflínu.
Aðvörun frá
Rafmagnseftirliti ríkisins:
Bráðabirgðalausnir
Hafið því alltaf rétta stærð af
þræðivörum við hendina. Prófið lek-,
ástraumsrofann • öðru hverju, ef
totlubúnaðurinn er af þeirri gerð,
því bráðabirgðalausn er aðeins frest-
ún á óhappi.
Kannast ekki einhver við að hafa
aðeins átt 70 ampera öryggi eða
bræðivara þegar 10 ampera öryggi
bráðnaði - og sett það í til bráða-
birgða?
Svona bráðabirgðalausnir geta'
verið hættulegar, vegna þess að þær
vilja gleymast, og rifjast oft ekki upp
fyrr en þær minna á sig með bruna
eðaslysi.
Aðvörun frá
Rafmagnseftirliti rikisins:
Gómul inniloftnet fyrir
sjónvarp
■ Rafmagnseftirlit ríkisins minnir á
að gömul inniloftnet fyrir sjónvarp
hafa oft valdið alvarlegum slysum.
Ef slík loftnet eru j notkun, gangið
úr skugga um að sett hafi verið á þau
réttir tenglar og í þau öryggisþéttar.
—
t
Bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
Margrétar lllugadóttur
Syðrl-Hömrum,
Ásahreppl
Sérstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima, Selfossi fyrir góða hjúkrun
og hlýhug í hennar garð.
Systkinin frá Syðri-Hömrum
og fjölskyldur þeirra
t
Eiginmaður minn
Valdimar Jónsson
Fannafold 71
lést á Landspítalanum 7. júní.
Dóra R. Guðnadóttir
Ef þau eru ekki í notkun, fjarlægið
þau, því þau geta freistað barna og
unglinga til leikja, og þá er voðinn
vís.
Aðvörun frá
Rafmagnseftirliti rikisins:
Raflost
Við heyrum stundum varað við
því að snerta samtímis tvö rafmagns-
tæki, eða til dæmis að snerta raf-
magnstæki með annarri hendi og
vask eða krana með hinni.
Öðru hverju heyrast fregnir um að
fólk hafi fengið raflost með þessum
hætti.
Ástæðan er sú að öryggisbúnaður-
inn í rafmagnstöflunni vinnur ékki
eins og hann á að gera.
• Rafmagnseftirlit ríkisins hvetur.
húsráðendur til að láta löggiltan raf-
verktaka líta á rafkerfið hjá sér, ef
nokkur vafi er í huga þeirra um að
öryggi í sambandi við rafmagn sé
.nægilega tryggt.
Aðvörun frá
Rafmagnseftirliti rikisins:
Rafmagnsleikföng
Um árabil hafa veirð til á mark-
aðnum leikföng sem ganga fyrir raf-
magni beint frá rafveitu, eins og til
dæmis smækkaðar útgáfur af ýmsum
heimilistækjum svo sem straujárn-
um, vöfflujárnum og þess háttar.
Slík leikföng eru hættuleg og al-
gerlega ólögleg.
Öðru máli gegnir ef rafknúnum
leikföngum fylgir sérstakur öryggis-
spennubreytir eða leikfangaspennir
sem Rafmagnseftirlit ríkisins hefur
samþykkt, og breytir 220 volta
spennu í lágspennu, sem ekki er
hærri en 24 volt.
Munið að hætta fylgir öllum leik-
föngum fyrir rafmagn sem ekki fylgir
sérstakur leikfangaspennubreytir.
Dagsferðir Ferðafélags íslands
Laugardag 10. júní kl. 09:00 - Sögu-
slóðir Njálu. f þessari ferð gefst tækifæri
til þess að heimsækja þá staði sem koma
við sögu í Njálu um leið og sagt verður
frá atburðum. Fararstjóri: Gunnar
Guðmundsson frá Heiðarbrún. (Verð kr.
1500)
Laugard. 10. júní Id. 10:00 - Hösk-
uldarvellir - Einihlíð - Straumsvík. Ekið
að Höskuldarvöllum. Gengið meðfram
Einihltðum að Markhelluhól, en þaðan
er stefna tekin í Straumsvík. (Verð kr.
800)
Kl. 13:00 Gjásel - Straumsel - Straums-
vík. Ekin Krýsuvíkurleið og gengið að
Gjáseli og Straumseli, en síðan tii
Straumsvíkur. (Verð kr. 800)
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir
unglinga og börn innan 15 ára.
Miðvikud. 14. júníkl. 20:00: Heiðmörk
- hugað að gróðri í reit Ferðafélagsins.
Ókeypis ferð.
Árbók F.í. 1989 er komin út.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugardaginn
10. júní. Lagt af stað frá Digranesvegi 12
kl. 10:00.
Samvera, súrefni, hreyftng er markmið
göngunnar. „Dustum rykið af gömlu
slagorði „Heilbrigð sál í hraustum lík-
ama“ í tilefni landsátaks heilbrigðisyfir-
valda á morgun. Allirvelkomnir. Nýlagað
molakaffi," stendur í fréttatilkynningu
frá Frístundahópnum Hana nú.
Ljós fyrir
vinnuvélar
BÚNABARDEILO
59 BAMBANDBINS
ÁRMÚLA3 REYKJAVlK SlMI 38900
„Sjáið manninn"
á Svalbarðseyri
Sunnudaginn 11. júní kl. 21:00 verða
sýndir í kirkjunni að Svalbarðseyri, Sval-
barðsströnd, þrír nýir einþáttungar eftir
doktor Jakob Jónsson. Einþáttungarnir
heita: Þögnin, Kossinn og Sjáið manninn.
Leiksýningin dregur nafn sitt af síðasta
þættinum.
Leikstjóri sýningarinnar er Jakob S.
Jónsson, aðstoðarleikstjóri Ólöf Sverris-
dóttir, tónlistina samdi Hörður Áskelsson
og Snorri Sveinn hannaði leikmyndina.
Leikendur eru: Erlingur Gíslason, Þór-
unn Magnea Magnúsdóttir, Anna Kristin
Arngrímsdóttir og Hákon Waage.
Óþarft er að kynna dr. Jakob Jónsson.
Hann hefur samið fjölda leikrita og sækja
sum þeirra efni sitt í frásögur Biblfunnar.
Meðal verka hans má nefna: Maðurinn
sem sveik Barrabas, sem var fyrsta leikrit-
ið sem var tekið upp í lit hjá Sjónvarpinu
og Tyrkja-Guddu, leikritið um Guðríði
Símonardóttur og Hallgrím Pétursson,
sem tvívegis hefur verið sett upp hjá
Þjóðleikhúsinu.
Leikritið „Sjáið manninn“ var sýnt á
nýafstaðinni Kirkjulistarhátíð I Hall-
grímskirkju.
/ /2 ' /tY(Yr .
.) ent
Edda Jónsdóttir
sýnir í Nýhðfn
Edda Jónsdóttir opnar sýningu í Lista-
salnum Nýhöfn, Hafnarstræti 18, laugar-
daginn 10. júní kl. 14:00-16:00.
A sýningunni eru myndir unnar með
vatnslit, olíukrít og biýanti. Myndirnar
eru flestar unnar á sl. vetri, en þá dvaldi
Edda í Kjarvalsstofu í París um tíma.
Edda stundaði nám við Myndlistaskóla
Reykjavíkur, Myndlista- og handíða-
skóla Islands og Rijksakademie van Be-
eldende Kunsten 1968-78
Þetta er ellefta einkasýning Eddu, en
hún hefur einnig tekið þátt f fjölda
samsýninga og alþjóðlegra grafíksýninga
hér heima og erlendis, þar sem hún hefur
unnið til verðlauna, svo sem í Bradford
1982 og Fredrikstad 1984.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga kl. 10:00-18:00 og kl. 14:00-
18:00 um helgar. Henni lýkur 21. júní.
Sýning Elínar K. Thorarensen
í Myndlistarsalnum Mugg,
Aðalstræti 9II hæð
Elín K. Thorarensen sýnir málverk og
vatnslitamyndir. Opið virka daga kl.
16:00-19:00. Síðasta sýningarhelgi er opið
kl. 14:00-19:00.
Myndlistarsýningunni lýkur mánudag-
inn 12. júní. Boðskort frá 28. janúar sl.
eru í fullu gildi.
NÝ SAGA 3. árg.
Þriðji árgangur Nýrrar sögu er kominn
út. Blaðið er að þessu sinni 112 síður og
skiptist efni þess sem fyrr í tvennt: greinar
og fasta þætti.
Greinarnar eru fimm talsins og spanna
efni allt frá miðöldum til vorra daga.
Grein er eftir Guðmund J. Guðmundsson
sem fjallar um barneignir klerka og
frillulífi þeirra á miðöldum. Már Jónsson
ritar um barnsfeðranir og eiðatökur, með
aðaláherslu á 17. öldina. Matthew James
Driscoll skrifar grein sem snertir einnig
skfrlffi. Hann lýsir því hvernig sagan af
„skikkju skfrlífisins", sem fyrst var
franskt söguljóð, en breyttist síðan í
norræna riddarasögu, var loks snúið í
rímur á íslandi á 15. öld. Guðmundur
Hálfdanarson ritar grein um frelsishug-
myndir íslenskra bænda á 19. öld og loks
er grein eftir Halldór Bjamason um
stríðsgróðann í Reykjavík og áhrif hans
á atvinnulíf í höfuðborginni.
Föstu þættirnir eru sex. Loftur Gutt-
ormsson fjallar um 200 ára afmæli frönsku
byltingarinnar, Gunnar Karlsson prófess-
or svarar spumingum um kennslubókarit-
un í þættinum „Af bókum“. 1 ÆTTVÍSI
gerir Guðjón Friðriksson grein fyrir
„Embættismannaaðlinum í Reykjavík"
1870 og 1910 og breytingar á stéttaskipt-
ingu á því tfmabili. SJONARHÓLL er
ritaður af dr. theol. Gunnari Kristjáns-
syni, en VIÐTALIÐ er að þessu sinni við
sagnfræðinginn Jacques Le Goff. í þættin-
um SJÓN OG SAGA segir Sumarliði
ísleifsson frá heimildarmyndbandi um
íslenska bændasamfélagið á 19. öld.
NÝ SAGA er gefin út af Sögufélaginu,
Garðastræti 13B, Reykjavík. Ritstjórar
em Már Jónsson og Ragnheiður Móses-
dóttir.
Sumarsýning Hafnarborgar:
„Á tólfæringi"
-12 listamenn sýna í Hafnar-
borg, Hafnarfirði 10/6-7/8
Sumarsýning Hafnarborgar, menning-
ar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, hefur
hlotið yfirskriftina „Á tólfæringi“. Sú
nafngift vísar annars vegar til þeirra tólf
listamanna sem nú ýta úr vör samsýningu
á verkum sínum og hins vegar til sögu
Hafnarfjarðar, sem hefur verið útgerðar-
staður allt frá upphafi byggðar.
Þeir listamenn sem sýna eru: Björg
Örvar, Borghildur Óskarsdóttir, Jón
Axel Bjömsson, Kristbergur Pétursson,
Magnús Kjartansson, Margrét Jónsdótt-
ir, Sigurður Örlygsson, Sóley Eiríksdótt-
ir, Steinunn Þórarínsdóttir, Steinþór
Steingrímsson, Sverrir Ólafsson og Val-
gerður Bergsdóttir.
Nokkrir af listamönnunum sem sýna nú í
Hafnarborg (aðrír em erlendis) t.f.v.:
Steinunn Þórarinsdóttir, Jón Axcl
Bjömsson (f.fr.), Margrét Jónsdóttir,
Sigurður Örlygsson, Sóley Eiríksdóttir,
Kristbergur Pétursson, Valgerður Bergs-
dóttir og Magnús Kjartansson
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur rit-
ar inngang í sýningarskrá.
Sýningin verður opnuð laugard. 10.
júní og mun standa til 7. ágúst. Opnunar-
tími er kl. 14:00-19:00 alla daga nema
þriðjudaga. Kaffistofan í Hafnarborg er
opin á sama tíma alla daga.