Tíminn - 14.06.1989, Blaðsíða 2

Tíminn - 14.06.1989, Blaðsíða 2
2 Tírpinn - Miðvikudagur 14. júní 1989 26,9% segjast styðja ríkisstjórnina en 73,1% ekki samkv. könnun Skáís: Sjálfstæðisflokkurinn með tæplega 52% fylgi Sjálfstæðisflokkurinn fengi 51,9% atkvæða sam- kvæmt könnun Skáís ef kosið yrði nú. Framsóknarflokkur- inn er næst stærstur og fengi 17,3% Kvennalisti er þriðji stærsti flokkurinn samkvæmt þessu og fengi 11,5%. Al- þýðubandalagið kæmi í fjórða sæti með 10,9%. Stór- veldistímar Alþýðuflokksins virðast samkvæmt könnun- inni vera fyrir bí í bili en flokkurinn fengi 6,4% Aðrir flokkar sem á blað komust í könnuninni eru Flokkur mannsins, Þjóðarflokkurinn, Samtök um jafn- rétti, Borgaraflokkur og Frjálslyndir hægri en samanlagt fengju þessir flokkar 2,1%. Könnun Skáís var gerð 9.-10. júní s.l. og hringt var í 800 símanúmer um allt land. 664 svöruðu, eða 83%. Spurt var hvaða flokk viðkomandi kysi ef alþingiskosningar færu fram nú. Þá var fólk beðið að nefna einn til þrjá stjórnmálamenn sem það bæri mest traust til og að síðustu var spurt hvort viðkomandi styddi ríkis- stjórnina. 73,1% þeirra sem spurðir voru sagðist ekki styðja stjórnina en 26,9% sögðust gera það. -sá Yfirlysing form. íslensku sendinefndarinnar á ársfundi hvalveiöiráðsins, Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráöherra: Komum til fundar með endurnýjuðu trausti Sendinefnd íslands á 41. ársfundi Alþjóða hvalveiði- ráðsins kemur til fundarins með endurnýjuðu trausti á starfsemi samtakanna. Á sínum 40. ársfundi sýndi ráðið að það er fært um að takast á við mikilvæg mál- efni á ábyrgan hátt, þ.e. með því að afgreiða mál með þeim hætti að þau verða uppbyggjandi fram- lag til grundvallar mark- miða sem fram koma í sátt- mála ráðsins. Það er ljóst að lagaþrætur og pólitísk slagorð munu ekki lengur afvegaleiða hvalveiðiráðið í til- raunum þess til að framfylgja grundvallarmarkmiðum sáttmál- ans. Það er tæplega hægt að ofmeta mikilvægi þessa 41. ársfundar. Þetta er síðasti fundur ráðsins áður en það fjallar um heildarmat á ástandi hvalastofnanna, en að því mati hefur íslenska sendinefndin sem og aðrar sendinefndir verið að vinna síðan 1982. Þessi fundur er jafnframt haldinn á svipuðum tíma og íslendingar hefja síðasta áfanga í fjögurra ára rannsóknarverkefni sínu sem miðar að því að afla ýmissa grundvallar upplýsinga og vinna úr þeim til þess að unnt verði að framkvæma heildarmat á stofn- unum. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra. Þeim hluta áætlunar okkar sem felur í sér að veiða hvali í vísinda- skyni er því að verða lokið. Engar veiðar í vísindaskyni verða stund- aðar árið 1990, og engar áætlanir eru uppi um slíkar veiðar á næstu árum. Sem eyþjóð, sem byggir afkomu sína á lífríki sjávarins umhverfis landið, verða íslendingar að halda áfram að bæta skilning sinn á vistfræði hafsins. íslendingar horfa til hvalveiðiráðsins sem vettvangs þar sem mikilvæg þróun gæti orðið á sviði vísindalegrar þekkingar vegna alþjóðlegrar samvinnu. Hvalir skipta mjög miklu máli f vistkerfi sjávarins. Innan fiskveiði- lögsögu íslendinga éta tugþúsundir hvala milljónir tonna af fiski og öðrum sjávarlífverum á ári hverju í víðtækri og flókinni fæðukeðju. Þessar staðreyndir þarf að meta í tengslum við fiskveiðar íslendinga, en heildaraflinn er um ein og hálf milljón tonn á ári. íslenska sendinefndin vonast til þess, nú þegar hvalveiðiráðið er að undirbúa sig fyrir heildarmat á ástandi hvalastofnanna, að tillit verði tekið til áhrifa þeirra á vist- kerfi hafsins. Við hlökkum til að vinna að þessu og öðrum mikilvæg- um málum með starfsbræðrum okkar í hvalveiðiráðinu. íslenska sendinefndin vill þakka Vísindanefnd hvalveiðiráðsins störf hennar undir forystu dr. Rob- erts L. Brownell Jr. Engu að síður teljum við að endurskoða þurfi þá forgangsröð verkefna sem vísinda- nefndin leggur til varðandi heildar- mat á stofnstærð hvala. Ennfremur vill ríkisstjórn ís- lands koma á framfæri þakklæti til ríkisstjórnar Bandaríkjanna gest- gjafa ársfundarins, fyrir gestrisni og úrvals aðstæður á fundarstað í San Diego. 12. júní 1989 Fyrstu heiðursdoktorar Kennaraháskóla íslands Kennaraháskóli Islands sæmdi dr. Brodda Jóhannesson og dr. Matthí- as Jónasson doktorsnafnbót á sviði uppeldis- og kennslufræða í heiðurs- skyni á laugardaginn síðasta. Þeir eru fyrstu heiðursdoktorarnir við KHÍ. Dr. Matthías Jónasson varð fyrsti íslenski prófessorinn í uppeldisfræð- um árið 1957 við Háskóla íslands og vann hann þar mikið brautryðjanda- starf. Dr. Matthías hefur verið af- kastamikill rithöfundur. Fræðileg rit hans eru afar mikil að vöxtum og fjalla nánast öll um uppeldisfræðileg viðfangsefni og álitamál. Dr. Broddi Jóhannesson hóf kennslu við Kennaraháskóia fslands 1941 og varð skólastjóri hans 1962. Hann varð fyrsti rektor Kennarahá- skóla fslands þegar stofnunin varð að háskóla 1971 og gegndi hann því embætti til 1975 þegar hann dró sig í hlé og hætti störfum. Dr. Broddi er höfundur að þremur merkum bók- um og auk þess hefur hann þýtt nokkur rit. Eftir hann liggur fjöldi greina um skóla-, uppeldis- og fræðslumál. -LDH Aðalfundur Menningarsambands Norðlendinga: Byggðastefna í menningarmálum Á aðalfundi Menningarsambands Norölendinga sem haldinn var á Hvammstanga dagana 10 .-11. júní var talsvert rætt um menningu sem byggöamál, og voru menn sammála um að félagslíf landsbyggðarmanna væri eitt af mikilvægustu atriðum fastrar búsetu. Óhætt er að segja að mikið hafi þessir þættir væru ein af höfuðstoð- verið um dýrðir þessi helgi á Hvammstanga, bæði hvað varðar fróðleik og skemmtanir. Kvenna- bandið, samband kvenfélaga í Vestur-Húnavatnssýslu, hélt mikla sýningu á nytjalist og hannyrðum, myndlistarmenn úr sýslunni, bæði lærðir og leikir, stóðu að myndlist- arsýningu. Leikfélagið á Hvamms- tanga og kórar Vestur-Húnavatns- sýslu sáu svo um kvöldvöku. Þar komu fram leikarar, fjórir kórar, einsöngvarar auk annarra skemmtikrafta. Á laugardeginum var aðalfundur Menningarsambandsins haldinn og var þar rædd staða mála, fram- kvæmdir á síðasta ári og hverju stefna bæri að. Leikfélagssamband Norðurlands hélt einnig sinn aðal- fund og mætti þar nýráðinn leikhússtjóri Akureyringa, Sigurð- ur Hróarsson, til skrafs og ráða- gerða. Laugardagskvöldið bauð héraðsnefnd V-Húnavatnssýslu öllum fundarmönnum í mat og síðan var dansað undir harmoníku- tónum fram eftir nóttu. Haukur Ágústsson, formaður Menningarsambands Norðlend- inga sagði í samtali við Tímann, að aðalfundur samtakanna hafi verið haldinn árlega allt frá stofnun þeirra, 1982, en aldrei jafn veglega og nú. Á þriðja hundrað manns mætti á hina ýmsu viðburði, en Haukur sagði að markmið samtak- anna væri að efla menningarlíf fjórðungsins í alla staði, og talaði þar um menningu í víðasta skiln- ingi þess orðs. Á málþingi sem haldið var eftir aðalfundinn var meðal annars rætt um hvort byggðastefna væri til í menningarmálum og sagði Haukur að þeim nyrðra þætti sú byggða- stefna varla til staðar, því hugir sveitarstjómarmanna snúist, kannski af eðlilegum ástæðum, mest um atvinnumál og sam- göngumál héraðsins. Þeim væri ekki nógu ljóst að menning, listir og félagslíf í byggðum landsins skipta líka gífurlega miklu máli því unum undir búsetufestu manna. „Við álítum að ein af ástæðunum fyrir því, að fólk sem fer til Reykja- víkur snýr ekki aftur sé sú, að félagslegri þörf þess sé betur full- nægt á Reykjavíkursvæðinu en úti á landi. Okkur finnst augljóst að ef búið væri betur að félagslífi lands- byggðarmanna, myndi fólk síður flytja burt. Þannig eru félagsmálin óhjákvæmilega tengd byggðamál- unum,“ sagði Haukur. Haukur sagðist líta svo á að þarna hafi farið fram lítil listahátíð; markmiðið væri að vekja menn til umhugsunar um það sem gert er í heimabyggðunum, þá krafta sem þar eru og möguleikana á að nýta þá. „Menn sjá þá að ekki er alltaf nauðsynlegt að leita út fyrir byggð- ir til þess að fá mynd málaða eða lag sungið. Á öllum meiriháttar uppákomum hefur venjan verið sú að fá skemmtikrafta úr Reykjavík, en þótt ekkert sé athugavert við það í sjálfu sér, þá á það alls ekki að vera reglan. Við lítum svo á að Norðlendingar eigi að geta skemmt hverjir öðrum, ekki síður en fólk á höfuðborgarsvæðinu. Okkurfinnst sem skilningur sveitarstjórnar- manna á gildi þessara mála sé að vaxa, og má nefna að þingsályktun- artillaga Valgerðar Sverrisdóttur nú í vetur um menningarráðgjafa landshlutanna finnst okkur vera merki þess,“ sagði Hjörtur. Menn á aðalfundinum voru sam- mála um að landið þyrfti að vera sem mest í byggð og því væri höfuðatriði að fólki liði vel þar sem það væri og þyrfti ekki að líta öfundaraugum yfir heiðar, suður á bóginn, vegna þess að þar væri allt svo blómlegt. Við yrðum að geta búið að blómlegri menningu hvar sem við ættum heima. Að lokum vildi Haukur taka fram að Hvammstangabúar og Vestur-Húnvetningar sýndu af sér höfðingsskap hinn mesta og gífur- legan félagsanda og framkvæmda- getu, þarna hafi allt verið til fyrir- myndar. -LDH Frá 35. Norræna þingi mjólkuriðnaðarins í Háskólabíói. Timamynd: Ární Bjama 35. Norræna mjólkuriðnaöarþingið: Framleiða mjólk „í sátt við umhverfið“ Þessa dagana stendur yfir Norrænt mjólkuriðnaðarþing, hið 35. í röð- inni. Þingið er að þessu sinni haldið hér á landi, í Háskólabíói, og um það bil þrjú hundruð sérfræðingar á sviði mjólkuriðnaðar hafa komið til að flytja erindi og hlýða á fyrirlestra. Mjólkuriðnaðarþingið er fagleg ráðstefna sem skilar niðurstöðum sem stuðst verður við í framtíðinni. Starfshópar hafa unnið að rannsókn- um og álitsgerðum undanfarin ár og skila þeim á fundunum. Meginviðfangsefnið að þessu sinni er gæðastýring í mjólkuriðnaði. Ein- nig verður fjallað um tilraunir Dana með framleiðslu á mjólkurvörum „í sátt við umhverfið". Það er að segja með sem minnstri notkun aukaefna, áburðar, lyfja og svo framvegis. Undirbúningsaðili, af íslands hálfu, er Tæknifélag mjólkuriðnað- arins. Félagið telur sjötíu félags- menn sem flestir eru yfirmenn í mjólkursamlögum og öðrum fyrir- tækjum tengdum iðnaðinum. jkb

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.