Tíminn - 14.06.1989, Side 4

Tíminn - 14.06.1989, Side 4
4 Tíminn Miðvikudagur 14. júní 1989 Vist á stúdentagörðunum næsta vetur Félagsstofnun stúdenta við Háskóla íslands aug- lýsir hér með eftir umsóknum um vist á stúdenta- görðunum fyrir næsta skólaár. Á Gamla- og Nýja-Garði eru samtals 95 herbergi og 3 parherbergi leigð úttímabilið 1. sept.-31. maí. Á Hjónagörðum eru 109 2ja herb. íbúðir og 34 3ja herb. íbúðir leigðar út tímabilið 1. sept.-1. júní eða 31. ágúst. Tvær íbúðir eru sérstaklega ætlaðar fötluðum. Þeir einir koma til greina við úthlutun, sem fyrirhuga reglulegt nám við Háskóla íslands næsta skólaár. Umsóknir berist skrifstofu F.S. við Hringbraut fyrir 25. júní nk. á eyðublöðum, sem þar fást. FÉLAGSSTOFNUN STÚPENTA V/XRIN6BRAUT, 101 REYKJAVtK StMÍ 16482 - Kannttala 540 í 6s* 6249 FLUGMÁLASTJÓRN Bóklegt atvinnuflugnám Flugmálastjórn mun, í samstarfi við Fjölbrauta- skóla Suðurnesja, standa fyrir bóklegu atvinnu- flugnámi á næsta skólaári, ef næg þátttaka verður. Inntökuskilyrði eru einkaflugmannsskírteini og stúdentspróf (þar af a.m.k. 3 einingar í eðlisfræði). Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu flugmála- stjórnar í flugturninum á Reykjavíkurflugvelli. Um- sóknir þurfa að hafa borist þangað fyrir 1. júl í n.k. Umsóknum skal fylgja: Staðfest Ijósrit af stúdentsprófi Ijósrit af einkaflugmannsskírteini og I. flokks heilbrigðisvottorð frá trúnaðarlækni flugmálastjórnar. Flugmálastjórn. SUMAR í GARÐINUM ÞDR^ ARMULA 11 SIMI 6B1500 Sláttu- orf Rafm./bensín Garðtraktorar Garðsláttu- vélar - bensín Garðsláttu- vélar - rafmagn FLUGLEIDIR Hluthafar Flugleiða Stjórn félagsins minnir hluthafa Flugleiða á, að forgangsréttur þeirra til þess að skrifa sig fyrir nýjum hlutum, vegna aukningar á hlutafé félags- ins, gildirtil 19. júní næstkomandi. Hlutabréfadeild Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, á Alþjóðavinnumálaþinginu: Ríkisstjórnin gaf rangar upplýsingar Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands íslands, ávarpaði 76. Alþjóðavinnumálaþingið í Genf 12. júní s.l. í ræðu sinni rakti hann kærumál Alþýðusambands íslands, sem nú er til umfjöllunar hjá sérfræðinganefnd Alþjóðavinnu- málastofnunarinnar, og sagði hann að ríkisstjórn íslands hefði veitt stofnuninni rangar upplýsingar um aðdraganda Iagasetningar stjórnarinnar í maí 1988, sem afnam samnings- rétt tímabundið, en fagnaði því að stofnunin hefði tekið undir meginsjónarmið Alþýðusambandsins í kærunni. Hann sagði að Alþjóðavinnu- málastofnunin væri eina stofnunin sem tæki til umjöllunar brot ríkis- stjóma gagnvart frelsi verkafólks til að bindast samtökum og rétti sam- takanna til að semja um kaup og kjör félagsmanna. Víða meðal iðn- væddra þjóða, hafa slík brot verið að endurspegla mörg undanfarin ár, greinilega andúð á markmiðum hreyfingarinnar og það viðhorf ríkis- stjóma að skerðing á samningsrétti sé handhæg aðgerð til að halda aftur af kauphækkunum og knýja fram lækkun kaupmáttar. Ásmundur taldi Ijóst að lögin frá 20. maí 1988 væm augljóst brot á samþykktum Albjóðavinnumála- stofnunarinnar, en Island hefur stað- fest þessar samþykktir. Stjórnar- nefnd Alþjóðavinnumálastofnunar- innar tók undir meginsjónarmið Al- þýðusambandsins í málinu að „endurtekin beiting laga til að hafa stjórn á efni samninga í framtíðinni, grefur undan trú launafólks á gildi aðildar að verkalýðsfélögum ... og félagar þeirra geti talið að það sé lítið gagn í því að ganga í samtök, sem hafa þann megintilgang að gera kjarasamninga við atvinnurekendur ef löggjafinn nemur þá úr gildi hvað eftir annað.“ Ásmundur vakti athygli á því að rfkisstjórn íslands hefði farið með rangt mál þegar hún gaf Alþjóða- vinnumálastofnuninni þær upplýs- ingar um aðdraganda að lagasetning- unni í maí 1988 að samráð hafi verið haft við samtök launafólks um að- gerðirnar. Sú hefði sannarlega ekki verið raunin og vonandi myndi sér- fræðinganefndin sannreyna að ríkis- stjómin fór með rangt mál. -LDH Þroskahjálp og Öryrkjabandalagið: SAMSTARF HAFID Landssamtökin Þroska- hjáíp og Öryrkjabandalag ís- lands hafa hafið samstarf sín á milli. Ákveðið var að láta reyna á hvort þau kæmu sterkari fram í vissum verk- efnum sem jafnframt væru sameiginleg baráttumál sam- takanna. SvoköIIuð Sam- vinnunefnd var skipuð en hana skipa nokkrir af fors- varsmönnum samtakanna beggja. Nefndin hefur yfir- umsjón með framgangi starfsins og leggur á ráðin um það. Samtökin hafa ákveðið að standa fyrir almennum fundum víðs vegar um landið til þess að kynna samstarf og samvinnu samtakanna og finna leiðir til þess að þau geti í samein- ingu náð árangri í hagsmunamálum fatlaðra, s.s. að bæta félagsaðstöðu þeirra. í þessum ferðum hafa verið myndaðar nefndir, sem í eru fulltrú- ar aðildarfélaganna úti á landi. Pess- ar nefndir verða síðan tengiliður við heildarsamtökin. Ákveðið hefur verið að halda fundi sem víðast um landið. Fimmtu- daginn l.júní var haldinn fundur í Bjargi á Akureyri. En það var fimmti fundurinn í röð funda sem Frá sameiginlegum fundi Þroskahjálpar og Öryrkjabandalagsins á Akureyri. haldnir verða. Á fundinn mættu rúmlega 30 manns og spunnust fjörugar umræður um málefni fatl- aðra. Eitt af því sem rætt var á fundinum var réttindagæsla fatlaðra. En fund- armönnum fannst hún víða vera í ólestri. Eftirfarandi ályktun um þessi mál var samþykkt: „Sameiginlegur fundur öryrkjabandalags íslands og Landssamtaka Þroskahjálpar, hald- inn á Akureyri l.júní 1989, ályktar að beina því til Samstarfsnefndar samtakanna að hún kanni möguleika á því að komið verði á fót opinberu ráði sem gæti lagalegra réttinda fatlaðra. Ráðið þyrfti að vera ráðgef- andi um réttindamál þeirra, aðili sem tæki við kærum, rannsakaði mál, reyndi að koma á sáttum, en höfðaði að öðrum kosti mál fyrir dómstólum." GS Hreinsunarátak UMFÍ um helgina: RUSLIÐ FYLLTIVÖRU- BÍL EFTIR VÖRUBÍL Jóhanna Leopoldsdóttir hjá Ung- mennafélagi íslands sagði í samtali við Tímann að hreinsunarátak ung- mennafélaganna um helgina hafi gengið framar björtustu vonum. Um 8000 manns víðsvegar af landinu hreinsuðu rusl við tæplega 6000 kílómetra af vegum landsins. Jó- hanna sagði að það væri nánast ómögulegt að áætla hversu miklu rusli var safnað saman um helgina, nema að það var óskaplega mikið. Ruslið var af fjölbreyttustu gerð, eins og glerbrot, flöskur, plastdúnk- ar, dósir, bílapartar, járnarusl, skot- hylki og rusl frá vegagerðarmönn- um. Jóhanna sagði að eitthvað hafi verið um að ungmennafélögin hafi safnað saman dósum sem skilagjald fæst fyrir, en annars hafi ruslið ekki verið flokkað. Sem dæmi um dugnaðinn í fólkinu nefndi Jóhanna, að 70 manns sem tóku þátt í átakinu á Súðavík, hafi tínt rusl alveg inn í Hestfjörð, en þangað eru yfir 50 kílómetrar. Af- raksturinn af þeim vegarkafla voru fleiri vörubílshlöss af rusli. Einnig nefndi Jóhanna að Ungmennafélag- ið í Hrunamannahreppi hafi hreins- að meðfram 100 kílómetrum af vegum. I þessu átaki ungmennahreyfing- anna var farið langleiðina með að hreinsa alla vegi landsins, og á sumum svæðum, eins og í Eyjafirði, voru allir vegir og vegaspottar hreinsaðir. Jóhanna sagðist vona að hreinsun- in yrði ekki árlegur viðburður, því þótt hreinsunarátakið hafi heppnast vel og samstarf fólksins hafi verið hið ánægjulegasta í alla staði, væri enn ánægjulegra ef ekkert rusl væri til að tína upp. LDH-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.