Tíminn - 21.06.1989, Page 9
Miðvikudagur 21. júní 1989
Tíminn 9
llllllllllllllllllll! ÚTLÖND llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllillllllllllllll
Maxini Ciorkí á ylri höf'iiiniii i
Reykjaiík. láijju iiiiinaöi art Is-
lcmlingar lierðn |Hnnan Mirlioða
ekki anjjnni altnr. |ní virt lá aO
Mavíin Cíorki sikki í íshalii) í arr
FRÉTTAYFIRLIT
JERÚSALEM - ísraelskir
öryggislögreglumenn hand-
tóku þrjá Palestínumenn sem
grunaöir eru um morðið á gyð-
inglegum landnema sem
stunginn var til bana á Vestur-
bakkanum um helgina, en sá
atburður hefur komið af stað
hörðum kröfum frá landnemum
um að ísraelar herði enn á
aðgerðum sínum gegn upp-
reisn Palestínumanna.
AMRiTSAR - öfgafullir
Sikhi lýsti því yfir opinberlega
að hann hefði komið fyrir
sprengju þeirri er sprakk á
brautastöð í Nýju Delhi fyrr í
þessum mánuoi og varð tíu
manns að bana.
ISTANBUL - Tyrkir sökuðu
Búlgara um að fara sér hægt í
viðræðum sem miði að brott-
hvarfi Tyrkja frá Búlgaríu.
Embættismenn telja að í lok
þessarar viku verði 100 þús-
und Tyrkir sem búsettir hafa
verið í Búlgaríu komnirtilTyrk-
lands og að flóttamenn verði
alit að 200 þúsund áður en yfir
lýkur.
MOSKVA - Ali Akbar Has-
hemi Rafsanjani forseti ír-
anska þingsins og að líkindum
valdamesti maðurinn ( íran
eftir dauða Khomeinis, kom í
opinbera heimsókn til Moskvu.
Rafsanjani hyggst bæta og
styrkja tengsl þessara ná-
grannaríkja í försinni, en hann
er hæst setti (raninn sem kem-
urtil Sovétrtkjannaeftirbylting-
una í (ran 1979. Það er tákn-
rænt að á sama tíma er eitt
helsta vandamál yfirvald í Sov-
étríkjunum yfirgangur og of-
beldi múslíma.
BÚDAPEST - Fjöldi sov-
éskra hermanna hlaut alvarleg
brunasár þegar eldur kom upp
I svefnskálum þeirra í Ung-
verjalandi. Ekki er Ijóst hve
margir hermenn hlutu alvarleg
brunasár en þeir voru fluttir á
þrjú sjúkrahús. Ekki er vitað
um eldsupptök, en um helgina
fór fram opinber útför Imre
Nagy fyrrum forsætisráðherra
Ungverjalands og leiðtoga
uppreisnarinnar 1956. Hann
var tekinn af l(fi tveimur árum
seinna. Er talið hugsanlegt að
kveikt hafi verið í herskálunum
af þessu tilefni, þó ekki komi
þao beintfram í fréttaskeytum.
III
llllllllll
• •
' ''-w/
**** V-. 's
-:■' .: V: <■'*,' *ÍT f
Sovéskt skemmtiferðaskip hætt komið norður í Norður-íshafi:
Mannbjörg er Maxím
Gorkí rakst á jaka
Mannbjörg varö þegar skemmtiferðaskipið Maxím Gorkí
var hætt komið í Norður-íshafi 200 km suðvestur af
Spitzbergen í gærdag eftir að hafa rekist á hafísjaka í
fyrrinótt. Sexhundruð og ellefu farþegar voru með skipinu,
flestir vestur-þýskir ellilífeyrisþegar og að auki þrjúhundruð
sjötíu og níu manna áhöfn.
Á tímabili var talið öruggt að
Maxím Gorkf myndi sökkva í ískalt
N-íshafið, en sem betur fer var
veður sæmilegt þegar slysið varð um
miðnætti að íslenskum tíma, en þó
voru sex vindstig og einnar gráðu
frost. Strax í kjölfar slyssins var
þrjúhundruð og fimmtíu farþegum
komið frá borði í björgunarbátum
og leituðu margir þeirra öryggis á
traustum ísjökum þar til norska
björgunarskipið Senja kom á staðinn
fjórum klukkustundum eftir slysið
og bjargaði fólkinu. Þurfti norska
skipið að brjótast gegnum 2,5 m
þykkan hafís til að komast að Maxím
Gorkí.
Björgunarþyrlur flugu fyrst með
þá farþega sem taldir voru þurfa
læknishjálpar með, en læknar og
hjúkrunarlið voru í snatri fluttir frá
Noregi til Spitzbergen til að hjúkra
þeim farþegum sem slíkt þurftu.
Fyrstu þrettán farþegamir lentu á
Spitzbergen níu klukkustundum eft-
ir að Maxím Gorkí rakst á hafísjak-
ann.
Eftir að farþegunum þrjúhundruð
og fimmtíu, sem yfirgefið höfðu
skemmtiferðaskipið, hafði verið
bjargað um borð í Senja vom þeir
farþegar sem enn vom um borð f
Maxím Gorkí, svo og hluti áhafnar-
innar, fluttir yfir í Senja. Var mest
öllum farangri farþeganna einnig
komið á milli skipa. En eftir erfiðar
björgunaraðgerðir tókst að koma í
veg fyrir þau örlög og var skipið
tekið í tog og siglt áleiðis til Spitz-
bergen.
Maxím Gorkí er okkur íslending-
um að góðu kunnur þar sem þetta
myndarlega skemmtiferðaskip hefur
verið einn af vorboðunum þar sem
skipið hefur komið til íslands ár eftir
ár í byrjun júnímánaðar. Skipið var
einmitt á leið frá íslandi er slysið
varð, það lét úr höfn á Akureyri 17.
júní.
Maxím Gorkí var 25 þúsund tonn
og bar áður nafnið Hamburg eftir
þeirri borg sem skipið var smíðað í
árið 1969. Sovétmenn keyptu skipið
árið 1974 og hefur það síðan verið í
skemmtiferðasiglingum víða um
heim, en þó sérstaklega í norðurhöf-
Neyðarástandslög
sett á Sri Lanka
Ríkisstjómin á Sri Lanka hefur
sett á neyðarlög til þess að halda
lögum og reglu á eyjunni og
koma almenningssamgöngum í
lag að nýju eftir að allsherjar-
verkfall rútubílstjóra lamaði sam-
göngur. Neyðarástandslögin tóku
strax gildi.
Með neyðarlögunum fær her-
inn völd til að handtaka fólk og
hneppa það í varðhald.
Ljóst er að herinn mun ekki
einungis nota vald sitt til þess að
koma almenningssamgöngum af
stað að nýju, heldur mun herinn-
einnig beita valdi sínu til að koma
í veg fyrir mótmælaaðgerðir gegn
stjómvöldum og gegn Indverj-
um, en mótmælaalda gegn herliði
Indverja á Sri Lanka hefur gengið
yfir víðs vegar um eyjunna. Er
það í kjölfar þess að Indverjar
neituðu að kalla herlið sitt heim
frá Sri Lanka fyrir ágústlok eins
og Premadasa forseti hafði farið
fram á. Pegar hafa menn verið
teknir höndum vegna mótmæla.
Kínversk stjórnvöld sjá ofsóknir í hverju horni:
Bandaríkin sökuð
um að kynda undir
byltingu stúdenta
Kínversk stjómvöld hafa sakað stjómir Bandaríkjanna, Kanada, Hong
Kong og Macao um að kynda undir uppreisn stúdenta í Kina, en
lýðræðisandóf námsmanna var kæft í blóði þegar kínverska hernum var sigað
á mótmælendur á Torgi hins himneska friðar 4. júní.
í frétt ríkisútvarpsins í Kína var vitnað í orð prófessors við háskólann í
Peking þar sem hann sagði að stjómvöld í Washington, hefðu „leikið stórt
hlutverk“ í undirbúningi fjöldafunda námsmanna sem enduðu í mestu
stjóraarkreppu sem kínverskir kommúnistar hafa lent í þau fjörutíu ár sem
þeir hafa verið við völd í Kína.
Þá var skýrt frá handtöku Liu Gang 28 ára stúdents sem var á listanum
yfir þá andófsmenn sem stjómvöld vildu helst klófesta.
Liu er sjötti andófsmaðurinn af þeim tuttugu og einum sem stjómvöld vilja
öðram fremur ná að handtaka, en myndir af þeim hafa margoft veríð birtar
í sjónvarpi og verðlaunum heitið þeim er koma upp um verustað
andófsmannanna.
Þrír fallnir
í Kazakhstan
Þrír menn hafa fallið í kyn-
þáttaátökunum f Kazakhstan þar
sem hópur ungra Kasakha réðst
á aðflutt fólk frá Kákasus í bæn-
um Novy Uzen um helgina. Tvö
herfylki á vegum innanríkisráðu-
neytisins hafa verið send til Kaz-
akhstan vegna ólgunnar til að
koma f veg fyrir að ofbeldisalda
breiðist út eins og gerðist í Úz-
bekistan á dögunum. Eru þau
undir stjóm Zakash Kamaliden-
ov forseta sovétlýðveldisins.
Frá því kynþáttaátökin brutust
út hafa fimmtíu og þrír særst til
viðbótar hinum þremur er létust.
Fimmtíu og sjö manns hafa verið
handteknir fyrir ofbeldi og fyrir
að hafa ráðist á opinberar bygg-
ingar, kveikt í bílum og brotið
rúður.
Sjöhundruð manns frá Káka-
sus hafa verið fluttir frá Novy
Uzen á meðan ólgan ríkir, flestir
konur og böm.
Aftaka í Nevada
William Paul Thompson sem
dæmdur var til dauða fyrir morð
á drykkjufélaga í búðum fyrir
atvinnulausa, var tekinn af lífi
með eitursprautu í Ríkisfangels-
inu í Nevada í gær. Er þetta
fyrsta aftakan sem fram fer í
Nevada frá því í desember árið
1985 og í annað skipti þar sem
afbrotamenn eru teknir af lífið
með eitursprautu í fylkinu.
Fjörutíu og tveir karlmenn og
ein kona bíða nú aftöku í Ríkis-
fangelsinu í Nevada. Þar á meðal
er hinn 28 ára gamli Sean Patrick
Flanagan sem taka á af lífi á
föstudaginn.