Tíminn - 21.06.1989, Qupperneq 11
10 Tíminn
Miðvikudagur 21. júní 1989
Miðvikudagur 21. júní 1989
Tíminn 11
Æfingar
í máva-
stríðum
nesheiði
við hvin
frá víg-
vélum og
andmæli
heima-
varnar-
|iðs á
íslandi
Eftir Jóhönnu Kristínu Birnir
Upplysingamiostöð varaliösins á Keflavikurflugvelli hafði i nógu að snúast í gær. Viðbúið er að enn harðni á dalnum, þegar kríur, skúmar,
mávar og herstöðvaandstæðingar hefja aðgerðir sínar á æfingavellinum.
Tfmamyndir Árni Bjarna
Samtök herstöðvaandstæðinga hafa
ekki hugsað sér að sitja aðgerðarlaus á
meðan á heræfingum Bandaríkjamanna
stendur. Félagsmenn munu fjölmenna til
Keflavíkur, ganga fjörur, kanna aðstæð-
ur og aðgerðir bandarískra hermanna
sem formaður samtakanna segir til alls
vísa. í lögbirtingarblaðinu hefur þegar
birst auglýsing þess efnis að umferð um
svæðið sé bönnuð óviðkomandi meðan
æfingarnar standa yfir og vonast aðstand-
endur auglýsingarinnar til að þeim tilmæl-
um verði hlýtt.
Um þrjú hundruð hermenn úr varaliði
Bandaríkjahers komu hingað til lands í
gær með létt vopn og farartæki, svo sem
vörubíla og fleira. Afgangur liðsins, sjö
hundruð manns í viðbót, komu í nótt.
Hermennirnir taka þátt í „Norður-
Víking“, varnaræfingu Atlantshafs-
bandalagsins sem hófst í gær. Þetta er
hluti þess liðs sem er ætlað að koma
hingað til lands á hættutímum. Það mun
æfa varnir við varnarstöðina á Keflavík-
urflugvelli og stjórnun þeirra, ásamt
liðsmönnum varnarliðsins.
Byssur og byssuleikur aukaatriði
Á meðal þátttakenda eru liðsmenn og
varaliðsmenn úr landher, flugher og flota
Bandaríkjamanna, auk landgönguliða og
strandgæslumanna. „Starfi varaliðs-
mannanna má að vissu leyti líkja við starf
björgunarsveita hér á landi. Þetta eru
bæði fyrrverandi fastahermenn og nýlið-
ar. Þeir koma saman reglulega til æfinga
hver í sínum landshluta. Þeir yrðu fluttir
hingað ef hætta væri talin á stríði, það
gefur til kynna að mönnum sé alvara og
gefur andstæðingnum færi á að hætta við
vanhugsuð áform“ sagði Friðþór Eydal
blaðafulltrúi varnarliðsins.
Æfður verður flutningur á hluta vara-
liðsins til íslands og því gert kleyft að
venjast aðstæðum hérlendis.
„Megintilgangur æfingarinnar er sá að
æfa styrkingu varna landsins. Einn liður-
inn í því er að æfa flutning á Iandher til
að verja þá staði sem þarf gegn skemmd-
arverkum. Hluti af þeim mannskap sem
hingað þyrfti að koma verður æfður í að
taka sig upp, koma sér á staðinn, koma
sér fyrir og mæta því sem að höndum ber.
Hlaup með byssur og byssuleikur er
aukaatriði. Það .verður auðvitað haft með
til að ljá æfingunni meiri raunveruleika-
blæ“ sagði Friðþór.
Æfingar af þessu tagi hafa verið haldn-
ar annað hvert ár síðan 1981. Æfingin er
haldin á vegum yfirstjómar Atlantshafs-
flota Bandaríkjanna, en með stjórnun
hennar fer yfirmaður varnarliðsins í
Keflavík, Tomas F. Hall, varaaðmíráll.
Til að byrja með munu fastir liðsmenn
varnarliðsins koma sér fyrir á varnar-
stöðvum við Keflavíkurflugvöll og síðar
munu varaliðsmenn koma til liðs við þá.
Jafnframt mun viðgerð flugbrauta æfð
ásamt brottflutningifólks, auk eldsneytis-
flutninga og skyndihjálpar.
Fulltrúar íslenskra yfirvalda hafa tekið
þátt í undirbúningi æfingarinnar og varn-
armálafulltrúar utanríkisráðuneytisins
koma til með að fylgjast með henni. Þá
mun Almannavarnarnefnd Keflavíkur-
flugvallar taka þátt í hópslysaæfingu á
morgun. „Þetta er ekki hluti af heræfing-
unni heldur er hún haldin á sama tíma af
hagkvæmnisástæðum" sagði Friðþór.
Auk þessa kemur Landhelgisgæslan við
sögu í björgunaræfingu.
Heimavarnarlið mætir til leiks
Fyrir nokkru hófst undirbúningur að
stofnun heimavarnarliðs. „Heimavarnar-
liðið er hópur fólks sem vill láta reyna á
það hvort Islendingum sé frjálst að ganga
um sitt eigið land. Það er að segja hvort
íslensk náttúruverndarlög eða bandarísk
herlög eru sterkari“ sagði Ingibjörg Har-
aldsdóttir formaður samtakanna í samtali
við Tímann.
Ætlunin er að hópurinn fari til Kefla-
víkur, kanni mörk varnarsvæðisins, gangi
með fjörum og fylgist með hvort einhver
náttúruspjöll verða af völdum heræfing-
anna. Herstöðin er ekki girt af sjávarmeg-
in heldur eru þar einungis girt einstaka
hernaðarmannvirki. „Við teljum því ekki
vera hægt að meina okkur aðgang að
stórum ógirtum svæðum þarna í kring.
Meginástæður þessa eru tvær, annars
vegar vilja menn gera bandarískum hern-
aðaryfirvöldum það ljóst að þeir geta
ekki vaðið hér um allt ísland eins og þeir
eigi það, án þess að íbúar landsins rísi til
mótmæla. Hins vegar viljum við beina
athygli almennings að þeirri stöðugu
uppbyggingu hernaðarmannvirkja sem
farið hefur fram hér á landi síðustu tíu
árin“ sagði Ingibjörg.
Heimavarnarliðið hefur skipulagt sínar
æfingar á sama tíma og heræfingarnar
munu fara fram. Þær hófust formlega í
gær en fyrsti hópur heimavarnarliðsins
mun ekki mæta til leiks fyrr en í dag.
„Þetta verður mjög svipað og skipulagið
hjá hernum. Við ætlum einnig að kanna
hversu stórt svæði verður lagt undir
æfingarnar og hversu langt þeir seilast.
Hvort þeir halda sig innan girðinganna
eða hvort þeir fara um Reykjanesið vítt
og breitt. Það hefur heyrst að 1987 hafi
hermenn verið að æfa á Sandgerðisvegin-
um og þá verið fyrir utan girðingar" sagði
Ingibjörg.
Gert er ráð fyrir að á hverjum degi
muni fara um fjörutíu til fimmtíu manna
hópur úr heimavarnarliðinu. „Ætlunin er
ekki að stefna þarna þúsund manna liði
til mótvægis við herinn heldur tiltölulega
fámennum vel skipulögðum hópum. En
að sjálfsögðu getur verið að aðsóknin
verði það mikil að fíeiri komi til með að
fara í hvert skipti“ sagði Ingibjörg.
Að mati herstöðvaandstæðinga er her-
stöðin í Keflavík ekki til þess ætluð að
verja íslendinga. „Þessar tilteknu her-
æfingar eru til dæmis ekki til að æfa
hvernig eigi að verja íslendinga, heldur
hvernig eigi að verj a hernaðarmannvirkin
fyrir skemmdarverkasveitum Rússa. Við
teljum fulla þörf á að hafa heimavarnarlið
til að verja íslendinga ef til þess kæmi auk
þess að verja almenna borgara fyrir
þessum hermönnum sem hér eru. En þeir
eru til alls vísir og við vitum í raun ekkert
hvað þeir hafa hugsað sér að gera“ sagði
Ingibjörg.
Jafnframt hefur Alþýðubandalagið til-
kynnt um sumarferð félagsins á Reykja-
nes á laugardaginn.
Heimavarnarlið handtekið?
í gær birti lögreglustjóraembættið á
Keflavíkurflugvelli auglýsingu vegna um-
ferðartakmarkana á meðan á heræfingun-
um stendur. Auglýsingin hefur þegar
birst í Lögbirtingarblaðinu og er þar
sérstök athygli vakin á að varnarsvæðin
ná allt að stórstraumsfjöruborði frá ósa-
botnum að Stafnesi. Því er hætt við að
heimavarnarliðinu verði meinuð fjöru-
ganga þar um slóðir. „Frá klukkan 01:00
þann tuttugasta júní til miðnættis 28.
júní, verður öll umferð og dvöl annarra
en þátttakenda á heræfingunum bönnuð
á varnarsvæðunum á Reykjanesi. Það
kemur í ljós hvað verður gert ef þessu
verður ekki hlýtt. Þegar auglýsingin hefur
verið birt er ljóst að herstöðvaandstæð-
ingar og aðrir óviðkomandi heræfingun-
um hafa enga heimild til þess að fara
þarna um en auðvitað vonum við að
tilmæli íslenskra lögregluyfirvalda verði
virt“ sagði Sævar Lýðsson fulltrúi lög-
reglustjórans á Keflavíkurflugvelli.
Lögreglan hefur komið upp skiltum og
viðvörunum þar sem umferð er takmörk-
uð. Samtals eru 35 lögregluþjónar í
Keflavík og munu þeir gæta að því að
tilmælunum verði hlýtt. „Við erum með
mannskapinn þar sem við teljum þurfa og
ef þess þarf munu þeir benda fólki á að
það sé komið inn á bannsvæði og fá það
til að snúa við. Við trúum ekki öðru en
því verði hlýtt, en það er ljóst að fólk sem
ekki hlýðir fyrirmælum lögreglu má alltaf
búast við handtöku, það segir sig sjálft"
sagði Sævar.
Erfitt að dyljast hér
Að sögn Friðþórs hefur byrjun æfingar-
innar farið eftir áætlun. „Allar flugvélarn-
ar komu á réttum tíma með allt sem þær
áttu að hafa innanborðs og hermennirnir
eru nú að koma sér fyrir.“
Hann sagði liðið ekki vera með neinn
sérstakan viðbúnað vegna kríunnar sem
hætt er við að komi til með að setja svip
á æfinguna. „Það sem menn veltu fyrir
sér á sínum tíma var að það gæti verið
erfitt að fara um varpstaði kríunnar
óséður. En það á jafnt við um vini sem
óvini. Allt tal um að æfingin fari fram í
stórum varpnýlendum fugla er misskiln-
ingur. Mér vitanlega hefur krían ekki
valdið vandræðum hingað til“ sagði
Friðþór.
Hann sagði varnarliðsmenn vita af
aðgerðum herstöðvaandstæðinga og
hefðu rætt um þær. „Við vitum af þessu
en lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli,
í umboði utanríkisráðuneytisins hefur
lögsögu á svæðinu og er þar af leiðandi
ábyrgur fyrir umferðartakmörkunum á
svæðinu. Hann mun sjá um að halda uppi
lögum og reglu og ég á ekki von á að um
nokkra árekstra verði að ræða milli
heimavarna- og varnarliðsins" sagði
Friðþór.