Tíminn - 21.06.1989, Side 20

Tíminn - 21.06.1989, Side 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 RÍKiSSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Halnarhúsinu v/Tryggvogölu, S 28822 O.B'LAS-r PÓSTFAX ÞRðSTIlR TÍMANS 685060 687691 VANIR MENN Listmálari á Austfjörðum, lítið þekktur sem slíkur, hefur vakið töluverða hrifningu með verkum sínum sem sýnd voru í sjónvarpsþættinum M- hátíð á Egilsstöðum. Þykjast margir sjá ýmsa tilburði meistara málaralistarinn- ar í þeim. Málverk eftir hann hafa ekki verið til sölu hingað til, en hann stefnir að uppsetningu sölusýningar. Listmálarinn heitir Björn Krist- leifsson, er 43 ára gamall, arki- tekt, búsettur á Egilsstöðum. Samhliða starfi sínu hefur hann tekið þátt í ýmsum samkeppnum og hlaut meðal annars fyrstu verð- laun í samkeppni Landsvirkjunar um veggmynd við Sigöldu árið 1981. Þessa dagana stendur yfir Menningarhátíð á vegum mennta- málaráðuneytisins á Egilsstöðum. Þar eru meðal annars nokkrar mynda Björns til sýnis. „Myndir á sýningunni eru allar málaðar með olíukrít á pappír og fyrirmyndirn- ar eru allar sóttar í landslag og mannvirki hér fyrir austan. Það má ef til vill segja að starfið skíni í gegnum myndirnar. Áður hef ég aðallega fengist við að teikna fríhendis, bæði fólk og annað, ég hef málað svolftið á striga og sömuleiðis nokkuð af vatnslita- myndurn," sagði Björn. Hann sagðist fylgjast með mál- aralist eftir föngum, en málverkas- ýningar á Egilsstöðum væru fátíð- ar. „Við að flytjast í sveitina fer maður frekar að gera hlutina sjálf- ur heldur en að skoða það sem aðrir eru að gera. Ég til dæmis hef málað og verið viðloðandi leiklist- ina, aðrir syngja í kórum og halda tónleika eða eitthvað annað,“ sagði Björn sem einnig er formað- ur íþróttafélagsins á staðnum. Málverk eftir Björn eru enn sem komið er ekki fáanleg á hinum almenna markaði. En úr því rætist vonandi fljótlega því að Björn stefnir að uppsetningu sölu- sýninga, bæði fyrir austan og í Reykjavík. „Myndirnar eru allar í einkaeign. Annað hvort minni, eða ef mér er boðið í afmæli með stuttum fyrirvara þá gef ég þær vinum mínum. Það hefurstaðið til lengi að setja upp sýningu en ég hef svo mikið að gera annað að ég Björn Kristlcifsson arkitekt og listmálari í frístundum. Hann hef- ur einnig getið sér gott orð sem arkitekt og vann 1. verðlaun í samkeppni Landsvirkjunar um veggmynd við Sigöldu. BÆK, GUODU hef ekki sinnt málaralistinni eins og ég hefði viljað. Að vísu vantar hér góða aðstöðu til sýninga." Hann var ófáanlegur til að verð- ieggja myndirnar og sagði að ef til þess kæmi myndi hann hringja í Félag íslenskra myndlistarmanna og spyrja hvernig fermetrinn væri verðlagður hjá þeim. „Arkitektar kunna ekkert annað ráð en að fletta upp í gjaldskrá. En svona án gríns jjá hef ég ákveðnar hug- myndir um verðið en ég gef þær ekki upp,“ sagði Björn. Aðspurður sagðist hann ekki hafa orðið fyrir sérstökum áhrif- um frá neinum ákveðnum lista- mönnum. „Ekki viljandi alla- vega.“ En Björn á engu að síður ýmsa uppáhaldslistamenn. „Til dæmis er það bróðir minn, Jens, en hann var með sýningu á Kjar- valsstöðum fyrir skömmu. Ég gæti líka nefnt Kjarval og Gunnlaug Scheving en það eru svo stór nöfn að ég tek mér þau ekki í munn í sömu andránni og verið er að ræða við mig um myndlist," sagði Björn. Hann sagðist ekki hafa nein Mynd af húsi sem móðir Björns rissaði upp og hann síðan málaði mynd af og gaf henni. T(mamyndir:Pje*ur áform uppi um að flytjast á mölina í bráð. „Ég lofa því ekki að búa hér til æviloka en eitthvað áfram allavega." Hann sagði stefnuna ekki vera að snúa sér að málara- listinni eingöngu. „Ég hef mitt lifibrauð af öðru og þetta verður ekki annað en frístundagaman í framtíðinni," sagði Björn. jkb Björn Kristleifsson vekur mikla athygli fyrir myndlist sína á M-hátíö á Egilsstööum: Óþekktur listamaður sýnir fína takta á M-hátíðinni Lögreglumaður bjargaði lífi ungrar stúlku í Jaðarsbakkalaug á Akranesi: Blés lífi í barnið á elleftu stundu Sjö ára stúlku var bjargað frá drukknun í Jaðarsbakkalaug á Akra- nesi skömmu eftir hádeei í gær. Fyrir snarræði Gísla Árnasonar varðstjóra í lögreglunni á ísafirði, sem staddur var ( heita pottinum, tókst að blása lífi í stúlkuna. Hún var flutt á sjúkrahúsið á Akranesi og síðdegis var líðan hennar eftir atvik- um góð, Qg um kvöldmatarleytið var stúlkan flutt á barnadeild Landspít- alans. Gísli Árnason sagðist hafa verið í einum af heitu pottunum þegar hann heyrði á krökkum í miðri djúpu lauginni að þar liggi barn á botnin- um. „Ég stóð náttúrlega upp og sá að þetta var rétt, henti mér út í laugina og náði að grípa í stúlkuna. Þegar við komum upp á yfirborðið byrja ég strax að blása í hana og svamlaði með hana þangað til ég var farinn að ná niður, óð þá að bakkan- um og bar hana inn í sundlaugarhús þar sem ég hélt áfram að blása í hana,“ sagði Gísli. Hann sagði að eftir smá tíma hafi hún farið að bera við að anda sjálf og skila vatni, og skömmu síðar hafi sjúkrabíllinn ■ komið. „Það er mjög góð tilfinning, ef henni verður fullbjargað, þá tel ég mig mjög lánsaman mann að hafa getað orðið að liði,“ sagði Gísli í samtali við Tímann skömmu eftir atburðinn. ABÓ Engin skýring hefur fundist á sýkingunni Að sögn Ólafs Oddssonar hér- aðslæknis hefur enn engin skýring fengist á sýkingu þeirri er kom upp í Grímsey. Sem kunnugt ér varð sýkingin þess valdandi að stærstur hluti eyjarskeggja hefur að undan- förnu þjáðst af útbrotum og sviða sem þeim fylgir. Ólafur hefur undanfarna daga rannsakað sýni sem tekin voru úr útbrotunum og sagði hann í samtali við Tímann að ekki væri ljóst hvort viðhlítandi skýring fengist og um mjög sérstakt tilfelli væri að ræða. Rannsóknum yrði haldið áfram og allt reynt til að komast til botns í þessu máli en slíkt tæki oft nokkurn tíma. Þeir sem sýktust eru á batavegi og útbrotin hafa hjaðnað en enn hafa sjúklingarnir af þessu töluverð óþægindi. Sýkingin kom upp í hinni nýju sundlaug Grímseyjarbúa og er hún enn lokuð vegna þessa máls. SSH

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.