Tíminn - 14.07.1989, Qupperneq 4
4 Tíminn
Föstudagur 14. júlí 1989
DEUTZ-FAHR
tromlumúgavélar
DEUTZ-FAHR tromlumúgavélum á ótrúlega hagstæðu verði.
Vinnslubreldd 3,5 m. Hafið samband við sölumenn okkar sem
allra fyrst í Ármúla 11, eða hringið ( síma 681500.
Hestaþing
Hestaþing Sleipnis og Smára veröur haldið að
Murneyri 15. og 16. júlí 1989.
Dagskrá: Laugardagur 15. júlí
Kl. 10:00: Gæðingakeppni
A flokkur Sleipnis.
B flokkur Smára.
Kl. 11:30: Eldri flokkar unglinga.
Kl. 13:00: Gæðingakeppni.
A flokkur Smára
B flokkur Sleipnis.
Kl. 14:30: Yngri flokkar unglinga.
Kl. 16:00: Kappreiðar - undanrásir.
Kl. 20:30: Kvöldvaka.
Sunnudagur 16. júlí
Kl. 11:00: Skeið - fyrri sprettur.
Kl. 12:30: Hópreið.
Mótssetning - helgistund.
Kl. 13:00: Röðun 5 efstu gæðinga
í A og B flokki.
Verðlaunaafhending.
Kl. 15:30: Úrslit kappreiða
Skeið - seinni sprettur.
Kl. 17:30: Verðlaunaafhending og
mótslit.
Sleipnir og Smári.
Sérfræðingur
Starf sérfræðings (sálfræðings, félagsráðgjafa,
sérkennara), hlutastarf, er laust til umsóknar við
Sálfræðideild skóla, Fræðsluskrifstofu Reykjavík-
urumdæmis, Austurstræti 14.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst n.k.
Umsóknir sendist til fræðslustjóra með upplýsing-
um um nám og fyrri störf.
Fræðslustjórinn í Reykjavík
t
Eiginkona mín, móðir okkar og amma
Margrét Hreinsdóttir
Hvolsvegi 7, Hvolsvelli
verður jarðsungin frá Stórólfshvolskirkju laugardaginn 15. júlí kl.
14.00.
Sigurjón Sigurjónsson,
börn og barnabörn.
Landssamband hestamanna úthlutar af fjallvegafé og biður
hestamenn að ganga vel um:
Þrjár milljónir
í reiðvegagerð
Úthlutun fjármagns að upp-
hæð þrjár milljónir króna, til
gerðar reiðvega á þessu ári er
nýlega lokið. Ferðaiög á hestum
eru flest farin á þessum tíma árs
og leiðin liggur ef til vill að
einhverju leyti um reiðvegi. En
hvernig sem því er varið telur
Landssamband hestamanna á-
stæðu til að ítreka við hesta-
ferðalanga að þeir gangi vel um
landið og sýni ávallt tillitssemi.
„Fjárupphæð til gerðar reiðvega
var lengi vel þrjú til fjögur hundruð
þúsund á ári en í fyrra fékk Lands-
samband hestamanna þrjár milljónir
til ráðstöfunar og sömu upphæð í ár.
Ég held að Vegagerðin greiði þetta
af svokölluðu fjallvegafé,“ sagði
Hjalti Pálsson framkvæmdastjóri
Landssambandsins í samtali við
Tímann.
Stjóm Landssambandsins kýs
sérstaka nefnd á hverju ári sem fer
yfir umsóknir, leggur mat á þær og
úthlutar fénu í samræmi við það.
Venjan er sú að meginhluti fjár-
magnsins fer til þess landsfjórðungs
far sem stórmót em haldin það árið.
ár var ekki brugðið út af venjunni
og fóm milljónirnar þrjár því til
Austfjarða þar sem fjórðungsmótið
fór fram.
Nefndina skipuðu tveir Austfirð-
ingar, Jón Bergsson á Ketilstöðum
og Guðmundur Jónsson á Horna-
firði undir stjóm féhirðis Lands-
sambandsins, Gunnars B. Gunnars-
sonar á Arnarstöðum.
Hestamannafélagið Freyfaxi í
Suður-Múlasýslu fékk eina milljón
króna, Hornfirðingur á Hornafirði
níu hundruð þúsund, Glófaxi á
Vopnafirði hundrað þúsund, Geisli
í Breiðdalsvík og Goði á Fáskrúðs-
firði þrjú hundmð þúsund hvort
félag, Blær á Norðfirði 250 þúsund
og Seyður á Seyðisfirði fimmtíu
þúsund krónur.
„Það er misjafnt hvernig staðið er
að gerð reiðveganna. Sum félaganna
vinna að gerð reiðvega í samvinnu
við Vegagerðina en önnur vinna
þetta sjálfstætt, þá með samþykki
Vegagerðarinnar. Það er líka mjög
misjafnt í hvað peningarnir fara.
Annað hvort em þeir notaðir til að
varða einstakar leiðir, leggja veg út
frá þorpinu eða annað“ sagði Hjalti.
Þá átti Landssambandið inni frá
síðasta ári rúmlega 765 þúsund
krónur. Fénu var skipt á milli nokk-
urra hestamannafélaga víðsvegar á
landinu.
Af gefnu tilefni og í tengslum við
ferðalög á hestum sem nær öll eru
farin á þessum tíma árs, vill Lands-
sambandið koma því á framfæri við
hestamenn að þeir sýni tillitssemi og
gangi vel um á ferðum sínum.
„Hestamenn verða að muna að loka
hliðum á leið sinni. Þeir verða að fá
leyfi til að tjalda og virða rétt þess
sem á landið. Sömuleiðis ef einhver
ætlar að nota leitarkofa eða réttir.
Hestamenn verða að hafa hugfast
hvernig ber að ganga frá áningar-
stöðum, skilja vel við þá, vernda
gróður og svo framvegis," sagði
Hjalti.
Starfsfólk og vistmenn á Kópavogshæli vekja
athygli á sumarlokun í sparnaðarskyni:
Sumarhátíð á
Kópavogshæli
Dagana 16.-22. júlí verður
sumarhátíð haldin á Kópavogshæli
og er þetta í fyrsta sinn sem slík
hátíð er haldin. Hugmyndin að
henni kom fram er ljóst var að
Vinnustofur Kópavogshælis, þar
sem meginþorri heimilisfólks sækir
vinnu og þjálfun að öðru jöfnu,
yrðu lokaðar í þrjár vikur í spam-
aðarskyni. Fmmkvæði og undir-
búningur hefur að mestu leyti verið
í höndum þeirra þroskaþjálfa sem
sjá um tómstundir á stofnuninni.
Að sögn Kristjáns Sigurmundsson-
ar, tómstundafulltrúa Kópavogs-
hælis er markmið hátíðarinnar
meðal annars það, að vekja athygli
á því að þrátt fyrir umræðu og
réttmæti þeirrar stefnu að leggja
niður stórar stofnanir, þá má aldrei
gleymast að á slíkum stofnunum
býr fólk sem þarf að hugsa um, þar
til önnur og betri úrræði bjóðast.
Á dagskrá hátíðarinnar em
skemmtiatriði, íþróttaiðkun,
keppnir og ferðalög á landi, láði og
legi. Flestir sem fram koma eða að
öðm leyti hafa lagt þessu máli lið
hafa gert það endurgjaldslaust.
Gestum utan af landi mun verða
séð fyrir svefnpokaplássi og að-
gangi að mötuneyti staðarins.
LDH-
Óeðlileg lagavemd
Blaðamannafélag fslands telur
ástæðu til að árétta að stjórn félags-
ins hefur í tveimur ályktunum mót-
mælt sérstaklega að ríkissaksóknari
höfði opinbert sakamál á hendur
einstaklingum vegna skrifa þeirra
um þriðja aðila, á grundvelli 108.
greinar hegningarlaga. En lögin eru
að mati stjórnar félagsins löngu
orðin úrelt.
Á efnisatriði ákærunnar eða skrif
Halls Magnússonar hefur stjóm BÍ
ekki lagt nokkurt mat. Hún telur
aftur á móti óeðlilegt að opinberir
starfsmenn njóti sérstakrar laga-
verndar umfram aðra þjóðfélags-
þegna. Stjórnin telur jafnframt að
nefnd lagagrein sé vísasti vegurinn
til að hefta opinbera umfjöllun um
öll gagnrýnisverð mál í íslenskri
stjórnsýslu. jkb
Einn meðlima Landssambandsins
orðaði tilmælin á þessa leið: „Hesta-
fólk á ferð um landið! Gætum lands
og laga. Gætum að gróðri og götu-
slóðum. Látum hross ekki bfta og
traðka veikan öræfagróður, tún-
garða eða skógrækt, flytjum með
okkur fóður. Notum reiðleiðir, njót-
um hrossanna og ferðarinnar. Þegar
deilt er vegum með bílaumferð gilda
umferðarlög um okkur eins og
aðra.“ jkb
Æviskrár
stúdenta
að norðan
Út er að koma annað bindi ævi-
skrár stúdenta frá Menntaskólanum
á Akureyri, en fyrsta bindi er þegar
komið, með ítarlegum æviskrám
Akureyrarstúdenta frá árinu 1927 til
1944. Æviskrár þessar eru gefnar út
af Steinholti, bókaforlagi Magnúsar
Baldurs Stefánssonar, en ritstjóri
verksins er Gunnlaugur Haraldsson.
Það vekur athygli við fljótlegt
yfirlit hvað æviskrár þessar gefa
tæmandi upplýsingar um hvem stúd-
ent frá Akureyrarskólanum. Hóp-
myndir af öllum stúdentum fyrir
hvert ár eru í bókinni, auk mynda af
hverjum þeirra með æviágripinu.
Það voru tíu ára stúdentar frá
Menntaskólanum á Akureyri af ár-
gerðinni 1973 sem ákváðu á tíu ára
stúdentsafmæli sínu að hefja þessa
myndarlegu útgáfu æviskránna. Eitt
af fyrstu verkefnum útgáfustjómar
var að ráða ritstjóra. Fyrir valinu
urðu fjórir úr hópi samstúdenta,
þeir Gunnlaugur Haraldsson, þjóð-
háttafræðingur, Hjörtur Gíslason,
blaðamaður, Óskar Einarsson, yfir-
kennari og Þorsteinn Jónsson, ætt-
fræðingur. Eftir skamman tíma ósk-
uðu þeir Hjörtur og Óskar eftir að
vera leystir frá störfum og tóku
Gunnlaugur og Þorsteinn við þeirra
hluta af verkinu. Þá varð sú breyting
á fjómm ámm síðar að Sigurður
Hjartarson, sagnfærðingur, tók við
af Þorsteini. Það kom í hlut þeirra
þriggja, Gunnlaugs, Þorsteins og
Sigurðar að taka saman ritið. Nú er
Gunnlaugur einn ritstjóri.
Fyrsta bindið er um fimm hundruð
blaðsíður ( stóm broti og hið vand-
aðasta að öllum frágangi. Eins og
fyrr segir er annað bindi þessa mikla
ritverks að koma út um þessar
mundir, en talið er að verkið verði
fimm bindi alls. Hér er um gagn-
merkt fræðirit að ræða, og verður að
segjast, að stúdentanir frá 1973 tóku
merkilega og giftudrjúga ákvörðun
fyrir skóla sinn þegar þeir ákváðu að
gefa út æviskrár „norðanmanna". í
útgáfustjórn ritsins eru Knútur Ósk-
arsson, Málfríður Þórarinsdóttir,
Björgvin Þorsteinsson, Kristján
Pálmar Arnarsson og Hulda Ólafs-
dóttir.