Tíminn - 14.07.1989, Síða 6

Tíminn - 14.07.1989, Síða 6
6 Tíminn Tíminn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og _____Framsóknarfélögin I Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGislason Aðstoðarritstjóri: OddurÓlafsson Fréttastjórar: BirgirGuðmundsson EggertSkúlason Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Frá og með 1. mars hækkar: . Mánaðaráskrift í kr. 900.-, verð í lausasölu í 80,- kr. og 100,- kr. um • helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 595.- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 11 spurningar um EB Gunnar Guðbjartsson frá Hjarðarfelli ritar grein í Tímann sl. miðvikudag, þar sem hann spyr m.a. þeirrar spurningar, hver séu viðhorf íslendinga til Evrópubandalagsins og hvernig íslenskur al- menningur fer að því að mynda sér skoðun á því, hver skuli vera tengsl íslands við þetta fjölþjóða- bandalag. Gunnar bendir á að um þetta mál hafi farið fram mjög einhæfar umræður og ýmsir virðist vilja að ísland gerist formlegur aðili að bandalaginu. Slíkar raddir heyrist einkum úr röðum stóratvinnurek- enda og verslunaraðila. Greinarhöfundur vekur athygli á því að ekkert komi fram í slíkum umræðum, hverju íslendingar þurfi að fórna af stjórnarfarslegum réttindum og sjálfstæði í ákvarð- anatöku, ef ísland gengur í bandalagið. Meginefni greinar Gunnars Guðbjartssonar er að sýna fram á nauðsyn víðtækari umræðu um Evrópubandalagið og á breiðari grundvelli en verið hefur. Hann getur þess að sú kynslóð íslendinga, sem stóð að lýðveldisstofnuninni fyrir 45 árum, eigi erfitt með að hugsa sér að þjóðin afsali sér sjálfstæði sínu fyrir baunadisk, eins og hann orðar það. Gunnar Guðbjartsson segir réttilega að ræða þurfi kvaðirnar sem fylgja inngöngunni í bandalag- ið ekki síður en hugsanlegan ávinning. Hann lætur í ljós ótta um, að ungt fólk, sem virðist sýna áhuga á inngöngu í Evrópubandalagið, viti ef til vill ekki hvaða kvaðir fylgja inngöngunni og hverjum stjórnarfarslegum réttindum þarf að fórna í því sambandi. Þess vegna vill greinarhöfundur að svarað sé ýmsum spurningum sem þetta mál snerta. Hann ber fram 11 spurningar og setur þar fremst spurningu um þau helstu atriði í Rómarsáttmálan- um, sem fela í sér afsal eða takmörkun einstakra ríkja á ákvörðunarrétti um efnahagsleg og stjórn- arfarsleg mál og hvort þessi ákvæði Rómarsáttmál- ans hafi tekið breytingum í áranna rás. Gunnar Guðbjartsson spyr um það hvaða áhrif yfirstjórn bandalagsins hafi um verðlagsmál, launamál, skattamál, bankamál og ekki síst nýt- ingu auðlinda, s.s. fiskveiðar, beislun orkulinda og námuvinnslu. Þá spyr hann þeirrar mikilvægu spurningar, hvort einstök ríki geti sagt sig úr bandalaginu. Einnig hvort einstökum ríkjum sé heimilt að gera tvíhliða viðskiptasamninga við lönd utan bandalagsins eða hvort slíkir samningar séu eingöngu á valdi heildarsamtakanna. Hann leiðir einnig hugann að því hverjar reglur gildi í bandalaginu um almannatryggingar, heilbrigðis- þjónustu og ýmis önnur félagsleg réttindamál. Þær spurningar sem Gunnar Guðbjartsson ber hér fram eru allar mikilvægar. Sú ábending hans að gera verði fulla grein fyrir kvöðum og réttir.daaf- sali sem innganga í EB hefur í för með sér, er undirstöðuatriði í umræðum um samninga É lands við Evrópubandalagið. Föstudagur 14. júlí 1989 lllllllllllllllllll GARRI llllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Einnerfjandinn Nýlega var kona hér á ferð og hafði margt að athuga við utanrík- isstefnu Bandaríkjamanna og vopnabúnað þeirra. Mál þróuðust síðan þannig, að búist er við að þessi kona komi aftur og setjist að hér á landi til frambúðar. Gaman er að slíku. Má þess þá vænta að enn bætist rödd í þann hóp sem héðan gagnrýnir Bandaríkjamenn og vopnabúnað þeirra. Þetta er þeim mun nauðsynlegra þegar Ijóst er orðið að til í landinu er varla eftir kvenmaður með því nafni nema Birna Þórðardóttir, þessi sem rakst illa inn í skúrinn á Miðnesheiði á dögunum, og datt á Austurvelli hér um árið með þeim afleiðingum að annar fótur hennar spratt í loft upp frá mjöðm og Ienti á ónefndum stað á lögregluþjóni, sem átti ekki að vera nærstaddur. Þannig gekk ósjálfráða taugakerfi Birnu til Iiðs við hollar vættir landsins í baráttunni gegn utanrík- isstefnu Bandaríkjanna og vopna- búnaði þeirra, sem efiaust hefur iíka verið að finna á viðkvæmum stað lögregluþjónsins. Konur og herbúnaður Þessar ógnarsögur rifjuðust upp við lestur greinar ungrar stúlku ■ Morgunblaðinu í gær, sem er að læra fjölmiðlun í Háskóla fslands. Ekki er vitað til að í þeim skóla sé farið að kenna fjöhniðlun, nema þar sé á ferð hinn kunni Þorbjöm Broddason, sem farinn er að kenna fjölmiðlun á laun. Mega þá „fugl- ene fara að vare sæ“, eins og þar stendur. Nema hvað þessi ungi fjölmiðlanemandi í háskólanum vitnar til Helenar Caldicott, en það var einmitt hún sem kom hér um daginn og fann hvergi vopnabúnað eða gagnrýniverða utanríkisstefnu nema hjá Bandaríkjamönnum. Það er auðheyrt að orð Helenar Caldicott hafa hrifið konur, sem hafa áhuga á herbúnaði, æskulýðs- starfsemi, mengun og fjöhniðlun. Mundi þar kominn mest allur stuðningshópur Kvennalistans og síðan þær stöku baráttukonur við utanríkisstefnu Bandaríkjanna og vopnabúnað þeirra sem Helen Caldicott lýsti svo fagurlega. Það hlýtur að vera upplífgandi fyrir baráttukonur bæði innlendar og erlendar að búa í heimi, þar sem aðeins þarf að berjast við Banda- ríkjamenn um frið og kjarnorku- vopn. Með þeim hætti verða þau mál bæði einföld og viðráðanleg, enda er ekki líklegt að Bandaríkja- menn standist öllu lengur samein- aða gagnrýni þeirra kvenna, sem af inikilli visku ræða heimsmálin full- vissar í sinn hóp um að einn sé fjandinn og kraftur hans mikill. Enginn viðsemjandi Sem betur fer mildast nú mjög viðhorf til hemaðar á milli þeirra stórvelda, sem mest og lengst hafa bitist út af vopnabúnaði. Hér er átt við Bandaríkin og Sovétríkin. Stærstan þátt í þeirrí mildi eiga hin breyttu viðhorf í Sovétríkjunum, þar sem almenningur er orðinn svo þreyttur undir ráðstjóm, að tveir fulltrúar hans frá Smolensk lýstu þvi nýverið í sænsku sjónvarpi að helsti vinningur þeirra í lífinu væri að fá að deyja. Það getur út af fyrir sig verið markmið að keppa að séu þjóðfélög þannig uppbyggð, að allur neyslueyrir er látinn fara til tækni og hemaðarappbyggingar áratugum saman. En gleðilegt er það ekki. Nú er Ijóst, að hvorki Helen Caldicott eða aðrar baráttukonur fyrir fríði í heiminum hafa aldrei heyrt á Sovétríkin minnst, eigi að taka mið af orðræðum þeirra um vopnabúnað Bandaríkjamanna. Þessi vanþekking getur orðið örð- ugur ljár ■ þúfu bæði fyrir frú Caldicott og hinar frúsluraar, eink- um ef að því kemur, sem vonandi verður, að samningar takast um stórfelldan samdrátt vopnabúnað- ar á milli Sovétríkjanna og Banda- ríkjanna. Ekki geta Bandartkja- menn samið við Helenu Caldicott eina um stigvaxandi afvopnun. Það verður við einhvern annan að semja, en af því Sovétríkin era ekki til í umræðu kvennanna, verð- ur annar dálkur samningsins að vera óundirritaður og málið því opið fyrir þá, sem vilja hefja nýjan vopnaspuna. Garri Mlllllllllllllllll VÍTT OG RRFITT llllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllilllllim^ Trúboð hámenntunar Síðbúinn pistili var birtur í Þjóð- viljanum í gær sem fréttaskýring nokkurs konar í dálki þeim sem kallaður er í brennidepli. Þar er fjallað um málefni sem verið hefur nánast tabú í allri opinni umræðu hér á landi, þótt mikið hafi verið um það skrifað og skrafað í ná- grannalöndum árum saman. í brennidepii er velt upp spurning- unni um hvort offramboð sé á menntamönnum. En allt lang- skólaliðið í menntakerfum sem annars staðar í þjóðfélaginu hefur bægt svona spumingum frá en aftur á móti rekið skipulagt trúboð um nauðsyn langtímamenntunar á bókstaflega öllum sviðum þekking- ar og fræða. Og skipulega er unnið að því að reka allt ungt fólk í langsetur tímafrekrar menntunar. Arangurinn er sá að ekki er einasta bætt við háskóladeildum og kennslugreinum innan deilda heldur er komið á stofn hverjum háskólanum af öðrum og nokkrir eru í undirbúningi og er meira að segja búið að finna mjög hentugt húsnæði fyrir einn hinna fyrirhug- uðu. Það var að vísu teiknað og byggt sem sláturhús en hentar nú ekki til þeirrar starfsemi en er sem klæðskerasaumað utanum deilda- skiptan listaháskóla þar sem nemar fá tilsögn í fremd menningar. Vandamál Offramboð á menntamönnum hefur verið vandamál í þeim ríkj- um sem við berum okkur helst saman við um árabil. Háskólar eru allir meira en fullsetnir og alls kyns takmörkunum hefur verið komið á til að draga úr aðsókn. íslenskir námsmenn vita mæta vel hve örð- ugt er að fá inngöngu í háskóla víða um Iönd, þótt það fari furðu hljótt í umtali á heimaslóðum. í sumum löndum hefur háskóla- deildum og jafnvel heilu háskólun- um verið lokað vegna þess að ekki er þörf á sérmenntuðu fólki á tilteknum sviðum framyfir það sem þegar er við störf. Atvinnuleysi meðal mennta- manna er víða mikið i Vestur-Evr- ópu og Norður-Ameríku og vinna margir við allt önnur störf en menntun þeirra hæfir. Á íslandi hafa þessi vandamál samt aldrei þótt umræðuhæf og er fólki smalað í háskólastigin eins og að stöður séu ótakmarkaðar fyrir langskólafólk og að atvinnulífið og opinber fyrirtæki taki endalaust við starfskrafti með háskólapróf. Vandamálin sem skapast hafa erlendis vegna þess hve seint var í rassinn gripið til að stemma stigu við fjöldaatvinnuleysi hámennta- fólks hafa aldrei náð augum né eyrum íslenskra menntunarpost- ula, sem aldrei skilja að það er óþarfi að beina sæmilegum náms- mönnum frá verknámi og að þjóð- inni er meiri nauðsyn á þvf að Fiskvinnsluskólinn sé fullsetinn, sem hann er ekki, en að fylla allar gáttir allra háskólanna af nemend- um sem ekkert vita hvað þeir eiga fyrir sig að Ieggja þegar prófum er náð og endurgreiðsla námsláná hefst. Bara græðgi? Höfundur pistilsins í Þjóðviljan- um gerir offramleiðslu á viðskipta- fræðingum einkum að umtalsefni. En málgagninu er kannski fremur uppsigað við viðskiptadeildina en aðrar offramleiðsludeildir Háskól- ans. Aðsóknin í deildina stafar af hægri bylgjunni sem tröllríður ungu kynslóðinni og sér þetta hægrisinnaða unga fólk gróða- möguleika í viðskiptanáminu og ætlar sér að því loknu að stofna fyrirtæki og græða peninga eða komast í vel launuð störf hjá gróðafyrirtækjum. Þetta er frétta- skýring Þjóðviljans á gróskunni og offramleiðslunni í viðskiptadeild. Hvort sem svona vangaveltur eiga við rök að styðjast eða ekki er greinilegt, að með því að telja viðskiptadeildina vandræðabarnið í offramleiðslunni er verið að kom- ast hjá að segja hreinskilnislega að alltof margir nemar eru í mörgum öðrum deildum háskólanna miðað við hvað vinnumarkaður opinbers geira og einkageira er Ifklegur að taka við af flóðbylgju af háskóla- menntuðu fólki. En framleiðslan á menntafólki er orðin slík að mikið er sótt í kennaranám og kennarastöður orðnar eftirsóknarverðar. Góð menntun er nauðsynleg og sjálfsagt er að búa vel að mennta- stofnunum þjóðarinnar og þeim sem þar starfa, hvort sem er við kennslu eða nám. En ekki skaðar þótt einhver fyrirhyggja sé viðhöfð þegar verið er að belgja mennta- kerfið út yfir öll skynsamleg eða æskileg takmörk og ungu fólki er enginn greiði gerður með því að drífa það áfram f langskólanám sem ekki nýtist, hvorki því sjálfu eða samfélaginu. Og þess ber ávallt að gæta að á íslandi verður ekki lifað nema að dugmikið efnisfólk fáist til að taka til hendi á sjó og í landi. Því þrátt fyrir allt verður að láta eitthvað í askana. OÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.