Tíminn - 14.07.1989, Side 10

Tíminn - 14.07.1989, Side 10
10 Tíminn Föstudagur 14. júlí 1989 ARNAÐ HEILLA y Sextugur: Olafur Þorsteinsson Mér finnst kynni af fólki hafa kennt manni að fyrirbærið aldur sé nær því að vera huglægt en líkamlegt ástand: Þeir sem eru ungir í anda eru yfirleitt ungir í ásýnd. Ólafur Þor- steinsson eða Óli Þorst., eins og hann er oft kallaður í hópi kunn- ingja, er dæmi um svona mann. Mér finnst maðurinn of ungur til að verjandi sé að skrifa um hann venju- lega afmælisgrein (þar sem allt er tíundað). Það verður þess vegna ekki gert hér. En ég nota þetta tilefni til rifja upp nokkrar sögulegar stiklur um starfsemi þar sem Öli Þorst. og margir traustir menn úr hans starfsstétt hafa komið við sögu. Það var í ársbyrjun 1973 sem fundum okkar Óla bar fyrst saman. Viðfangsefnið var að koma á laggim- ar námskeiðum fyrir stjórnendur vinnuvéla. Um þessi námskeið hafði verið samið í samningum Dagsbrún- ar við atvinnurekendur 1972, að mig minnir. Magnús Kjartansson, þáver- andi iðnaðarráðherra, hafði orðið við tilmælum um að ráðuneytið tæki að sér að undirbúa og sjá um fram- kvæmd námskeiðanna. Nefnd hafði verið sett á laggimar til að gera tillögur um efni og tilhögun fræðslu- nnar og var formaður hennar Árni Snævarr, þá ráðuneytisstjóri í iðnað- arráðuneytinu. Með nefndinni hafði starfað Ólafur Eiríksson, tæknifræð- llllllllllllllllllllllllll DAGBÓK vinnuvélstjóri ingur, sem síðar varð þjóðkunnur fyrir störf að orkusparnaðarmálum. Það var hann sem ótvírætt átti hugmyndina að þessu námskeiða- haldi og hann kenndi raunar vélfræð- ina fyrstu árin. - Ráðuneytið hafði óskað eftir því að ég tæki að mér að undirbúa þetta fræðslustarf og hafa umsjón með námskeiðunum, og ég sló til. Úrvinnsluefnið til þessa starfs voru hugmyndir og tillögur frá hinni stjórnskipuðu nefnd. Þar var mark- aður rammi um námsefni og lengd námskeiðsins. Frá Ólafi Eiríkssyni fékk ég aftur á móti í hendur lista yfir 12-14 menn sem rætt hafði verið um sem hugsanlega leiðbeinendur. Mitt fyrsta verk var að hafa samband við þessa menn í því skyni að fá þá til að taka að sér kennslu og leggja á ráðin um útvegun og samningu námsefnis. Ég held mig misminni ekki að það hafi verið Guðmundur J. sem benti mér á að tala fyrst við Óla Þorst.: „Þar hefurðu mann sem má treysta; afburðamaður," sagði Jakinn og dumpaði í dósirnar. Þetta voru orð að sönnu. Eftir þetta viðtal við Óla Þorst. sannfærðist ég um að nám- skeiðin gætu orðið að veruleika og sú stefna væri rétt að sækja kennara- efni til verkkennslunnar i raðir starf- andi vinnuvélstjóra. Svo var gengið á röðina: Tómas Grétar Ólason sæi um gröfurnar, Guðmundur Ólafsson og Gunnar Hákonarson tækju kran- ana o.s.frv. Of langt yrði að telja hér upp alla þá úrvalsmenn sem völdust til að kenna fræðilegar og verklegar „hliðargreinar" á námskeiðunum. Ég verð þó að gera eina undantekn- ingu og geta Gunnars Bjarnasonar, fyrrv. skólastjóra Vélskólans. Hann var einskonar „yfirkennari" á nám- skeiðunum í þeirri merkingu að hann kom til þessa starfs með lengri kennslu- og lífsreynslu en nokkur annar. Var í einu orði sagt frábær kennari og skemmtilegur með af- brigðum. Honum tókst á þeim fáu tfmum sem hann hafði til umráða að vekja þátttakendur til umhugsunar um eðlisfræði vélavinnunnar - og svo flutu með djúphugsaðar athuga- semdir um lífið og tilveruna. Aðrir kennarar settu sig ekki úr færi að hlusta á þennan læriföður. Námskeiðin fóru af stað, eins og að hafði verið stefnt, í mars 1973. Það væri efni í langa frásögn að rekja undirbúningsstarfið. Til gam- ans læt ég nægja að nefna að gerð námsefnis um vinnutækni og beit- ingu vinnuvélanna fór að nokkru leyti fram í iðnaðarráðuneytinu í Arnarhvoli eftir venjulegan vinnu- dag. Þangað komu kennaraefnin með „heimavinnu“ sína, myndir og Aldarafmæli Narfeyrarkirkju Fyrirhugað er að halda upp á aldaraf- mæli Narfeyrarkirkju sunnud. 16. júlf. Hátfðarmessa verður kirkjunni þann dag kl. 14:00 og sfðan samkoma með veiting- um f Hótelinu f Stykkishólmi. Herra Ólafur Skúlason biskup mun prédika við hátfðarmessuna. Heimsókn hans til Narfeyrar er fyrsta vitjun hans f biskupsdómi á kirkjustað á merkisafmæli. 1 samsætinu á Hótelinu f Stykkishólmi verður sagt nokkuð frá Narfeyri sem kirkjustað og flutt ávörp. Fyrrverandi sóknarbúar Narfeyrarsóknar og allir aðrir velunnarar Narfeyrarkirkju eru velkomn- ir til hátfðarinnar. Gísli H. Kolbeins sóknarprestur segir í fréttatilkynningu fyrir hönd sóknarbúa í Narfeyrarsókn: „Hittumst fagnandi að Narfeyri 16. júlí 1989 kl. 14:00.“ Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga hana nú f Kópavogi verður á morgun, laugardaginn 15. júlí kl. 10:00. Markmið göngunnar er samvera, súrefni og hreyfing. Verið með f skemmtilegum félagsskap. Nýlagað molakaffi. Púttvöllur Hana nú Minnt er á hinn nýja 18 holu púttvöll Hana nú á Rútstúni. Látið skrá ykkur í Púttklúbbinn. Sumarferð Húnvetningafélagsins Húnvetningafélagjð f Reykjavík minn- ir á hina árlegu sumarferð félagsins. Lagt af stað á laugardagsmorgun kl. 09:00 frá Húnabúð, Skeifunni 17. örfá sæti laus. Upplýsingar í síma 41150, 681941 og 671673. Leiguflug Útsýnisflug Flugskóli Viðskiptafólk athugið að oft er hagkvæmara að leigja vél í ferðina - innanlands eða til útlanda. 4-10 sæta vélar til reiðu. ff Gamla Flugturnlnum Reykjavlkurflugvelll 101 Reykjavik Slml 28122 Telex Ir lce Is 2337 Fax 91-688663 Möldursf. Kerlingarfjöll - Hveravellir Sumarferð framsóknarfélaganna í Reykjavík Hin árlega sumarferð framsóknarfélaganna í Reykjavík verður farin laugardaginn 12. ágúst nk. Lagt verður af stað frá B.S.I. kl. 8:00. Leiðsögumenn verða f öllum bílum. Nánar auglýst síðar. Framsóknarfélögin f Reykjavlk. Umboðsmaður - Akureyri Tíminn óskar eftir að ráða umboðsmann fyrir blaðið á Akureyri. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma 91- 686300. Tíminn. Heyblásari með rörum og dreifistút til sölu. Upplýsingar í síma 91-46956 á kvöldin. drög að kennsluleiðbeiningum. - Vélaumboðin voru afar hjálpleg með að panta litskyggnur og kennslubækiinga erlendis frá og sumir kennaranna tóku raunar myndir sjálfir á starfsvettvangi sínum. - Með sýningarvél og mynd- varpa að vopni „prufukeyrðu" menn kennsluefnið hver fyrir annan, klipptu og skeyttu, þar til úr urðu nýtiieg kennsluhandrit. - Þessi „kennaraskóli" í Arnarhvoli náði alla vega tilgangi sínum þótt skamm- lífur væri. Varla þarf að taka fram að á námskeiðunum voru jarðýtumar aðalkennslugrein Óla Þorst. Þar var hann sannarlega á „heimaslóðum" og árangur kennslunnar eftir því. Á námskeiðunum varð til „teoría“ sem er eitthvað á þessa leið: „Ekkert er Afinælisbamið Þorbjörg Grímsdóttir ásamt bömum sinum: Stefáni, Guðrúnu og Aðalbimi. Ennfremur er Aðalbjöm Kjartansson á myndinni (með ungbam á handlegg), en hann er bamabam Þor- bjargar. Nokkur af langömmu- og langa- langömmubömunum era með á þessari mynd, en afkomendur hjónanna Þor- bjargar og Aðalbjöms em nú 86 talsins. Myndin er tekin í afinælisveisiunni, sem haldin var að Hótel Sögu. 100 ára afmæli Þorbjargar Grímsdóttur frá Litla-Seli Laugardaginn 8. júlí varð Þorbjörg Grímsdóttir 100 ára. Hún er elsti innfæddi Reykvíkingurinn, fædd að Litla-Seli, þar sem nú heitir Vesturgata 59. Þorbjörg og maður hennar, Aðalbjörn Stefánsson prentari, bjuggu að Skóla- vörðustíg 24A. Þar fæddust öll 8 böm þeirra. Þrjú eru enn á lífi: Aðalbjöm Aðalbjömsson, Guðrún Aðalbjömsdótt- ir og Stefán Aðalbjömsson. Eiginmaður Þorbjargar, Aðalbjörn Stefánsson, andaðist 1938. Seinni maður hennar var Þorsteinn Jónsson sjómaður. Hann lést 1958. Dagsferðir Útivistar 15. og 16. júlí Laugard. 15. júií kl. 08:00 - Hekla. Ekið að Skjólkvíum og gengið á fjallið að norðaustan. 7-8 klst. ganga (verð 1700 kr.) Sunnud. 16. júlí Id. 13:00 - Tóarstígur. Létt ganga um nær óþekkta gönguleið f Afstapahrauni. Leiðin liggur um 7 gróð- AU PAIR-stúlkur til Ameríku: Lögleg leiðtil Bandarfkjanna Vlð óskum eftir fólkl, sem I hlutastarfl tækl aft sór aft hafa vlfttftl vlft umsækj- endur um starf. Þetta óformlega starf, sem hægt er aft vlnna helma, er kjörlft fyrlr þá sem hafa reynslu af aft taka vlfttöl og áhuga á mennlngarlegum samsklpt- um fólks. Sfml er nauftsynlegur vlft starfift. Þelr sem hafa áhuga á starfinu hafi vinsamlega samband vlft Dorothy Sturt, Manager, 37 Queen's Gate, London SW7 5HR. Tel.: London 581 2730. svo einfalt eða sjálfsagt í starfi hvers manns að ekki sé þörf að minnast á það.“ Þessi alþýðlega kenning er afrakstur þeirrar reynslu að bilanir eða tafir megi oft rekja til hluta sem menn gera ráð fyrir að ekki geti bilað eða farið úrskeiðis. Óli tók gjaman dæmi af ýtumanni sem er að basla við að losa jarðfastan stein en ekkert gengur: „Vitið þið strákar, ef þið lendið í svona skuluð þið vera vissir um að það er eitthvað sem heldur steininum hinum megin; þið þurfið að beita tönninni fyrst á þá fyrirstöðu." Flestir vinnuvélstjór- anna sem lögðu grunninn að nám- skeiðunum héldu hópinn þau 10-12 ár sem ég var viðriðinn starfsemina. (Árið 1985 var Iðntæknistofnun ís- lands falin umsjá námskeiðanna og þar em þau nú í góðum höndum). Ólafur kenndi hinsvegar óslitið á námskeiðunum þar til á síðasta hausti. Hann á góðu heilli enn sæti í verkefnisráði námskeiðanna. Af því að þetta átti ekki að verða hefðbundin afmælisgrein hef ég ekki minnst á öll þau störf önnur sem athafnamaðurinn Ólafur Þorsteins- son hefur tekið sér fyrir hendur til þessa. Ég hef hér eftir það sem einn úr „hópnum“ sagði við mig um daginn: „Hann er alls staðar í fremstu víglínu." Ég óska afmælis- barninu til hamingju með áfangann að baki og það sem framundan er. Það er stjómvalda að þakka framlag hans til þess fræðslustarfs sem hér hefur verið drepið á. En persónulega þakka ég samstarf, leiðsögn og skemmtilegheit á hraðfleygum ámm. Gunnar Guttormsson urvinjar. Mannvistarleifar, jarðfall, gróskumikill gróður. Seltóarstígur - Brunavegur. (verð 800 kr.) Brottför í ferðimar frá BSÍ, bensín- sölu. Dagsferð í Þórsmörk sunnud. 16. júlí og farið í Þórsmörk miðvikud. 19. júlí, bæði dagsferð og fyrir sumardvöl. Miðvikud. 19. júli Id.20:00: Strompabell- ar, kvöldferð. Helgarferðir í Þórsmörk og Veiðivötn, útiiegumannahreysið 21.-23. júlí. Helgarferðir 14.-16. júb' 1. Þórsmörk - Goðaland Gist í Básum. Skipulagðar gönguferðir við allra hæfi. 2. Skógar - Fimmvörðuháls - Básar. Gist í Básum. Gengið frá Skógum yfir Fimmvörðuháls í Bása á iaugardag. Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni grófinni 1, simar 14606 og 23732. Útivist, ferðafélag Dagsferðir Ferðafélagsins Sunnud. 16. júli kl. 08:00—Hveravellir. Dagsferð um Kjöl að Hveravöllum (Verð 2000 kr.) Kl. 08:00 Þórsmörk — dagsferð og sumarleyfisfarþegar. Ferðafélagið veitir sumarleyfisgestum í Þórsmörk afslátt. Kynnið ykkur tilboðsverð F.l. fyrir þá sem gista fleiri nætur en tvær. Kl. 10:00 Háifoss - Stöng - Þjórsárdal- ur Gengið að Háafossi, komið við í Gjánni og bærinn á Stöng skoðaður. (Verð 1500 kr.) Kl. 13:00 ÍCambabrún - Núpafjall. Ekið að Hurðarási, gengið eftir brún Nópafjalls, komið niður hjá Hjalla í ölfusi. (Verð 800 kr.) Miðvikud. 19. júli kl. 08:00 Þórsmörk - dagsferð (Verð 2000 kr.) Kl. 20:00 Búrfelisgjá - Kaldársel. Ekið að Hjöllum, gengið um Búrfellsgjá og áfram að Kaldárseli. (Verð 600 kr.) Laugard. 22. júlí kl. 08:00 Hekla. Gangan á Heklu tekur um 8 klst. (Verð kr. 1500) Kl. 08:00 Þórsmörk - dagsferð (2000 kr.) Kl. 08:00 Hitardalur - ökuferð (2000 kr.) Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Ferðafélag íslands Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins 19. -23. júli(5 dagar): Landmannalaug- ar - Þórsmörk Gengið milli sæluhúsa F.I. þ.e. í Hrafntinnuskeri, við Álftavatn og á Emstrum. 20. -25. júb' Landmannalaugar - Þórs- mörk (uppselt) 21. -30. júlí (10 dagar) Nýidalur - Vonarskarð - Hamarinn - Jökulheimar - Veiðivötn. Gönguferð með viðleguút- búnað. Nokkur sæti laus. 21.-26 júlí (6 dagar) Landmannalaugar - Þórsmörk 26.-30. júlí (5 dagar) 9.-13. ág. (5 dagar) Eldgjá - Strútslaug - Álftavatn. Gönguferð með viðleguútbúnað. Upplýs- ingar og farmiðasala á skrifstofu F.l. Öldugötu 3. Ferðafélag íslands

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.