Tíminn - 14.07.1989, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
RÍKlSsÍciP NÚTÍMA FLUTNINGAR Halnarhúsinu v/Tryggvagölu, S 28822 L "Cw0- w V SAMVINNUBANKI ÍSLANDS Hf. o»'B|LAsr0 ÞRDSTIIR 685060 VANIR MENN PÓSTFAX TÍMANS 687691
Tíminn
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ1989
Menn huga að skemmdum í affalisskúrnum sem eldurinn kom upp í
Tímamynd: HIA - Akureyri
Eldur í sútunarverksmiðju Sambandsins á Akureyri:
Verksmiðjuhúsið
fylltist af
Eldur kom upp í affallsskúr sem stendur áfastur við
sútunarverksmiðju Sambandsins á Akureyri snemma í gærm-
orgun. Ekki er búið að meta skemmdirnar. Talsverður eldur
var í skúrnum þegar slökkvilið kom á vettvang, en fljótlega
tókst að ráða niðurlögum hans. Verksmiðjuhúsið sjálft, sem
er um 2000 fermetrar fylltist af reyk á skömmum tíma, en
skemmdist ekki að öðru leyti. Starfsemi er í húsinu allan
sólarhringinn, en allur mannskapurinn komst út og sakaði
engan.
Það var klukkan sex í gærmorgun
sem eldviðvörunarkerfi hússins fór í
gang og gerði það bæði starfsmönn-
um og slökkviliði viðvart. „Austan
við verksmiðjuhúsið er skúr þar sem
affallið af skinnunum, þegar þau eru
slípuð, safnast fyrir í,“ sagði Tómas
Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri á
Akureyri í samtali við Tímann.
Hann sagði að þegar þeir komu á
staðinn hafi logað töluverður eldur
og mikil hætta á að eldurinn gæti
teygt sig í glugga verksmiðjubygg-
ingarinnar fyrir ofan skúrinn og
reyk
brotnuðu þeir en eldurinn náði ekki
að komast inn. Lögð var áhersla á
að verja bygginguna á meðan eldur-
inn var slökktur, sem tók skamma
stund. Verksmiðjuhúsið fylltist hins
vegar af reyk, þar sem reykurinn átti
greiða leið eftir loftræstilögnum,
þegar slökkt hafði verið á vélunum.
Ekki var búið að meta tjónið af
völdum eldsins síðdegis í gær, né
hvort eitthvað af gærum hafi
skemmst vegna reyks.
Búist var við að starfsemi hæfist í
húsinu að nýju síðdegis í gær.
Eldsupptök eru ókunn, en jafnvel
er talið að neisti hafi hlaupið frá
sjálfbrýningarútbúnaði á þeim vél-
um sem slípa skinnin. -ABÓ
Vonast til aö sáttir náist í þessari lotu viöræöna
Flugleiöa og flugfreyja:
LEITA LEIÐA TIL AÐ
KOMA FARÞEGUNUM ÚT
Vonir standa til að kjaradeila
Flugleiða og flugfreyja hjá félaginu
leysist í þessari lotu samningavið-
ræðna. Ríkissáttasemjari boðaði til
sáttafundar sem hófst klukkan tíu í
gærmorgun og stóð enn þegar Tím-
inn hafði síðast spurnir af. Ef samn-
ingar nást ekki munu Flugleiðir ef til
-vill leigja flugvél og áhöfn að utan til
að koma um tveimur þúsundum
íslendinga út.
„Þegar ég fór af fundinum var
verið að ræða launaliðina og menn
gera sér vonir um að ef samningar
nást verði það í þessari lotu,“ sagði
Einar Sigurðsson blaðafulltrúi Flug-
leiða í samtali við Tímann.
Ef deilan leysist ekki munu Flug-
leiðir leita einhverra leiða til að
koma farþegum sínum á áfanga-
staði, þarsem flugfreyjur hafaboðað
verkfall næstkomandi þriðjudag og
miðvikudag. „Við erum með um tvö
þúsund farþega bókaða þessa tvo
daga og stefnum að því að koma
þeim á áfangastaði á réttum tíma,
eða því sem næst, með einhverjum
ráðum. Við erum að skoða hugsan-
legar leiðir núna en þær gætu verið
að fá farþegana bókaða hjá öðrum
flugfélögum eða að leigja inn vélar
með áhöfnum. Við gerum ekki ráð
fyrir að geta fengið áhafnir ein-
göngu. Kostnaðurinn hefur ekki ver-
ið athugaður ennþá og ákvarðanir
verða ekki teknar fyrr en útséð
verður um að samningar náist í
þessari lotu,“ sagði Einar.
Hann sagði flugfreyjum hafa verið
boðin kjör til jafns við aðra flugliða.
„Það er nokkuð yfir því sem almennt
hefur verið á markaðnum en kröfur
þeirra hafa á móti verið metnar á
rúmlega 32%,“ sagði Einar.
Flugfreyjur segjast með kröfum
sínum vera að sækja þær hækkanir
sem þær hafi orðið af í fyrra en síðast
var samið við þær árið 1987. „Það
sem við erum að meta eru launin
eins og þau standa og hækkanir sem
.farið er fram á, miðað við annað sem
er að gerast í þjóðfélaginu. Síðast
þegar samið var við flugfreyjur náðu
þær heldur betri samningum en
aðrir,“ sagði Einar. jltb
Ríkisskattanefnd neitar að gefa framkvæmdastjóra
Hagvirkis upp úrskurð sem hann síðar fréttir utan úr bæ:
Skulda 108
milljón kr.
í söluskatt
Hagvirkismenn reyndu árang-
urslaust að afla sér vitneskju hjá
ríkisskattanefnd varðandi úrskurð
nefndarinnar viðvíkjandi kröfu ríkis-
ins um greiðslu á söluskatti, en
úrskurðurinn var kveðinn upp
snemma í gærdag. Ríkisskattanefnd-
in brá fyrir sig þagnarskyldu þegar
falast var eftir upplýsingum en fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins frétti
utan úr bæ að fyrirtækinu væri ætlað
að greiða 108 milljónir.
Urskurðurinn var póstlagður,
bæði til Hagvirkis og ríkisskattstjóra
þannig að vitneskju um efni hans er
í fyrsta lagi að vænta síðar í dag. „Ég
er nú hálf hlessa yfir þessu öllu
saman. Mér var sagt af því að
úrskurðurinn hefði verið kveðinn
upp og hann hefði verið póstlagður.
Ég hringdi í ríkisskattanefndina sem
staðfesti að þetta væri rétt. Ég
spurði hvort ég gæti ekki fengið afrit
en þeir töldu öll tormerki á því. Ég
þrasaði smá stund við þá þangað til
viðmælandi minn, maður að nafni
Alexander sagði mér að ég gæti
komið niður eftir og það væri opið
til fjögur," sagði Aðalsteinn Hall-
grímsson framkvæmdastjóri Hag-
virkis í samtali við Tímann.
Hann fór á staðinn og bað um
afritið. Þá sagðist Alexander aldrei
hafa lofað neinu afriti og spurði
Aðalstein hvort það væri ekki rétt.
Aðalsteinn sagði það vera og Alex-
ander svaraði því þá til að hann fengi
ekkert afrit, ríkisskattanefnd gæfi
úrskurðinn venjulega aðeins út í
tvíriti og ekki væri um neina sérstaka
meðhöndlun að ræða þegar Hagvirki
ætti í hlut.
„Ég spurði líka hvort hann gæti
sagt mér hvernig úrskurðurinn hefði
fallið en hann sagðist engum segja
það. Ég heyrði samt sem áður úti í
bæ að fyrirtækinu væri gert að greiða
liðlega 108 milljónir króna. Það
verður fróðlegt að sjá hvort úr-
skurðurinn lekur til annarra þó okk-
ur sé neitað um hann,“ sagði Aðal-
steinn.
Meint skuld með dráttarvöxtum
og viðurlögum nam 153,5 milljónum
þannig að ekki er vitað hvað hefur
verið fellt niður. „Ef okkur verður
gert að greiða þessa upphæð munum
við reyna að leita tímabundinna
greiðslusamninga. Eignir fyrirtækis-
ins eru metnar á þrjú til níu hundruð
milljónir þannig að fyrirtækið verður
ekki gjaldþrota en þetta kemur
óneitanlega til með að þrengja hag
okkar verulega.
Okkur finnst mjög skrítið ef þeir
ætla að ganga svona hart að Hag-
virki, í ljósi afgreiðslu í samskonar
máli hjá fyrirtækinu Suðurverki, sem
fékk niðurfellingu allra dráttarvaxta
og viðurlaga og stofninn á skuldabréf
til fimm ára, með samningum við
fjármálaráðuneytið," sagði Jóhann
G. Bergþórsson forstjóri Hagvirkis í
samtali við Tímann.
Hann sagði ljóst að ef áðurnefnd-
ur úrskurður, upp á 108 milljónir, er
réttur verður málinu skotið til
bæjarþings og síðar jafnvel til hæsta-
réttar. „Við teljum okkur ekki
skulda neitt,“ sagði Jóhann og vitn-
aði annars vegar til undanþágu-
ákvæða í söluskattslögum og hins
vegar til laga sem sérstaklega taka til
virkjanaframkvæmda og segja þær
undanþegnar ýmsum gjöldum, með-
al annars söluskatti.
Úrskurður liggur einnig fyrir í
málum hinna tveggja fyrirtækjanna
sem fjármálaráðherra fór fram á að
ríkisskattanefnd hraðaði afgreiðslu
á. Fyrirtækin eru Trésmiðjan Borg á
Húsavík og Trésmíðavinnustofa
Þorvaldar og Einars í Vestmanna-
eyjum. Krafa á síðarnefnda fyrirtæk-
ið var felld niður en Trésmiðjan
Borg fékk einhverja lækkun skuldar-
innar. jkb
Útlendur ræningi á Lækjartorgi:
Var gripinn við kaffi-
drykkju inni á Hressó
Eldri kona var rænd í biðskýlinu
á Lækjartorgi seinnipartinn í gær
en lögreglan fann ræningjann
stundarfjórðungi seinna inn á Kaffi
Hressó þar sem hann var byrjaður
að eyða ránsfengnum sem var um
100 þúsund krónur.
Konan var nýbúinn að leysa út
orlofspeninga og geymdi pening-
ana í plastpoka sem hún hélt á.
Ræninginn reif af henni pokann og
hljóp á brott en sem fyrr segir tók
það lögregluna ekki langan tíma
að frnna manninn eftir lýsingar frá
sjónarvottum.
Sökudólgurinn, sem er Arabi en
með franskt vegabréf, gistir nú
fangageymslur lögreglunnar en
málið er hjá Rannsóknarlögregl-
unni. SSH