Tíminn - 13.09.1989, Side 1

Tíminn - 13.09.1989, Side 1
BHHnBBBSB i ■* A Guðjón B. Ólafsson um framkomu bankaráðsmannsins Luðvíks Jósepssonar: Skýlaust brot á trúnaði Umræða um skuldastöðu Sambandsins undanfarna daga, ekki hvað sístfyrir tilstilli bankaráðsmannsins Lúðvíks Jósepsson- ar, var borin undir Guðjón B. Ólafsson forstjóra í gær. Hann lýsti undrun sinni og vanþóknun á þeim vinnubrögðum að mað- ur í slíkri ábyrgðarstöðu væri að bera á torg upplýsingar um skuldastöðu eins af við- skiptavinum bankans, sem í sjálfu sér væri skýlaust trúnaðarbrot gagnvart Samband- inu. Það bætti síðan gráu ofan á svart að upplýsingarnar væru að mestu leyti rangar og þess eðlis að þær gætu hugsanlega skemmmt fyrir viðskiptavild fyrirtækisins bæði á íslandi og erlendis. • Blaðsíða 5 Guöjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins lýsir vanþóknum á vinnubrögöum Lúövíks Jósepssonar. Bankaráðsmaður brýtur gegn lögum um Hrökklast Lúðvík úr bankaráðinu? Lúðvík Jósepsson, bankaráösmaöur ( Landsbanka Alvarleg umræða á sér nú stað í bankaheiminum og víðar vegna síendurtekinna ummæla Lúðvíks Jósepssonar bankaráðsmanns í Landsbankanum á opinberum vettvangi um skuldastöðu Sl'S almennt, bæði gagnvart Lands- banka og erlendum bönkum. Þykir flestum einsýnt að bankaráðs- maðurinn hafi lítilsvirt skyldur bankaráðsmanns um bankaleynd auk þess sem fullyrðingar hans um skuldastöðu Sambandsins eru rangar. Þegar leitað var eftir við- brögðum viðeigandi aðila við því hvort Lúðvík hafi gerst brotlegur við lög fengust varfærnisleg svör, enda málið svo alvarlegt að viður- lög gætu varðað brottrekstri, sekt- um eða varðhaldi, ef brot er staðfest. Tíminn hefur engu að síður uppiýsingar um að jafnvel er búist við að nú í vikunni komi fram krafa innan bankakerfisins um að Lúðvík víki úr bankaráðinu. • Blaðsíða 5 1

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.