Tíminn - 13.09.1989, Blaðsíða 14

Tíminn - 13.09.1989, Blaðsíða 14
 14 Tíminn,; HIIIIIHHIIIIIIIIIHIili I'ITI QND lllllllllllllllllllllllllllillllllEllllilllililllllllllllliaillllllllllllllllllllllllllÍÍÍ FRÉTTAYFIRLIT Miövikudagur 13. september 1989 Öfgastefnur sækja í sig veðrið: PRAG - Austur-þýski lög- fræðingurinn Wolfgang Vogel sinnir nú þeim sérkennilega starfa að ganga á milli sendi- ráða Vestur-Þýskalands í hin- um ýmsu höfuðborgum Aust- ur-Evrópu og telja þaulsætna landa sína á að hverfa heim. í gær tókst honum að fá 250 manns, er vermt hafa bekki í sendiráði Vestur-Þjóðverja í Prag síðan í apríl, til að létta heimsókninni og fara heim. Fólkinu var heitio opinberri að- stoð við útvegun vegabréfsárit- ana vestur yfir. Um 170 Austur- Þjóðverjar létu þó ekki skipast við fagurgala Vogels og sitja áfram sem fastast. GENF - Ráðamenn hugleiða nú að taka fyrir að nýju umsókn Kínverja um aðild að GATT- sáttmálanum um viðskipti og tollaívilnanir. 96 þjóðireru aðil- ar að sáttmálanum og hugðust Kínverjar bætast í þann höp, en umsókn þeirra var lögð til hliðar eftir júní-blóðbaðið á Torgi hins himneska friðar. Kína var meðal stofnþjóðanna 1948 en kommúnistastjórnin hætti aðild er hún komst til valda. Nú eru breyttir tímar og sóttu þeir um að nýju fyrir þremur árum. NÝJA-DELI - Mikið jaml, japl oa fuður reis í Indlandi nýverið er syni Rajivs Gandhi, forsætisráðherra landsins, var veitt skólavist í einum fremsta háskóla landsins. Hinn 17 ára gamli Rahul Gandhi fékk að- eins 6,1 á inntökuprófinu, en aðrir þurftu að ná 8,0. Pilturinn þótti hins vegar meistaraskytta með riffli og varð hittni hans honum til bjargar. Telst slíkt og þvílíkt til íþróttaafreka, þar í landi, og því réttlætanlegt að leyfa drengnum að „skjóta sig inn í skólann." DOVER - Díana, spúsa Karls Bretaprins, var fengin til að tendra í hátíðlegri brennu í gær. Til eldsneytis voru notuð fjögur tonn af maríjúanadufti er tollgæslan breska hefur ver- ið að sanka að sér gegnum tíðina. VARSJÁ - Pólska þingið lagði i gær blesun sína yfir hina nýju stjórn Mazowieckis. Forsætisráðherrann fékk að- svif á meðan hann flutti stefnu- ræðu sína og er ofþreytu kennt um. Stjórn Steingríms er bein- línis fámenn miðað við þá pólsku: Ellefu ráðherrar eru úr röðum Samstöðu, fjórir úr röð- um kommúnista, einn er óháð- ur en sjö teljast til Bænda- flokksins og Lýðræðisflokks- ins. Kommunistar hafa fögur orð uppi um stuðning og holl- ustu við hina nýju stjórn. BONN - Vestur-þýskum yfir- völdum til mikillar hrellingar skrönglast nú hundruð Wart- burg- og Trabant-farkosta inn á „átóbanana", þvert í blóra við mengunarlöggjöf þarlenda sem er í strangara lagi. Yfirvöld hyggjast þó sjá í gegnum fing- ur við apparöt þessi, enda eigendurnir austur-þýskir flóttamenn er ekki hafa fjár- hagslegt bolmagn til að kaupa Benz og BMW fyrsta kastið. Vandamálið verður hvort eð er ekki langvarandi, því vara- hlutalager fyrir bílaflota aust- anmanna mun vera af skorn- um skammti vestan tjalds - nema þá kannski á íslandi. Uppstokkun fyrir stafni í norskum stjórnmálum Verkamannaflokkur Gro Harlem Brundtland, forsætisráð- herra Noregs, er haldið hefur um stjórnartaumana í norskum stjórnmálum síðastliðin þrjú ár, tapaði verulegu fylgi í þingkosningunum á mánudag. Flokkurinn, er áður hafði 77 þingsæti af 157, fékk nú 63 sæti af 165 og neyðist til að bera meir í víurnar við Vinstri sósíalistaflokkinn, eigi stjórn hennar að halda velli. Verkamannaflokkurinn hefur ekki hlotið verri útreið í kosningum síðan 1930. Eru úrslitin túlkuð sem höfnun kjósenda á hinum hefð- bundnu valkostum norskra stjórn- mála, því helstu andstæðingar stjórnarinnar, miðju- og hægriflokk- arnir, fóru einnig hrakfarir. Hugsan- legt er talið að þessi öfl, ersamanlagt hafa 84 sæti á þinginu, leggist á eitt um að fella minnihlutastjórn Verka- mannaflokksins en öllu er óvissara hvort samvinnan endist þeini í stjórnarsæng. Öfgarnar til hægri og vinstri fara út úr kosningum þessum með blakt- andi fánum. Framfaraflokkur Carls Hagen hlýtur að teljast hafa hreppt vinninginn, ásamt með Sósíalska vinstriflokknum. Hinn fyrrnefndi hafði fyrir tvö þingsæti en hlaut nú 22, en hinn síðarnefndi bætti hag sinn úr 6 þingsætum í 17. Hagen er nú formaður þriðja stærsta flokks Noregs og hefur lýst því yfir að hann hyggist greiða atkvæði með van- trauststillögu á stjórn Brundtland er þing kemur saman í næsta mánuði. Ekki er þó ljóst hvoru megin vallar stuðningur Framfaraflokksins muni liggja er yfir lýkur, því miðju- og hægriflokkarnir, er taldir eru líkleg- astir til myndunar nýrrar stjórnar, hafa leitt Carl Hagen og flokk hans hjá sér, sökum öfgafullrar stefnu flokksins. Framfaraflokkurinn vill skera niður hið rándýra velferðar- kerfi, stemma stigu við innflytjend- um, lækka skatta og selja sem mest af ríkisfyrirtækjum. Sósíalski vinstri- flokkurinn er algerlega á öndverðum meiði; vill aukna velferð, aukin ríkisútgjöld og herta stefnu í um- hverfismálum. Þá hefur flokkurinn úrsögn úr NATO á stefnuskránni og vill halda Noregi utan við EBE í lengstu lög. Búist er við þreifingum á næstunni milli hægri manna, Kristilega þjóð- er talið að Jan Syse, forsætisráðherr- arflokksins og Miðflokksins um aefni hægri manna, leiði viðræðurn- hugsanlegastjórnarmyndun. Líklegt ar. „Traustir vinir og bandamenn,“ segja Rússar. Útþrá austur-þýskra borgara: Rússneski björninn hefur upp raust sína Fremur lítið hefur farið fyrir áliti Sovétmanna á þró- un mála við ungversku landa- mærin. Tass-fréttastofan sovéska birti þó á mánudag harðorða frétt í garð vestur- þýskra fjölmiðla er frétta- stofan sagði blása út umfjöll un um málið og hvetja aust- ur-þýska borgara til ólög legra aðgerða. indreka austantjalds til bæna og sagði þá hundsa ákvæði alþjóðarétt- ar með því að gefa út vestur-þýsk vegabréf til handa borgurum annars ríkis. Einnig varaði sovéska frétta- stofan við því að brotthlaup tugþús- unda Austur-Þjóðverja yrði nýtt sem vatn á myllu krafa um sameiningu þýsku ríkjanna. I gær sagði talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, Gennady Gerasimov, að með því að greiða fólki umferð um vestur-Iandamæri sín hefðu ungversk stjórnvöld stigið „afar óvenjulegt skref" og kvað ráðamenn f Moskvu hafa miklar áhyggjurafástandimála. Gerasimov forðaðist þó að bera ungversk stjórn- völd beinum sökum og sagði ástand- ið ekki snerta Sovétmenn beint. Hann vísaði þó í fyrrgreind ummæli Tass, þar sem segir meðal annars: „Austur-Þýskaland er órjúfanlegur hluti Varsjár-sáttmálans og jafn- framt traustur vinur okkar og banda- maður. Það skyldu allir þeir gera sér grein fyrir er vega vilja að fullveldi þess og sjálfstæði.“ Einnig tók Tass vestur-þýska er- Heimiliserjur hjá Sabena: AFKASTAVERKFALL RASKAR ÁJETLUN Belgíska flugfélagið Sabena neyddist til að fella niður flest flug sín í gær, vegna áframhaldandi aðgerða þeirra 1200 flugfreyja og þjóna er hjá félaginu vinna. Flug- liðar krefjast sérstakra uppbóta á eftirlaun og samræmingar á kaup- töxtum, þannig að sömu laun séu greidd fyrir sömu vinnu. í stappi hefur staðið milli aðila síðan 17. ágúst og hafa mismunandi uppá- tæki starfsfólksins fært áætlun fé- lagsins úr skorðum þann tíma. Carlos Van Rafelghem, forstjóri flugfélagsins, kvaðst í gær ekki tilbúinn að hækka síðasta boð sitt til starfsfólksins en flugliðar hafa hafnað því. Sabena íhugar nú að skerða launagreiðslur til þeirra starfsmanna er ekki haldi sig á mottunni. EBE: Ótti Banda- ríkjamanna með öllu ástæðulaus Talsmaður Efnahagsbandalags Evrópu sagði í gær, að áhyggjur Bandaríkjamanna vegna eflingar innbyrðis viðskipta í aðildarlöndum EBE væri með öllu tilhæfulausar. „Við sjáum enga ástæðu til að biðjast afsökunar á kerfi okkar,“ sagði tals- maður bandalagsins er hann var spurður álits á ummælum Cörlu Hills, viðskiptafulltrúa Bandaríkja- stjórnar í fyrradag. Hills lét þau orð falla, að 1992 yrði bandarískum fyrirtækjum bolað frá hinum sameig- inlega markaði, nema því aðeins að þau settu upp dótturfyrirtæki í Evr- ópu. EBE-talsmenn telja að hertar reglur, er mæla svo fyrir að skýrt skuli kveðið á um framleiðsluland ljósritunartækja, kunni að hafa orð- ið bandarískum fyrirtækjum tilefni til að halda að upp væru runnir tímar innflutningshafta og verndartak- markana í Evrópu. Reglur þessar hefðu hins vegar verið settar til að sporna við undirboðum og hindra japanska RICOH-fyrirtækið í að komast hjá innflutningsgjöldum með því að selja ríkjum bandalags- ins vörur er settar hefðu verið saman í Bandaríkjunum. Utanríkisráðherra Breta, John Mayor, sagði í gær að þjóð sinni væri áfram um að sýna heilindi í samstarf- inu við önnur lönd EBE og því væru Bretar reiðubúnir að taka frum- kvæðið að efnahagssamruna land- anna 1992. Jafnframt kvað utanríkis- ráðherrann óhugsandi að rjúfa nein tengsl við Bandaríkjamenn. Hann kvað þær skoðanir fráleitar, að bandalagið væri að byggja hafta- múra um viðskiptasvæði sitt og kvað markaðinn áfram mundu verða op- inn öðrum viðskiptaþjóðum. Mayor sagðist þeirrar skoðunar að verndar- tollar væru ætíð til skaða, innan Evrópu sem utan.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.