Tíminn - 16.09.1989, Qupperneq 3
helgin
13
Prestshjónin, Björn og Helga, sátu i Viðey, þegar séra Jón kom auga á ungmeyna með hið „hreina og
þægilega yfirbragð".
Vart höfðu þau felit þetta mál,
; þegar inn kemur bóndinn á Rauða-
bergi. Hafði hann beðið J>ess, að
prestur vaknaði, og var erindið að
bera honum bréf frá sr. Markúsi, þar
sem hann skýrir svo frá, að Kristín
„hreint afsegi" að taka sr. Jóni. Hins
vegar lætur sr. Markús þess getið, að
önnur systir sín, Margrét að nafni,
sé á austurleið með sér, og vilji hún
fyrir sín orð fara til hans. Biður hann !
prest að skrifa sér hið bráðasta, ef !
hann vilji gera sér Margréti að góðu.
Þetta mátti óneitanlega teljast vel
boðið, en þar sem hér var um það að
ræða að gera kaup að óséðu, var sr.
Jóni samt nokkur vandi á höndum.
Ræddi hann málið ýtarlega við dótt-
ur sína, og „í því ráðslagi verður sú
ályktun, að samviskufriður og ró-
samt geð sé fyrir öllu“ og án þess
muni hann ei aftur ná sínum „trufl-
uðu sönsum". Skrifar hann síðan sr.
Markúsi, tengdasyni sínum, bréf um
hæl, þar sem hann tjáir honum, að
sér bráðliggi á stúlkunni, eins og allir
viti, en þó vilji hann ekki fá hana, ef
henni sjálfri sé það þvert um geð. Er
ekki að orðlengja, að hún reyndist
fús til ferðarinnar, og „hagaði guðs
forsjón því svo til, að sr. Jón leiddi
hana inn í sín hús hinn 17. júlí, á
sömu stund og réttu ári seinna en
„Setbergsráðið" hrakti hann frá sér
huggunarsnauðan og kvenmanns-
lausan.
Það má með sanni segja, að þetta
yrði hinn mesti hamingjudagur fyrir
sr. Jón, enda kveður hann svo sjálfur
að orði, „að lífið hefði þá af sér
pressast, ef guð hefði ekki lagt sér
þessa stúlku til allrar uppþenkjan-
legrar aðhjúkrunar". Þóttust þau og
bæði sjá í hendi sér, að forsjónin
hefði ætlað þeim eina og sömu
hjónasæng, og stóð brúðkaup þeirra
hinn 30. sept. um haustið. Bar það
upp á hinn sama dag og sr. Jón hafði
gengið að eiga fyrri konu sína.
„Þannig leikur guð við mannanna
börn og gerir marga hluti betur og
yfirgnæfanlegar en nokkur kann um
að biðja.“
Sr. Jón segir sjálfur svo frá, að
hann hafi á þessu æviskeiði verið
kominn á fremsta hlunn með að
efast um guðs miskunnsemi, en við
giftinguna hafi hann aftur öðlast
fullkomna hugarhvíld, ásamt sætum
og rólegum svefni, „hvar við burt-
drifust allir vondir þankar, freisting-
ar og innbyrlingar1'. Hann gat því
aftur gengið glaðvær að hverju verki
og fékk nú tvöfalda löngun „til að
lofa guð og dýrka“. Er ekki ofmælt,
að sú hafi verið höfuðiðja sr. Jóns
þau ár, sem hann átti enn ólifað.
Hér má taka það fram, að hin
unga prestskona, frú Margrét Sig-
urðardóttir, var að sínu leyti viðbúin
hlutskipti sínu, enda verður ekki
annars vart en að hún hafi tekið því
með hamingjusömu jafnaðargeði.
Hafði hana fimm árum áður dreymt,
að til hennar kæmi maður, er segði
við hana: „Þú átt að fara til sr. Jóns!“
Þóttist hún í svefninum inna mann-
inn eftir, hvar sá sr. Jón væri, en
|hann svaraði: „Hann er fyrir aust-
lan.“ Sagði Margrét ýmsum draum
sinn, og urðu bæði hún og aðrir til
að leggja trúnað á hann. Þannig er
það „reynt og prófað", segir sr. Jón,
„að það stendur ei í mannsins frívilja
að giftast eða giftast ei eða að eiga
þá, sem hann vill, og ekki hina, er
hann vill ekki ... Hlutföllum verður
varpað, en þau falla sem drottinn
vill. Svo var og um þessar systur. Ég
hafði fullan hug á að fá þá fyrri mér
til aðstoðar og hafði þar í fylgi með
mér eina þá bestu menn. Mér og
öllum sýndist það hið besta ráða-
neyti, en þar fyrir hafði ég mesta
kostnað og mæðu. En þessi síðari
kom til mín án allrar mæðu og
fyrirhafnar og var mér þó í allmörgu
hentugri en hin.“ Með svo dásamleg-
um hætti hafði guð staðið við fyrir-
heit það, sem hann hafði gefið
honum veturinn áður, en þá þótti sr.
Jóni sem við sig væri mælt:
Ekki þessa, heldur hina
til huggunar skal eg gefa þér.
Skulu þrautir þínar lina,
þegar þú henni giftur er.
Þetta var á þeim tíma, þegar
hugur hans beindist að Ingibjörgu
meðhjálparadóttur, og bjóst hann '
þá við, að vísan benti til hennar, en
nú sá hann, að almættið hafði í náð
sinni og visku ályktað öðruvísi.
„Lofaður veri guð, sem þannig enti
á mér öll fyrirheiti, viðvaranir, inn-
föll og annað, hvað hér að laut!“
Ginseng:
Næringarrík rót eða náttúrulyf?
ginsengs vaxið hröðum skrefum á
Vesturlöndum þrátt fyrir hátt vérð á
Gingseng jurtin á uppruna sinn að
rekja til Kóreu. Hún er sveipjurt af
svokallaðri umbelliflóru og er því
fjarskyldur ættingi annarra þekktra
lækningajurta á borð við rússneska
rót (síberíuginseng) og hina íslensku
ætihvönn. Fyrstu sagnir um lækn-
inga- og hressingarmátt ginsengs eru
frá Kóreu og eru taldar 5000 ára
gamlar. í elstu kínversku lyfja-
skránni Jijuzhang, sem fyrst var
gefin út 48-33 f.Kr. er ítarlega getið
um ginseng. Þar er því haldið fram
að neysla ginsengs komi fólki í
andlegt jafnvægi, dragi úr spennu,
bæti minni, skerpi sjón og örvi
hugsun. Fyrsta kínverska kennslu-
bókin í læknisfræði (Shanghan Lun),
sem kom út 200 árum síðar tekur
mjög í sama streng, þar er m.a.
ráðlagt að gefa ginseng við: streitu,
þreytu, afkastarýmun, einbeitingar-
skorti, öldrunareinkennum auk
kyndeyfðar. Þar fyrir utan var gin-
seng talið heilsufarslega styrkjandi
og hafa fyrirbyggjandi áhrif gagnvart
ýmsum sjúkdómum. Okkur Vestur-|
landabúum kann að þykja þessi'
upptalning full yfirdrifin en stað-
reyndin er sú að nýjustu vísindalegar
rannsóknir staðfesta flest það sem
Kínverjar höfðu áður haldið fram og
sýna ótrúlega nákvæmni þeirra. ,
Heimsveldisstefna
Fljótlega bámst fréttir af ginseng-
rótinni til keisarans í Kína, sem
sölsaði Kóreu undir sig. Fyrir um
1000 ámm var villt vaxandi ginsengi
nánast útrýmt. En það var þá talið
meira en þyngdar sinnar virði í gulli.
Keisarinn sló eign sinni á allt ginseng
í Kóreu og bannaði verslun með það
að viðlagðri dauðarefsingu. Keisar-
inn og nánustu hirðmenn hans not-
uðu einungis rautt eðalginseng, sem
innihélt hæst hlutfall virkra efna.
Það var unnið úr 6 ára gömlum
TÓtum, sem uxu á miðhálendi Kóreu
jí 800-1000 metra hæð. Var þeim
istofni nánast gjöreytt þegar hafin
'var sérstök ræktun á honum í svo-
jnefndum leynigörðum fyrir u.þ.b.
i800 ámm.
i
Nýlegar rannsóknir
- Gamalt vín á
nýjum belgjum
Ekki em margir áratugir síðan
ginseng fór að berast til Vesturlanda
í einhverjum mæli. En neysla þess
hefur vaxið jafnt og þétt hin síðari
ár. Vísindamenn em almennt sam-
mála um að ginseng auki aðlögunar-
hæfni manna enda eru rússneskir
geimfarar látnir taka inn ginseng í
öllum geimferðum. Prófessor I.
Breckhan frá Vladivostok lýsir auk-
inni aðlögun þannig: „Ginseng hefur
einstaka hæfileika til að verja lífkerf-
ið gegn streitu, meiðslum og sýkingu
auk þess að flýta fyrir bata.“ Dr.
Finn Sandberg prófessor í lyfjafræði
við háskólann í Uppsölum, gerði
víðtæka könnun meðal nemenda.
Tilraun þessi stóð í 33 daga og sýndi
mjög jákvæða útkomu meðal þeirra
nemenda, sem tóku inn ginseng. Dr.
Sandberg telur að engin lyf úr gervi-
efnum gætu gefið slíkan árangur án
skaðlegrahjáverkana. Dr. Sandberg
komst að þeirri niðurstöðu að gin-
seng yki almennt viðnám gegn skað-
legum efnalegum og lífrænum áhrif-
um. Prófesor Petkov við lyfjafræði-
deild læknaháskólans í Sofíu, höfuð-
borg Búlgaríu, hefur rannsakað
ginseng í 20 ár. Hann hefur sýnt að
ginseng geti komið að gagni við
sumum andlegum truflunum, þ.e.
hugsýki og þunglyndi. Petkov telur
að með neyslu ginsengs komist starf-1
semi heilans á hærrastig. Fjölmargar
tilraunir á dýrum og mönnum hafa I
sýnt að rautt ginseng frá Kóreu
jafnar blóðþrýsing og lækkar kóle-1
steról. Fjöldi kannana sýnir að gin-1
seng eykur skynjun, einbeitni og
nákvæmni. Aðrar kannanir sýna að
ginseng eykur úthald, sem talið er að
stafi af betri súrefnisnýtingu.
StoH Kóreubúa
• Eins og nærri má geta hefur neysla
hremu ginsengi. Nú er svo komið að
Vesturlandabúar neyta meira magns
af „ginsengi“ en heimsframleiðslan
er. Þetta sýna bæði neytendakann-
anir og opinberar skýrsíur. Kóreska |
ríkið hefur brugðist hart við þessari
þróun með lagasetningu, sem gildir i
þó eingöngu um rautt gingseng.
Bestu ræktunarsvæðin eru frátek-
in fyrir rautt ginseng. Kóreska ríkis-
einkasalan hefur einkaleyfi á
ræktun, vinnslu og dreifingu á rauðu
ginsengi. Lögin fela m.a. í sér að
jarðvegurinn fái að minnsta kosti 10
ár til að jafna sig að uppskerunni
lokinni, vegna þess að rótin merg-
sýgur alla næringu úr jarðveginum.
Ræturnar skulu vera a.m.k. 6 ára
þegar þær eru handtíndar. Jafnframt
ákvarða lögin Iágmarksfjarlægð milli
plantna. Notkun tilbúins áburðar
eða annárra aukaefna er stranglega
bönnuð. Vinnsla á rauðu eðal-
ginsengi er einungis heimiluð úr
bestu rótunum. Að síðustu segja
lögin í smáatriðum til um hvernig
vinnsla skuli fara fram.
Ef ginsengið hefur staðist öll próf
er gefin út ríkisábyrgð til söluaðila.
Rautt ginseng eitt allra ginsenga
inniheldur öll virk hollefni auk fjör-
efna og steinefna. Samkvæmt nýlegri
könnun, sem gerð var í Danmörku
á 13 mest seldu ginsengtegundunum
og skyldum jurtum reyndist mikill
munur á einstökum tegundum. Les-
endum til fróðleiks læt ég þessa töflu
fljóta með. Virkefni eru mæld í
milligrömmum í hverju grammi:
Síberískt ginseng hylki............ 1,7
Ekta Panx ginseng G 1000 ......... 24,2
Kóreskt Panax ginseng 1000 ....... 19,2
Action rússnesk rót .............. 14,2
Tai-ginseng ...................... 13,9
Gericomplex....................... 20,4
Ginsana G 115 ..................... 5,8
Gerimax .......................... 37,6
Panax 600 ginseng.................. 6,0
Kóreskt ginseng hylki............. 28,9
Hrein sterkt ginseng.............. 20,3
Raut kóreskt ginseng............. 70,1
Rautt kóreskt ginseng extrakt . . . 167,0
Indriði Karlsson, bóndi
Grafarkoti, V-Hún.