Tíminn - 16.09.1989, Page 10

Tíminn - 16.09.1989, Page 10
20 HELGIN Laugardagur 16. september 1989 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKA Týnda konan kom smám saman í leitirnar Fyrst fannst koffort meö búknum í en höfuðið og útlimirnir komu ekki í leitirnar fyrr en morðinginn vísaði á það. Hann sór að dauði konunnar hefði verið slys en kviðdómur trúði því varlega. kom heim, hefði Barbara verið farin og eitthvað af eigum hennar líka. - Þá taldi ég þetta bara venjulegt heimilisrifrildi og hugsaði ekki mikið um það, hafði maðurinn sagt. Tveimur dögum síðar kom svo móð- ir Barböru og spurði eftir dóttur sinni. Bóndinn ók eftir Duke Road á leiðtil smábæjarins Augusta í fimm km fjar- lægð og skammt vestur af St. Louis í Missouri. Það var 16. mars 1987. Hann talaði í lágum hljóðum við sjálfan sig og formælti borgarbúum sem notuðu vegina fyrir ruslahauga. - Hvernig skyldi þeim þykja að cg æki mykjunni minni í heimreiðar þeirra? rumdi í honum. Skyndilega steinþagnaði hann, hemlaði snögglega, og ók síðan aftur á bak þangað sem hann hafði séð eitthvað óvenjulegt í ruslinu meðfram veginum. Hann leit nánar á það og sá að það var gljáandi svart koffort, alveg nýtt að sjá og voru leðurólar spenntar um það. - Hver í ósköpunum fleygir svona löguðu hér? spurði bóndinn sjálfan sig um leið og hann steig út úr bílnum til að athuga þennan eigulega hlut nánar. Koffortið var svo þungt að bónd- inn ályktaði að eitthvað væri í því. Hann átti í nokkrum erfiðleikum með ólarnar en loks tókst honum að leysa þær og lyfta lokinu. - Hjálpi mér allir heilagir, hrópaði bóndinn, saup hveljur nokkrum sinnum, en snerist svo á hæli, stökk upp í bílinn og setti nýtt hraðamet á leiðinni að skrifstofu lögreglustjóra St. Charles-umdæmis. Það óð ósköpin öll á honum þegar hann skýrði fyrir fulltrúanum hvern- ig hann hafði komið auga á koffortið og farið út til að athuga það nánar og innihald þess. - Hvað var í því? spurði fulltrúinn. - Nakin kona, svaraði bóndinn. - Að minnsta kosti hluti af henni. Það vantaði höfuðið, handlegginaogfæt- urna. Það var bara búkurinn. Bóndinn vísaði nú Uebinger lög- reglustjóra og fulltrúum hans á stað- inn og benti þeim á koffortið. Hann hafði ekki ýkt um óhugnanlegan fund sinn. í koffortinu var nákvæm- lega það sem hann hafði sagt. Meðan teknar voru myndir af koffortinu og innihaldi þess, kannaði lögreglan umhverfið sem var sannar- lega eins og ruslahaugur meðfram veginum svo langt sem augað eygði. Þetta voru einkum umbúðir af alls kyns skyndimat og gosdrykkjum. Hver var í koffortinu? Þegar ekki fundust fleiri líkams- hlutar fóru menn að velta fyrir sér hvers konar maður hefði fleygt koff- ortinu þarna og af hvaða ástæðum. - Ég held að náunginn hafi ætlast til að það fyndist, sagði Uebinger lögreglustjóri. - Annars hefði hann farið spottakorni lengra og fleygt þessu í Missouri-fljótið. Þar sem ekkert á vettvangi gaf vísbendingu um hver konan væri eða hvernig hún hafnaði þarna, var farið með koffortið á stöðina og það síðan afhent réttarlækni í St. Louis. Uebinger hringdi til morðdeildar lögreglunnar í borginni eftir aðstoð og upplýsingum. Hann varð þess vísari að verið var að rannsaka hvarf 18 ára stúlku frá Crystal City. Hún starfaði í stór- markaði og hafði seinast sést á gangi í Aðalstræti eftir vinnu á miðviku- dagskvöld. Nú var talið að hún gæti verið sú sem í koffortinu var en læknirinn útilokaði það fljótlega. Við rann- sókn kom í Ijós að konan var að minnsta kosti þrítug og hafði fætt barn á síðustu fimm árum. Hún var um það bil 163 sm og 70 kíló, dökkhærð. Engin áverkar voru á búknum og ekki var unnt á ákvarða dánarorsök. Lítið var á koffortinu sjálfu að græða. Það var illa smíðað, líklega heimatilbúið og hafði nýlega verið lakkað svart. Skömmu eftir að skýrt var frá fundinum í útvarpi, var hringt frá manni búsettum á svæðinu. Hann kvaðst hafa ekið eftir veginum á sunnudaginn og séð þá bíl ekið löturhægt einmitt þar sem koffortið fannst. Bíllinn hafði síðan snúið við og ekiö til baka. Maðurinn lýsti bílnum sem hálfgerðu hræi, dældótt- um og illa förnum skutbíl, nokkuð komnum til ára sinna. Hann hafði séð ökumanninum bregða fyrir en kvaðst ekki kannast við hann sem búseta á svæðinu. Bréf með morðjátningu Uebinger lögreglustjóri afhenti fjölmiðlum þessar upplýsingar og bað hvern þann sem kynni að kann- ast við bílinn og hafa séð hann á svæðinu að gefa sig fram við lögregl- una. Hann lagði áherslu á að bíllinn væri ekki endilega settur í samband við líkið í koffortinu og því skyldi ökumaður gefa sig fram svo hægt væri að útiloka hann. Skipulögð leit fór fram meðfram Duke Road beggja vegna en ekkert frekara fannst. Áríðandi var að finna hendur eða höfuð konunnar svo hægt yrði að bera kennsl á hana. Ekki vantaði að hringt væri frá ýmsum landshlutum og sagt frá týnd- um konum en ekkert var hægt að staðfesta að svo stöddu. Á þriðjudeginum var hringt til Uebingers lögreglustjóra frá trúar- söfnuði í Charlotte í Norður-Karól- ínu. Maðurinn sagði að venjulega væru öll bréfaskipti við yfirmenn safnaðarins trúnaðarmál en í bréfi sem nýlega barst, lét sendandi að því liggja að hann hefði framið morð og spurði hvort Guð myndi fyrirgefa sér ef hann hefði gert það óvilj andi. Undirskrift bréfsins var „Neil“ en ekki var sagt hver hafði verið myrtur, hvar eða hvenær. Bréfið var sent frá Augusta í Missouri þann 17. mars. Uebingar hafði áhuga á bréfinu þar sem það var sent sama dag og koffortið fannst. Hann bað um að það yrði sent til nákvæmrar rann- sóknar. Rithandasérfræðingur gat sagt það eitt að bréfið væri skrifað af karlmanni sem hefði verið í miklu uppnámi. Ekkert tengdi bréfið lík- inu í koffortinu nema að það var sent frá Augusta sama dag og koff- ortið fannst. Meðal þeirra sem hringdu til Ue- bingers vegna týndra kvenna var Walter Buerger í Jefferson-um- dæmi. Hann sagði að menn sínir hefðu leitað konu sem væri ámóta að hæð og þyngd og konan í koffortinu og dökkhærð líka. Sambýliskonan hvarf Buerger sagði að sjónvarpsvið- gerðamaður á staðnum hefði komið til sín og tilkynnt hvarf sambýliskonu sinnar. Hún hét Barbara Ann Roam, var 27 ára og starfaði sem gengil- beina á veitingastað í Hillsboro. Maðurinn sagði Buerger lögreglu- stjóra að hann hefði á tilfinningunni að Barbara hefði bara yfirgefið sig en vildi tilkynna hvarf hennar til að ganga úr skugga um að ekkert hefði komið fyrir hana. Maðurinn sagði að þau Barbara hefðu á föstudeginum áður farið til Gray Summit til að heimsækja móð- ur hennar. Barbara hefði reiðst þeg- ar hann vildi fara heim eftir stutta stund og þau rifust alla leiðina heim í hjólhýsið. Hann fórsíðan til vinnu á laugardagsmorgun og þegar hann - Hún var í miklu uppnámi, sagði Walter. - Hún sagði okkur að dóttir sín myndi ekki undir nokkrum kring- umstæðum skilja barnið sitt eftir og hún þóttist viss um að eitthvað hefði komið fyrir hana. Lögreglumennirnir Kemp og Speidel fengu það verkefni að at- huga málið nánar. Þeir fóru á veit- ingastaðinn þar sem Barbara starf- aði. Þar var þeim sagt að hún væri öndvegisstarfsmanneskja og allir hefðu orðið forviða þegar hún kom ekki til vinnu. Einni starfssystur hennar varð að orði: - Ég er ekki hissa þó hún færi frá þessum ónytjungi sem hún bjó með. Ég hef oft séð'hana með marbletti og margsinnis sagt henni að hún þyrfti ekki að láta fara svona með sig. Lögreglumennirnir fóru í hjól- hýsahverfið þar sem Barbara og vinur hennar höfðu búið. Aðrir íbúar sögðu að þau hefðu alltaf verið að rífast og slást og orðbragð þeirra hefði verið með ólíkindum óþverra- legt. Svo virtist sem fólk hefði verið sammála um að þessi sambúð gengi aldrei lengi og enginn orðið hissa á að Barbara hefði yfirgefið hann. Dánartíma skeikar um viku Þegar Buerger lögreglustjóri hafði lokið frásögninni um árangur manna sinna, spurði Uebinger hann hvenær þetta hefði gerst. Buerger sagði að maðurinn hefði tilkynnt hvarf Bar- böru þann 9. mars en hún hefði horfið þann sjöunda. - Þá er þetta ekki okkar mál, sagði Uebinger. - Koffortið fannst 16. mars og læknirinn sagði að konan hefði verið myrt sólarhring áður. - Afsakaðu að ég tafði þig sagði Buerger og kvaddi. - Við vorum svo vissir af því lýsingin var svo lík. Vegna lýsingarinnar á dældaða skutbílnum hringdi bensínaf- greiðslumaður í Augusta og sagði að þannig bíll hefði komið á sunnudag um hálfsex-leytið. Það var hálftíma eftir að hann sást á Duke Road. Maðurinn gat aðeins lýst öku- manninum lauslega þar sem hann hafði keypt bensínið í sjálfsala. Hann hefði verið stórvaxinn og mað- urinn var ekki viss um að geta þekkt hann aftur. - Bara að við gætum fundið bílinn, sagði Simcox lögreglufulltrúi. - Ég er alltaf að hugsa um þetta frá Buerger, sagði Uebinger. - Get- ur verið að lækni skjátlist um viku við að ákvarða dánartíma. - Það efast ég um, svaraði Simcox. - Þeir gera ekki margar skyssur. - Ég ætla samt að hringja aftur til Buergers, sagði hinn og gerði það. - Veistu hvernig bíl náunginn á sem tilkynnti hvarf sambýliskonu sinnar? - Ég skal komast að því, svaraði Buerger. - Kemp og Speidel fóru að hitta hann. Innan skamms kom Bu- erger í símann aftur og sgaði: - Þeir segja að hann sé á illa útlítandi skutbíl. - Grunaði mig ekki, varð Uebin- ger að orði. - Ertu orðinn skyggn eða hvað? vildi Buerger vita. - Af hverju spyrðu? - Heldurðu að þú getir náð honum ef við komum til að yfirheyra hann? spurði Uebinger án frekari skýringa. - Það er ekkert vandamál, hann vinnur hérna á staðnum. Hvenær komið þið? - Eftir klukkutíma. Bréfið falsað Þegar Uebinger og Simcox komu á staðinn beið maðurinn þeirra á skrifstofu Buergers. Simcox kom beint að efninu og spurði hann hvort hann hefði verið í Augusta sunnu- daginn áður. - Ég var það, svaraði maðurinn strax. - Hvert var erindi þitt? var hann spurður. Maðurinn útskýrði að hann hefði farið til House Springs að heimsækja fyrrum vin Barböru, Neil Moore sem bjó þar hjá foreldrum sínum. - Þegar Barbara fór frá mér, hélt ég kannski að hún hefði farið aftur til hans, svaraði maðurinn. - Ég frétti að þið hefðuð fundið Iík af konu í kassa og fór að hugsa margt. Kannski kom hún hingað og þeim lenti saman með þeim afleiðingum að hann drap hana og bútaði hana niður. Uebinger sneri sér nú að Buerger lögreglustjóra og sagði honum frá bréfinu til safnaðarins í Karólínu sem undirritað var „Neil“.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.