Tíminn - 16.09.1989, Qupperneq 11

Tíminn - 16.09.1989, Qupperneq 11
Laugardagur 16. september 1989 HELGIN W 21 WÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKA Barbara Ann Roam hvarf frá heimili sambýlismanns síns. Kom fyrrum elskhugi hennar vid söguna? - Kannski okkur takist að leysa þetta þrátt fyrir allt, sagði hann um leið og þeir Simcox fóru. í>eir óku beina leið til House Springs og höfðu 'þar uppi á Neil Moore. Hann viðurkenndi fúslega að hafa átt vingott við Barböru Roam áður en hún flutti til nýs vinar síns í Hillsboro en að hann hefði sjálfur ekki séð hana í nokkra mán- uði. Aðspurður um bréfið kom hann gjörsamlega af fjöllum og vissi auð- sjáanlega ekkert um það. - Það er handskrifað, sagði Simcox. - Við getum fengið rithand- arsérfræðing til að skera úr um hvort þú hefur skrifað það. - Ykkur er það velkomið, sagði Moore. - Ég veit ekki um hvað málið snýst en ef einhver myrti Barböru, var það ekki ég. Rithandasérfræðingurinn var snöggur að skera úr um að Moore hefði ekki getað skrifað bréfið. - Fjárinn sjálfur, varð Uebinger að orði. - Ég sem var svo viss um að við værum að leysa þetta. Uebinger varð hugsi. - Mér fannst alltaf skrýtið að líkinu var fleygt þar sem næsta víst var að það fyndist. Gæti verið að Hillsboro-náunginn hefði gert það og síðan skrifað bréfið til að koma sökinni á Moore? - Hann viðurkenndi að hafa verið hérna daginn áður en líkið fannst, sagði Simcox. - Hins vegar hvarf konan viku áður en koffortið fannst og læknirinn staðhæfir að konan í því hafi ekki verið látin lengur en í sólarhring áður. - Ég kann ekki skýringu á því, sagði Uebinger. - Ég held samt að við ættum að ræða aftur við náung- ann. Eftir að hafa hringt aftur til Buer- gers fóru Uebinger og Simcox aftur til Hillsboro. Þar biðu þeirra lög- reglustjórinn og hinn 32 ára Ralph Cecil Feltrop en svo hét maðurinn sem tilkynnti hvarf Barböru. Honum var lesinn réttur hans og tjáð að hann væri grunaður um að hafa myrt Barböru. Hann kvaðst fús til að svara öllum þeim spurningum sem lagðar yrðu fyrir sig. - Þá skulum við byrja á að segja þér að bréfið til safnaðarins í Char- lotte var ekki skrifað af Neil Moore, tilkynnti Simcox. - Þú viðurkenndir að hafa verið í Augusta þegar koff- ortinu með líkinu í var fleygt þar. Þú heimsóttir heldur ekki Moore eins og þú sagðir okkur. - Við getum borið saman rithönd þína og bréfið, bætti Uebinger við. - Ef þú ert í alvöru að leita fyrirgefn- ingar, ættirðu að byrja á að segja sannleikann. Þegar Feltrop hikaði, sagði Simcox: -Líkið í koffortinu var af Barböru, við getum sannað það núna og að líkindum finnast heima hjá þér sannanir um að þú myrtir hana og hjóst síðan höfuð og útlimi af líkinu. Viltu ekki segja okkur hvað gerðist? Vildi ekki vekja barnið í framburði sínum viðurkenndi Feltorp að búkurinn í svarta koffort- inu væri af Barböru Roam. Eftir að þau komu frá móður hennar á föstu- deginum hefðu þau haldið áfram að rífast heiftarlega. Þegar hann fór að hátta hafi Barbara komið æðandi að honum með hníf og hótað að drepa hann. - Ég reyndi að ná hnífnum af henni, staðhæfði Feltorp. - Hún skarst á háls og ég sver að það var slys. Hann kvaðst hafa orðið viti sínu fjær af skelfingu þegar hann gerði sér ljóst að Barbara var látin og að enginn myndi trúa því að dauði henni væri slys. Hann sagðist hafa reynt að troða líkinu í koffortið en það reynst of stórt. Þá tók hann til bragðs að sækja öxi og höggva höfuðið og fæturna af. Það setti hann í ruslapoka en hugsaði svo með sér- að ef líkið fyndist gæti það þekkst á höndunum, svo hann hjó handleggina af líka. Meðan á þessu gekk svaf dóttir Barböru í hjólhýsinu. Feltorp ætlaði að losa sig við líkið en óttaðist að vekja barnið svo hann greip til þess ráðst að setja líkhlutana í frystikist- una. Þar voru þeir á meðan Feltorp fór með barnið til frænku sinnar. Hann sagði henni að Barbara hefði yfirgefið þau og hann hefði ekki hugmynd um hvar hún væri. Það var ekki fyrr en móðir Bar- böru kom að spyrja um hana að Feltorp ákvað að losa sig við líkið úr frystinum. Hann óttaðist að einhver kynni að koma og leita. Þá datt honum í hug að ef hann fleygði því í grennd við heimili fyrrum vinar Barböru, Neils Moore, gæti grunur faliið á Moore. Þess vegna skrifaði hann bréfið til safnaðarins í Char- lotte og undirritaði með nafni Neils. Eftir að Feltorp fleygði koffortinu við Duke Road fór hann með pok- ann með höfðinu og útlimunum og losaði sig við hann í tjörn skammt frá heimili Moores. Frystingin tafði rotnun Feltorp vísaði lögreglunni á tjörn- ina og benti á staðinn þar sem hann hafði fleygt pokanum. Mikið rétt. í pokanum voru höfuð og útlimir Barböru. Þegar farið var yfir upplýsingarnar seinna, sagði Uebinger. - Það var frystingin sem ruglaði lækninn í ríminu. Hún tafði fyrir eðlilegri rotnun. Ralp Cecil Feltorp kom fyrir rétt í Hillsboro og mánudaginn 27. júní var hann sekur fundinn um morð að yfirlögðu ráði. Það tók kviðdóm aðeins 14 mínútur að komast að niðurstöðu um það en fjórar klukku- stundir að krefjast dauðadóms. Samkvæmt lögum áfrýjast dauð- adómur sjálfkrafa til hæstaréttar en hver sem niðurstaðan verður er næsta víst að Feltorp verður ekki frjáls maður um langt árabil. IIIIIIIIIIIIIHlililll LÖGREGLUMANNSÞANKAR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllM Samskipti og afskipti Lögreglustarfið er þess eðlis að samskipti við fólk eru þungamiðj- an. Samskiptin eru af margvísleg- um toga og mismunandi eðlis. Ýmist er að fólk leitar sjálfviljugt til lögreglu um úrlausn einhverra mála, eða að Iögreglan hefúr sjálf frumkvæði samskipta. Þeir sem leita til lögreglunnar, gera það af ólíkum orsökum; allt frá því að það festir fingur í flöskustút, upp í miklu mikilvægari málefni. Eðlilega verða þessi samskipti ÖU misjafnlega ánægjuleg fyrir báða aðUa og má skipta þeim gróft í jákvæð og neikvæð. Jákvæð samskipti ■■■ Nokkuð drjúgur hluti starfans fer í margháttaða aðstoð við borg- arann. Aðstoðin getur spannað ótrúlegt svið. Oft er það svo að þegar í nauðirnar rekur og fólki verður ráðafátt, verður lögreglan þrautalendingin. Þá er hringt á lögreglustöðina og borið upp er- indið. Lögreglan leysir úr málinu eða vísar því til þeirra sem það stendur nær. Því ekki eru þetta allt erindi sem varða lögregluna sem fólk ber upp. En reynt er eftir megni að greiða götu manna og skUja við þá ánægða. Gamla starfsheiti lögreglu- mannsins er „lögregluþjónn“. Heitið er mjög „gegnsætt" og vísar til þess að sá sem það ber, fer með framkvæmdavald og þjónar gild- andi lögum og reglum. Þeir eru æði margir sem kjósa að leggja kol- rangan skilning í hugtakið. Þegar lögregla hefur afskipti af slíkum, heyrast glósur eins og þær að „lögregluþjónar" séu eða a.m.k. eigi að vera „þjónar fólksins" o.s.frv. Þjónkunin á þá einatt að felast í því. að veita föðurlega ámininngu og klappa þeim á koll- inn sem hafa gerst á einhvem hátt brotlegir við gildandi rétt, fremur en að beita sektum eða öðrum úrræðum. Það er ekki hlutverk lögreglu að darka um bæinn og rétta páskaegg að brotamönnum með áminningu að innihaldi í máls- háttar stað. En þá fyrst kastar tólfunum þegar fólk hringir í þessa sína þjóna eða æðir í veg fyrir þá á götum úti og ætlast til að þeir aki því á milli bæjarenda og/eða skutli bílunum þess spottakom á grund- velli þess að það sjálft er sauðölv- að. Það bregður jafnvel við að lögreglumenn em á erfiðum vett- vangi að fást við viðkvæm mál, að þessi fyrirbæri koma, rífa upp hurðimar á lögreglubílunum, pikka í axlir lögreglumannanna og sífra um að fá sér ekið dálítinn spöl. Það jaðrar við að þetta sé skoplegt. Víst reynir lögreglan að liðsinna þeim sem em hjálpar þurfandi en eins og sést á þessum dæmum er stundum gengið of langt. ■■■ og neikvæð Lögreglan er misjafnlega vinsæl manna á meðal og em ýmsar ástæður fyrir því. Sériega er hún þymir í augum afbrotamanna. En ekki aðeins í þeirra augum. Sumir þeirra sem lögreglan hefur afskipti af fyrir jafnvel minniháttar yfir- sjónir, fyllast þótta og þykkju og hafa hom í síðu lögregíunnar æ síðan. Vinsælt er að leita höggstað- ar á stéttinni allri hvenær sem þess er kostur. Illa þroskuðum einstakl- ingum gleymist nefnilega oft að leita orsaka vandræða sinna á sjálf- um sér - að líta í eigin barm. Þá verður lögreglan kjörinn blóra- böggull og sem slíkur, efst á baugi í umfjöllun fullorðinna í bamaaf- mælum og 1 saumaklúbbum. Sumir em dragfúlir og ókurteisir þegar þeir era stöðvaðir fyrir minniháttar umferðarlagabrot sem þeir em ber- ir að að hafa framið vísvitandi. Hinu skal ekki neitað að af og til verður mönnum á í starfi sínu og ömgglega er heldur engin stétt manna hrein af gölluðum eintök- um. En varast skal að hafa ímugust á heilli stétt hundraða manna í kjölfar stuttra viðskipta sem em þolandanum ókær en sem hann hefur með framferði sínu kallað yfir sig. Menn fara oftast í einhvers kon- ar vamarstöðu við afskipti lög- reglu. Sumir verða slegnir felmtri og em bljúgir en ýmsir aðrir álíta sókn bestu vömina. Þeir síðamefn- du tala ýmist eða hrópa um að lögreglan hafi engan rétt til að gera það sem hún er að gera og/eða að hún sé að gera mistök. Stundum ráðast menn að lögreglunni til að auka orðum sínum áherslu. Það er rangt. Almenna reglan er *sú að lögreglumenn þekkja mjög vel rétt sinn og skyldur sem réttarheimildir boða og vinna samkvæmt því. Menn hafa ekki ákvörðunarvald um það sjálfir hvemig lögreglan meðhöndlar þeirra mál á vettvangi. Með jákvæðri framkomu og sam- vinnu leysast flest mál farsællega. Sumir sem ella hefðu getað endað sín mál með greiðslu smávægilegr- ar sektar fyrir framið brot, hafa kosið að ljúka þeim með kæmr á bakinu fyrir árás á lögreglumenn og kröfur um bætur vegna tjóns á fatnaði eða jafnvel líkamstjóns. Afskipti ímyndaðu þér að þú sért verk- fræðingur við mælingastörf úti und- ir bemm himni. Þú ert að vinna starf sem þú hefur sérstaka menntun til að gegna og býrð að þjálfun, reynslu og hæfni. Þú kappkostar að vinna starf þitt af samviskusemi og eftár bestu getu. Eða að þú sért jarðfræðingur í feltvinnu, verka- maður í uppskipun eða hvaðeina. ímyndaðu þér til viðbótár að þú hafir vart stundlegan frið fyrir afskiptasömu fólki, oft dmkknu, illu viðskiptis og æstu. Þú sætir jafnvel skömmum og árásum á meðan á vinnunni þinni stendur. f framantöldum starfsgreinum áttu slíkt tæplega á hættu. Þetta hendir þó iðulega í lögreglustarfinu. Sér- staklega getur ástandið orðið erfitt þar sem múgur fólks er. Lögreglu- menn em auðkenndir í klæðaburði og með einkennum og em eins og endurskinsmerki meðal fólks. Það gerist iðulega þar sem lögreglu- menn em að störfum, sérlega þar sem framkvæmd er handtaka, að það þyrpist að fólk til að segja sína meiningu um aðferðir og framkvæmd. Ég hef tvennt að segja því fólki. Annars vegar skyldi enginn skipta sér af því sem ekki varðar hann. Hins vegar ætti fólk ekki að leggja dóm á og tala um það sem það hefur ekki þekkingu á. Stundum segir fólk „abbababb- tveir á móti einum“ þar sem tveir lögreglumenn hjálpast að við að yfirbuga handtekinn mann. Rétt eins og það væri sérstakur dreng- skapur að annar stæði hjá svo leikurinn yrði jafnari. Eins fá lög- reglumenn að heyra spumingar eins og þá hvem fjandann sá hand- tekni hafi gert þeim, þeir skuli bara láta hann í friði. Raunin er sú að ekki er allt sem sýnist. Þó handtökuaðferðir sýnist þjösnalegar þá em þær það yfirleitt ekki í reynd. Þær em æfðar með það að augnamiði að vinna bug á mótþróa sem fljótast og sem ömgg- ast, án meiðsla. Og í öllum tilfell- um em forsendur fyrir handtökum. Það skiptir ekki máli hvort áhorf- andi veit forsenduna, hún er alltaf til staðar. Sumir áhorfendur ganga lengra en bara að tjá sig í töluðu máli. Sumir hrækja á lögreglumenn, berja þá og sparka í þá. Þeir sömu ávinna sér handtöku og þunga refsingu. Þeir hafa hlotið losaralegt uppeldi. Það verður manni aftur tilefni til umþenkinga um almenn- an skort á aga í þessu samfélagi. En hér er ekki pláss fyrir þær pælingar. Júlíus Ó. Einarsson.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.