Tíminn - 16.09.1989, Side 12

Tíminn - 16.09.1989, Side 12
22 HELGIN Laugardagur 16. september 1989 60 ára svindl af hjúpað Árið 1929 birtust í tímaritinu The London lllustrated nokkrar Ijósmyndir sem teknar höfðu verið í loftbar- dögum fyrri heimsstyrjaldar. Myndirnar eru að flestu leyti einstæðar: þær eru einu myndirnar sem til eru af þessum loftorrustum, raunverulegur þátttakandi í þeim tók myndirnar í hita bardagans, og þær eru furðulega skýrar miðað við aðstæður. Myndirnar hafði tekið breskur orrustuflugmaður og áhugamaður um Ijósmyndun: hann festi myndavélina á flugvélarvæng- inn og bjó svo um að þegar hann skaut fyrsta skotinu í hverri ferð, smellti myndavélin af. (Á þessum tíma voru glerplötur notaðar og aðeins hægt að taka eina mynd í einu). Myndirnar sýndu því í rauninni útsýni Ijósmyndarans í þann mund er hann skaut fyrsta skoti hverrar loftorrustu. Áður en lauk komu fram um 50 myndir af þessu tagi og hafa atriði úr þeim gengið aftur í kvikmyndum eins og „The Great Waldo Pepper“ og fjölda annarra. Eigandi myndanna reyndist vera ekkja ljósmyndarans, frú Gladys Cockburn-Lange, sem nú var gift aftur í Bandaríkjunum. Hún neit- aði jafnan að skýra frá nafni fyrra manns síns, sem farist hafði undir lok stríðsins. Báðir stríðsaðilar bönnuðu stranglega ljósmyndun úr herflugvélum sínum, en ekkjan skýrði svo frá að myndirnar hefðu verið teknar með vitund yfirmanns flugvélasveitarinnar, sem væri ennþá í hernum, og að hún vildi ekki valda honum óþægindum. Vegna deilna, sem spunnust út af sanngildi myndanna, reyndi Scot- land Yard árangurslaust að grafast fyrir um nafn ljósmyndarans og gekk svo langt að flugmála- ráðherra Breta gaf hinum óþekkta yfirmanni ljósmyndarans synda- kvittun vegna óhlýðni í starfi, þannig að frúin gæti skýrt frá nafni ljósmyndarans. En allt kom fyrir ekki; hin dularfulla frú Cockburn- Lange lét sig aldrei og fór á endan- um með leyndarmálið í gröfina. Þrátt fyrir harðar deilur um ljósmyndirnar, voru þeir þó miklu fleiri sem trúðu því að þær væru ófalsaðar. Aðrir bentu á, að til þess að geta tekið svo margar bardagamyndimar hefði flugmað- urinn þurft að fljúga miklu fleiri árásarferðir en raunar var mögu- legt; ennfremur var svo að sjá, sem hann hefði breska flugvél í sigtinu á nokkrum myndanna - væri nefni- lega að skjóta á eigin félaga. En þrátt fyrir efasemdir sumra, a.m.k. í upphafi, hafa myndimar mótað hugmyndir manna um loftorrustur fyrra stríðsins. Núna fyrst, 60 árum eftir að Cockburn-Lange myndirnar birt- ust fyrst, er kominn botn í málið. Þar var að verki flugsagnfræðingur- inn Peter M. Grosz, þá styrkþegi á Smithsonian-stofnuninni í Wash- ington, sem lýsti niðurstöðum „leynilögreglurannsóknar" sinnar í tímaritinu WWl Aero (Tímariti áhuga- og fræðimanna um fyrra stríðs flugvélar, 1984 og ’85). Fyrir tilviljun komst Grosz yfir kvittun fyrir sölu á Cockburn-Lange mynd- um í Bandaríkjunum, sem Gladys nokkur Archer hafði undirritað. Með aðstoð rithandarsérfræðings og ritvélasérfræðings hjá Leyni- þjónustunni (CIA) fékk hann staðfest, að Gladys Archer og Gladys Cockburn-Lange vom ein og sama konan - undirskriftin var hin sama og reikningarnir vélritað- ir á sömu ritvél. Gladys Cockburn-Lange var til- búningur. Gladys Archer hafði hins vegar verið gift kanadískum ævintýramanni að nafni Wesley Archer, sem gekk í breska flugher- inn undir lok fyrra stríðsins en of seint til að taka þátt í nokkrum Ioftbardögum. í Evrópu kynntist hann konuefni sínu, Gladys, sem var hjúkrunarkona á hersjúkra- húsi. Archer var margt til lista lagt, m.a. var hann prýðilegur módel- smiður og Ijósmyndari og fékkst á árunum milli styrjaldanna mikið við módel- og leiktjaldasmíði fyrir kvikmyndir, fyrst í Evrópu en síðar í Bandaríkjunum. Peter Grosz tókst að sýna fram á það, að enda þótt líkönin á myndunum væm vel gerð, voru þau ekki gallalaus, m.a. fann hann að „rifin" í vængjum einnar vélar voru einu offá! Myndirnar hefur Wesley Archer gert í fjáraflaskyni og telur Peter Grosz saman í greininni umtals- verðar tekjur þeirra hjóna af til- tækinu gegnum tíðina. Aðferð Archers var sú, að hann smíðaði líkan af hinum ýmsu gerðum orr- ustuvéla fyrra stríðs og ljósmynd- aði þau hvert í sínu lagi frá ýmsum sjónarhornum hangandi á þræði. Síðan bjó hann til „senur“ með því að leggja ljósmyndaplöturnar hverja yfir aðra og framkalla þann- ig nýja mynd. Með því að endur- taka þetta nokkrum sinnum fékkst sú náttúrlega áferð sem vænta máttl af mynd sem tekin var við þær erfiðu aðstæður sem lýst var að ofan. Meðfylgjandi eru tvær Cock- burn-Lange myndir, sem Peter M. Grosz lánaði góðfúslega. Sig. St.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.