Tíminn - 04.10.1989, Page 16

Tíminn - 04.10.1989, Page 16
RÍKISSKIP NUTIMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Tryggvagötu. S 28822 ÁTTHAGAFÉLÖG, FYRIRTÆKI OG SAMVINNUBANKINN j BYGGÐUM LANDSINS 28. landsfundur Sjálfstæðisflokksins settur á morgun: Olík viðhorf sett í salt? Óútkljáð mál munu væntanlega setja svip sinn á 28. landsfund Sjálfstæðisflokksins, sem settur verður í Laug- ardalshöllinni á morgun. Þar ber hæst grundvallar skoðanaágreining á milli formanns og varaformanns flokksins, Þorsteins Pálssonar og Friðriks Sophussonar, varðandi sölu veiðileyfa. Um landbúnaðar- og byggðamál eru einnig skiptar skoðanir innan flokksins, þó að umræða þar að lútandi hafi ekki komist mikið upp á yfirborðið. þeim sem ríkir milli Friðriks Soph- Landsfundurinn mun verða ussonar og Porsteins Pálssonar í settur kl: 17:30 á morgun og er sjávarútvegsmálum, hafi verið gert ráð fyrir að honum Ijúki síðdegis næstkomandi sunnudag. Ekki náðist í Þorstein Pálsson formann flokksins í gær, né heldur varaformann, eða formann þing- flokks Sjálfsstæðisflokksins, Ólaf G. Einarsson, til að bera undir þá hver væntanlega yrðu megin mál þingsins. Ljóst er að þó þingflokk- urinn og aðrar valdastofnanir inn- an Sjálfstæðisflokksins hafa lagt talsverða vinnu í málefnalegan undirbúning fyrir landsfundinn eru menn langt frá því að vera sammála í mörgum grundvallar málum. Tíminn hefur ekki haft spurnir af því hvort skoðanaágreiningi rutt úr vegi. Þar er um mjög ólík viðhorf að ræða. Friðrik er fylgj- andi því að þeir sem nytja þá auðlynd sem hafið er borgi eitt- hvað fyrir það, og rökstyður þá afstöðu sína með því að fiskimiðin séu eign þjóðarinnar allrar, en ekki einvörðungu þeirra sem fiska. Formaður Sjálfstæðis- flokksins er alfarið á móti því að útgerðin borgi fyrir það að fá að sækja fiskinn á miðin. Málamiðl- unartillaga varaformannsins, er hann hugðist leggja fyrir þingið, gekk út á það að útgerðinni yrði gert að borga fyrir kostnað vegna stjórnunar fiskveiða og hafrann- sókna. Á þetta gat Þorsteinn ekki fallist. Deilan snýst um það hverjir eigi fiskinn í sjónum. Þegar þingflokkurinn á sínum tíma hélt tveggja daga fund, þar sem lögð voru drög að ályktunum fyrir landsfund, voru landbúnað- armálinn ekki útkljáð, en sett í nefnd. Frá þeirri nefnd og mál- efnanefnd flokksins kom ályktun, sem var, svo notuð séu orð Friðr- iks Sophussonar, „ekki ígultær“. Þar eru menn sammála um að minni ríkisafskipti af landbúnaði væru æskileg, en það sem á eftir kemur um aðlögun að markaðsað- stæðum (sem grundvelli að hugs- anlegri samkeppni við erlendar landbúnaðarafurðir) túlka menn á mismunandi hátt, eins og fram hefur komið í Tfmanum. Bæði formaður og varaformað- ur Sjálfstæðisflokksins hafa lýst því yfir að ekki sé óeðlilegt að menn hafi mismundandi skoðanir innan jafn fjölmenns stjórnmála- flokks og Sjálfstæðisflokksins. Það er aftur á móti ekki talið líklegt, af viðmælendum Tímans, að ólíkum skoðunum verði leyft að skarast of mikið á þeim lands- fundi sem framundan er. - ÁG Bóndi á Austurlandi býöur neytendum upp á að taka upp sínar kartöflur.og rófur: Selur kílóið óupp- tekið á hálfvirði Á bænum Stangarási á Fljótsdals- héraði er stundaður nokkuð sérstak- ur búskapur. Ábúandinn, Björn Hólm Björnsson, setur að vori niður kartöflur, rófurog gulrætur, oggefur neytendum kost á að taka upp- skeruna upp í því magni sem þeim hentar. Auk þessa selur bóndi þökur og hey, sem m.a. er flutt út til Færeyja. Eiginlegur bústofn eru fjórar hænur og segir Björn bóndi ekki standa til að fjölga þeim á næstunni. „Þegar ég endurnýja þá fæ ég mér kannski einar sex, eða átta“, segir hann og hlær við. Að sögn Björns Hólm eru fleiri bændur á Austurlandi en hann sem bjóða fólki upp á að taka upp þá jarðávexti sem að það vantar og sleppa þannig við allan milliliða- kostnað. Þetta hafi mælst vel fyrir og nær öll hans uppskera sé tekin upp með þessum hætti. Með því að taka upp sjálfir spara neytendur sér t.d. helming af verði kartaflna eins og þær kosta út úr búð, borga um 60 kr. fyrir kílóið í stað 120. Að sögn Björns hefur hann búið lengi við jarðrækt, heysölu og þöku- sölu. Kartöflu og rófuræktin er þó ekki í stórum stíl, eða á milli þrír og fjórir hektarar sem sett er í á hverju ári. Hann segir fólk vera mjög ánægt með að geta átt þess kost að taka upp sjálft, en ekkert hámark er á hvaða magn er tekið upp og menn gætu þess vegna farið og tekið einu sinni í matinn. Nokkuð er um að bændur á Aust- urlandi verki hey fyrir útflutning á markað í Færeyjum. Það er Austfar hf. sem sér um flutning á töðunni, en bændur sjálfir greiða flutnings- kostnað, útskipun og vörugjald. Heyinu er skipað út á Reyðarfirði, eða Seyðisfirði, en fyrir kílóið fæst 1,5 dönsk króna, eða 12,75 íslensk- ar. Flutningskostnaður er að sögn álíka upphæð, þannig að komið til Færeyja kostar kílóið um 25 krónur. Að sögn Björns hefur hann ekkert selt af heyi til Færeyja ennþá, en þangað fer heyið mest á veturna og er þá tekið jafn óðum og þörf er á. Salan er misjöfn á milli ára, Björn kveðst t.d. einungis hafa selt níu gáma í fyrra, en vanalega fari frá honum um þrjátíu gámar af heyi til Færeyja. -ÁG PÓSTFAX TÍMANS 687691 Iíniinn MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1989 Séð að nýju hjónagörðunum. 40 nýjar íbúðir á stúdentagörðum Nú í haust verða teknar í notkun 20 nýjar íbúðir á stúdentagörðum. Fyrsta desember verða teknar í notkun 20 íbúðir í viðbót. Þar með er lokið byggingu Nýju hjónagarðanna en í þeim eru 90 íbúðir. Nýju íbúðirnar eru tveggja og þriggja herbergja. Mörg sveitarfélög á landsbyggðinni hafa styrkt bygginguna með rausnarlegum fjárfram- lögum. Þrátt fyrir þessa aukningu á húsn- æði fyrir háskólastúdenta er enn mikil eftirspurn eftir húsnæði á stúd- entagörðum. Nú eru 120 manns á biðlista eftir íbúðum og 100 á biðlista eftir einstaklingsherbergjum. Að sögn Helga Lárussonar fjármála- stjóra hjá Félagsstofnun stúdenta er þörfin fyrir húsnæði mun meiri en biðlistarnir gefa til kynna. „Fólk sem veit að það er ekki í forgangshóp er ekkert að ómaka sig við að sækja um á görðunum af því að það veit sem er að það fær ekki húsnæði þar. Samkvæmt öllum könnunum sem hafa verið gerðar um þörf á húsnæði fyrir stúdenta, kemur fram að um 50% stúdenta leigir eða vill komast í leiguhúsnæði. Það eru núna um 4300 stúdentar í háskólanum svo að það má gera ráð fyrir að um 2150 einstaklingar hafi áhuga á að fá leiguhúsnæði. Ef litið er á hin Norðurlöndin þá kemur í ljós að víða er 30-40% stúdenta á görðum en við eru ekki með nema 5%.“ Háskólaráð hefur úthlutað Félags- stofnun stúdenta lóð við væntanlega Oddagötu sem verður í nágrenni við núverandi hjónagarða. Nú er verið að vinna að heildarskipulagi að svæðinu og er reiknað með að þar verði byggð hús með allt að 500 íbúðum og einstaklingsherbergjum. Það er þó ekki enn búið að ákveða endanlega fjölda herbergja og íbúða en teikningar munu væntanlega liggja fyrir eftir áramótin. Félagsstofnun hefur sótt um lán fyrir 30 íbúðum í viðbót. Helgi sagði að óvíst væri hvenær hafin yrði bygging á þeim. Það væri takmörk fyrir því hvað stofnunin gæti fram- kvæmt mikið í einu. Félagsstofnun þarf sjálf að fjármagna 15% bygging- arkostnaðar en fær það sem á vantar lánað frá Húsnæðismálastofnun til 43 ára. Víða erlendis eins og t.d. á Norðurlöndunum og í Englandi eru svona garðar gefnir með því skilyrði að samtök stúdenta sjái um viðhald og rekstur. Helgi sagði að viðhald og rekstur garðana kostaði mikla peninga en að þeir væru ekki reknir með tapi í dag sem er mikil breyting frá því sem var fyrir nokkrum árum síðan. Fram- undan er þó gífurlega mikið við- haldsverkefni sem eru gömlu hjóna- garðarnir en það hús er stórskemmt þó það sé ekki gamalt. -EÓ Síðastliðinn þriðjudag afbentu fulltrúar ÁTVR og Plastprents Sveini Runólfssyni, landgræðslustjóra 1.3 milljónir króna er ætlaðar eru til eflingar starfssemi Landgræðslu Ríkisins í Gunnarsholti. Fjármunir þessir eru afrakstur af sölu auglýsinga á plastpoka er Plastprent hefur framleitt fyrir ÁTVR frá 1. mars síðastliðnum. Var þá svo kveðið á í samningum fyrirtækjanna, að Plastprent hefði heimild til að selja auglýsingar á pokana. Ágóða af sölu auglýsinganna skyldi varið til Landgræðslunnar og er nú afrakstur af sölu fyrstu 7 mánaðanna kominn í hennar hendur. Nokkur fyrirtæki hafa keypt auglýsingar af Plastprenti og stuðlað þannig að viðgangi Landgræðslunnar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.