Tíminn - 18.10.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 18. október 1989
Laus staða
Sjávarútvegsráðuneytið óskar að ráða starfsmann
til starfa hálfan daginn, eftir hádegi, til símsvörunar
og almennra skrifstofustarfa.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna.
Umsækjendur skulu senda skriflegar umsóknir
með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf
til Sjávarútvegsráðuneytisins, Skúlagötu 4, 101
Reykjavík, fyrir 27. október n.k.
Sjávarútvegsráðuneytið
16. október 1989.
Menntamálaráðuneytið
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Menntaskólinn við Sund: Kennarastaða í dönsku er laus
til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykja
vík fyrir 11. nóvember n.k.
Menntamálaráðuneytið
Hraðakstur er orsök margra slysa. Miðum
hraða alltaf við aðstæður, m.a. við ástand
vega, færð og veður.
Tökum aldrei áhættu! uíumferðar
Uráð
hh
um
vegmn!
t
Eiginkona mín
Margrét Friðriksdóttir
frá Kópaskeri,
Hamraborg 14, Kópavogi
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 19. október kl.
15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagiö.
F.h. aðstandenda
Þórhallur Björnsson.
Jón Baldvin Hannibalsson og Vigdís Finnbogadóttir í Genf:
Undirbúningur að
viðræðum við EB
gengur framar vonum
„í ræðu minni hjá ráðgjafa-
nefndinni í Genf á mánudag
fjallaði ég um þrennt: í fyrsta
Iagi lagði ég mat á árangur
undirbúningsstarfs EFTA og
undanfarinna viðræðna við
Efnahagsbandalagið hingað til í
samanburði við þær væntingar
sem menn gerðu sér eftir Oslóar-
yfírlýsingu leiðtoga EFTA-ríkj-
anna,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson í samtali við
Tímann.
„í annan stað gerði ég grein fyrir
niðurstöðum starfshópa sem þegar
liggja fyrir og samningsstöðu EFTA
gagnvart EB þó með þeim fyrirvara
er varðar fimmta starfshópinn sem
ekki hefur lokið störfum og lýkur
ekki störfum fyrr en 24. okt. Þó
gerði ég grein fyrir meginhugmynd-
um og tillögum sem verið hafa að
gerjast í umræðunni án þess að gefa
niðurstöðu fyrirfram.
í þriðja lagi gerði ég grein fyrir
framhaldi málsins til loka þessa árs;
hvað væri framundan Eftamegin og
hvað varðar Evrópubandalagið til
undirbúnings lokafundinum 19. des-
ember í París þar sem utanríkisráð-
herrar beggja aðila munu að lokum
hittast til að meta hvort undirbúning-
ur sé það vel á veg kominn að hægt
sé að taka ákvörðun um það að hefja
samningaviðræður í byrjun næsta
árs,“ sagði Jón Baldvin.
Utanríkisráðherra sagðist telja að
árangur þessa starfs hefði hingað til
verið framar vonum. Fjórir starfs-
hópar hefðu fjallað um hver sitt
sérefni; fríverslun með vörur, frjálst
Jón Baldvin Hannibalsson utanrflds-
ráðherra.
flæði fjármagns og þjónustu, um rétt
einstaklinga og fjölskyldna til at-
vinnu og búsetu og síðan fjórði
hópurinn sem fjallaði um sérstök
samstarfsverkefni, svo sem eins og
menntamál, vísindi, umhverfismál.
Starfsáætlanir þessara hópa hefðu
allar staðist og þeir hefðu þegar
skilað bráðabirgðaniðurstöðum fyrir
fyrsta áfanga könnunarviðræðna
sem fram fóru 25. júlí s.l. Um
niðurstöðurnar mætti segja að kom-
ið hefði á daginn að EFTA-ríkjunum
hefði gengið betur en efasemdar-
menn hefðu ætlað, að samræma
sjónarmið sín og finna sameiginleg-
um samningsgrundvöll.
„Það mál sem flóknast er og
pólitískt viðkvæmast að sumra mati
er spurningin um þær breytingar
sem gera verður á stofnunum og
vinnubrögðum EFTA til að tryggja
stjórnun á hinu sameiginlega evr-
ópska efnahagssvæði. Jafnframt er
þetta lokamarkmið þessara við-
ræðna,“ sagði Jón Baldvin.
Jón sagði að fríverslun með fisk-
afurðir varðaði fslendinga hvað
mest. Þetta væri þó ekki lengur
einkamál íslendinga þar sem náðst
hefði fram á Oslóarfundinum í mars
að EFTA samþykkti að taka upp
fríverslun með fiskafurðir og sú
meginregla kæmi til framkvæmda
um mitt næsta ár. Þá óskuðu EFTA-
ríkin þess sameiginlega að fríverslun
verði með fiskafurðir á markaðs-
svæðum EFTA og EB.
Á mánudag fundaði sá starfshópur
EFTA, sem fæst við málefni atvinnu-
lífs og vinnumarkaðar. Á fundinum
var Ólafur Davíðsson hagfræðingur
FÍI endurkjörinn formaður í þriðja
sinn.
í gær var Vigdís Finnbogadóttir
forseti íslands í opinberri vinnu-
heimsókn í Genf og jafnframt átti
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra tveggja tíma fund með
forseta Sviss sem jafnframt er efna-
hags- og atvinnumálaráðherra
landsins.
Áætlað er að undirbúningsfund-
unum, sem haldnir verða ekki ein-
ungis í Genf heldur í mörgum lönd-
um EFTA-ríkjanna, Ijúki með
óformlegum fundi utanríkisráðherra
ríkjanna þann 27. október. n.k. Á
þeim fundi verða lagðar frain niður-
stöður ráðgjafanefndanna í fyrsta
sinn og þær ræddar. -BG/sá
VMSÍ þingið hafnaði tilmælum frá Hlíf í Hafnarfirði:
Engan frjálsan inn-
flutning á búvörum
í tillögu um kjaramál frá fulltrúum
verkamannafélagsins Hlífar í Hafn-
arfirði á þingi VMSÍ var þess krafist
að leyfður yrði frjáls innflutningur á
landbúnaðarvörum og jafnframt
yrði verð á dilkakjöti og öðrum
íandbúnaðarafurðum stórlækkað.
Tillögu þessari var vísað til nefnd-
ar eftir fyrstu umræðu. Þar var
tillögunni hafnað sem sjálfstæðu
máli og því ekki vísað til þingsins til
frekari umræðu. Meirihluti nefndar-
manna taldi að ekki gengi að gera
um helming íslenskra bænda gjald-
þrota á nánast svipstundu en það
yrði raunin kæmist tillagan í
framkvæmd.
Það voru einkum konur í nefnd-
inni auk fulltrúa verkalýðsfélaga af
Suðurlandi og Borgarfirði sem ekki
gátu sætt sig við þann hluta tillög-
unnar sem fjallaði um frjálsan inn-
flutning landbúnaðarvara.
Lyktir urðu þær að tilmælin um
frjálsan innflutning voru felld niður
en önnur atriði tillögunnar voru
síðan felld inn í tillögu að kjaramála-
ályktun 15. þings VMSÍ. Hins vegar
lagði nefndin til að nýrri stjórn
VMSÍ yrði falið að gangast fyrir
viðræðum við samtök bænda um
verðlagsmál landbúnaðarafurða. -sá
Mannanöfn
endurskoðuð
Menntamálaráðuneytið hefur
skipað starfshóp til að endurskoða
frumvarp til laga um mannanöfn,
sem lagt var fram á tveimur löggjaf-
arþingum 1971 og í síðara skiptið
vísað til ríkistjórnar.
Sem kunnugt er gilda hér á landi
mjög strangar reglur sem settar voru
1925. Starfshópnum er ætlað að
skila ráðuneytinu niðurstöðum
sínum, þ.e. endurskoðuðu frum-
varpi með greinargerð fyrir 1. des-
ember nk.
-ABÓ
Landsamtök heimavinnandi fólks:
Heimilisstörf metin
að verðleikum
Landsamtök heimavinnandi
fólks voru stofnuð á 300 manna
stofnfundi á Holiday Inn á laugar-
daginn. Helstu baráttumál þessara
samtaka er að heimvinnandi fólk
njóti sömu réttinda og fólk á úti á
vinnumarkaðinum, einkum hvað
varðar aðgang að lífeyrissjóði og
eins gagnvart skattakerfinu. Er
það krafa samtakanna að heima-
vinnandi fólk njóti 100% persónu-
frádráttar í stað 80% frádráttar
eins og nú er. Það er mat samtak-
anna að auka þurfi veg heimilis-
starfa í þjóðfélaginu m.a. með því
að þau verði metin að verðleikum
sem starfsreynsla þegar sótt er um
störf á almennum vinnumarkaði.
Á stofnfundinn mættu fulltrúar
stjórnmálaflokkanna sem gerðu
grein fyrir stefnu flokka sinna í
fiölskyldumálum. Guðmundur
Ágústsson alþingismaður gerði
grein fyrir skipulagi og uppbygg-
ingu samtakanna en hann var í
forsvari fyrir nefnd sem falið hafði
verið að semja reglur um það efni.
Formaður Landsamtaka heima-
vinnandi fólks var kjörin Ragn-
heiður Ólafsdóttir, en Arndís
Tómasdóttir varaformaður.