Tíminn - 01.12.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Föstudagur 1. desember 1989
Snarpar umræður a Alþingi um vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar á ríkisstjórnina. Utanrikisráð-
herra beindi mali sínu til „barnungrarforystu Sjálfstæðisflokksins" og undraðistframgang íhaldsins:
„Sjálfstæðismenn svífast
einskis í ofstæki sínu“
- A sama tíma og Alþyöubandalagið kemst af gelgjuskeiði i pólitík gengur barnung forysta Sjalfstæðisflokksins i barndóm.
Sjálfstæðismenn sættu verulega harðri gagnrýni við
umræður í sameinuðu þingi í gærkvöld, þegar tillaga þeirra
og annarra aðila stjórnarandstöðunnar um vantraust var
tekin til umræðu og atkvæðagreiðslu. Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra varpaði fram þeirri spurningu
hvort tillagan væri flutt í þeim tilgangi að erfiða utanríkis-
ráðherra störf sín í þágu ráðherranefndar EFTA.
Eins og kunnugt er komu sjálf-
stæðismenn í veg fyrir að umræða
um skýrslu utanríkisráðherra yrði
útrædd s.l. miðvikudag. Vegna
þess og vantrauststillögu stjórnar-
andstöðunnar sá utanríkisráðherra
sér ekki fært að flytja framsögu á
þingmannaráðstefnu EFTA í
Brussel í gær.
Það var ekki einungis forsætis-
ráðherra sem gagnrýndi framkomu
sjálfstæðismanna Júlíus Sólnes
ráðherra Hagstofu sagði vantraust-
ið hreint rugl og beinlínis hættulegt
þjóðarhagsmunum, og í sama
streng tóku ráðherrar Alþýðu-
bandalags. Utanríkisráðherra
sjálfur, Jón Baldvin Hannibalsson,
tók þó dýpst í árinni og beindi
hann máli sínu til kjósenda Sjálf-
stæðisflokksins og spurði þá hvort
að þeir hefðu gefið Þorsteini Páls-
svni umboð til þess að leggja flokk
Ólafs Thors og Bjarna Benedikts-
sonar við pólitískan hégóma?
„Ég biðst ekki vægðar undan
hörðum árásum sjálfstæðismanna
á mig,“ sagði Jón Baldvin. „Og ég
erfi það satt að segja ekki við þá,
þessa ungu forystukynslóð þótt
hún fari með málefnabaráttu ís-
lenskra stjórnmála niður í götu-
ræsi, í skipulögðum herferðum til
þess að níða æru af einstökum
andstæðingum sínum. Við skulum
ekki erfa það. Það kann að henda
og það hljóta að hafa verið mistök.
En, þegar þeir svífast einskis í
þessu ofstæki sínu og láta það ekki
hindra sig í því að gera mikilvæg-
ustu utanríkishagsmuni íslensku
þjóðarinnar að hráskinnaleik, í
taugaveiklunarkasti, þá spyr ég
ykkur sjálfstæðisfólk - ætlið þið að
fyrirgefa þeim þetta? Því að þessir
dagar eru svartir dagar í sögu
Sjálfstæðisflokksins. Ég er sann-
færður um það að hinir stóru
leiðtogar liðinnar sögu, þeir Bjarni
Benediktsson og Ólafur Thors,
þeir myndu snúa sér við í gröfinni
ef þeir mættu nú horfa á tiltektir
þessara angurgapa.
Það eru merkileg söguleg þátta-
skil þegar það gerist á einum og
sama deginum að Sjálfstæðisflokk-
urinn rýfur áratuga hefð í utanrík-
ismálum um samstöðu lýðræðisafla
í slíkum málum, en á sama tíma
verður maður að játa að það er
eins og Alþýðubandalagið sé að
vaxa og þroskast, komast af pólit-
ísku gelgjuskeiði, á sama tíma og
Sjálfstæðisflokkurinn er genginn í
pólitískan barndóm undir barn-
ungri forystu sinni.“
Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins, sem mælti fyr-
ir tillögunni um vantraust, sagði að
alvarlegast væri að ríkisstjórnin
hefði með öllu hafnað að hefja
tvíhliða viðræður við Evrópu-
bandalagið um hindrunarlausan
útflutning á íslenskum sjávarafurð-
um inn á markað bandalagsins.
„Hæstvirtur forsætisráðherra hefur
lýst því yfir hér í þinginu að
ríkisstjórnin hafi undirgengist það
með Oslóar-yfirlýsingunni s.l.
haust að gera engar slíkar kröfur
um tvíhliða viðræður íslands,"
sagði Þorsteinn. „íslenskur sjávar-
útvegur getur ekki beðið eftir því
að krafan um að Evrópubandalag-
ið hætti styrkjum til sjávarútvegs-
ins nái fram að ganga. Þá þyrftum
við að bíða fram á næstu öld. Það
er einfaldlega of mikil áhætta að
geyma höfuðkröfu íslendinga
þangað til síðast í almennum við-
ræðum EFTA og Evrópubanda-
lagsins. Með því látum við viðsemj-
endurna króa okkur af í megin
hagsmunamáli fslendinga."
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sagði það einkenni-
legt að á sama tíma og utanríkis-
ráðherra færi með forystuhlutverk
fyrir hönd EFTA í mikilvægum
viðræðum við Evrópubandalagið,
skyldu sjálfstæðismenn hlaupa til
og fá aðra stjórnarandstæðinga
með sér að flytja vantraust á ríkis-
stjórnina. Fosætisráðherra varpaði
fram þeirri spurningu hvort þetta
væri gert til þess að utanríkisráð-
herra gæti sinnt sínum skyldum.
Steingrímur kvaðst vara við
þeirri tillögu sjálfstæðismanna að
leita eftir formlegum viðræðum við
Evrópubandalagið um frjálsa
verslun með fisk. „Ég minni á það
að á leiðtogafundinum í mars í
Osló lögðum við íslendingar alla
áherslu á fríverslun með fisk,“
sagði Steingrímur. „Við tækum
ekki þátt í viðræðum EFTA-ríkj-
anna við Evrópubandalagið án
þess að innan þeirra viðræðna yrði
fríverslun með fisk innan Evrópu-
bandalagsins. Það mál leystist ekki
fyrr en á síðustu fimm mínútum
þess fundar. Við sögðum að þar
með, þar sem EFTA-ríkin væru
tilbúin að krefjast fullrar fríversl-
unar með fisk, ekki síst og raunar
eingöngu fyrir okkar hönd, þá
mundum við taka þátt í þessum
sameiginlegu viðræoum.“
Forsætisráðherra sagði að þetta
eitt út af fyrir sig ætti að útiloka
flesta drengskaparmenn frá því að
snúa nú við blaðinu og segja við
fulltrúa hinna EFTA-ríkjanna að
þó að þeir hefðu fallist á okkar
kröfu ætluðum við samt að krefjast
beinna formlegra viðræðna við
Evrópubandalagið. Steingrímur
minnti einnig a þá ósk forsvars-
manna Evrópubandalagsins sjálfs
að samið yrði sameiginlega við
EFTA-ríkin öll og hefðu í raun
hafnað því að eiea viðræður við
einstök ríki EFTA. Þessa leið
hefðu Asturríkismenn reynt að
fara, henni hefði verið hafnað af
EB og þeir hefðu aftur komið inn
í sameinginlegar viðræður EFTA.
Tillaga í bygginganefnd um að banna starísmönnum
byggingafulltrúa að mestu aukavinnu við hönnun:
Fá þeir eingöngu að
hanna fyrir borgina?
27 SAGT UPP
HJÁ STÖD2
Á fundi bygginganefndar Reykja-
víkur í gær kom fram tillaga frá
Gunnari H. Gunnarssyni fulltrúa
Alþýðubandalags og Gissuri Símon-
arsyni Framsóknarflokki um að
banna þegar í stað öllum starfs-
mönnum byggingafulltrúans í
Reykjavík alla hönnunarvinnu utan
reglulegs vinnutíma.
Bannið skal þó samkvæmt tillög-
unni ekki vera algilt því starfs-
mönnunum skal leyft að hanna
mannvirki, séu þau í eigu borgarinn-
ar sjálfrar eða verði utan lögsögu
Reykjavíkur.
Þá skal þvf beint til borgarverk-
fræðings að hann láti hönnunarteymi
(-starfshópa) sem tæknimenn bygg-
ingafulltrúans hugsanlega fá hóflega
stór verkefni utan venjulegs vinnu-
tíma við hönnun fyrirhugaðra bygg-
inga í eigu borgarinnar. Verkefni
þessi verði þó það stór að tækni-
mennirnir nái að halda sér við í grein
sinni.
í greinargerð með tillögunni segir
að alkunna sé að misbrestir hafi
verið í starfi embættis byggingafull-
trúa. Ein af ástæðum misbrestanna
sé lág laun starfsmanna sem leitt hafi
til þess að þeir hafa gripið fegins
hendi það tækifæri sem borgin hefur
boðið þeim í yfir þrjátíu ár; að
hanna fyrir viðskiptavini utan venju-
legs vinnutíma.
Þetta fyrirkomulag hafi sett starfs-
mennina í óþolandi aðstöðu. Hins
vegar hafi þeir gott af því faglega að
halda sér við með hönnunarstörfum
og því sé gert ráð fyrir því í tillögunni
að þeir haldi því áfram, en í breyttu
formi.
Tillagan var lögð fyrir fund bygg-
inganefndar í gær eins og áður sagði
en kom ekki til afgreiðslu þar sem
henni var frestað. -sá
Tuttugu og sjö starfsmönnum af
um 150 var sagt upp hjá Stöð 2 í gær.
Páll Magnússon fréttastjóri til-
kynnti þetta í einni af fyrstu fréttum
stöðvarinnar í gærkvöldi. Ástæða
uppsagnanna er sameining þeirra
tveggja fyrirtækja sem að stöðinni
standa og endurskipulagningu á
rekstri hennar, að því er greindi frá
í frétt Stöðvar 2.
Tíminn hefur á síðustu dögum
greint frá vaxandi áhyggjum við-
skiptabanka Stöðvar 2 vegna versn-
andi fjárhagsstöðu fyrirtækisins.
Sláturfélagid hendir
10 þúsund sviðahausum
Sláturfélag Suðurlands hefur ákveðið að henda öllum dilkasviðum
af þeim svæðum sem salmonella hefur greinst á. Steinþór Skúlason
framkvæmdastjóri SS sagðist telja að þetta þýddi að tíu þúsund
hausum yrði hent, hann sagðist ekki geta gefið nákvæmar tölur um
hve mikið tjón þetta væri fyrir fyrirtækið en sagði Ijóst að það skipti
milljónum.
Rannsóknir á sviðnum og ósviðn-
um kindahausum teknum í tveimur
frystihúsum Sláturfélags Suðurlands
leiddu í ljós salmonellamengun í
hluta hausanna. Að sögn Brynjólfs
Sandholts yfirdýralæknis er unnið
að því að greina úr hvaða sláturhúsi
mengunin á upptök sín.
Yfirdýralæknir stöðvaði þegar
dreifingu og sölu á sviðaþausum frá
öllum frystiklefum Sláturfélags
Suðurlands, þegar niðurstöður rann-
sókna Hollustuverndar ríkisins lágu
fyrir. Hollustuvernd, í samvinnu við
heilbrigðiseftirlitið á Suður-, Suð-
vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu,
gerði ráðstafanir til að sett yrði
tímabundin sölu-, dreifingar- og
vinnslustöðvun á sviðahausa frá of-
angreindum framleiðanda, sem voru
á boðstólum í verslunum eða annars
staðar.
Orsök mengunarinnar?
í fréttatilkynningu frá Sláturfélagi
Suðurlands er rakið hver er talin
orsök sýkingarinnar. Þar segir að
rannsókn á folaldadauða í sumar á
afmörkuðum svæðum í Rangárvalla-
sýslu hafi leitt í ljós að folöldin hefðu
sýkst af salmonellu. Heilbrigðisyfir-
völd rannsökuðu útbreiðslu sýking-
arinnar og hugsanlega orsök hennar.
Við sauðfjárslátrun í haust var sauð-
fé af bæjum sem grunaðir voru um
sýkingu slátrað aðskilið frá annarri
slátrun og var slátrunin í samráði við
yfirdýralækni og undir eftirliti hér-
aðsdýralæknis. Til öryggis var öllum
innmat og hausum af umræddu sauð-
fé hent. Kjötinu var haldið að-
greindu uns fyrir lá niðurstaða sem
sýndi að ekkert af kjötinu var sýkt.
Engin folöld voru tekin til slátrun-
ar frá grunuðum bæjum fyrr en fyrir
lá rannsókn á sýnum sem tekin voru
úr hverju einasta folaldi sem ætlað
var að slátra.
í tilkynningunni segir að ljóst sé
að vanrækslu eða vanbúnaði við
slátrunina sé ekki um að kenna.
„Það er mjög miður að þrátt fyrir
ýtrustu varúðarráðstafanir sem við-
hafðar hafa verið skuli finnast sýking
í dilkasviðum frá Sláturfélaginu.
Nauðsyn er víðtækrar rannsóknar til
að finna uppruna meintrar sýkingar
og fyrirbyggja að hún endurtaki
sig.“
Tíminn spurði Brynjólf Sandholt
að því hvort ekki væri einkennilegt
að sýkingin fyndist bara í hausunum.
Brynjólfur sagði svo ekki vera.
Salmonella væri yfirleitt í meltingar-
vegi dýranna og þar sem kindin væri
jórturdýr þá gæti sýkingin borist úr
vömbinnioguppímunnholið. SSH