Tíminn - 01.12.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Föstudagur 1. desember 1989
DAGBÓK
Unnið að undirbúningi jólabasar Sjálfsbjargar.
Jólabasar Sjálfsbjargar
Jólabasar Sjálfsbjargar, félags fatlaðra
í Reykjavík og nágrennis, verður haldinn
laugardag og sunnudag 2. og 3. des. í
Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, Reykja-
vík, 1. hæð og hefst salan kl. 14:00 báða
dagana. Inngangur að vestanverðu.
Mikið úrval af munum á góðu verði,
jólaskreytingar og jólavörur og margt
fleira. Happdrætti og kaffisala með hlað-
borði.
Jólapappírssala Lionsmanna
í Hafnarfirði
Lions-klúbbur Hafnarfjarðar verður
með sína árlegu jólapappírssölu 2. og 3.
desember. Allur ágóði af sölunni rennur
til lfknarmála í Hafnarfirði.
Klúbburinn hefur m.a. styrkt heimili
fyrir þroskahefta, einnig heimili fyrir
vangefna á Klettahrauni 17, svo og hefur
klúbburinn styrkt St. Jósefsspítala í Hafn-
arfirði með tækjakaupum, m.a. gefið
tæki og verkfæri, sem notað er til að skera
upp við brjósklosi í baki, þannig að nú
geta læknar í Hafnarfirði framkvæmt
slíkar aðgerðir. Einnig styrkir Lions-
klúbbur Hafnarfjarðar ýmis málefni inn-
an Lionshreyfingarinnar.
Hringur Jóhannesson sýnir
í Listasafni ASÍ
Laugard. 25. nóv. var opnuð sýning á
málverkum Hrings Jóhannessonar í Lista-
safni AS{ við Grensásveg.
Þann 16. desember verður síðan opnuð
sýning á verkum Hrings á Akureyri og á
gamlársdag.þann 31. des. verður opnuð
sýning á verkum listamannsins á Egils-
stöðum.
Jafnframt sýningu á verkum Hrings
kemur út bók um listamanninn á vegum
Listasafns ASl og Lögbergs. Bókina skrif-
ar Aðalsteinn Ingólfsson, en Björn Th.
Bjömsson ritar formála.
í Listasafni ASÍ eru seldar listaverka-
bækur, litskyggnuraðir og listaverkakort.
Þar er til sölu hin nýja bók um Hring.
Hringur Jóhannesson er fæddur í Haga
í Aðaldal 1932. Hann nam við Handíða-
og myndlistaskólann í Reykjavík 1949-
’52.
Sýningin er opin virka daga kl. 16:00-
20:00 og um helgar kl. 14:00-20:00.
Aðgangur að sýningunni er ókeypis.
Haukur Halldórsson sýnir
í ÓLKJALLARANUM
Nýlega opnaði myndlistamaðurinn
Haukur Halldórsson sýningu á myndum
sínum í ölkjallaranum á bak við Dóm-
kirkjuna. Þar eru til sýnis 32 myndir
unnar með sérstakri aðferð sem listamað-
urinn kallar „heliograf" til aðgreiningar
frá hefðbundinni grafík
Haukur Halldórsson er fæddur 1937 í
Stóra-Ási á Seltjamamesi. Hann stund-
aði nám hér heima og f Danmörku. Hann
hefur tekið þátt f nokkrum samsýningum
og haldið fjölda einkasýninga í Reykja-
vfk, Ólafsvík, Keflavík, Núrnberg, St.
Andrews í Skotlandi, Leirvík á Suðureyj-
um og síðast á Akranesi. Þessi sýning er
níunda einkasýningin.
Heidi sýnir í Hlaðvarpanum
Laugardaginn 2. desember kl. 14:00
opnar Heidi Kristiansen sýningu í Gallerí
Hlaðvarpanum að Vesturgötu 3B. Sýnir
hún þar myndteppi saumuð með ásaums-
(applikation) og quilt-tækni. Á sýning-
unni verða 22 myndverk, flest unnin á
þessu ári.
Heidi er frá Þrándheimi í Noregi og
lærði þar. en sfðan 1980 hefur hún verið
búsett á Islandi.
Heidi hefur áður haldið einkasýningar,
bæði hér og í heimalandi sínu. Hún hefur
einnig átt verk á samsýningum í báðum
löndunum.
Sýningin er opin alla daga kl. 12:00-
18:00 fram til 17. desember.
Bima sýnir í Ásmundarsal
Nýlega opnaði Bima Kristjánsdóttir
þriðju einkasýningu sína. Hún sýnir í
Ásmundarsal til 3. descmber. Salurinn er
opinn virka daga kl. 14:00-18:00 en um
helgar kl. 14:00-19:00. Nítján verk eru á
sýningunni.
Aðventukvóld í Kópavogskirkju
sunnudaginn 3. desember
Digranessöfnuður efnir til aðventu-
kvölds í Kópavogskirkju kl. 20:30 á
sunnudagskvöld.
Fyrsta aðventuljósið er tendrað. Þá
flytur Þorbjörg Daníelsdóttir, form.
sóknarnefndar, ávarp, kirkjukórinn syng-
ur undir stjórn Guðmundar Gilssonar,
strengjasveit leikur með.
Óli Þ. Guðbjartsson kirkjumálaráð-
herra flytur ræðu, kór Snælandsskóla
syngur undir stjórn Björns Þórarinssonar,
dr. Sigurbjöm Einarsson biskup flytur
eigin Ijóð, Elín Ósk Óskarsdóttir syngur
einsöng við undirleik Ólafs Vignis Al-
bertssonar.
Að lokum verður helgistund með al-
mennum söng.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuieg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, 2. desember.
Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10:00.
„Nú ríkir svartasta skammdegið. Ný-
lagað molakaffi og skemmtilegur félags-
skapur er svar okkar til móður náttúru.
Og til að gera náttúruöflin undirgefin
mætum við í bæjarröltið í hlýjum fatnaði
og vel útbúnu skótaui. Skaflajárn eru
sjálfsögð í hálku og ófærð. Munið að
skemmtilegustu göngurnar eru oft í verstu
veðrunum," segir í fréttatilkynningu frá
Frístundahópnum Hana nú í Kópavogi.
Afmælissýning Ágústs Petersen í Nýhöfn:
„FLÝTTU ÞÉR HÆGT“
Laugardaginn 18. nóvember var opnuð
afmælissýning Ágústs Petersen, en hann
verður áttræður um þessar mundir.
Á sýningunni, sem hefur hlotið yfir-
skriftina „FLÝTTU ÞÉR HÆGT“ eru
mannamyndir og landslagsmálverk, mál-
uð með olíu og flest unnin á sl. tíu árum.
Sýningin í Nýhöfn er sölusýning. Hún
er opin kl. 10:00-18:00 virka daga og kl.
14:00-18:00 um helgar. Henni lýkur 6.
desember.
Spænskur pennavinur
í Þýskalandi - en skrífar
áensku
Borist hefur bréf, stutt og laggott, frá
manni í Göttingen í V-Þýskalandi. Hann
segist vera spænskur að ætt, einhleypur
(nefnir ekki aldur) og langar til að skrifast
á við íslenskar stúlkur. Utanáskrift til
hans er:
Fernando Girau
Goetheallee 10
3400 Göttingen
West Gcrmany
Félagsvist
Skaftfellingafélagsins
Skaftfellingafélagið spilar félagsvist í
Skaftfellingabúð, Laugavegi 178, á
sunnudag, 3. desember kl. 14:00.
Hátíðardagskrá stúdenta
l.desember
Þann 1. desember minnast stúdentar
fullveldisins með fjölbreyttri hátíðardag-
skrá.
KI. 10:00 verður gengið með blómsveig
að leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðin-
um við Suðurgötu. Þar flytur Arnór
Hannibalsson prófessor ávarp um Jón
Sigurðsson og hugsjónir hans.
Kl. 11:00 verður messa í kapellu Há-
skólans. Þórður Kr. Þórðarson prédikar,
en sr. Sigurður Sigurðsson þjónar fyrir
altari. Sigurður Kr. Sigurðsson guðfræði-
nemi syngur einsöng við undirleik Kjart-
ans Sigurjónssonar guðfræðinema.
Félagsstofnun stúdenta hefur opið hús
að hjónagörðum, Suðurgötu75 kl. 12:00-
14:00. Kafliveitingar verða síðan í boði
Félagsstofnunar í Háskólabíó kl. 13:30-
14:00.
Hátíðarsamkoman hefst kl. 14:00 í
Háskólabíó. Flutt ávörp, Háskólakórinn
syngur og einnig Bubbi Morthens. Kynnir
er Valgeir Guðjónsson.
Málþing verður í Odda, þar sem tekið
verður á þema dagsins, „Er menntun of
dýr?“ og einnig verður menningarvaka í
Norræna húsinu.
Að lokum er háskólastúdentum „boðið
í bíó“ að sjá sænsku stórmyndina „Ex-
periment in Murder".
Kirkjudagur
Seltjarnamessafnaðar
Seltjamamessöfnuður heldur kirkju-
dag sinn hátíðlegan að venju fyrsta
sunnudag í jólaföstu, 3. des.
Er þetta í fyrsta skipti sem dagurinn er
haldinn hátíðlegur í kirkjunni eftir vígslu
hennar í febrúar sl.
Guðsþjónusta verður kl. 11:00 með
þátttöku fermingarbarna og kveikt fyrsta
Ijósið á aðventukransinum. Stólvers syng-
ur Anna Júlíana Sveinsdóttir ópemsöng-
kona við undirleik Gyðu Halldórsdóttur
og sóknarpresturinn, sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir, predikar og þjónar fyrir
altari.
Kristileg samkoma verður kl. 20:30 um
kvöldið. Form. sóknarnefndar, Kristín
Friðbjarnardóttir, setur samkomuna. Sr.
Frank M. Halldórsson segir frá aðventu
og jólum í Texas í máli og myndum og sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson flytur hug-
vekju. Sigrún Valgerður Gestsdóttir óp-
erusöngkona syngur við undirleik Gyðu
Halldórsdóttur. Þá verða kertaljósin
tendmð frá altarinu og dagskránni lýkur
með ritningarlestri og bæn sr. Solveigar
Láru Guðmundsdóttur.
Eftir samkomuna bjóða konur úr Vina-
samtökunum til kaffidrykkju á neðri hæð
kirkjunnar.
Björg sýnir í Slunkaríki
Laugardaginn 25. nóvember hófst sýn-
ing Bjargar Þorstcinsdóttur í Slunkaríki á
Ísafirði.
Fyrir utan myndlistarnám hér heima
nam Björg myndlist í Þýskalandi og
Frakklandi. Hún hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga víða um heim og einkasýning-
ar hennar eru orðnar á annan tug, - nú
síðast í Norræna húsinu í október sl.
Verk Bjargar má sjá í fjölmörgum söfnum
hér heima og úti í heimi.
í Slunkaríki mun hún sýna 12 olíukrít-
armyndir unnar á síðasta ári.
Sýningin hefst á laugardag kl. 16:00 og
stendur til 9. desember. Slunkaríki er
opið frá fimmtudegi til sunnudags kl.
16:00-18:00.
Kjarvalsstaðir um helgina
Nú stendur yfir sýning í austursal á
Kjarvalsstöðum á verkum norska málar-
ans Arvid Pettersen.
í vestur- og vesturforsal sýnir Jóhanna
Bogadóttir borgarlistamaður málverk og
teikningar.
í austurforsal sýnir Ingibjörg Styrgerð-
ur vefnað.
Þessar tvær síðarnefndu sýningar
standa til 3. desember.
Kjarvalsstaðir eru opnir kl. 11:00-18:00
daglega og er veitingabúðin opin á sama
tíma.
SMÍÐAGALLERÍ Mjóstræti 2B
Lilja Eiríksdóttir hefur opnað sína
fyrstu málverkasýningu í Smíðagallerí,
Mjóstræti 2B. Hún sýnir 22 olíumyndir
og eru þær flestar málaðar á síðustu
tveimur árum. Sýningin er opin virka
daga kl. 10:00-18:00 og laugardaga kl.
14:00-17:00.
Félagsvist
Breiðfirðingafélagsins
Breiðfirðingafélagið í Reykjavík verð-
ur með félagsvist í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, sunnudaginn 3. desemberog
hefst kl. 14:30 stundvíslega. Góð verð-
laun. Kaffiveitingar. AUir velkomnir.
Aðventusamkoma
Kórs Strandamanna
Kór Átthagafélags Strandamanna efnir
til aðventusamkomu sunnudaginn 3. des-
ember kl. 17:00 í Skaftfellingabúð,
Laugavegi 178. Fjölbreyttur söngur,
bjöllukór o.fl. Kaffiveitingar.
Listasafn Einars Jónssonar
Listasafn Einars Jónssonar er opið alla
laugardaga og sunnudaga kl. 13:30-16:00.
Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga
kl. 11:00- 17:00.
Safnaðarfélag Ásprestakalls
Jólafundur Safnaðarfélags Áspresta-
kalls verður haldinn þriðjudaginn 5. des-
ember kl. 20:30 í safnaðarheimilinu.
Fundarefni: Jólahugvekja og föndur.
MIHHIIIII BÆKUR IIIIBT'1''.lJ:liUlllllllllllllllllTllrV.,l,l;lllBIIIIIIIIIIIIIIIII
Reykjaætt
Niðjatal
Eiríks Vigfússonar
bónda og dbrrn. á Reykjum á Skeiðum
og kvenna hans
Ingunnar EiríksdótCur
«'K
Guðrúnar cldri Kolbeinsdóttur
Isienskl ættfræðísafn
Niðjatal
VI,3
Niðjatal
Reykjaættar
Út er komið hjá bókaforlaginu
Sögusteini þriðja bindi Niðjatals
Reykjaættar í ritröðinni íslensk
ættfræðisöfn.
Reykjaætt er rakin frá Eiriki
Vigfússyni, bónda og dbrm. á
Reykjum á Skeiðum, og konum
hans Ingunni Eiríksdóttur og
Guðrúnu Kolbeinsdóttur. Eiríkur
bjó allan sinn búskap á Reykjum.
„Hann var stórgáfaður og
skemmtilegur, mætur maður,
fámáll en jafnan glaður." Niðjar
Eiríks á Reykjum eru í dag orðnir
á annan tug þúsunda og er áætlað
að verkið verði í fimm bindum.
Reykjaætt er eitt umfangsmesta
niðjatal sem unnið hefur verið á
Islandi. Mörg þúsund ljósmyndir
prýða verkið.
Áður eru komin út hjá
bókaforlaginu Sögusteini
eftirfarandi ættfræðisöfn og
niðjatöl: Húsatóftaætt -
Gunnhildargerðisætt - Galtarætt
— Knudsensætt 1-2 -
Hallbjarnarætt -Reykjaætt 1-2 -
Ófeigsfjarðarætt —
Hreiðarsstaðakotsætt 1-2.
Áskrifendur Ættfræðisafna
Sögusteins og aðrir áhugamenn
eru vinsamlegast beðnir um að
staðfesta pantanir sínar sem fyrst
svo engar tafir verði á
heimsendingu.
Bókaforlagið Sögusteinn hefur
nú nýverið skipt um aðsetur og
eru skrifstofur og afgreiðsla
Sögusteins nú að Hafnarstræti 18,
101 Reykjavik. Símanúmer
Sögusteins er óbreytt 1-34-50 og
1-86-75.
Eyjabálkur í
einni bók
Út er komin hjá Máh og
menningu „stórbók" semhefurað
geyma þrjár skáldsögur EinEtrs
Kárasonar, Þar sem djöflaeyjan
rís, Gulleyjan og Fyrirheitna
landið. Saman mynda þessar
sögur eina heild og hafa þær
stundum verið nefndar
„Eyjabálkurinn".
Þar sem djöflaeyjan rís, fyrsta
sagan um fólkið í Thulekampi,
hefur áður verið prentuð i fjórum
útgáfum, leikgerð hennar verið
sýnd við góða aðsókn hjá
Leikfélagi Reykjavíkur, og nú er
verið að gefa bókina út á
Norðurlöndunum. Þetta er
fjölskyldusaga sem lýsir
fjölskniðugu mannlifi
braggahverfanna í Reykjavík eftir
strið.
Gulleyjan gerist á gullnu árum
fjölskyldunnar í Thulekampi og er
beint framhald Djöflaeyjunnar.
Sagt er á eftirminnilegan hátt frá
brúðkaupi Dollíar og Grettis,
jólahaldinu í Gamla húsinu og
draumnum um Ameríku,
næturflandri Badda og
flugmannsferli Danna.
Fyrirheitna landið er nýjasta
skáldsaga Einar og jafnframt
lokabindi Eyjabálksins. Hún
gerist nokkru síðar en hinar
bækurnar og segir frá för til
fyrirheitna landsins, Ameríku.
Sögumaður er Mundi, sonur
Dollíar, og með honum í för eru
bróðir hans, billjardséníið Bóbó,
og skáldið og sérvitringurinn
Manni, sonur Fíu og Tóta. Þeir
halda á slóðir frumherja rokksins,
lenda í ýmsum ævintýrum og hitta
loks gömlu hetjuna Badda, sem
býr í hjólhýsi með Gógó móður
sinni. Af þessu verður einstök
saga um hetjumyndir, sársauka,
draumóra og uppgjör.
Stórbók Einars Kárasonar er 482
bls., kápumynd gerði Guðjón
Ketilsson, en Oddi hf. prentaði.
IBHENRIK
CAVLLNG CönH,
1 ijcIIUI
herrann
Ib H. Cavling
Höfundinn þarf vart að kynna
fyrir íslenskum lesendum, slíkar
hafa vinsældir bóka hans verið
hérlendis í gegnum árin.
í þessari nýjustu bók Cavlings
er söguþráðurinn ekki síður
hugnæmur og spennandi en í
hinum fyrri.