Tíminn - 02.12.1989, Qupperneq 2
2 Tíminn
Laugardagur 2. desember 1989
Útvarpsráð sammála um sjónvarpsþáttinn Fólkið í landinu:
Ekkert athugavert
við þáttargerðina
Útvarpsráð varð sammála um það
á fundi sínum í gær að ekki væri
ástæða til að gera neinar athuga-
semdir við efnistök og stjórn sjón-
varpsþáttarins Fólkið í landinu sem
sendurvarútþann 18. nóvembers.l.
Ólt'na Þorvarðardóttir stýrði
þættinum og viðmælandi hennar var
Gunnar Bjarnason fyrrverandi ráðu-
nautur og greindi hann frá störfum
sínum og skoðunum á ýmsum mönn-
um og málefnum. Gunnar greindi
meðal annars frá störfum sínum í
þjónustu Búnaðarfélags íslands og
stuttum ferli sínum sem skólastjóri
búnaðarskólans að Hólum í Hjalta-
dal en flest af því sem um þessi mál
var sagt í þættinum hefur áður
komið fram opinberlega, meðal ann-
ars í bók Gunnars; Líkaböng
hringir.
Tíu starfsmenn Búnaðarfélagsins
skrifuðu útvarpsráði bréf eftir að
þátturinn hafði verið sendur út. í
bréfinu var farið hörðum orðum um
þáttinn sjálfan og um Gunnar
Bjarnason og mælst til þess við ráðið
að það rannsakaði gerð hans og
ályktaði um málið.
Starfsmennirnir fullyrtu í bréfinu
að Gunnar hefði farið með ellióra í
þættinum, vanvirt minningu látinna
heiðursmanna og það sæmdi ekki
Sjónvarpinu að stuðla að útbreiðslu
fordóma og óhróðurs um bændur og
þá sem starfað hafa í þágu landbún-
aðarins, lífs og liðna.
Ólína Þorvarðardóttir stjórnandi
þáttarins tók saman greinargerð um
þáttinn fyrir fund útvarpsráðs og
eftir að hafa kynnt sér hana urðu
útvarpsráðsmenn sammála um ekki
væri ástæða til að gera athugasemdir
við efnistök í þættinum. -sá
Þjóöleikhúsinu lokað vegna viðgerða í febrúar n.k. Leikstarfsemi
heldur áfram annars staðar og leikarar og sviðsfólk áfram í starfi:
Sextíu fara í
launalaust f rí
Þrefalt í
lottó og
getraunum
Um helgina verður þrefaldur
pottur bæði í lottói og getraun-
um. Spáð er að heildarvinnings-
upphæð í lottói verði 12-13 millj-
ónir. Hæst hefur upphæðin orðið
14,6 milljónir. í getraunum eru
horfur á að vinningsupphæðin
verði í kringum fjórar milljónir.
_________________-EÓ
Borgarafundur
á Hótel Borg
Borgarskipulag Reykjavíkur efnir
til borgarafundar á Hótel Borg mið-
vikudaginn 6. desember 1989 kl.
20.00. Á fundinum verða kynnt drög
að hverfaskipulagi fyrir borgarhluta
1. gamla bæinn, þ.e. svæðið vestan
Snorrabrautar og norðan Hring-
brautar.
Óskað er eftir athugasemdum og
ábendingum íbúa viðkomandi borg-
arhluta við skipulagið. -ABO
„Þjóðleikhúsinu verður lokað
vegna viðgerða í endaðan febrúar og
vegna þess hefur verið gert sam-
komulag við það fólk sem missir
vinnuaðstöðu vegna viðgerðanna að
það taki launalaust leyfi meðan við-
gerðir fara fram,“ segir Gísli Al-
freðsson Þjóðleikhússtjóri.
Það fólk sem fer í launalaust leyfi
nú er að stærstum hluta tímavinnu-
fólk sem ekki er á launum þegar
leikhúsið er lokað vegna sumarleyfa.
Um er að ræða um sextíu manns;
starfsfólk mötuneytisins, Þjóðleik-
húskjallarans, ræstingafólk, fólk
sem vinnur í fatageymslu og vísar til
sætis í leikhúsinu.
Þjóðleikhússtjóri sagði að leikarar
og annað starfsfólk leikhússins
myndi starfa áfram enda legðist
leikstarfsemi ekki niður heldur héldi
áfram á litla sviðinu, farið yrði í
leikferðir um landið og sýnt yrði
sennilega í húsi íslensku óperunnar
í Gamla bíói. Jafnframt væri ætlunin
að opna með glæsibrag í endurbættri
Þjóðleikhúsbyggingu og æfingar fyr-
ir þann atburð væru þegar ákveðnar.
Þjóðleikhússtjóri sagði að endur-
nýja ætti öll lagnakerfi í húsinu sem
væru orðin ónýt og væri það stærsti
þátturinn í endurbótunum. Meining-
in væri síðan að nota tækifærið í
leiðinni og endurhanna áhorfenda-
salinn þannig að aðstaða áhorfenda
yrði til muna betri enda myndi
sætum jafnframt fækka eitthvað.
Þjóðleikhússtjóri sagði langt frá
því að með breytingum á áhorfenda-
salnum ætti að elta einhverja tíma-
bundna tísku í gerð leikhúsa. Tilhög-
un hússins nú væri með sama sniði
og leikhús Grikkja og þeir gallar
sem ætlunin væri að lagfæra hefðu
þegar verið ljósir fyrir fjörutíu árum.
Vonast er til að Þjóðleikhúskjall-
arann verði hægt að opna aftur
tveim mánuðum eftir að viðgerðir
hefjast en að öðru leyti verður húsið
lokað um tíu mánaða skeið.
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra sagði þegar hann var inntur
eftir breytingum á innviðum Þjóð-
leikhússins að ákvörðun yrði tekin
um þær fyrir jól en hann hefði farið
rækilega yfir málið með húsameist-
ara ríkisins og byggingamefnd
hússins. -sá
Söngvarinn Jóhann Már og undir-
leikarinn Lára Rafnsdóttir.
Efværiég
söngvari
Út er komin ný hljómplata sem
ber nafnið „Ef væri ég söngvari".
Þar syngur Jóhann Már Jóhannsson
bóndi í Keflavík Skagafirði við
undirleik Láru Rafnsdóttur 18
sönglög. Nokkur þessara laga hafa
komið út á plötu áður, en flest eru
þau að koma út nú í fyrsta sinn.
Áður hefur Jóhann sent frá sér
plötuna „Bóndinn" og hlaut hún
mjög góðar viðtökur.
Jóhann Már hefur verið bóndi
síðustu 17 árin en alltaf haft sönginn
sem nokkurskonar aukabúgrein.
söngferill Jóhanns hófst í karlakórn-
um Geysi á Akureyri og síðar í
karlakór Bólstaðarhlíðar og þá í
karlakómum Heimi Skagafirði. En
nú hin seinni ár hefur Jóhann Már
eingöngu sungið sem einsöngvari á
tónleikum og öðrum samkomum
víða um land. Raddblær Jóhanns
Más þykir minna mjög á rödd föður
hans Jóhanns Konráðssonar Akur-
eyri og segja má að Jóhann Már
njóti sín einkar vel í þessum íslensku
alþýðulögum sem á plötunni eru.
Jóhann annast sjálfur útgáfu og
dreifingu plötunnar.
Mjölframleiðendur gera sér vonir um
að loðnan leynist á vestursvæðinu:
Gef um ekki
upp vonina
„Það er erfitt að dæma um það
hvernig horfir enn sem komið er. Ég
held að menn séu almennt á því að
gefa ekki upp alla von,“ sagði Jón
Ólafsson framkvæmdastjóri Félags
íslenskra fiskmjölsframleiðenda í
samtali við Tímann, aðspurður
hvernig þeim litist á frumniðurstöð-
ur loðnuleitar Hafrannsóknastofn-
unar.
Jón sagði að menn gerðu sér vonir
um að loðnan leyndist á vestursvæð-
inu, þar sem þess væru dæmi að hún
hafi hagað sér svona áður. „Það er
það eina sem við getum gert í
stöðunni. Ef við förum að gefa upp
alla von núna, þá þýðir það ósköpin
öll,“ sagði Jón.
Eru þetta einhver merki um að
vertíðin verði styttri í ár og ekki
verði hægt að veiða þau 900.000
tonn sem kvótinn segir til um? „Það
er ekkert hægt að segja um það á
þessari stundu. Fari hún að veiðast
bráðlega þá getum við alveg klárað
kvótann og þó meira væri,“ sagði
Jón.
Hver vika sem líður styttir hins
vegar hina hefðbundnu vertíð þar
sem náttúru loðnunnar verður ekki
frestað, en hrygningartími hennar
hefst í byrjun apríl og veiðar þar
með úr sögunni.
Ef svo vildi til að loðnan væri ekki
á vestursvæðinu sem ókannað er,
hver er þá staða verksmiðjanna?
„Þetta hefur svo sem riðið yfir áður,
í upphafi áratugarins. Menn komust
nú frá því, þó svo að það væri þungt
högg, en hins vegar er staða iðnaðar-
ins í dag öllu erfiðari en þá var,“
sagði Jón. Hann sagðist telja að
verksmiðjurnar hafi almennt verið
betur undir það áfall búnar þá heldur
en núna, því þær hafa ekki búið við
of góða afkomu þennan áratuginn til
að mæta svona löguðu. „Ég þori
engu að spá og vil eiginlega ekki
leyfa mér einu sinni að hugsa svo
langt,“ sagði Jón. En ef niðurstaðan
yrði sú að loðnan gæfi sig ekki, sagði
Jón að það yrði voðalegt. -ABÓ
Tímamynd: Ámi Bjama
1. des. hátíð stúdenta
Stúdentar við Háskóla íslands
héldu fullveldisdaginn 1. desember
hátíðlegan sem fyrr með veglegri
dagskrá sem stóð allan daginn. Há-
tíðarsamkoma var í Háskólabíói síð-
degis og flutti Sigmundur Guð-
bjarnason rektor ávarp auk þess sem
Thor Vilhjálmsson rithöfundur flutti
annál 1. desember undir yfirskrift-
inni: Menntamenn þá og nú.
Um morguninn lagði Jónas Frið-
rik Jónsson formaður stúdentaráðs
blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar
í kirkjugarðinum við Suðurgötu.
Síðdegis var haldið málþing í Odda,
þar sem umræðuefnið var „Er
menntun of dýr?“ Hátíðarhöldunum
lauk með því að stiginn var dans.