Tíminn - 02.12.1989, Page 18
30 Tíminn
Laugardagur 2. desember 1989
llllllllllllllllllllllllllll BÓKMENNTIR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll ....llllllllllllllllllllllllllllll ........I.............III
KAIIPSTAÐUR
/MIKUG4RDUR
ÍMJÓDD OG EDDUFELLI MARKAÐUR VID SUND ■ VESJURÍBÆ
ENGIHJALLA ■ MÐVANGI
vældu í heimskunnar kór / vertu þar
staddur sem drepið er góðleikans
fræ / öskraði lygina all the way to the
sky / úrþvíað smásálin verður í
fjöldanum stór.“
Andstæða hirtingar- og háðkvæð-
anna eru lýrisk ljóð, náttúrustemmn-
ingar (núitasöngvar), tvær sonnett-
ur, frelsi I og II, en þar er snilldar-
lega farið með þversagnir: „þitt
frelsi það var fangaklefans ró / en
freistingin þín staðfesta og því / var
sál þín eins og barn í berjamó / og
bið þín líkust ferðalagi í / veröld þar
sem alt er altaf nýtt / engu verður
nokkurntíma breytt / tíminn líður
einsog ekkineitt / og enginn getur
fortíðina sýtt / en framtíðin er for-
kastanlegt dót / og fegurðin svo
dásamlega ljót.“
Svipmyndir daganna, fílósófískar
íhuganir, sjálfsháð og skens blandast
í „13 janúardagar 1986“. í „Eybúa-
sögu“ segir frá ey úti í hafi og mótun
þeirra sem tóku sér þar bólfestu og
þó ekki, eybúanum sem „aldrei
ratar heim / nema umhverfis
hnöttinn.“
Tilfmningaleg fjölbreytni er ein-
Siglaugur Brynleifsson:
Gaman og alvara
Þorgeir Þorgeirsson: 70 kvæði
(1958-1988). Leshús 1989.
Þorgeir Þorgeirsson er kunnur
fyrir skáldsögur, leikrit, ritgerðir,
greinar og þýðingar. Höfuðeinkenni
hans sem rithöfundar eru vand-
virkni, næmur smekkur á mál og
máltón og þar með mjög persónuleg-
ur stíll sem fáum er gefinn.
Þótt ÞÞ sé einkum þekktur sem
prósahöfundur er hann einnig ljóð-
skáld og sérstætt skáld að því leyti
að kvæði hans eru mjög sundurleit.
Efnisþanið er einstakt.
í þessu vali eru gamankvæði,
háðsk ádeilukvæði, beinskeyttar út-
listanir á falsi, lygi og sýndar-
mennsku. ÞÞ tekst að yrkja
skemmtilega um leiðinlegustu og
hvimleiðustu fyrirbrigði samfélags-
ins, svo sem hátíðlega kontórista og
andrúmsloft hræsninnar í velferðar-
blaðrinu (ráðuneyti og velferð) og
ekki má gleyma umfjöllun um for-
sjónarskarann (blaðafregnir).
Meðal beinskeyttustu kvæðanna
er „Reykjavík" en þar eru m.a.
þessar línur: „en verslaðu, steldu og
kenni þessa ljóðaúrvals, merkingin
fer ekki milli mála. Það eru furðu-
mörg góð skáld yrkjandi nú á
dögum, en eins og eðlilegt er þá er
enn fjölmennari sá hópur sem hlotið
hefur fulldrjúgan skáldfíflahlutinn
og yrkir að því er virðist samkvæmt
tískukröfum „nýju gagnrýninnar" og
„krufningarkenningum" bók-
menntafræðinga sem þrælbundnastir
eru kreddukenningum um þýðingar-
leysi textans í prósa og póesíu. En
samkvæmt þeim kenningum er text-
inn ekkert en útskýring og útlistun
bókmenntafræðinnar allt. Krufning
og skýring eru því hinar eiginlegu
bókmenntir, ekki ljóðið eða sagan.
Allir þeir sem hafa skemmtun og
unun af að lesa vel ort, hnyttin og
lýrísk ljóð ættu að afla sér þessarar
bókar - því að hún er í senn
skemmtilegur, frumlegurog vandað-
ur texti og íslenskur kveðskapur.
UTLA BLODSUGAN LEGG-
UR LAND UNDIR FÓT
Þjóðræknisfélag íslands fimmtíu ára:
Afmælisins minnst
á Hótel Borg með
hátíðarfundi
í gær, föstudaginn 1. desember,
voru liðin fimmtíu ár frá stofnun
Þjóðræknifélags íslendinga og af því
tilefni efnir stjórn félagsins til sér-
staks hátíðafundar þann 3. desem-
ber. Hann er haldinn á Hótel Borg
og hefst klukkan 16 stundvíslega.
Heiðursgestur verður forseti
íslands, Vigdís Finnbogadóttir og
biskupinn yfir íslandi, herra Ólafur
Skúlason, flytur ávarp.
Saga Þjóðræknifélagins verður
rakin á fundinum í stórum dráttum,
Nú er þriðja bókin um litlu vam-
píruna eftir Angelu Sommer-Boden-
burg komin út. Henni verður eflaust
allt frá því er alþingismennirnir Jón-
as Jónsson frá Hriflu, Ásgeir Ás-
geirsson, síðar forseti íslands og
Tlior Thors beittu sér fyrir stofnun
félagsins, en einmitt þeir þrír sátu í
fyrstu stjórn þess.
Á fundinum verður greint frá
framtíðaráformum félagsins og nýj-
um viðhorfum til þjóðræknismála.
Kaffiveitingar verða fram bornar
og á undan leikur Lúðrasveit
Reykjavíkur.
vel tekið af fyrri lesendum og einnig
þeim sem höfðu ánægju af því að
horfa á sjónvarpsþættina um litlu
vampíruna síðastliðinn vetur.
Hér eru Anton mennskur strákur
og Runólfur blóðsugustrákur aðal-
söguhetjurnar. Samskipti þessara
tveggja ólíku vina er ekki þrautalaus
og nokkuð fyndinn á köflum. Því
foreldrar Antons trúa alls ekki á
blóðsugur og Anton lifir í stöðugum
ótta við það að einhver af blóðsugun-
um í fjölskylduhópi Rúdólfs gleymi
sér óvart og fái sér sopa úr honum.
í þetta sinn ber bókin titilinn
„Litla vampíran á ferðalagi" og eins
nafnið gefur greinilega til kynna þá
fjallar hún um ferðalag sem stendur
til að Anton fari með foreldrum
sfnum. Antoni líst ekki meira en svo
á þessa hugmynd foreldra sinna og
fær Rúdolf til að koma líka. Undir-
búningur ferðarinnar er hið versta
vandræðamál, því Runólfur verður
að taka líkkistuna sína með.
Þessi bók er hin ágætasta afþrey-
ing, en þó eru samskipti Antons við
foreldra sína og annað fullorðið fólk
nokkuð einhæf og neikvæð Ef allt
fullorðið fólk er svona leiðinlegt og
vitlaust, verða börnin sem það elur
upp eitthvað skárri? Litla blóðsugan
er þýdd á tslensku af Jórunni Sigurð-
ar og gefin út af bókaútgáfunni
Nálinni. -HM
200 'g
T»- tWIXKJW QG t BMSIURIHH
EFNAGERÐIN
AKUREYRI
SÍMI 96-21400
T/OfiJ ER FYRIRTAK
FLÓRU KAKÓ
VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI
BÖRNIN SVNÖJA
JÓIALÖG
; • M-. ° . o .
Æý '■■■■■< '0%
.***'•• 2 s %
Börnin syngja
Bókaútgáfan Setberg hefur
sent frá sér Börnin syngja jólalög.
Þessi fallega og vinsæla bók er nú
komin aftur en hún hefur verið
ófáanleg um nokkurn tíma.
Þetta er jólasöngbók með
nótum og hér er að finna 18
alþekktjólalög og sálma, svo sem
Göngum við í kringum, Adam átti
syni sjö, Ég sá mömmu kyssa
jólasvein, Gekk ég yfir sjó og land,
Nú er Gunna á nýju skónum,
Heims um ból, í Betlehem er barn
oss fætt og fleiri sálma og söngva
sem sungnir eru á jólunum. Lögin
eru öll skrifuð og hljómsett á
einfaldan hátt. Bókina prýða
stórar og fallegar litmyndir. Ólafur
Gaukur valdi lögin.