Tíminn - 08.12.1989, Qupperneq 3
Föstudagur 8. desember 1989
Tíminn 3
Hestaskeifur sem hæfa Sleipni. Nýjung hérlendis:
Skiptanlegur sóli og
demparar á hrosshófa
„Skeifurnar draga úr höggkraftinum sem leiðir upp eftir
leggjum hestanna um allt að 80 af hundraði. Þetta hefur
verið staðreynt með titringsmælum. Sleipnisskeifurnar
hafa verið þrautreyndar í Danmörku um tíu ára skeið og
nú er byrjað að selja þær um
K. Eyjólfsson.
Nú er fáanleg á íslandi ný gerð
af hestaskeifum sem kenndar eru
við reiðhest Óðins, Sleipni. Skeifur
þessar eru í tvennu lagi og er
svokölluð grunnskeifa úr ryðfríu
stáli sem er negld á hófa hestanna
á svipaðan hátt og um venjulegar
skeifur væri að ræða.
Við grunnskeifuna er því næst
fest slitsóla með þar til gerðri töng
og er það tiltölulega auðvelt. Slit-
sólinn er gerður úr úreþani og það
, er hann sem gleypir högg og titring
en það er afar mikilvægt fyrir hesta
ekki síður en menn, sem t.d. setja
á fætur sér rándýra eróbikkskó til
að hlífa liðum sínum. Höggdey-
fingin er mjög mikilvæg, enda eru
liðaskemmdir all tíðar í hestum,
einkum keppnishestum. Fáanlegar
eru margar gerðir slitsóla með
ýmsu mynstri sem hvert hæfir sér-
tækri notkun hestsins, m.a. eru til
slitsólar með skaflajárnum.
Sjálf grunnskeifan er úr ryðfríu
stáli eins og fyrr segir. Hún slitnar
mun minna en venjulegar skeifur
og að sjálfsögðu mun minna en
sjálfur slitsólinn og í Danmörku
hefur reynslan sýnt, að sögn
Ágústs, að sömu grunnskeifur hafa
verið notaðar æ ofan í æ, jáma-
tímabil eftir jámatímabil. Þá sagði
hann að slitsólinn tolldi ömgglega
við gmnnskeifuna og sárafá dæmi
væru þess að slitsólarnir losnuðu
frá henni. Um hann er auðvelt að
alla veröldina,“ sagði Ágúst
skipta og getur hvaða hestamaður
sem er gert það.
Söluumboð Sleipnisskeifanna,
Sleipnir sport ísland h.f. í Kópa-
vogi, heldur um þessar mundir
námskeið í járnun og meðhöndlun
skeifanna og ætlunin er að halda
fleiri síðar.
Sleipnisskeifurnar em kenndar
við Sleipni, hest Óðins, sem var
allra hesta bestur og fór jafnt yfir
um láð, lög og loft, enda áttfættur.
Sleipnir var sonur Loka, hins flá-
ráða áss og Svaðilfara sem var
hestur jötuns þess sem byggði virk-
isgarð kring um Valhöll.
Garðsmiðurinn vildi fá Freyju
að verklaunum fyrir virkisgarðinn,
en auk hennar sól og mána, lyki
hann byggingunni innan tilskilins
tíma. Jötninum vannst verkið vel
enda dró Svaðilfari saman grjót í
garðinn á nóttunni sem jötuninn
hlóð upp um daga. Ásum leist því
ekki á blikuna og sáu fram á að
þurfa að greiða verkalaunin sem
þeir höfðu lítinn áhuga á.
í*á breytti Loki sér í meri sem
hafði þau áhrif á Svaðilfara að
hann sleit sig lausan og rann á eftir
Loka í merarlíki. Við það tókst
smiðnum ekki að ljúka verkinu og
varð við það svo reiður að í ljós
kom að hann var jötunn. Þá drap
Þór hann en Loki fæddi Sleipni í
fyllingu tímans. - sá
Hilmar Æ. Þórarinsson og Ágúst K. Eyjólfsson eru umboðsmenn
Sleipnisskeifanna á íslandi. Skeifurnar eru úr ryðfríu stáli en slitsólinn úr
úreþani sem dregur mjög úr áraun á liðamót hestsins. Sett af Sleipnisskeif-
um kostar um fimm þúsund kall gangurínn en sjálf grunnskeifan slitnar
mjög lítið og endist miklu lengur en venjulegar skeifur. Slitsólamir em á
hóflegu verði. Ttmamynd; Árnl Bjarna.
Hjónin Jóhanna Guðmundsdóttir og
Guðjón Pétursson.
Styrktarfélag
vangefinna:
Stórgjöf
frá
hjónum
Hinn 19. október síðastliðinn tók
Styrktarfélag vangefinna við arfi eft-
ir hjónin Jóhönnu Guðmundsdóttur
f. 16. janúar 1897, að Þjóðólfshaga
Holtum, d. 24. nóvember 1970 og
Guðjón Pétursson f. 20. september
1902, á Stóru-Vatnsleysuströnd á
Vatnsleysuströnd, d. 20. júlí 1989.
Þau gengu í hjónaband 19. maí 1928.
Jóhanna og Guðjón áttu enga
skylduerfingja og höfðu með arf-
leiðsluskrá, er gerð var árið 1970,
ákveðið að allar eigur þeirra skyldu
renna til Styrktarfélags vangefinna,
er notaði þær eða andvirði þeirra í
þágu starfsemi sinnar eins og segir í
arfleiðsluskránni. Meðal þess sem
féll í hlut félagsins er einbýlishús að
Þykkvabæ 1 í Reykjavík auk tæplega
800 þúsund króna í bankabókum.
í kaffisamsæti sem Styrktarfélagið
hélt nokkrum nánum vinum og ætti-
ngjum hjónanna af þessu tilefni
lofaði Magnús Kristinsson formaður
Styrktarfélagsins höfðingsskap þess-
ara heiðurshjóna og kvað gjöfina
mikla lyftistöng fyrir félagið.
Undirskriftum safnað á Selfossi:
Vilja ráðhús í
kaupfélagshúsið
Frá fréttarltara Tímans á Selfossi, Siguröi
Boga Sævarssyni:
Síðastliðinn sunnudag afhenti
Kristján Einarsson á Selfossi, Karli
Bjömssyni bæjarstjóra undirskrift-
arlista, þar sem þess er farið á leit
við bæjaryfirvöld að þau geri gamla
kaupfélagshúsið að ráðhúsi bæjar-
ins. í kring um 900 manns skrifuðu
sig á listana og hefur nokkur
stemmning ríkt í bænum vegna
þeirra.
Selfossbær og Samband sunn-
lenskra sveitarfélaga keyptu í sam-
einingu gamla kaupfélagshúsið á
Selfossi á síðasta ári og hefur KÁ nú
flutt alla starfsemi sína úr húsinu.
Hugmyndin er sú að hluti kjaliara og
jarðhæð verði notuð fyrir starfsemi
bæjar og héraðsbókasafnsins. Skrif-
stofur SASS verði á annarri hæð, en
rishæð verði svo til sameiginlegra
nota.
Á síðustu ámm hefur bókasafnið
verið í nokkmm húsnæðisskorti, sér-
staklega eftir að því barst bókagjöf
sr. Eiríks heitins Eiríkssonar sem
taldi um 30 þúsund bindi. Kristján
Einarsson skrifaði hins vegar nýlega
grein í eitt héraðsblaðanna, þar sem
hann hvatti til að fallið yrði frá þeim
hugmyndum um að bókasafnið fengi
þama inni, en þess í stað yrðu
bæjarskrifstofumar fluttar í húsið og
bókasafnsmál yrðu þá leyst með
öðmm hætti. í kjölfar greinarinnar
fóm af stað fyrmefndir undirskrift-
arlistar þar sem skorað er á bæjar-
stjóm að skoða þessa hugmynd og
gaumgæfa til hlítar.
bókarinnar. Tímamynd Árni Bjarna.
Iðntæknistofnun og íslandsbanki sameinast um bókaútgáfu:
Handbók atvinnulífsins
Iðntæknistofnun íslands og ís-
landsbanki hafa gefið út bókin, f
mörg horn að líta - Handbók at-
vinnulífsins. Bókinni er ætlað að
verða hjálpartæki fyrir stjómendur
og aðra þá sem áhuga hafa á stjórnun
og rekstri fyrirtækja, að sögn Páls
Kr. Pálssonar forstjóra Iðntækni-
stofnunar.
Fyrsti hluti bókarinnar er dagbók
fyrir árin 1990 og 1991. í öðrum
hlutanum em 17 sjálfstæðar greinar,
sem skrifaðar eru af aðilum sem hafa
yfirgripsmikla þekkingu á viðfangs-
efnum sem tengjast stjórnun og
rekstri. Þriðji hluti bókarinnar nefn-
ist Léttu þér leitina. En þar er að
finna upplýsingar um helstu aðila
atvinnulífsins, stofnanir og þjón-
ustuaðila, upplýsingar um inn- og
útflutning, fjölmiðla. Þá er einnig að
finna eyðublöð fyrir áætlanagerð.
Páll Kr. sagði að ástæðan fyrir
útgáfu bókarinnar væri sú að mikil
þörf væri fyrir slík handbók, enda
ekki til neitt aðgengilegt rit til á
íslenska markaðinum sem fjallaði
um stjórnunarleg, tæknileg og mark-
aðsleg atriði í rekstri. - ABÓ
Lýðræðið sigrar
Á fundi miðstjórnar Sambands ungra framsóknarmanna föstudag-
inn 24. nóvember síðast liðinn var samþykkt eftirfarandi ályktun:
„Hin öra þróun síðustu vikna í Austur-Evrópu frá þrengingum
forræðisins tU svigrúms lýðræðisins ber þess vitni að beint samband
er milli lýðræðis og mannréttinda.
Mannréttindi verða aldrei fótum troðin nema um stundarsakir. Hin
frelsisþráandi lýður mun ávallt að lokum standa upp og svipta af sér
fjötrum ófrelsisins. Það er nú að gerast í Austur-Evrópu.
Miðstjórn Sambands ungra framsóknarmanna stendur heilshugar
með umbótaöflunum sem þar standa í lýðræðisbaráttu, sendir þeim
baráttukveðjur og vonar að sigurinn verði þeirra að lokum.“